Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2000, Blaðsíða 10
%
pörunaraðferðir í beinni
boðið að taka að sér þáttinn. „Svo
bentu svo margir á Mariko að hún
var kölluð á fund. Ég held þeim hafi
líka þótt spennandi að við erum
báðar japansk-íslenskar og við
erum ekki mörg á íslandi með þessa
blöndu. Frekar fyndið að hafa okk-
ur saman i einum þætti. Það er líka
svolítið skemmtilegt að kostunarað-
ili þáttarins er umboðsskrifstofan
sem flytur inn japönsku Kanebo
snyrtivörumar, sem við notum báð-
ar. Við viljum samt taka fram að
Kanebo hentar einnig hreinræktuð-
um.“
Aldraðir við skjáinn
Hugmyndin að þættinum er sí-
gild og þær Mariko og Dóra ættu
því að geta haldið því mikla áhorfi
sem þátturinn fékk hjá Krist-
björgu Karí og Laufeyju Brá. Það
er reyndar skondið, að sögn
Mariko, að áhorfið reyndist vera
jafnt í öllum aldurshópum. Djúpa
laugin átti upprunalega að vera
sumarþáttur en hann reyndist það
vinsæfl að ákveðið var að setja
hann aftur á dagskrá, endurskoða
og breyta. Þar koma Mariko og
Dóra til sögunnar...
Leikhússtemning
„Við Marikó erum búnar að gera
nokkrar breytingar. Ein þeirra er
sú að keppendumir þrir koma til
með að kynna sig sjálfir á mynd-
bandi. Svo verða líka allir þátttak-
endur á einu sviði,“ segir Dóra.
„Þannig að áhorfendur bæði
heima og í salnum geti fylgst með
allri skemmtuninni. Það verður þó
tjald á mifli,“ segir Mariko.
Þær treysta því að fólk sé ekkert
að svindla og reyna að kíkja á bak
við tjaldið. Þegar þátttakandinn er
búinn að taka ákvörðun og velja
þann sem fer á stefnumótið þá
munu þær draga tjaldið frá. Útlitið
á þættinum verður líka allt annað
því hann er ekki lengur sendur út
frá Astro heldur verður Djúpa
laugin í Þjóðleikhúskjallaranum.
„Við setjum þetta svolítið upp eins
og lítil leikrit," segir Dóra.
Með tökulið í rassinum
Önnur breyting er að þegar pörin
koma heim úr helgarferð taka þær
viðtöl við þau sitt í hvoru lagi strax
á mánudeginum og ræða hvernig
helgin tókst til. Þetta er svo sýnt í
þættinum auk ferðarinnar sjáifrar.
Þær Dóra og Mariko segjast líka
hafa tekið ákvörðun um að hver
keppandi fái sömu spumingu og að
engar þrautir verði lagðar fyrir þá.
„Svo ætlum við líka að gefa öllum
pakka. Við erum að bæta öðru við
og þurftum því að taka eitthvað út
svo þetta verði ekki tveggja tíma
þáttur,“ segir Dóra.
Til sextugs
Þær segja ekki erfitt að fá fólk til
liðs við sig. „Við erum þegar komn-
ar með þátttakendur í tvo fyrstu
þættina. Ég held að þegar fólk sér
hvað þetta er skemmtilegt þá eigi
eftir að fyllast hjá okkur pósthólf-
ið. Við erum líka opnar fyrir fólki á
öllmn aldri. Það er ekkert aldurs-
takmark, fólk um fertugt, fimmtugt
eða sextugt þess vegna. Þetta verð-
ur alls konar fólk á öllum aldri, en
þó á svipuðum aldri í það og það
skiptið." Þegar hér var komið sögu
tók viðtalið óvænta stefnu. Blaða-
manni svelgdist illilega á kaffinu
sínu þegar þær stöllur gengu á
hann og reyndu að fá hann í þátt-
inn. Allt kom fyrir ekki.
í þættinum í kvöld má sjá af-
rakstur djammferðar þeirra stallna
en þær brugðu sér í bæinn um helg-
ina til að taka efni i þáttinn. Þær
hittu fólk á fornum vegi og spurðu
það út í stefnumót. „Það eru
nokkrir búnir að hringja sem voru
að ranka við sér og mundu þá að
þau höfðu verið í sjónvarpsviðtali
niðri í bæ um nóttina," segir Dóra.
„Við vorum líka svo seint á ferð,“
bætir Mariko við. „Klukkan var að
verða fimrn um morgun þegar við
hættum." - Dýrðina sjáum við í
kvöld. Sendið stelpunum póst á
djupalaugin@sl.is og þið gætuð
verið á útleið með tindilfættan
ferðafélaga upp á arminn. Hægt er
að fylgjast með þeim i kvöld á Skjá
einum kl. 22.30, eða bara mæta
niður í Leikhúskjallara.
