Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Qupperneq 9
Sólveig Kristbjörg Bergmann „Lenti í erfiðri aðstöðu þegar hún þurfti að taka við af Sigursteini Mássyni, það er pressa á stelp- unni, en hún stendur sig vel." „Hún er algjörlega búin að taka upp raddbeitingu Sigursteins." „Mér þykir ekki sanngjarnt að bera fréttamenn Skjás eins við hinar stöðvarnar, þeir eru bara að keppa I allt annarri íþróttagrein." Logi Bergmann Eiðsson „Langeðlilegastur á Rúvinu. Er alvörugefinn fréttamaður, en getur líka slegið á iétta strengi, eins og hann hefur sýnt. „Sjarmör sjónvarpsins. Rosalega flottur, en læt- ur það ekki stíga sértil höfuðs." „Það sést á honum að þetta er vingjarnlegur náungi og hann hefur víst góð áhrif á móralinn á fréttastofunni." Þór Jónsson „Vandaður fréttamaður og leggur sig fram." „Hann er hallærislegur, en tónar skemmti- lega." „Held að hann sé góður fréttamaður, maður treystir því sem hann segir." „Hefur verið í lögfræðitengdum málum og hefur þennan júritiska þankagang." „Hann hefur engin áhrif á mig, bara er þarna og gerir sín stykki." Árni Snævarr „Holdgervingur æsafréttamennskunnar í sjón- varpi." „Hann gengur samt á eftir hlutunum og lætur sig ekki, væri góður svona 60 minutes gæi." „Rosalega skýr, greindur náungi." „Maður með svona nafn, Snævarrrrrr, hann verð- ur að standa sig og hann gerir það." Gísli Sigurgeirsson „Persónulegur fréttamaður, eins og þeir eru margir úti á landi." „Fær svolltið að leika lausum hala og kryddar fréttirnar skemmtilega." Haukur Holm „Týpan sem maður gleymir auðveldlega hvað heit- ir.“ „Fellur vel inn í bakgrunninn hjá Stöð 2." „Ég væri til í að Svavar tískulögga mundi gefa sér meiri tíma með honum og sleppa nokkrum mínút- um með Telmu Tómasson." Jón Gunnar Grjetarsson „Held að hann sé fínn náungi og margt sem hann gerir er ágætt." „Eina sem ég er ekki hress með er að hann er sonur Grétars Þorsteinssonar, forseta ASÍ, og mér finnst ekki viðeigandi að hann fjalli um mál tengd ASÍ, eins og mér hefur sýnst hann gera." „Meðalmaður í fréttamennsku." Ómar Ragnarsson „Hann er bara í sinni deild, þekkir hverja einustu þúfu á landinu og alitaf að.“ „Fer stundum offari og fréttirnar litast mjög af skoðunum hans.“ „Eini fréttamaðurinn sem kemst upp meö svona svakalega hlutdrægni á RÚV." „Góður á slnu sviði, en hefur sín takmörk." „Hress og skemmtilegur og maður fær ekki leið á honum, þó hann sé búinn að vera lengi að.“ „Hann er brjálaður, en mjög skemmtilega brjálaður. Ætli hann sé ekki otvirkur?" Bogi Ágústsson „Greindur og traustur fréttamaður og trúverðug- leiki hans er mikill." „Fer of langt I þessari RÚV-alvöru. Ég held að hann sé skemmtilegur utan vinnu, en er allt of stífur á skjánum. Gengur meira segja of langt I skýrmælgi. Menn eiga að tala ofsalega skýrt á Rúvinu, en hann bara ber fram hvern einasta staf. Ég mundi ekki vilja heyra hann tala frönsku. Ekki einu sinni Gunn- ar Eyjólfsson ber svona fram." „Kjölfestan á RÚV, en yrði að létta aðeins á sér." „Minnir alveg óstjórnlega mikið á fréttamanninn úr Prúðuleikurunum, Örninn." Óli lynes „Svolítið litlaus fréttamaður, þrátt fýrir að vera alltaf brúnn." „Tekur augljósar fréttir og líður fyrir samanburð- inn við Ólaf Sig. á RÚV." Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir „Hún er framúrskarandi lesari og ágætis frétta- maður, en ég held að gallinn við hana sé sá að hún vilji ekki vera vond við neinn." „Góð í að lesa af blaði, en hún er til dæmis hræöileg þegar á að skipta úr fréttum yfir í íþróttir eða veður, þá stífnar hún upp." „Besti kvenlesarinn, eiginlega betri en Hirst.” Telma Tómasson „Góð í viðtölum" „Helst til tilgerðarleg, mjög slæm með Sigmundi Erni." „Huggulegasti fréttamaðurinn á Stöð 2." Páll Magnússson „Páll er vingjarnlegur og þægilegur. Hann er með fína rödd og les vei." „Er óhræddur við að taka á stjórnmálamönnun- um og er búinn að vera svo lengi í bransanum að hann virðist vita hvenær viðmælendur eru að Ijúga." „Töff, svona eins og bestu bandarisku fréttamennirnir." Magnús Hlynur Hreiðarsson „Er það þessi hræddi? Eg hef einu sinni séð hann lesa í fimmfréttunum, og ég héf aldrei séð skelfdari manneskju, hann var bara dauðskelkað- ur. Ég hélt að hann ætlaði að geispa golunni I beinni útsendingu." „Hann er aðallega í því að sinna því sem gerist fyrir austan fjall og það er nú ekki svo mikið. Svolítið I því að taka viðtöl við ærnar." „Mig grunar að það sé svoleiðis með fréttamenn úti á landi, að það sé aldrei sagt nei við þá. Þeir koma bara með sína mánaðarlegu frétt og hún er birt." Edda Andrésdóttir „Góð fréttakona og mjög viðkunnanleg. Samt etthvað tilgerðarlegt í henni." „Ég flla hana." Helgi H. Jónsson „Ég kann ekki vel við fréttirnar hans. Þær eru einhæfar og leiðinlegar." „Hann er ekki með þetta „touch", eins og Logi og Bogi." „Þegar Þröstur Emils fór og Helgi E. þá hefðu þeir mátt taka þennan Helga með." „Hann er fastur I gamla tímanum, of mikill RÚV- maður og reynir ekkert að hressa upp á fréttirnar. Þó að menn gang- ist ekki í upp í æsifréttamennsku er hægt að gera þær betur." Hörður Vilberg / ..Rla hann áeætleea. hann er alltaf á A- „Rla hann ágætlega, hann er alltaf á vettvangi." „Líflegur og skemmtilegur." „Býr til sniðugar fréttir." Sigmundur Ernir Rúnarsson / >7 _ • „Rosalega góður penni, en einhver mesti tilgerð- arnagli sem ég hef séð fyrir framan myndavél." „Það er eitt sem fer ógeðslega í taugarnar á mér. Þegar frétt er búin þá verður Sigmundur alltaf að koma með eitthvað komment, bara eitt orð. Ef það er verið að fjalla um bílslys, þá segir hann: svakalegt, og ef það er einhver leikskólafrétt þá segir hann: gaman að þessu." „Hann er svona eins og karlremba sem verður að eiga síðasta orðið I öllu." „Svona litlir taktar geta magnast upp innra með manni og allt I einu er viðkomandi orðinn óþolandi." „Skeleggur I viðtölum." Elfn Hirst „Elín er kvenskörungur." „Frábær fréttamaður. Dálítill „skúbbari", fyrst með fréttirnar." „Hún er lagleg og vel til höfð, sem skiptir máli." „Hún kann að mála sig, en hún málar sig of mik- ið. Hefur skemmtilegt bros þegar eitthvað fer úr- skeiðis og er eiginlega sú eina sem stenst pressuna þegar slíkt kemur upp á.“ Ólafur Sigurðsson „Hann er ekkert sætur, frekar feitur og óskýr- mæltur, en samt einn sá besti á sínu sviði." „Vantar bara framburðinn. Samt merkilegt hvað honum tekst að halda athyglinni hjá manni." Sigmar Guðmundsson „Sigmar er algjörlega með þetta, greinilega alinn upp af þessu létta gengi á RÚV, Loga, Boga og Gísla Marteini." „Skemmtilegur og hress, kemur vel út í frétta- mennskunni, en hann var líka skemmtilegur í út- varpinunu áður." „Hann vandar til verks og kemur vel fyrir, enda gamall ræðumaður." Wl ' - • -i Vilhjálmur Goði „Algjört disaster t fréttunum." „Hann er frábær skemmtikraftur og húmoristi, en passar ekki I fréttunum." „Það getur varla hjálpað fréttastofunni að hafa hann þarna inni, þegar hann sér um grin- þátt á sama tíma." Eggert Skúlason „Hann er mjög dramatískur" „Veður í hlutina og er voða ákveðinn í lopapeys- unni sinni." „Hann er ábyggilega í bridsklúbbi meö Sigmundi Erni, þar sem þeir dramatísera hlutina, en ég held að hann sé óhræddur töffari." „Ég nota mutetakkann þegar hann birtist á skjánum." 6. október 2000 f ÓkUS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.