Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Síða 5
Björn Jörundur hefur komið víða við. Svo eitthvað sé nefnt var hann einn meðlima Ný danskrar, lék eftirminni- lega í kvikmynd Óskars Jónassonar, Sódómu Reykjavík og nú síðast í kvikmyndinni Englum alheimsins. Einnig hefur sést til hans á skjánum, nú seinast sem stjórnandi spjallþáttar á Skjá einum. Á næstunni mun Björn gefa út plötu með félögum sínum í LUXUS. Þorgerður Agla Magnúsdóttir tók Björn tali. sömu engjum Aöspurður um þáttinn segir Bjöm hann vera eins og spjallþætt- ir eru yfirleitt: „Meö gamanívafi, skemmti- og músíkatriðum. Ég tók við honum í haust og er þriðji um- sjónarmaðurinn. Útiitið hefur ver- ið að breytast og reynt hefur verið að gera hann betri hægt og rólega. Það er náttúrlega ekkert leyndar- mál að þetta er ameríska módelið. Það er tekið og reynt að laga það að okkar möguleikum með miklu minna stúdíói og miklu minna „budgeti“.“ Bjöm hefur hingað til stjómað fjórum þáttum og meðal annars talað við Gísla Rúnar, Þór- unni Lárusdóttur, Helga Bjöms og Bubba Morthens. Viðfangsefn- ið fer eftir því hvað er í gangi hverju sinni. „Það er misjafnt eftir vikum hvað er í gangi og hvað er skemmtilegt að gerast. Nú eru til dæmis leikhúsin að hellast yfir.“ Bjöm byrjaði fyrst hjá Skjá ein- um í þættinum Út að borða. „Svo var þátturinn heimfærður upp á sumarið og gerður aðeins öðruvísi. Þá var farið út að grilla sem er í raun svipað þessu. Þetta griilvesen var auðvitað ekkert annað en um- búðir um spjallþátt. Þetta virkaði ágætlega og urðu til margir mjög vel lukkaðir þættir. Svo voru aðrir misjafnir eins og gengur. Viðmæl- endurnir eru alltaf mikilvægur hluti svona þátta.“ Palesander mælaborð Núna er Bjöm á fullu að vinna í plötu sem væntanleg er á næst- unni. Þetta er önnur sólóplatan þín, ekki satt? „Fyrsta sólóplatan mín kom út ‘94. Þar var ég einn í þessu með nokkra menn mér til aðstoðar. Ég ætlaði að gera sólóplötu núna en ég fékk svo helvíti góðan hóp með mér og þetta „funkeraði" svo vel að við unnum þetta miklu meira eins og hljómsveitarplötu. Þannig að það sem upphaflega var unnið sem sólóplata endaði sem nýtt band. Með mér eru Stefán Már Magnús- son gítarleikari, Guðmundur Pét- ursson gítarleikari, Haffi, trommari í SSSól, og Jón Ólafs- son.“ Hljómsveitin hefur fengið nafnið LUXUS. „Eftir miklar vangaveltur komumst við niður á þetta nafn. Það er jákvætt og íburð- armikið, Palesander mælaborð." Lögin á plötunni eru þó öll eftir Bjöm sjálfan. íslenska arfleifðin Hvernig tónlist er þetta? „Þar sem þetta eru lög eftir mig er þetta ekkert langt frá mínum lagasmíðastíl. Þetta er bara rökrétt þróun á þeim engjum. Það er rosa- lega erfitt að skilgreina eigin tón- list. Skilgreining á tónlist yfirleitt er rosalega erfið. Ég hef því bara sagt að þetta sé poppmúsík með gít- urum. Það eru tveir gítarleikarar i bandinu sem er sjaldgæfara i dag en það var héma í den. En það gef- ur óhemjumikla vídd að hafa að- gang að tveimur gítarsnillingum." Vinna við plötuna hefur nú staðið yfir í fjórar vikur. Efnið á plötunni segir Bjöm allt vera nýtt. „Þetta er allt nýtt nema eitt lag, Heaven Knows, sem ég gerði með Emil- iönu Torrini fyrir leikritið Veð- málið. Lagið hvarf einhvem veg- inn á þeirri plötu en mig langaði alltaf að eiga það einhvers staðar. Þetta er allt öðmvísi útgáfa á lag- „Það er rosalega erfitt að skilgreina eigin tónlist. Skilgreining á tónlist yfirleitt er rosalega erflö. Ég hef því bara sagt að þetta sé poppmúsík með gíturum." inu.“ Fyrir utan þetta eina lag er efiiið allt frá því í sumar. í þetta sinn yrkir Bjöm á ensku og segir það vera til að auka möguleikana á erlendum mörkuðum. Varstu búinn að hugsa um það lengi aö gera aöra plötu? „Já, já. Ég var löngu búinn að ákveða að gefa út plötu á þessu ári. Ég ætlaði að vera kominn af stað með hana miklu fyrr. Ætlaði í raun- inni að vera búinn með hana í sum- ar. En svo bara er það þannig á fs- landi að maður er alltaf jafnupptek- inn. Þetta er íslenska arfleifðin.