Hinn bráðvinsælí
stefnumótaþáttur
Djúpa laugin
kemur aftur á Skjá
einn í kvöld eftir
sumarfrí og róttæk-
ar breytingar. Þátt-
urinn hefur nú slitið
barnsskónum og
það eru tveir íðil-
fagrir kvenskörung-
ar sem halda um
stjórnartaumana nú
í haust. Þær Dóra
Takefusa og Mariko
Ragnarsdóttir lofa
kósý og korný þættí
í Leikhúskjallaranum
öll föstudagskvöld í
beinni útsendingu.
Dóra og Mariko hafa verið á
fleygiferð undanfarna daga enda
nóg að gera við að undirbúa þátt-
inn. Vinnan sem liggur að baki
einnar klukkustundar útsendingu
er nefnilega meiri en margur gerir
sér grein fyrir. Þær gáfu sér þó tíma
til að hitta blaðamann eftir erflsam-
an dag í vikunni. Stöllurnar voru
formlega kynntar fyrir tveimur vik-
um. Þá höfðu þær hist nokkrum
sinnum á árlegum fagnaði japansk-
íslenskra barna en aldrei af nokk-
urri alvöru, a.m.k. óraði þær ekki
fyrir því að þær ættu eftir að vinna
saman að stefnumótaþætti í sjón-
varpi. Dóru þarf vart að kynna, hún
hefur verið viðloðandi sjónvarp frá
15 ára aldri en þá kom hún fyrst
fram í þeim eftirminnilega þætti
Rokkaramir geta ekki þagnað.
Mariko er hins vegar að birtast í
fyrsta sinn á skjánum. í vor lauk
hún námi í Verzlunarskóla ís-
lands og tók þar þátt í fjórum nem-
endauppfærslum á jafnmörgum
árum, nú seinast Thriller sem sýn-
ingum lauk á fyrir stuttu. Þátta-
gerðin leggst vel í Mariko enda hef-
ur hún jaxlinn Dóru sér við hlið.
Japan og Frón
Japansk/íslenska teymið hefur
fengið stuttan undirbúningstíma,
„Það er einmitt þess vegna sem við
erum á hlaupum," segja þær báðar.
Dóra er einnig pródúsent að þættin-
um þó hún sjái ekki um útsending-
arstjómina sjálfa, enda hinum meg-
in við myndavélina.
Hún segist ekki hafa þurft að
hugsa sig lengi um þegar henni var
Ólympíuleikarnir og allt sem þeim fýlgir er i
fókus um þessar mundir, enda kemst varla
neinn heilvita maður hjá því að verða var við
þá. íþróttaáhugamenn mæta í vinnu með
bauga undir augunum sökum tímamismunar-
ins en fæstir kvarta, ánægian af þvi að hafa
íþróttaefni á skjánum í fleiri stundir á dag er
ofar því. Þó að iþróttafólkið okkar sé kannski
ekki að dæla frá sér heimsmetunum verðum
viö að láta íslandsmetin duga þó Örn Arnar-
son haldi auðvitað uppi heiðrinum. Sjónvarpið
á stóran hlut í þessari ánægju og sú tilfinning
gripur um sig að loksins séu afnotagöldin nýtt
til einhvers góðs. Það er hátíð um þessar
mundir fyrir íþróttaáhugamenn, hátíð sem
kemur bara á fjögurra ára fresti. Það er von-
andi aö hundieiöinlegar húsmæöur geti sætt
sig við að útsendingarnar séu á nóttunni, en
ef líta á raunsætt á málið má allt eins búast
við að einhver lesendabréf fái að fjúka frá
þessu pakki.
Tæbóiö á Stöö 2 er gjörsamlega úr fókus,
enda þarf hver og einn Islendingur sem villist
inn á Stöð 2 að horfa upp á þennan viðbjóð
á næstum hverjum degi. í fínu formi heitir
umræddur þáttur og þar hittum við fyrir þrjá
hressa einstaklinga sem hoppa og garga og
sparka og stappa, allt í takt auðvitað, á milli
þess sem hvatningarópin dynja á þeim sem
sitja heima í stofu. Heima I stofu einmitt,
hvaða heilvita maður, ef hann er ekki í banda-
rískri bfómynd, tekur upp á því að klæða sig
upp í spandex galla klukkan 17.45 og koma
sér fyrir á heilagasta svæöi heimilisins, sjón-
varpskróknum, og hoppa í takt við einhverja
vitleysinga sem eru uppteknastir af sjálfum
sér, útlitinu og klæðnaðinum. Þarf að segja
meira, Islendingar eru einfaldlega ekki þannig
gerðir að þeir hoppi og skoppi eins og þetta
fólk, heima í stofu og á þessum tíma. Annars
er þjóðfélagið að fara til andskotans ef Is-
lensku húsmæöurnar eru farnar að lepja
þessa vitleysu upp eftir kananum, Ifkt eins og
„snilldaruppfinninguna" sjónvarpsmarkað-
inn. Mætti þá heldur biöja um Jónínu Ben aft-
ur f útvarpið.
