Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Page 9
Einhvers staðar með strönd Englands liggur lítið sjávarþorp sem kallast Eastbourne og þaðan er hljómsveitin Toploader ættuð. Fyrsta plata hennar, Onka’s Big Moka, barst nýlega til landsins og kannaði Kristján Már Ólafsson hvað byggi í strákunum. Þessi fmim manna sveit er orð- in til sem tilbreyting í grámygluð- um hversdagsleikanum eins og svo margar aðrar. Lungi liðs- manna varði löngum stundum á börum ellilífeyrisþegabælisins sem kallast heimabær þeirra áður en ákveðið var að brydda upp á tilbreytingu. Það voru þeir Rob Green trommari, Dan Hipgrave gítarleikari, Matt Knight bassa- leikari og Joseph Washbomme hljómborðsleikari sem leigðu skúrinn og hófu að æfa lög þess siðastnefnda. Gítarleikarinn Juli- an Deane villtist síðan inn í East- boume fyrir tilviljun og fyrir ein- hverja galdra var hann allt í einu kominn um borð og orðinn eins og aldagamall vinur strákanna. Þeir veltu því fyrir sér mn stund að taka inn söngvara en á endanum varð niðurstaðan sú að Joseph gæti vel valdið starfinu og hefði auk þess útlitið með sér. Það að mamma hans þekkti David Bowie á meðan hann kallaði sig ennþá David Jones og var að reyna að meika það á saxann þótti þeim heldur ekki verra. Kannabiskettir Eitt af því sem Eastboume pilt- amir höfðu fyrir stafni áður en bandið kom til var neysla mari- júcina og kom sú reynsla að góðum notum þegar kom að því að finna nafnið. Möguleikum á borð við Bloodbath og Human Spider skaut upp áður en, sem betur fer, þeir sættust á Toploader. Það hugtak hafði orðið til utan um þann ávana Joseph að setja alltaf lungann af grasinu fremst í jónurnar. Þeir spiluðu hvar sem þeir komust að og ekki leið á löngu þar til S2, undirfyrirtæki Sony, bauð þeim samning og undir lok árs ‘98 voru þeir orðnir hamingjusamlega giftir. Paul Weller sá þá spila og bauð þeim strax að hita upp fyrir sig á tónleikaferð og þar stigu þeir á stokk i kjölfar Noel Gallagher. Árið leið hratt og piltarnir fikruðu sig hægt og örugglega inn í vitund alþýðunnar með mikilli spila- mennsku og útgáfu eins og tveggja smáskífa. Eins og hvað er þetta? Hvað tónlistina sjálfa varðar þá hefur piltunum verið líkt við jafn ólíka aðila og Stevie Wonder (og Jamiroquai), Stones og Supertramp. Eins hefur söngrödd Joseph verið líkt við rödd Steven Tyler, forsprakka Aerosmith, og hreint ekki að ósekju. Pressan átti í erfiðleikum með að flokka þá en hljómborðsrokk er hug- tak sem skaut eitthvað upp kollinum í kringum þá án þess að festast og retró stimpillinn var tekinn upp því þeir sækja talsvert aftur til sjöunda áratugsins i áherslum. NME vildu meina að þeir næðu, ólíkt Gay Dad, að skila gleðinni á tónleikum og setti sveitirnar tvær dálítið undir sama hatt, án þess að beinlínis sé hægt að líkja þeim saman í efnistök- um. Það er meira þá að þær starfi á sama tempói og hafi báðar léttleik- ann að leiðarljósi. Hvað svo sem þetta kallaðist þá líkaði almenningi svo vel að ráðist var í gerð breið- skífu. Onka’s Big Monka í maí á þessu ári kom svo fyrsta breiðskífan í fullri lengd og hlaut hún nafnið Onka’s Big Monka, en það er tekið úr heimildamynd um frumbyggja Nýju Gíneu. Innihaldið er fjölbreytt flóra tónlistar, allt frá drífandi blúsrokk stemmum til strengjahlaðinna ballaða. Að sögn meðlima var vonin um að gera plötu sem yrði enn töff 20 árum síðar að leiðarljósi, og þegar upp er staðið vilja þeir meina að það hafi tekist. Sumrinu hefur siðan verið varið í spilerí á öllum helstu tónlistarhátíð- um álfunnar auk 30 daga tónleika- ferðar til stuðnings Bon Jovi. Þetta