Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Síða 4
Það er ekki meiri dulúð yfir Occult-klúbbnum en svo, að honum má fletta upp í vefsímaskránni.
Talsmaður klúbbsins er Margrét Ásgeirsdóttir, ósköp venjuleg eldri kona sem galdrar einstaka sinnum og
les gamlar dulspekiskruddur þegar henni gefst tóm til. Fyrir öld eða tveimur hefði hún vafalaust verið út-
hrópuð norn og brennd á báli fyrir skoðanir sínar en nú fæst hún við hugðarefni sín í rólegheitum Breið-
holtsins. Eirik Sordal hitti hana að máli yfir bolla af kaffibaunaseyði.
Indverjarnir sakna
........okkar enn
„Ég held aö viö verðum að byrja á
byrjuninni. Viö viljum vita hver við
erum og hvar við erum. Um það snýst
occultisminn," segir Margrét um upp-
haf þeirra fræða sem kennd eru við
Occult. Occult-klúbburinn var stofnað-
ur fyrir mörgum árum, byrjaði með 30
meðlimi en kvíslaðist fljótlega í þrjár
greinar, að sögn Margrétar. Félögum
hefur fjölgað mikið síðan þá og hróður
klúbbsins borist víða - svo víða að
þónokkuð af frítima Margrétar fer í að
svara hringingum frá forvitnu fólki,
erlendu jafnt sem íslensku.
Tíminn loksins afstæður
„Við hittumst hér og þar, leitum að
heimildum og berum saman bækur
okkar,“ segir Margrét um félagsstarf-
iö. „Við verðum að fara í sagnfræðina
til að grafa upp heimildir því að prest-
ar allra alda hafa viljað halda þekking-
unni fyrir sig og reynt að þurrka þetta
út. Þess vegna varð það occult. Occult
þýðir bara eitthvað hulið eða falið. Við
urðum að fara undir jörðina þegar
prestaveldið var og hét. Það voru
kristnir prestar sem brenndu bóka-
safnið í Alexandríu - þar var þekking-
in. Nýju visindamennimir valta yfir
þá gömlu sem héldu því fram að við
værum komin af einhverjum aulum
og hálfópum. Vísindin hafa ailtaf ver-
ið þarna fyrir austan en í Evrópu hafa
búið barbarar. Píramídamir em þakt-
ir skrifum um púra eðlisfræði," segir
Margrét og bætir því við að occultið
eigi sér helst hliðstæðu í eðlisfræði
nútímans og í afstæðiskenningunni.
„Það er loksins búið að finna það út að
tíminn sé afstæður - þú flýgur til Am-
eríku inn í gærdaginn og til Asíu inn
í morgundaginn. Efnið er í raun ekki
til. Þú sérð það að jónir em minnstu
efniseindimar og maður sem reyndi
að kljúfa jón lenti inni á Kleppi, var
mér sagt. Jónin sá viö honum því það
er ekkert í henni. Skynheimurinn er
bara blekking. En það verður að um-
gangast hann rétt og fylgia reglunum
um karmalögmálið. Það er eins með
afstæðiskenninguna. Engin lína er
bein sem þýðir að allt fer í hringi. Ef
þú setur eitthvað af stað kemur það
Við höfum svo marga skrokka, sam-
tals tíu. Þegar þú sefur geturðu horft á
kjötskrokkinn sofa, úr loftskrokknum
og ég hef gaman af því að gera svona
tilraunir. Að minnsta kosti 10, ef ekki
20%, íslendinga hafa farið í þennan
loftskrokk," fullyrðir hún.
Þetta minnir visslulega á galdra-
brögð, enda tengja áreiðanlega margir
occult við galdur og myrk fræði, en
Margréti flnnst það ekkert tiltökumál.
„Já, já, galdrarnir em bara jóga, fólk
skilur það bara illa. En það kemur
voða sjaldan fyrir að við notum þetta.