hverjir voru hvar
Mjög mikið að gerast alla helgina á
Skuggabamum og meðal þeirra sem
sáust voru Páll Magnússon, frétta-
stjóri á Stöð 2, Finnur Jóhannsson,
húðflúraði handboltakaflinn, Þórjón
fallhlífamaður, Hörður Magnússon
skinka og FH-ingur
ásamt Heimi Guð-
jónssyni. Birna
Rún módel, Rósa
Spotlight, sem var á
Skjá 1, Andrea Ró-
berts, Sólveig
Kristbjörg, frétta-
stjóri á Skjá 1, Ant-
onio frá Icelandic Models mætti með
tveim af toppum MTV Europe og
Anna Rakel Silíkon-gella var að
filma fyrir þáttinn sinn. Eyþór Little
Ceasars var á svæðinu sem og FM 957
drengimir Jói Jó og Bjarki Sig,
Viggi fyrirsæta, Pétur Pétursson
ljósmyndari og þjálfari KR var á
svæðinu með strákunum, Andri Sig-
þórs markakóngur, Einar Þór Dani-
elsson, sem alltaf er brjálaður þegar
hann er tekinn út af, og Hilmar
Bjömsson Framari. Siggi Boila í 17
var með sínu liði og Ingvar Ingvars-
son. Gunni og Maggi Laugarásbíó-
menn létu stórkarlalega en það er
ekki hægt að segja um Valtý Bjöms-
son íþróttafréttamann, Ásgeir Kol-
beins Bylgjumaður og Halldóra sum-
arstúlka vom á svæðinu en Maggi
Bess kraftakóngur, var í rólegheitun-
Bókmenntafræði-
jjk nemar voru með
Dillon og mátti þar
dþjgWp Þekkja nokkur and-
■ JjPwL lit, Ragnar ísleifur
Hlynur Páll Páls-
son, formaður félagsins,
Haukur í Fnæs, Höskuldur
Ólafsson úr Quarashi og Karl
Óttar Geirsson, trommari
Fálka frá Keflavík.
Þegar gengið var fram hjá
Dubliner á fóstudagskvöldið
blasti Bjöm Jörundur Frið-
björnsson við fólki, vel í
glasi, en þegar inn var komið var
Skítamóralshraðlestin (nafn sem
þeir fundu sjálfir upp) eins og hún
leggur sig það fyrsta sem sást. Á
Næsta bar vom aftur á móti á fóstu-
daginn þau Stefán Baldursson Þjóð-
leikhússtjóri, Selma Bjömsdóttir og
Rúnar Freyr Gíslason.
Helgin var góð á Klaustrinu og í
venjulega FM 957 genginu voru þeir
Bjarki Sig, Heiðar Austmann og frú
og Gunna Dís, Unnar í Japis var
hress að vanda, Þormóður Egils og
Gummi Ben komu fagnandi ásamt
fleiri KR-ingum á laugardaginn og
Dóra Takefusa var á staðnum með
tökumenn en önnur sjónvarpsstjama,
Siggi Hall, mætti ásamt staffinu á Óð-
insvéum, Tóti smiður kíkti á
dansgólfið eins og Edda sem
var í 8-villt en sportistarnir
Júlíus Gunnarsson, rauð-
hærði handboltamaðurinn, og
Herbert Arnarsson körfu-
þeytari voru með vatnið á
hreinu og Ragga Hausverkur
geislaði. Philippe og Lára
Dreamworld litu
inn og Ægir Dags-
son var á sínum
stað, Villi Naglbítur
gólaði á dansgólfið
og Siggi P fékk sér
snúning.
Nóg var af fólki á
Prikinu um helgina
og mátti meðal annars sjá til Barða í
Bang Gang, Kristjáns Ragnars á
SkjáEinum, Agnars Tr„ og Breka
Árnasonar Johnsens sem tróð sér
fram fyrir röðina. Þá var Helgi Ey-
steinsson á svæðinu og Erlendur Ei-
ríksson leikaranemi
bullaði frá sér allt
vit. Grímur Garð-
arsson knattspymu-
maður og Henný
kærasta hans. Svala
Björgvins r&b
drottning, Doddi
litli, Börkur í Jagú-
ar, Villi Goði, Anna
Rakel, Margrét Rós og auðvitað
Styrmir múrari og lesbíurnar.
Tíska* Gæði* Betra verð
10
f Ó k U S 22. september 2000