Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2000, Síða 14
í f ó k u s
„Vér mótmælum allir.” Sjálfstæði islands er
byggt á mótmælum; þjóðin á meira að segja að
heita mótmælendatrúar. Það er fátt jafn
hressandi og góð fjöldamótmæli. Að koma sam-
an með skoðanasystkinum sínum á útifund og
steyta hnefa að yfirvaldinu, öskra og láta í sér
heyra. Mótmæli hafa verið í einhverri lægð eftir
að blómabörnin fitnuðu. Smámæltir kommar
hafa einir nennt aö lyfta mótmælaspjöldum og
skokka til Keflavíkur af minnsta tilefnj. Neytend-
ur á íslandi eru einstaklega líflausir miðað við
aðrar þjóðír. Tökum Fransmenn sem dæmi. Þeir
loka bara þjóðvegunum ef bensínið er hækkað
með óeðlilegum hætti og standa á rétti sínum
gagnvart atvinnurekendum. Nú virðist þó kom-
inn eínhver mótmælahugur í fólk á ný og er það
vel. Tjáningarfrelsið er hornsteinn lýðræðis og
einstaklingar eiga að nýta þennan rétt til að
> halda því virku. Pólitfskar hreyfingar, félagasam-
tök og jafnvel ellilífeyrisþegar eru farin að grípa
til þessa skemmtilega ráðs til að vekja athygli á
málstaðnum.
ú r f ó k u s
Strætisvagnar Reykjavíkur eru fyrirmyndar-
ferðamáti úr fókus. Það nennir ekki nokkur
kjaftur að hanga „kvenmannslaus I kulda og
trekki" til þess að bíða eftir strætó sem virð-
ist koma eftir dúk og disk. Almenningssam-
göngur af þessu tagi henta íslendingum ákaf-
lega illa. Fámenni, dreifð byggð, slæmt veður-
far og Helgi P. virðast gera þjónustuna sein-
virkari en vera skyldi. Samt þykir Heiga sjáif-
sagt að allir nýti sér SVR og skilji bílinn eftir
heima þó að sjálfur sjái hann sér það ekki
fært. Það er döpur sjón að horfa á framlengd-
an gulleitan Volvo silast eftir götunum hálf-
tómur. Hvernig væri að veita námsmannaaf-
slátt til að fylla þessi sæti, eða jafnvel að
hætta bara þessari vitleysu? Að óbreyttu er
ólíklegt að Reykvíkingar taki græna kortið
fram yfir annars rándýran bensíndropa og leggi
peninga í SVR með öðru móti en með óviljug-
um framlögum f borgarsjóð, R-listanum til ráð-
stöfunar.
Það er Halldóra sem svarar þegar
spurt er út í hlutverkaskipan milli
hennar og Barböru. „Það skiptist
þannig að ég hef æft karakter sem er
konan á bak við fiflið. Hún finnur til
með heiminum. Eina leiðin fyrir hana
til að hafa áhrif á heiminn er að setja
upp nefið hennar Barböru því Bar-
bara er ófeimin að tala og segir alltaf
satt. Konan sem er fiflið þarf nefið
hennar Barböru til að geta sagt það
sem henni ber að segja því hún hefur
það vandasama starf að þurfa að segja
satt.“
En henni er þá ekki refsað fyrst
þetta er hennar starf?
„Jú, jú, hún er stundum lamin því
fólk reiðist henni fyrir að segja satt.
Hún þarf því að fara varlega. En
henni fyrirgefst margt því þetta er jú
vinnan hennar. Þess vegna kann hún
líka að vera diplómatísk. Barbara er
hins vegar ekki jafn diplómatísk og
missir sig stundum - gerir meira en
konan á bak við fiflið myndi gera.“
En hvernig er aó vera fifl?
„Það er eins og að vera í vist. Eins
og að passa lítið barn, en barnið er
kóngur sem ræður öllu. Fíflið þarf því
að passa að barnið fari sér ekki að
voða. Að vera íifl er líka svolítið eins
og að vera nunna því maður afsalar
sér hefðbundnu lífi fyrir starfið."
Hvernig verk er Lér konungur?
„Það er fyrst og fremst þriller og
ævintýr. Á tímabili eru til dæmis fjór-
ir karakterar uppi á heiði: flflið, Kent,
Játgeir og Lér. Þrír þeirra eru í dular-
gervum og þykjast vera eitthvað ann-
að en þeir eru. Ég held að þetta verði
mjög „djúsí“ og spennandi. Ég er alla-
vega mjög spennt."
Hvernig fékk Barbara hlutverk í
sýningunni?