Ég hef sjálf lítið galdrað, aðallega með
veðrið, og ég hef bara einu sinni galdr-
að á mann og það var alls ekkert skað-
legt,“ segir hún. Margrét segist halda
íslendinga of gáfaða til að fikta við
svartan galdur. Sjáif lætur hún þann
geira eiga sig og hafnaði einu sinni
boði um að taka þátt í svartri messu
hjá nemanda Allister Crowley, þess
virta djöfladýrkanda.
Atiantis rís úr sæ
En trúir Margrét þessu öllu? „Nei,
ég trúi engu, ég vil vita. Elstu
sanskrítarbækurnar heita Veda og
það þýðir einmitt vita. Þetta er mjög
svipað íslensku. Ég komst að því að
orðið sál er vahn á sanskrít og það
þýðir vagn. Tengslin sýna bara að við
erum upphaflega frá þessu svæði.
Allir þeir Indverjar sem ég hef talað
við segjast sakna okkar enn,“ segir
hún og hlær. „Þessi þekking kom upp-
haflega frá Atlantis og við sitjum á af-
ganginum af Atlantis. Það halda allir
að Atlantis hafl bara verið pínulítil
eyja. Atlantshafið nær frá suðurpól til
norðurpóls, og Atlantis var jafnstórt.
Við höldum að við pólskiptin muni
það rísa úr sæ aftur og eftir því sem
vísindamenn segja em líkur á að pól-
skiptin verði um 17. nóvember næst-
komandi, klukkan fjögur GMT. Við
vitum litið, en sagt er að þjóðir og álf-
ur eigi að fara niður, og okkur flnnst
þá líklegt að Atlantis komi i staðinn.
En þetta er ekki sannprófað og ég tek
enga ábyrgð á því,“ segir Margrét
glottandi. Fyrir þá sem hafa á því hug
að ganga tU liðs við Occult-klúbbinn
er skemmst frá þvi að segja að sökum
fjölgunar undanfarið mun ekki tekið
við fleiri, að minnsta kosti ekki fyrr
en að pólskiptum yfirstöðnum, og þá
verður líka búið að skilja hafrana frá
sauðunum.
aftur til þín á endanum," segir hún
ákveðin og virðist sjálf ekki búin að
tapa þræðinum.
Endurfæddur jógi
En hvaðan fá occultistar heimild-
imar? „Við fáum mesta þekkingu úr
gömlum bókum og öðram nýrri sem
byggjast á þeim. Við höfum til dæmis
mikið lesið bækur Blavatsky; hennar
besta bók er Secret Doctrine," segir
Margrét. Hún telur eigin áhuga á
occultinu meðfæddan. „Það er þannig
með mig,“ segir hún, „að ég er víst
endurfæddur jógi og ég fæddist með
þessa þekkingu, hún smárifjast upp
fyrir mér. Þessu komst ég að á Ind-
landi 1990, það sögðu mér eldgamlir
jógar. Þegar ég var ung komst ég að
því að ég gat horft á sjálfa mig sofa.
04 h-1
1 m J|f
l 1 ' íal- p|: jf|j a-.'g
*'«<r
á 300 kall
Bíósjálfsalinn er opinn allan sólarhringinn hjá OLÍS Gullinbrú í
Grafarvogi, SELECT Smáranum í Kópavogi og NESTI Lækjargötu
í Hafnarfiröi. Bíósjálfsalinn er einnig opinn á venjulegum afgreiöslu-
tíma hjá OLÍS Mjódd og Álfheimum og hjá NESTI Ártúnshöfða.
Barnaleikur aö velja mynd - bara að muna eftir kreditkortinu.
Aðeins 300 kr. á spólu* fyrir sólarhringsleigu! *Kynningarver6
Bíósjálfsalinn
- sjálfvirk mfndbandaleiga
- alltaf opinn
mttiþéM
f Ó k U S 20. október 2000