Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2000, Blaðsíða 5
4
fókus
y j k a n 29. se Pt ember tll 5. október
■Li-fJLð.
Sjailanum ísafiröi í kvöld. Það verður sko grúví
kænd of luv á ísafirði í kvöld.
■ JÓN OG BJARNI EN HVAB ER JÓN ODDUR
? Jón Oddur verður fjarri góðu gamni í kvöld í
Egilsbúð I Neskaupstað, því það verða tón-
skólasjarmörarnir Bjarni Freyr og Jón Hilmar
sem verða i svakastuði í Stúkunni í kvöld. Jón
og Bjarni klikka seint og munu halda merkjum
Jóns Odds á lofti.
■ LAUFSKÁLARÉTTARBALL í KVÓLD Staður
inn í kvðld er án efa Höfðaborg, Hofsósi. Það
verður laufskálaréttarball og munu Heiðurs-
menn, Kolbrún og Stefán P halda uppi fjörinu.
■ PAPASMELLIR MEÐ PÖPUNUM Hljóm
sveitin Papar spilar á Sjallanum á Akureyri í
kvöld. Spurning hvort þeir taki smellinn góða
„Papa was a rolling stone” eða kannski „Papa
don¥t preach”?
■ RÚNAR ÞÓR OG FÉLAGAR Hafnarbarinn á
Þórshöfn er þekktur
fyrir sín þrumuskot. I
kvöld leika fyrir dansi
Rúnar Þór og félagar.
Búast má við því að
heimamenni fjöl-
menni og dansi fram
eftir nóttu.
■ SKEMMTILEGASTA TÓNLIST SÍÐUSTU 50
ÁRA Diskórokktekið Skugga-Baldur spilar á
Breiðinni uppá Akranesi í kvöld. Skugga-Baldur
er skífuþeytir af bestu gerð. Reykur, þoka,
Ijósadýrð og skemmtilegasta tónlist sfðustu 50
ára verður leikin.
•Leikhús
■ MEÐ FULLRI REISN Leikritið Með fullri
reisn er sýnt í Tjarnarbíói kl. 20:30 í kvöld.
Uppselt. Miðapantanir í síma 561 0280.
■ SEX i SVEIT í S'IÐASTA SINN Allra síðasta
sýning á Sex í sveit I Borgarleikhúsinu I kvöld
kl. 19.
■ STORMUR OG ORMUR Barnaeinleikurinn
Stormur og Ormur verður sýndur í Kaffileikhús-
inu I dag kl. 15:00. Þetta er 10. sýning ein-
leiksins.
■ SÝNINGUM FÆKKAR Leikgerð Kjartans
Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guð-
mundsdóttur á Sjálfstæðu fólki eftir Halldór
Laxness er enn sýnd í Þjóðleikhúsinu við góð-
ar undirtektir. Sýningin er nýkomin frá Expo
2000 í Þýskalandi þar sem hún fékk einstakar
viðtökur. Það er langur leikhúsdagur I dag og
því báðir hlutarnir eru sýndir. Sýningafjöldi er
takmarkaður.
■ SHOPPING AND FUCKING EGG leikhúsið
sýnir í samvinnu við Leikfélag Islands í Nýlista-
safninu verkið Shopping and Fucking í kvöld,
kl. 20. Það eru G-kortin sem blíva í kvöld.
■ HELUSBÚINN BJARNI Bjarni Haukur er
enn þá Hellisbúinn í íslensku óperunni. Sýning-
in gengur enn fyrir fullu húsi. Holl lexía fyrir
bæði kynin. Leikstjóri er Sigurður Sigurjóns-
son. Sýning í kvöld kl. 20.
•Kabarett
■ BACKGAMMON Á GRANDINU Það verður
nóg um að vera á Grandrokk í dag þegar úrslit-
in ráöast á íslandsmótinu í Backgammon, en
keppnin hefur verið æsispennandi fram að
þessu. Staða efstu manna fyrir lokaorrustuna
er þannig að í 3. sæti er Róbert Harðarson
skákmeistari, í 2. sæti er Jóhannes Jónsson.
varaformaður Backgammonfélags Reykjavíkur
en í því efsta er auðvitað kóngurinn sjálfur, for-
maöur Backgammonfélags Reykjavíkur,
drrrrrr... Grímur Grímsson. Þeir Grímur og Jó-
hannes heyja úrslitaglímuna klukkan 14 en
klukkan 15 hefst opið stigamót fyrir almenn-
ing. Ójá.
