Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Qupperneq 11
Alls konar sambland af hip-hop og soul-tónlist hefur verið vínsælt undanfarin ár með listamönnum eins og Erykah Badu, D’Angelo, Kelis, The Roots og Common. Trausti Júlíusson kynnti sér nokkra af nýliðunum í þessari tónlist vestanhafs. Ferskir soul-vindar úr vestri Súpergrúppan Lucy Pearl: Raphael, Ali og Dawn. Það er ekkert lát á vinsældum soul- og hip-hop-tónlistar 1 Banda- ríkjunum. Salan hefur aldrei verið meiri. Auk gamalla kunningja hafa ný nöfn verið að skjóta upp kollin- um á undanförnum mánuðum. Kikjum á nokkur þeirra. Hver er Jill Scott? Bandaríska söngkonan og laga- smiðurinn Jill Scott er frá Phila- delphiu. Hún er nýbúin að senda frá sér sína fyrstu plötu en getur samt ekki alveg talist til byrjenda. Hún hefur getið sér gott orð sem lagasmiður og hefur m.a. samið fyrir The Roots, Common og Eric Benet og sungið inn á plötur með Common og Roots og ferðaðist með þeim síðarnefndu á tónleikaferða- lagi þeirra um Bandarikin og Evr- ópu. Plata Jill Scott heitir Who Is Jill Scott? Words And Smmds Vol. 1 og hefur verið að fá frábæra dóma beggja vegna Atlantshafsins. Tón- listin á plötunni er i þessum djass- skotna og frekar rólega soul-stíl sem einkennt hefur tónlist söng- kvenna eins og t.d. Erykah Badu. Henni hefur líka verið líkt við djasssöngkonur eins og Billie Holiday og Betty Carter. Jill Scott byrjaöi ferilinn á því að lesa upp eigin ljóð en var í kenn- aranámi þegar hún slysaðist inn í tónlistarbransann. Það var Quest- love?, trommari The Roots, sem heyrði hana lesa upp og fékk hana í framhaldinu til samstarfs. Það tók Jill Scott: Ný soul-stjarna. hana ekki nema 10-15 mín. að skrifa lagið You Got Me in The Roots fékk einmitt grammy-verð- laun fyrir það lag. Who Is Jill Scott? er tvímælalaust ein af betri soul-plötum ársins. Súpergrúppan Lucy Pearl Hljómsveitin Lucy Pearl hefur fengið töluverða spilun undanfarið með laginu Dance Tonight. Það er fyrsta smáskífulagið af plötunni þeirra í Lucy Pearl sem kom út í sumar. Lucy Pearl er sennilega fyrsta r&b súpergrúppan. „Við erum eins konar hip-hop Travelling Wil- burys,“ segir Raphael Saadiq, að- alhugmyndasmiður hljómsveitar- innar. Lucy Pearl er skipuð þeim Raphael, sem var áður í Tony Toni Tone, Ali Shaheed Muhammad, sem var í A Tribe Called Quest, og Dawn Robinson sem áður var í soul-popphljómsveitinni En Vogue. Raphael er eins og áður segir höfuð sveitarinnar. Hann syngur, spilar á gítara og bassa og semur texta og sönglínur. Ali sér um upptökur, taktforritun, dj-ar og spilar á bassa og gítara og Dawn syngur og semur texta. Platan þeirra hefur fengið frekar misjafna dóma, það fylgir þeim kannski þessi fræga bölvun súpergrúppunnar. Þegar þú stefnir saman nokkrum góðum einstak- lingum úr virtum hljómsveitum þá búast allir við svo miklu að útkom- an stenst oft ekki væntingar. Það Baatin úr Slum Village í góðri sveiflu. er samt slatti af ágætum lögum á plötunni. Þetta er svona grúví sam- bland af hip-hop og soul. Jay Dee og Slum Village Bæði Jill Scott- og Lucy Pearl- plötumar eiga það sameiginlegt að þær eru að miklu leyti unnar af meðlimum Soulquarians. Soulqu- arians er hálfgert samfélag pródúsera og tónlistarmanna sem hafa framleitt margt af því besta í hip-hop- og soul-tónlist undanfar- inna ára. The Roots, Raphael og Ali úr Lucy Pearl, Erykah Badu, Mos Miðríkjarapparinn Nelly: Hot shit! Def, Talib Kwali, Q-Tip, D’Ang- elo, Common og Dead Prez eru allt listamenn sem tilheyra Soulquari- ans fjölskyldunni en stofnendur og kjarni hennar eru samt Questlove? trommari The Roots, hljómborðsleikarinn og pródúserinn James Poysner (báð- ir unnu á Jill Scott-plötunni) og svo snillingurinn Jay Dee sem er bú- inn að gera það gott að undanfornu sem