Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Síða 4
F F T. T.........R V T M M li
Vikan 20. október tll 26, október
fókus
IJLXiA
Þau ákveða að sameina krafta sína
í verkefnagerð fyrir blaða-
mannakúrs sem þau sækja í skól-
anum og ætla að kanna skilin á
miili frétta og slúðurs. Kvöld eitt
hittir Derrick á tilvalið viðfangs-
efni fyrir rannsóknina. Hann er
staddur í teiti og sér þar til eftir-
sóttustu fyrstaársskutlunnar, Na-
omi (Kate Hudson), ofurölvi í
innilegum faðmlögum við kærasta
sinn, Beau (Joshua Jackson). Það
er alkunna að Naomi er strangtrú-
aður skírlífissinni en engu að síður
ákveða þremenningamir að koma
þeim orðrómi af stað að hún hafí
legið undir kærastanum umrætt
kvöld og þótt ágæt skemmtun. Sag-
an berst um skólalóðina eins og
eldur imi kúlutjald og meira að
segja besta vinkona Naomi, Sheila
(Marisa Coughlan), stendur öðr-
um fremur fyrir því að breiða út
þessi saurugu tíðindi. Brátt er sag-
an orðin stjómlaus og skiptir þá
engum togum að lögreglan blandar
sér í málið og sagan stefnir hrað-
byri á forsíðu Norsk Ukeblad. Nú
sitja þremenningamir í súpunni
eins og hjálparvana brauðmolar og
verða að ákveða hvað eigi til
bragðs að taka.
Ungstirni á réttri leið
Þegar hugmyndin að Gossip
kviknaði stóð til að Joel
Schumacher leikstýrði myndinni,
en hann er vel kynntur hjá kvik-
myndaáhugamönnum og hans
helstu sigrar á því sviðinu era
8mm og Batman & Robin. Sökum
anna dró Schumacher sig til baka
og endaði sem aðalframleiðandi
myndarinnar. Sá sem hlaut heiður-
inn af leikstjóminni heitir Davis
Guggenheimer og er tiltölulega
óþekktur í kvikmyndaheiminum,
en hann hefur leikstýrt nokkrum
vinsælum sjónvarpsþáttum, meðal
annars Bráðavaktinni (ER), Par-
ty of Five og NYPD Blue. Leikar-
amir eiga það sameiginlegt Gug-
genheimer að flestir eru þeir að
stíga sín fyrstu skref á hinum
langa og þymum stráða slóða til
hollívúddvinsælda en era allir á
réttri leið. Stærsta hlutverk James
Marsden hingað til er sennilega í
ofurhetjumyndinni X-men, en ný-
lega lónaði hann utan við Færeyjar
við upptökur á mynd Sea
Shepherd-hrjálæðingsins Paul
Watsons, Ocean Warrior. Auk
þess hefur hann komið fram sem
gestaleikari í þónokkrum sjón-
varpsþáttum eystra, meðal annars
í Bamfóstrunni (The Nanny) og
Party of Five. Lena Headey lék
síðast í myndinni Onegin, sem
byggð er á ljóði Pushkins, og var sú
mynd sýnd á nýlokinni kvik-
myndahátíð. Einnig hefur hún leik-
ið í Skógarsögu (The Jungle
Book) og Dreggjum dagsins (The
Remains of the Day). Norman
Reedus er lesendum liklegast að-
eins krmnur úr tryllinum vinsæla,
8mm, og Kate Hudson á að sama
skapi frekar stuttan feril aö baki og
engin mynd hennar er þekktari en
200 Cigarettes. Sömu sögu er að
segja um Marisa Coughlan, en
hún lék ekki ósvipað hlutverk
þessu í unglingatryllmum vinsæla,
Teaching Mrs. Tingle.
Illvígur Mexíkói
Ekki eru allir leikarar myndar-
innar algjörir nýgræðingar því Ed-
ward James Olmos, sem leikur
rannsóknarlögreglumanninn Curt-
is, hefur verið lengi að. Hann er
einhver illvígasti Mexíkóinn á
svæðinu og hefur oft leikið glæpa-
menn af því tagi. Vafalaust muna
margir eftir honum úr hófamynd-
inni American Me sem hann leik-
stýrði og fór með aöalhlutverkið í.
Þar lék hann smákrimmann Sant-
ana sem sagði ansi oft „oralle esse“
og var dæmdur til langrar setu í
fangelsi fyrir glæpi sína. Þegar
hann slapp út voru sköp kvenna
honum ekki lengur fýsilegur kost-
ur og hann kaus heldur að lauma
sér í skutinn á kvensunum við mis-
góð viðbrögð. Ábyggilegt má því
telja að viðvera hans kryddi leik-
inn í Gossip.
Stolinn meydómur
Handritið að Gossip er nokkuð
frumlegt. Sambýlingamir Derrick
(James Mardsen), Jones (Lena
Headey) og Travis (Norman
Reedus) drekka bjór í kippulali og
flippa út á háskólaheimavistinni.
Klíppti stuttmynd
„Ég eyddi helginni í vinnu við
stuttmynd sem ég hef verið að
gera siðan i sumar. Það er ástar-
saga sem ég skrifaði handritið að
og leikstýrði en ég vonast til að
hafa hana fullkláraða i kringum
mánaðamótin. Við ísak, félagi
minn, vorum að klippa hana til og
það fór mest af helginni í það. Ég
gaf mér samt tíma til að kíkja á
Vegamót og fá mér einn bjór með
félögunum, það er alveg nauðsyn-
legt.“
Hinrik Hoe Haraldsson leikari
Með hjjómsveitar-
félögunum
„Þetta var einstaklega skemmti-
leg helgi hjá mér. Við strákamir í
hljómsveitinni hittumst heima hjá
mér á fostudagskvöldið og héldum
smáfund. Síðan fengum við okkur
góðan mat og drykk og hlustuðum
á tónlist. Við fóram í bæinn og
menn voru mishressir að því
loknu, allavega kom ég frekar seint
heim. Ég ákvað svo á laugardaginn
að vera duglegur og eyddi töluverð-
um tíma í að æfa mig á hljómborð-
ið það sem eftir lifði af helginni.“
Daði Birgisson,
hljómborðsleikari í Jagúar
m
Horfði á
ofbeldismynd
„Á föstudaginn fór ég út að
borða á La Primavera og leit síðan
inn á Mannsbar. Á laugardags-
kvöldið horfði ég svo á I Kina
spiser de hunde. Það er ágæt
hressandi dönsk ofbeldismynd
sem er byggð á sönnum atburðum
og fjallar um óheppinn bankaræn-
ingja sem kemst upp á kant við
júgóslavneska glæpaklíku. Úr því
veröur svo allsherjarblóðbað. Fyr-
ir utan þetta gerði ég ekki neitt
þessa helgi, enda mjög latur.“
Frosti Jónsson hljóðhönnuður
Bíómyndin Gossip
verður frumsýnd í
Sambíóunum
þessa helgina.
Hún fjallar um
þríeyki háskóla-
nema sem ákveður
að reyna á skilin
milli frétta og slúð-
urs, í tengslum við
skólaverkefni,
en leysa úr læðingi
sögusögn sem
þeim reynist erfitt
að hemja og
hefur alvarlegri
afleiðingar en þau
kæra sig um að
bera ábyrgð á.
Gossip hefur verið likt við gæsa-
húðar-unglingamyndir á við
Scream og Urban Legend en er þó
sögð matarmeiri sem kvikmynd og
býður upp á margsnúinn söguþráð
í ætt við myndirnar Wild Things
og Cruel Intentions.