■ DROTTNINGAR Á LOKAHÓFI Queen-sýning-
in heldur áfram á Broadway í kvöld en einnig
er haldið lokahóf KSÍ. Hljómsveitin Gildran
mun síðan leika fyrir dansi. Það má búast við
því að það verði fleiri en ein drottning á dans-
gólfinu í kvöld.
•Opnanir
■ GUÐMUNDUR í STÖÐUKOTI Guðmundur
W. Vilhjálmsson opnar málverkasýningu i
Stöðlakoti, Bókhlöðustig 6, i dag. Þetta er
fimmta einkasýning Guðmundar. Á sýningunni
eru vatnslita- og pastelmyndir. Opið alla daga
frá 14 -18. Sýningunni lýkur 15. október.
■ MÁLVERK í HAFNARBORG í dag kl. 16:00
veröur opnuö í Hafnarborg i Hafnarfirði sýning
á málverkum Þorbjargar Höskuldsdóttur. Sýn-
ingin stendur til 16. október og er opin alla
daga nema þriðjudaga frá 12 til 18.
■ NORRÆN SKARTGRIPASÝNING í dag kl.
16:00 er opnuð sýning í Hafnarborg á verkum
norænna skartgripahönnuöa. Að sýningunni
standa fimm ungir listhönnuðir frá Finnlandi,
Sviþjóð og íslandi. Sameiginlegur áhugi þeirra
er að gera áhorfandann að þátttakanda i sýn-
ingunni þannig að skoðandinn hafi möguleika á
að snerta og prófa skartgripina. Sýningin
stendur til 16. október og er opin alla daga frá
12 -18, lokað á þriðjudögum.
■ SIGURÐUR ÁRNI HJÁ
SÆVARI Siguröur Árni
Sigurðsson opnar sýningu
í Gallerii Sævars Karls i
dag kl. 14. Sýningin verð-
ur til 20. október og er
opin á opnunartíma versl-
unarinnar.
I • #•
áré þ-
® • é
• •
• # 01
tí- &
Hl ÍHH
■ TEIKNINGAR KATRÍNAR BRIEM i dag kl.
15 er opnuð sýning á teikningum Katrínar
Briem i safninu i kjallara Skáiholtsskirkju.
Myndirnar eru unnar viö sálma og Ijóð Valdi-
mars Briem og birtust þær í nýútkomnu riti
Guðfræðistofnunar Háskóla íslands. Sýningin
er opin frá kl. 10 -18 alla daga og henni lýkur
30. nóvember.
©Síöustu forvöö
■ FANTASI DESIGN í dag lýkur sýningunni
Fantasi Design i Gerðubergi. Þetta er samnor-
ræn sýning á hönnun og uppfinningum barna
og unglinga. Á sýningunni eru hlutir frá Rnn-
landi, Svíþjóð, Danmörku og fslandi. Sýningar-
gripir eru rúmlega 50 og þar af 18 íslenskir. Á
sýningunni má sjá hluti eins og Bakteriusím-
ann frá Danmörku en hann gerir tjáskipti við
bakteríur möguleg og er þannig mikilvægt inn-
legg í læknavisindin. Fantasi Design hefur þeg-
ar verið sett upp I Kalmar í Svíþjóð og í
Helsinki, þar sem hún var hluti af dagskrá
Helsinki - menningarborg árlð 2000 sem er
ein af menningarborgum Evrópu árið 2000.
Þema Fantasi Design er hönnun barna fyrir
nánasta umhverfi sitt. Fantasi Design er hluti
af dagskrá Reykjavíkur - menningarborgar Evr-
ópu árið 2000.