upptökumaður og lagasmiður á plötum D’Angelo, Common, Pharcyde, A Tribe Called Quest og The Roots. Soulquarians hafa stefnuskrá og hleypa ekki hverjum sem er inn í klíkuna. Þeir eru t.d. yfirlýstir ofbeldis- og vopnaand- stæðingar. En Jay Dee er líka í eigin hljóm- sveit. Það er Slum Village sem var stofnuð i Detroit fyrir sex árum. Slum Village er skipuð þeim Jay Dee, sem rappar auk þess að pródúsera og semja lög, T3, sem semur texta, og rapparanum Baat- in. Þeir voru að senda frá sér sína fyrstu plötu, Fantastic Vol. 2, en hún hefur verið að fá frábæra dóma að undanfomu. Platan var að vísu gerð fyrir tveimur árum en vegna hræringa hjá stórfyrirtækj- unum í plötuútgáfubransanum tafðist útgáfa á henni þar til nú í sumar. Hún endaði reyndar á óháð- um útgáfum; Good Vibes gefur hana út i Bandaríkjunum og Wordplay í Bretlandi. Fantastic Vol 2 var orðin mjög heit fljótlega eftir að hún var gerð og skaut upp á yfirborðið í mismunandi bootleg-< útgáfum löngu áður en að opinbera útgáfan kom út. Nokkrir af sam- starfsmönnum Jay Dee koma fram sem gestir á plötunni. Þ.á m. Jazzy Jeff, Q-Tip, D’Angelo, Pete Rock, Kurupt og Busta Rhymes. Nelly og miðríkjarappið. Að lokum er það rapparinn Nelly. Platan hans, Country Grammar, er ein af óvæntustu met- söluplötunum vestanhafs á þessu ári. Hún sat nokkrar vikur í röð í fyrsta sæti bandaríska listans, allt þar til nýja LL Cool J platan ýtti henni af toppnum. Nelly er gælunafn Cornells Hay- nes jr. en hann er fyrsti rapparinn * frá St. Louis sem slær í gegn. Lagið hans, Country Grammar (Hot Shit), varð mjög vinsælt í sumar og stóra platan sem fylgdi í kjölfarið er kom- in í þrefalda platínusölu og enn að seljast grimmt. (Hún er núna í öðru sæti á eftir Madonnu-plötunni Music.) Tónlistin á Country Grammar er einhvers konar staðfærð útgáfa af hip-hop. Þetta er frekar léttleikandi og poppað og blandað blús- og djass- áhrifum en St. Louis á ríka djass- og blúshefð. Svo má líka heyra önnur t áhrif, t.d. eru stáltrommur í sumum laganna. „Við erum inni í miðju landinu þannig að áhrifin koma alls staðar að,“ segir Nelly. Takturinn á plötunni er svolítið sérstakur, þetta er einhvers konar dilli-rapp, maður getur vel séð fyrir sér digrar svert- ingjakonur hrista sig í góðum fíl- ingi við þessa tónlist. Nelly rappar líka með sterkum St. Louis hreim og er stoltur af. „Það var alltaf gert grin að því hvemig við tölum en nú snýst það við,“ segir hann. Country Grammar er plata sem lætur lítið yftr sér í fyrstu en vinnur á við frekari hlustun. p 1 ötudómar hvaöf fyrir hvernf Yt^aTrVy^cPil^ niöurstaöa ★★★★ Fiytjandi: Midfield General piatan: Generalisation Útgefandi: Skint/Skífan Lengd: 62.51 mín. Þetta er fyrsta breiðskífa Midfield General, sem er alter egó Damians Harris, stofnanda og aðaisprautu Skint-útgáfunnar. Skint er þekktust fyr- ir að vera útgáfan hans Fatboy Slim. Lagið Reach Out, sem notast við söng- brot úr lagi með Lindu Lewis, hefur vakið töiuverða athygli að undanförnu. Þessi tónlist ætti að höfða til sama hóps og hefur verið að fila Fatboy Slim á undanförnum árum. Þetta er ekta Skint-tónlist: Rott b!t, alls konar fönkí sömpl og allt klippt saman á snilldar- legan hátt. Damian nýtur aðstoðar annars Skint-listamanns á plötunni en það er Indian Ropeman. Samkvæmt kenningunni er big beat tónlistin búin að vera fyrir löngu síðan. Það er samt fullt af flottri tónlist af þeim meiði að koma út i Bretlandi þessi misserin, allt frá þessari plötu út í breakbeat tónlist frá útgáfum eins og Bochit & Scarper og Second Skin. Nóg að gerast. $* Flytjandi: Toploader piatan: Onka's Big Monka Útgefandi: Sony/Skífan Lengd: 43.46 Breskt band með sína fyrstu afurð. Heljarinnar kokkteill sem í má greina Stevie Wonder og Jamiroquai, Stones, Supertramp og Black Crowes. En