hefur gert sitt til þess að festa Toploader í sessi og útlit er fyrir að við eigum eftir að heyra meira af þessari sveit i nánustu framtíð. Nafnið Toploader er til komiö vegna ávana Josephs að setja alltaf lungann af grasinu fremst í jónurnar. Hvað eiga Billy Corgan, Dave Grohl, Henry Rollins og lan Astbury sameiginlegt nú um daga. Jú, þessir kumpánar eiga það sameig- inlegt að hafa gengið í lið með gamla gítar- hundinum Tony lommi úr Black Sabbath á nýrri sólóplötu hans, lommi, sem gefin verður út um miðjan október. lommi er mörgum kunnur tyrir framlag sitt í þekktum lögum Sabbath eins og Paranoid og því ekki skritið að þessi nöfn hafi slegist í hópinn en þar með er ekki öll sagan sögð. Á plötunni endur- nýjar Tony einnig kynnin við gamla félagann Ozzy Osbourne auk þess sem nöfn eins og Skin úr Skunk Anansie, Peter Steele úr Type 0 Negative og Billy Idol koma að plötunni. Prímadonnan Elton John átti að halda tón- leika í síöstu viku í Estoril Casino í Lissa- bon í Portúgal. Hálftíma áður en tónleikarnir hófust leit goðið aðeins yfir salinn og tók eftir því að hann var hálf- j tómur. Kappinn var ekki ánægður með þetta þvi honum hefði verið sagt að það væri uppselt. Elton fór beinustu leið upp á flugvöll 1r þar sem einkaþotan beið hans og flaug með hann heim. Tónleikahaldarar voru náttúrlega hissa á athæfi stjörnunnar og sögöu ástæðu þess að svo fáir hefðu verið í salnum aö tón- leikagestimir, sem voru háttvirtir stjórnmála- menn, bankastjórar og ritsjórar, sætu að snæðingi í hátíðarsalnum við hliðina og máltíð- in hafði tafist aðeins. Tónleikahaldarar ætla að sjálfsögðu í mál við „flóttamanninn* og ekki voru tónleikagestir ánægöir að fá ekki að (lú)berja goðið augum fyrir upphæðina sem þeir borguðu inn. Eins og margir muna spilaði Elton hér á landi í byrjun sumars fyrir framan hálftóman Laugardalsvöll og virðist frægðarsól hans eitthvað vera að dvína. p1ötudómar hvaöf fyrir hvernf skemmtilegar staöreyndir ★★★ Rytjandi: MJ Cole Platan: SíflCere Útgefandi: Edel/Japis Lengd: 62:15 mín. MJ Cole er ein skærasta stjarnan í UK garage tónlistinni. Sincere er hans fyrsta plata. Hún var útnefnd til Mercury-verðlaunanna í ár og inni- heldur m.a. smellina „Sincere" og „Crazy Love", sem hafa verið töluvert spilaöir á fslenskum útvarpsstöðvum að undanförnu. Fyrir alla þá sem hafa gaman af soul-skotinni danstónlist og fyrir þá sem hafa áhuga á því að kynna sér UK garage-tónlistina, en hún var alls- ráðandi á breska danstónlistarmark- aðnum í sumar. Aðdáendur lagsins „Crazy Love" ættu líka endilega að hlusta á plötuna. MJ Cole heitir fullu nafni Matthew James Coleman og er 26 ára bresk- ur plötusnúður, pródúsent og klass- fskur píanóleikari. Hann er hálfgert undrabarn og er fyrrum drum & bass áhangandi. Það sama á við um Elisa- beth Troy, sem syngur í 6 laganna, þ.á.m. „Crazy Love" og „Sincere". ★ Fiytjandi: Mary Poppins piatan: Defeated Útgefandi: The Station Lengd: 41:13 mín. Mary Poppins er íslensk rokk- hljómsveit sem hefur á sínum snær- um Gunnar Bjarna Ragnarsson, fyrr- um gítarleikara Jet Black Joe sálugr- ar. Á Defeated lætur Gunnar Bjarni spilamennskuna eiga sig en sér þess í stað um allar tón- og textasmíðar sveitarinnar ásamt forsöngvara henn- ar, Snorra Snorrasyni. Tónsmíöar Mary Poppins kalla á sértækan smekk á rokktónlist. Jet Black Joe áhrif Gunnars Bjarna má finna vfða um plötuna en einnig mætti beita samlíkingum á borð viö Skid Row á valfum (Spaced) eða þá óvanaðir Bee Gees (Lay Down.) Ensk- an er allsráðandi i allri vinnu sveitar- innar þannig að stefnan virðist vera á