■ INNANSTOKKSMYNDIR I dag lýkur mynd-
listarsýningu í ListasafniBorgarness sem ber
yfirskrifina Innanstokksmyndir. Þar sýna þeir
Ólafur Sveinsson og Jóhannes Dagsson akrýl-
og olíumyndir sem fjalla um manngert um-
hverfi sem tíminn og minnið hafa leikið um
áður en skrásetning (mynd á striga) á sér
stað. Með þessari nýju framsetningu koma
þau öfl sem á fyrirmyndina hafa verkað fram
og verða jafn áþreifanleg og hlutirnir sjálf-
ir.Ólafur er búsetur í Eyjafirði en Jóhannes I Aö-
aldal og hafa þeir báðir stundað nám við
Myndlistarskólann á Akureyri og víðar. Þeir
hafa haldið ýmsar sýningar viða um land og er-
lendis, meðal annars héldu þeir samsýning-
una Konur i Safnahúsinu á Húsavík 1998.
Listasafn Borgarness er til húsa í Safnahúsi
Borgarfjarðar. Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi,
og verður sýningin opin þegar það er opið, 13-
18 virka daga og 20-22 á fimmtudagskvöld-
um. Sýningunni lýkur í dag.
■ UÓSMYNDIR í HÁSKÓLANUM í tilefni af
sextiu ára afmæli Aðalbyggingar Háskóla ís-
lands á þessu ári var efnt til Ijósmyndasam-
keppni um bestu Ijósmyndir af aðalbyggingu
skólans I samvinnu við Ljósmyndarafélag ís-
lands. Ljósmyndasamkeppnin var hugsuð til
að minnast Guðjóns Samúelssonar, en ekki
síður til að styrkja vitund starfsmanna Há-
skólans og annarra um það listaverk sem há-
skólabyggingin er, i stóru, en ekki siður í
smáu. Alls bárust sex tillögur í keppnina með
tuttugu og þremur myndum. Myndirnar eru til
sýnis í fordyri hátiðasalar Háskólans. Sýning-
unni lýkur í dag.
■ MYNDIRNAR HENNAR SIGGU í dag lýkur
Ijósmyndasýningu á vegum Byggðasafns Hafn-
arfjarðar og íslandsbanka. Sýningin kallast
„Bærinn minn“ og er í nýju húsnæði bankans
að Strandgötu í Hafnarfirði. Þetta eru myndir úr
eigu Sigríðar Erlendsdóttur. Myndir þessar
hafa ekki áður komið fýrir sjónir almennings.
Sigríðurvaráhugamanneskja um Ijósmyndirog
eftir hana liggur fjöldinn allur af filmum og Ijós-
myndum sem með leiftrandi hætti bera vitni
um sýn Sigríðar á bæinn sinn og fólkið sem
hann byggði. Sýningin er opin á sama tíma og
bankinn.
■ VAXMYNDASÝNING í dag lýkur sýningu á
vaxmyndum í Byggðasafni Hafnarfjarðar.
•F undir
■ VENERABLE KELSANG LODRÓ Kelsang
Lodrö er enskur búddamunkur og einn af
reyndustu kennurum Kadampa-búddisma.
Hann hefur iökað búddisma I nær 15 ár og er
kennari hjá stærsta menntasetri Kadampa-
búddismans á Suður-Englandi. Hann mun
halda fýrirlestur i dag um Kadampa-búddisma
kl. 15 til 16.30. Fyrirlesturinn er öllum opinn og
verðurisal Guðspekisamtakanna, Hverfisgötu
105, 2. hæð. Allir velkomnir og ekkert þátt-
tökugjald.
Bí ó
■ JÓN GNARR FER Á KOSTUM Jón Gnarr fer
á kostum sem taugaveiklaur kvikmyndagagn-
rýnandi í stykkinu Panódíl fyrir tvo. Sýningin er
í Loftkastalanum og hefst kl.20.
■ NÓRDH) HANN JÓN Uppistandið hans Jóns
Gnarr, Ég var einu sinni nörd, er sýnt á fjölum
Loftkastalans i kvöld kl.23.
Stórmyndin Scary Movie er frumsýnd í kvöid í Regnboganum,
Stjörnubíói, Laugarásbíói, Nýja bíói í Keflavík og Borgarbíói á
Akureyri. í myndinni er heldur betur gert grín að
unglingahryllingsmyndunum.
Söguþráður myndarinnar er á þá
leið að guUfalIeg stúlka er myrt og
misgáfulegir skólafélagar hennar
komast í framhaldinu að þvi að
morðingi gengur laus á meðal
þeirra. Aðalhetjan er Cindy Camp-
bell en með henni fylgja vinir
hennar sem bera álíka skemmtileg
nöfn og Buffy, Brenda, Bobby og
Shorty. Hættan er svo sannarlega
fyrir hendi og ekki aðeins þurfa
þau að verjast blóðugum morðingja
heldur er fréttamannsskúrkurinn
Gail Hailstrom alltaf að angra þau.