söngvarinn minnir hins vegar mikið á Steven Tyler úr Aerosmith á köflum, án þess það sé honum til framdráttar. Þetta er plata sem hlustað er á við ströndina! Blackpool. Að leiðarljósi hefur liklega verið að til- einka sér léttleika og gleði fönksins og nota afslappaða rokktakta til mótvæg- is. Hér eru pumpandi lög og hér eru ró- leg lög, þetta er ef til vill máliö i Naut- hólsvikina og þeir sem eru að spara geta kippt honum með á útsölu næsta vor. Eða ekki. Þeir reykja gras, sem er ólöglegt. ★ Rytjandl: BoyZ II Men piatan: Nathan Michael Shawn Wanya Útgefandi: Universal/Skífan Lengd: 63.29 mín. Boyz II Men er einhvers konar gæðaút- gáfa af strákabandi. Fjórir strákar sem GETA sungiö. Þeir Nathan, Michael, Shawn og Waya eru búnir að seija 34 miljónir platna síðan þeir stofnuðu sveitina áriö 1988. Vei grúmaðir strák- ar sem kunna að syngja. Hvað er hægt að biðja um meira? Boyz II Men hafa löngum verið sterk- astir í ballöðunum. ímyndið ykkur En- rique Iglesias sem samt gæti sungið. Þessi plata er samt meö aðeins hrað- ari lögum en þær fyrri. Þeir sem kunna að meta vel og mikið unnið popp ættu að leggja við hlustirnar. Boyz II Men eru frá Philadelphiu. Þeir voru áður fyrr gefnir út hjá þvi marg- rómaða fyrirtæki Motown Records. Þeir þykja sækja i söngsveitahefðina og gefa sig út fyrir að vera undir áhrif- um frá sveitum eins og Temptations og O’Jays. ★★ Rytjandi: LÍqUÍdO Platan: At the Rocks Útgefandi: Virgin/Skífan Lengd: 46.19 Þýskt band frá Heidelberg sem kann ensku og syngur þess vegna á henni. Tókst svo vel upp á sinni fyrstu plötu að íslensk alþýða söng hástöfum með laginu .Narcotic" allt síðasta sumar. Síðan hefur ekkert spurst til þeirra en hér er semsagt komin plata númer tvö. Ja, þetta fellur undir .Happy Go Lucky" geirann, svo slett sé allhressi- lega. Til hans tel ég bönd á borð við Wannadies, Weezer og þá að sjálf- sögðu Rentals. Hver þessara sveita hefur jú sínar aðferðir viö aö gera hlut- ina en eiga gleöigenið léttleikandi sameiginlegt, heilalaust og skemmti- legt. Einu sinni var stór veggur sem skipti Þýskalandi í tvo hluta. Þá leið öllum i öðrum hlutanum illa og öllum í hinum hlutanum, eða vonandi flestum, vel. Siðan kom góður vondur kall fram á sjónarsviðið, veggurinn var rifinn, og nú geta Liquido leikið fyrir söng og dansi hvar í Þýskalandi sem þeim sýn- ist. Damian er búin að vera lengi með þessa plötu í smíðum en hún er vel biöinnar virði. Mjög vel heppnuö og heilsteypt plata. Tónlistin er fjölbreytt, lögin eru t.d. mishröð og miskraftmik- il en hvert lagið er öðru betra og í heildina er petta aö mínu mati mun betri plata heldur en síðasta Fatboy Slim plata. trausti júlíusson Það alversta er að söngvarinn er leiö- inlegur, ekki lélegur en leiðinlegur, og það er eins og viö vitum alveg nög til að eyðileggja plötu. Þaö vantar nokkr- ar kryddtegundir I þessa blöndu, fönk- hliðin er of hvít, semsagt ekki nógu góð, og á köflum er þetta hreinlega hallærislegt. Stöku titlar standa upp úr en þeir eru hreinlega of fáir og langt á milli þeirra. kristján már ólafsson Vönduð og vel gerð leiðindi er kannski besta lýsingin á þessari piötu. Þó aö þaö sé búið að splæsa nokkrum af bestu r&b pródúserunum I þetta og greinilega sé hvergi til sparað þá er niðurstaðan samt ótrúlega bragðlaus og óspennandi plata. Harmóníur frá helvíti. trausti júlíusson Þetta er ekki gott, alls ekki gott. Eftir aö hafa hlustað talsvert á fyrri plötu sveit- arinnar verö ég aö úrskuröa að hér fer henni aftur bæði hvað varðar gæði og hljóm lagasmíðanna. Einnig er Ijóst að hljómabanki meðlima er ekkert of víö- feðmur, lögin eru svo náskyld að þau eru sum hver úrkynjuð. En þetta er samt gleði... kristján már ólafsson 6. október 2000 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.