„Þegar Gio (Guðjón Pedersen) réð
mig til að leika þetta hlutverk sagðist
hann hafa áhuga á að tala við Bar-
böru og eiginlega ráða hana líka til að
leika fiflið. Ég var mjög spennt því
eðli Barböru er að taka hlutina og
gera eitthvað ófyrirsjáanlegt við þá.
En nú þarf ég að aga Barböru. Hún
hefur mjög skýr fyrirmæli frá mér um
að hún megi til dæmis ekki búa til
sinn eigin texta. Það er stundum eríítt
fyrir hana að sitja svona á sér. Þetta
virðist ætla að ganga þó að það sé al-
veg nýtt fyrir Barböru að ég, Dóra, sé
frekar við stjórnvölinn en hún.“
Er ekki erfitt aó skipta svona um
karakter í sifellu?
„Þegar ég er með nefið er allt önn-
ur orka í mér. Barbara er miklu örari
en ég. Það er til dæmis erfltt fyrir mig
að hlusta á leikstjórann með nefið á
mér. Það hefur líka tekið sinn tíma
fyrir mig að flnna út hvar ég þurfi
orkuna hennar Barböru og hvar ég
„Mér finnst þetta mjög gaman en þetta er líka mjög svona hættulegt af því að
ef það mistekst, þá er það ömurlegt."
lEI
Halldora G
dóttir leikk
með hlutverk
fíflsins í Shake-
speare-leikritinu
Lé konungi sem
frumsýnt verður í
Borgarleikhúsinu
í kvöld. Hún er
þó ekki ein um
að leika fíflið því
með henni deilir
hlutverki engin
önnur en trúð-
urinn Barbara.
ssi
„Að vera fifi er svolítið eins og að vera nunna því maður afsalar sér hefðbundnu
lífi fyrir starfið."
eigi bara að vera konan á bak við
fíflið.“
Halldóra viðurkennir að það sé
mjög gaman að fást við hlutverk á
þennan hátt. Aðspurð segist hún þó
alls ekki vera fyrsta konan til að leika
fiflið, það hafi margar gert áður.
En hvað segir Barbara, er gaman
aó leika í Lé konungi?
Barbara virðist feimin og getur
ekki horft á blaðamann. En það stopp-
ar hana ekki í að svara með sinni fal-
lega háu og skræku rödd. „Stundum
er ég bara að „feika“ af því að ég á að
segja einhver ákveðin orð og ég finn
ekki það sem er undir orðunum.
Stundum finn ég það alveg, og miklu
meira, en stundum bara er ég eins og
einn tónn. En ég á ekki að vera það,
ég á að vera meira eins og heilt pianó.
Ég er meira þannig."
Er þetta þá einhvern tímann leiðin-
legt?
„Það er nú aðallega það að stund-
um finnst mér ég bara leika mjög illa.
Dóru fmnst það líka og Dóra var til
dæmis að hugsa að hún þyrfti nú að
passa mjög vel upp á að ég væri ekki
bara svona þunnMi. Að ég yrði að
vera djúp.“
Þannig að þú hefur mjög gaman af
þessu öllu saman?
„Jaaá, mér flnnst þetta mjög gaman
en þetta er líka mjög svona hættulegt
af því að ef það mistekst þá er það öm-
urlegt."
En það mistekst ekkert, þú ert svo
frábœr, er það ekki?
„Manni getur nú alltaf svolítið mis-
tekist ef maður hugsar alltaf bara ég
er fráhær og hættir að vanda sig.“
En langar þig ekki að leika meira?
„Jú, alveg eins. Mig langar svona
að bara vera. Ekki alltaf bara gera.“
hverjir voru hvar
Klaustrið var iðandi sem fyrr og tóku gestir vel
í breytingar sem gerðar hafa verið. Um helgina
sáust þar m.a. þeir Valli sport, Siggi Hlö,
,, Ragga, Frikki Breytt/útlit með afrakstur
kvöldsins og fleiri gestir og starfsfólk Haus-
verks um helgar sem buöu til veislu eftir þátt-
inn. Á nýja dansgólfinu voru meðal annarra
Dóri Ijósmyndari, Philippe og Lára úr
Dreamworld, Ægir Dags úr Háskólabíói, Eva
Sólan þula, Bjarni galdramaður, Fríöur síma-
gella og Kiddi bigfoot og Jón Páll sem komu
til að kveðja staffið sitt. Starfsfólk Norður-
Ijósa hélt svo partf á
laugardagskvöldið, eftir
mikinn útreiðartúr, og í
veislunni voru Svali og
Magga V mest áberandi,
Gummi Gonzales, Þröst-
ur, Ásgeir Kolbeins,
Bússi og Dódo og Kjart-
an Guðbrands líkams-
ræktarfrömuður.