Ójá, þetta hljómar óneitanlega
kunnuglega en eftir því sem líður á
ævintýrið hafa fjölmargar þræl-
fyndnar og furðulegar uppákomur
áhrif á framvinduna, þannig að úr
verður allsherjar skemmtun. Og án
þess að þess þurfi að geta er auðvit-
að verið að gera grín að myndum
eins og Scream, Sixth Sense, The
Matrix, I Know What You Did
Last Summer og Blair Witch
Project.
Horfði á of margar hryll-
ingsmyndir
Leikstjóri myndarinnar er
Keenen Ivory Wayans og segir
hann að eftir að hafa horft á of
margar nýlegar hryllingsmyndir
hafi hann ákveðið að taka þetta
fyrirbrigði fyrir. Reyndar vill hann
meina að i myndinni ráðist hann á
fleiri tegundir bíómynda og Scary
Movie sé margslungið skemmtifyr-
irbrigði. Það voru reyndar bræður
hans, þeir Shawn og Marlon, sem
sömdu handritið að myndinni.
Fyrsta myndin sem Keenen Ivory
leikstýrði var I’m Gonna Get You
Sucka en þar skrifaði hann einnig
handritið auk þess að leika i mynd-
inni. Hið sama gerði hann með A
Low Down Dirty Shame, hann lék í
The Glimmer Man auk þess sem
hann framleiddi hina prýðilegu vit-
leysu Don’t Me a Menace.
Glæsikvendi
Meðal helstu leikara í myndinni
eru þeir bræður Shawn og Mar-
lon Wayans. Shawn á að baki
meðal annars Don’t Be a Menace
og lék Marlon einnig i henni. Mar-
lon á svo miklu betri feril að baki,
myndir eins og Mo’ Money, Above
The Rim, The Sixth Man og Sensel-
ess.
Aðrir leikarar í Scary Movie eru
meðal annars Shannon Elizabeth
sem lék frjálslynda skiptinemann i
American Pie, Cheri Oteri, sem
leikið hefur í Inspector Gadget og
Saturday Night Live, Jon Abra-
hams úr Outside Providence,
Lochlyn Mxmro sem var í Dead
Man on Campus auk hinnar stór-
glæsilegu Carmen Electra. Electra
startaði ferlinum í hinum stórgóðu
og sívinsælu Strandvörðum en hún
hefur siðan m.a. tekið að sér hlut-
verk í Baywatch Nights auk þess
að taka við af Jenny McCarty í
Singled Out á MTV. En hún er nú
kroppur eins og allir í myndinni og
er þá ekki tilgangnum náð?
Kynþokka
m J æt *' \*
Fókus, Vísir.is, FM9|7 og dreifingar-
aðilar Playboy á álandi efna til
alvöru Playboy-par#s á Skugga-
barnum í kvöld. ;,i
4P ■ ■ll«u)i
Tuiicir
Skipuleggjendur gleðskapsins
eru þær Helga Sóley Viðarsdótt-
ir og Elísabet Ásgeirsdóttir.
„Heildarsvipurinn á kvöldinu er
íslenskur kvenkynþokki og við
ætlum með þessu að reyna að
kynna kynþokka íslenskra
kvenna á réttan hátt. Þetta verður
mjög elegant kvöld, enda ekki
annað hægt þegar yfirskriftin er
kynþokki", segir Helga Sóley,
annar skipuleggjenda veislunnar.
Dagskrá kvöldsins er mjög spenn-
andi og munu ekta Playboy-kan-
ínur taka á móti gestum með
freyðandi kampavíni rétt fyrir
klukkan ellefu. Á bamum verður *
boðið upp á sérstakan Playboy
Martini drykk. Kynnir kvöldsins
er Vignir F. Ágústson, sem er
betur þekktur sem Lóttokynnir-
inn. Það verður undirfatasýning
frá Ég og þú, svo verður valin
kynþokkafyllsta konan i salnum,
eða Bunny of the night, og eru
stelpur eindregið hvattar til að ^
taka þátt í því.