“ Appelsínugulbrúnn með afíftað hár Það er ekki nóg með að Bjöm sé í tónlistinni og sjónvarpinu, hann hefur líka nóg að gera í leiklistinni. „Það eru væntanlega fjórar myndir sem ég leik í. Sú fyrsta heitir Ikingut (sem þýðir vinur á grænlensku) og er í leikstjórn Gísla Snæs Erlingssonar. Þetta er fjölskyldumynd um litinn græn- lenskan strák sem kemur til ís- lands. Þar leik ég vondan og vit- lausan sýslumann. Önnur myndin er Villiljósi eftir handriti Huldars Breiðfjörð sem leikstýrt er af fimm ólíkum leikstjórum. Þar leik ég, undir stjóm Dags Kára Péturs- sonar, likbílstjóra sem talar við páfagaukinn sinn meira en nokkum annan. Hann er með páfa- gaukinn með sér alla myndina. Þetta er mjög forvitnileg mynd og í henni spila stór hlutverk páfagauk- urinn og draugur einn. Dagur Kári er mjög sniðugur og gaman að vinna með honum, afskaplega flinkur leikstjóri." Einnig var Bjöm í sjónvarps- mynd eftir Ólaf Hauk Símonar- son sem Ríkissjónvarpið gerði. Sú nefnist Bílasalan Bjallan og er í leikstjóm Lárus Ýmis Ósk- arssonar. „Þar lék ég bílasala. Til að leika hann var ég sendur í Ijósatíma og aflitun á hárinu. Ég gekk því um í heilan mánuð með aflitað hár og appelsínugulbrúnn í framan. Það var mjög erfitt því það talaði enginn við mig um neitt nema af hverju hárið á mér væri svona. í mánuð átti ég því ekki samtal við einn einasta mann nema um hárið á mér og það var engan veginn nóg. Ég er ennþá að svara fyrir þetta hár.“ Monster Fyrri stuttu stóðu yfir tökur á amerísku kvikmyndinni Monster. Hal nokkur Hartley er leikstjóri þeirrar myndar. Hal er vel þekkt- ur bandarískur leikstjóri þótt kvikmyndir hans geti seint flokk- ast undir svokallaðar „hollívúdd- myndir". Meðal erlendra leikara í myndinni má nefna JuUe Christie og Helen Mirren. Nokkrir íslenskir leikarar voru fengnir til að leika í senum sem teknar voru hér á landi. Þar á meðal var Bjöm Jörundur. „Ég lék þorpsbúa sem býr í af- skekktu þorpi nyrst á íslandi. Þar er mjög furðulegt fólk. Amerísk stúlka kemur til landsins og lend- ir í að umgangast þetta fólk. Ég lék ungan dreng sem verður mjög hrifinn af stúlkunni." Bjöm segir heiminn sem birtist í Monster ólíkan öllum raunveruleika sem við þekkjum á íslandi. „Þetta er af- skaplega grátt og eymdarlegt tré- kofaþorp. Þetta er bara „fiction“- vitleysa." Tökur fóru fram á Reykjanesi og stóðu í viku. Hvernig fór valiö á leikurunum fram? „Hal horfði á nokkrar íslenskar myndir og talaði við fólk. Ég var svo beðinn að koma og tala við hann. Hann spurði mig hvort ég mætti vera að þessu og ég var náttúrlega afskaplega upp með mér.“ Hyernig er Hal Hartley? „Ég bjóst við aðeins meiri erkitýpu. En þetta er bara mjög „down to earth“, þægilegur og venjulegur gæi.“ Hartley er New York-búi og segir Bjöm að hann vinni allar sínar myndir þar. Aukin fjölbreytni Fyrir utan allt sem á undan er talið er Björn að leika í Draumi á Jónsmessunótt í Þjóðleikhús- inu. Aðspurður segir hann leik- húsvinnuna mjög ólíka vinnu í tónlist og kvikmyndum. Bjöm segist fyrst og fremst líta á sig sem tónlistarmann. „Ég lít á mig sem leikara þegar ég er að leika, ekki þegar ég er ekki að leika. Þetta er spuming um að hafa val um að gera eitthvað fleira en eitt. Það er mjög erfitt að lifa á því að vera eingöngu tónlistar- maður, sömuleiðis er erfitt að lifa á því að vera eingöngu leikari. Það er ágætt að samtvinna þetta og það gefur lifinu aukna fjölbreytni. Ég held að ég sé bara mjög hepp- inn að hafa nóg að gera.“ Að lokum vill Bjöm leggja rika áherslu á að fólk kynni sér hljóm- sveitina LUXUS og væntanlega plötu sveitarinnar. 6. október 2000 f ÓkUS 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.