Síðustu helgi var Astró opnað að nýju undir
nýjum formerkjum. Nýir eigendur staðarins,
Guömundur Ingi og Þorlákur, tóku á móti
gestum ásamt nýjum skemmtanastýrum,
þeim Kidda bigfoot og Jóni Páli. Það var troð-
ið út að dyrum bæði kvöldin og komust færri
að en vildu. Á staðnum mátti m.a. sjá Yas-
mine dansara og vinkonur taka flott spor á
dansgólfinu, Árna Gunnars athafnamann,
sem mætti ásamt TM-mönnum. Guffa, Anna
Sigurðardóttir, Júlía og hinar Planet Pulse-
stelpurnar voru flottar á kantinum, Philippe
og Lára Dreamworld voru fersk að vanda,
Dóra, Dóri og Ragga hausverkir voru í góðum
gfr. Rúnar Róberts, fyrrum FM957, mætti
ásamt Bjarka, Kalla Lú,
Heiðari Austman, Har-
aldi Daöa, Pétri Árna,
Þór Bæring, Hvata og öll-
um hinum 957-gaukun-
um. Elín dansari og Kolla
lcelandic Models voru
flottar að vanda, Arnar
Gauti GK sat með „redd-
ara“ f sófanum i góðum
félagsskap, Svavar Örn
tfskulögga sýndi ný spor á dansgólfinu en
einnig voru á staðnum Robbi machoni, Birgir
og Hólmgeir á Stöð 1 (hvar sem hún er), Júl-
ía á Popp Tfvf, Kristófer H og Davið á Gullinu,
ívar Guðmunds, Bússi á PoppTÍVÍ, Hebbi í
Skfmó og Gummi Gísla, umbinn hans, Gunni f
L&S mætti ásamt sinni heittelskuðu, Sússu
klippara, Kjartan Guðbrands vaxtarræktar-
maöur, Maggi Ármann mætti ásamt Grétari
Óöalseiganda og voru þeir alveg að fíla stað-
inn ef marka mátti tilburðina á gólfinu, Siggi
B f Heimiiistækjum, Siggi Bolla og Sölvi 17
voru áberandi f klæðnaði eins og oft áður,
Gunnar Már eróbikk, Rúnar Freyr leikari
mætti án Selmu en með
Sigurð Kára vin sinn sér
við hlið, Andrés Pétur,
Hilmar Bender og Lauf-
ey, Berglind fegurðar-
drottning, Halla í Gullsól
og vinkonur voru fá-
klæddar og flottar, Berg-
lind Miss Rtness og vin-
konur, Jón Kári og Gunn-
ar Andri voru flottir meö
vindlana, Eva og Unnur fegurðardrottningar
létu taka eftir sér, Ingi Sælan, Pétur Ottesen
og Erik á Vegamótum brostu sínu breiðasta,
Nanna dansari og vinkonur sýndu flotta takta.
Tökuliðið frá E-entertain-
ment fílaði chillið á efri
hæðinni, Crew frá tfma-
ritinu FACE tók fólk tali
og myndaði staðinn,
íþróttafréttamenn Norð-
urljósa, Valtýr Björn,
Arnar Björnsson og
Björn voru ekki með
sportið í huganum, Ás-
geir Kolbeins, Stefán
Kennisteth var f góðum félagsskap, Hanna
Rut og stelpurnar úr
Betrunarhúsinu, Reynir
ModelA-YOU, Gonzales,
Jóhann dansskólastjóri,
Síssó, Gummi Ben og
Bjössi KR-ingar mættu
eftir hófið, Rósa
Spotlight og vinkonur
voru f stuði, Villi Vill, fót-
boltastrákur og fram-
kvæmdastjóri, Guðrún
og Eva frá Flugleiðum, Eiki f Sambfóunum,
Hafsteinn og Úlli Gauksmenn, Sista Ijós-
myndari mætti með útlenskum kollegum,
Barði BangGang mætti með erlendum tónlist-
arumbum, Þórarinn hjá Heimsmynd, Tóti, og
Sigga létu sig ekki vanta, Herbert Arnars og
Eiríkur Önundar ræddu körfu á kantinum
(þrátt fýrir að tfmabilið sé byrjaö), Ragnar Már
f OZ, Friöjón, Siggi John klámkóngur, Gunni
Val, Dj. Carlos, Jói,
Steini og Lassi ex-Rex,
Þorlákur og Jón Guð-
munds. fasteignasalar,
Villi á Glaumbar, ívar á
Sportkaffi, Sigga og Árni
f Ég og þú og aö lokum
var það Jón Gunnar Geir-
dal sem var f geðveikum
fíling.
m
RCWELLS
Tíska* Gæöi* Betra verð
14
f Ó k U S 6. október 2000