útlandiö. Það er áhugavert f hversu ólíkar áttir JBJ hefur farið f tímans rás. Hér er Gunnar Bjarni, sem á sér þó sfna tónlistarsögu áður en Mary Poppins varö til (Jetz gæti hringt einhverjum bjöllum.) Frelsun Hr. Rósinkranz er á allra vitorði og ein af skemmtilegri rokksveitum landsins, Ensími, skart- ar tveim fýrrverandi Jet Black Joe meölimum. ★★ Rytjandi: Shirley Bassey piatan: Diamonds Are Forever...The Remix Album Útgefandi: EMI/Skífan Lengd: 51:01 mfn Þetta er plata meö remixum af nokkrum af þekktustu lögum velsku söngkonunnar Shirley Bassey, sem þekktust er fyrir James Bond-lögin „Goldfinger" og „Diamonds Are For- ever". Propellerheads, Kenny Dope, Groove Armada og DJ Spinna eru á meöal þeirra sem remixa. Aðdáendur Shirley Bassey eru án efa mjög margir. Þessi plata kemur f kjölfar þess að breska big beat dúó- ið Propellerheads fékk Bassey til að syngja með þeim iagið History Repeating. Þeir sem kunnu að meta það framtak ættu aö hlusta á plöt- una. Shirley Bassey er frægust fyrir röddina sfna, sem er einstök og dálít- iö dimm, næstum karlmannleg á köfl- um. Þegar rödd Bassey sameinast lagasmíöum og útsetningum John Barry, eins og t.d. f „Goldfinger", veröur útkoman ómótstæðileg. Nýja safnplatan með Bassey er væntan- leg f nóvember. ★★ Flytjandi: Ýmsar sveitir í yfirumsjón Kid Loco Platan: Kid Loco Presents Jesus Life for Children Under 12 Inches Útgefandi: Warner/Skífan. Lengd: 69:30. Þessi plata inniheldur endurhljóö- blandanir Frakkans Kid Loco á lögum hinna ýmsu flytjenda. Þeir eru meðal annars: The Pastels, Saint Etienne, Talvin Singh, Pulp og Mogwai. Hijómsveitirnar eru náttúrlega misleitar og hver þeirra kapftuli út af fyrir sig. Hins vegar dettur heildin ágætlega saman sem þægileg afslöþþunar (e. chill) plata. Þaö er eitthvað sem ég reiknaði ekki meö f upphafi, þessi ágæti heildarsvipur á svo mörgum og ólfkum flytjendum. ( Frakklandi er Kid Loco hjá East West, sama fyrirtæki og Bang Gang Barða Jóhannssonar er á mála hjá. Sem sannur félagi endurhljóðblandar strákbrjálæðingurinn tvö lög á franskri útgáfu You, fyrstu plötu Bang Gang, sem væntanleg er f lok októ- ber. niöurstaöa Þegar maður býst við miklu verður maður oft fýrir vonbrigðum. Bestu lögin á „Sincere" (t.d. „Crazy Love“ og „Band- elero Desperado") eru frábært danspopp. Sándiö sem MJ Cole nær fram er oft ótrúlega flott, en lögin eru misgóð. Ekki meistaraverk, en ágæt plata sem verðskuldar að á hana sé hlustað. trausti júlíusson Enskukunnátta sveitarinnar er ekki tæmandi. Það verður Ijóst þegar spáð er i framburð og textagerð. Einhver með næmt eyra fýrir gripandi laglínum var að störfum þegar Defeated var samin en hún virkar samt á mann sem hálfgeröur tímavillingur. Margt frjótt hingað og þangað, en heildin nær ekki að heilla mann. ðflugustu titlarnir: Magic og Defeated. hilmar örn óskarsson Þegar maöur hlustar á þessa plötu þá veltir maður því fyrir sér til hvers það sé verið aö gera svona plötur. Upprunalegu útgáfurnar eru bara svo mikið flottari. Away Team mixið af „Where Do I Begin" er að vísu ágætt, sem og Kenny Dope mixið af „Light My Rre," en restin bætir litlu við orginal- ana. trausti júlíusson Ég ætla ekki að halda því fram að ég þekki frumútgáfur allra laganna, það gef- ur náttúrlega augaleiö að þau eru misgóð frá hendi skapara sinna en hér standa lög The Pastels, The High Llamas, Kat Onoma og Mogwai upp úr þokkalegri heild. Rétt er að benda á að platan inni- heldur ekkert sem ógjörningur er aö hlusta á. kristján már ólafsson 22. september 2000 f Ó k U S 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.