Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 5
ifókus Vikan 15. september til 21. september 1 1 f- 1 6 e f t LR V I N N U H f kvöld verður frumsýndur í Reykjavík og á Akureyri framtíðar- teiknitryllirinn Titan AE. Myndin er sýnd bæði með enskri og íslenskri talsetn- ingu og því er hægt að sjá hinn frækna Cale bjarga heiminum frá ragnarök- um, bæði á ástkæra ylhýra og á engil- saxnesku tungunni sem er að tröllríða öllu á þessum síðustu og verstu tímum, Hilmir Snær er Cale og Þórunn Lár- usdóttir Akima. Teiknifígúr an Cale bjargar heiminum Teiknimyndin Titan AE verður frumsýnd í kvöld í Regnboganum, Sambíóunum, Álfabakka, og Borgarbíói á Akureyri. Tvær útgáfur eru á myndinni, ein með íslensku tali og svo upprunalegu útgáf- una með ensku tali. Báðar út- gáfurnar verða sýndar í Reykjavík en aðeins sú ís- lenska á Akureyri. Leyndarmál Titans Titan er mynd í anda Star Wars og gerist eftir eyðingu jarðar árið 3028. Eins og í sígildum ævintýr um og töfraformúlum er baráttan milli góðs og ills. Aðal- söguhetjan Cale verður, ásamt vini sínum og snoppu- fríðri vinkonu eins og gefur að skilja, að bjarga heiminum og berjast gegn hin- um hræðilegu Drej geimverum. Kapphlaupið stendur um móður- skipið Titan sem geymir leyndarmálið sem bjargar heiminum úr klóm hinna illræmdu Dreja. Cale er þarna eina von mannkyns og kapphlaupið tek- ur á sig ýmsar myndir. DNA- samsetningin í Cale spilar víst stóra rullu en í geimskipinu Titan eru einmitt geymd erfða- mengi manna. Athyglisvert nokk. AE í heiti myndarinnar stendur fyrir After Earth. Hilmir Cale og Þórunn Barrymore Hilmir Snær Guðnason er hinn íslenski Cale og sá enski er Matt Damon. Hin hugrakka og fagra Akima er Þórunn Lárusdóttir annars vegar og Drew Barrymore hins vegar. Vinurinn er svo hinn sjóaði og ráðagóði Korso og það eru Pálmi Gestsson og Bill Pullman sem ljá honum raddir sínar. Þess má geta að hingað til lands kom sérlegur fulltrúi 20th Century Fox til að hafa yfirumsjón með íslensku tal- setningunni í Stúdíó Sýrlandi. Hann hefur unnið að talsetn- ingum á ýmsum stórmyndum fyrir Fox þannig að islenska talsetningin með úrvalsleikur- um ætti ekki að vera neitt slor. Með önnur hlutverk fara Laddi, Hjálmar Hjálmarsson, Theódór Júliusson, Egill Ólafsson, Karl Ágúst Úlfsson, Magnús Ólafsson, Valdimar Örn Flygering, Stef- án Karl Stefáns- son, Ólafur Darri Ólafsson o.fl. Myndin er sérlega vel teiknuð og voru myndir frá Hubbel s t j ö r n u - sjónaukanum innblástur fyrir teiknar- ana. í mynd- inni, sem lengi hefur verið beðið eftir, má sjá ein- stakar tölvubrellur og nýja tölvugrafík. Gamlar Dis- neykempur Handritshöfundur er Joss Whedon sem skrifaði m.a. Toy Story og Alien Resurrection. Leikstjórar erlendu útgáfunnar eru Don Bluth og Gary Goldm- an sem gerðu m.a. Svana- prinsessuna og Anastasíu. Báð- ir eru fyrrum starfmenn Disn- ey-fyrirtækisins og hafa gert fjöldann allan af teiknimynd- um. Um leikstjórn íslensku tal- setningarinnar sá Þórhallur Sigurðsson. Þó hér sé ekki venjuleg Disneymynd á ferð- inni heldur öllu meiri hasar og hugmyndafiug verður enginn svikinn af Titan AE. FYRSTAVETRARSENDINGIN KÁPURJAKKARBUXURPEYSURBOLIRFYLGIHLUTIR TOPSHOP I TOPMAN Lækjargata 2 / Sími: 561 -6500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.