Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Síða 10
E0 1i f ið
EFTIR VI NNU
■VJ-k-a-n..21,...................t i l..Z..,.it .6...» e m b e r
Ifókus
29/10
• Krár
■ EIKIN Á GAUKNUM Það er til bandalag tón-
listarmanna sem hlotiö hefur nafniö Eikin. Eik-
in veröur á Gauknum í kvöld og meira er ekki
vitaö.
Böll
■ CAPRI j ÁSGARÐI Það veröur dansleikur frá
klukkan 20-23.30 í kvöld í Ásgarði, Glæsibæ.
Capri-tríói& sér um múúúsíííkina.
•Klassík
■ SÖNGTÓNLEIKAR Þær Þóra Einarsdóttir,
sópran, og Helga Bryndís Magnúsdóttir, pí-
anó, flytja verk eftir Debussy, Ravel, Strauss og
Hugo Wolf í Salnum í Kópavogi klukkan 20.
■ SÖNGUR í SALNUM í Salnum I Kópavogi, í
kvöld, kl. 20.00, munu Þóra Einarsdóttir, sópr-
an, og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanó,
flytja verk eftir Debussy, Ravel, R. Strauss og
Hugo Wolf. Miðsala er opin virka daga frá
kl.l3.00-18.00tónleikadaga til kl. 20:00 og um
helgar klukkustund fyrir tónleika.
®Leikhús
■ GLANNI GLÆPUR í
LATABÆ Glannl glæpur i
Latabæ eftir Magnús
Scheving og Sigurð Sigur-
jónsson í Þjóðleikhúsinu í
dag kl. 14.00. Spriklandi
fjörugt barnaleikrit sem
naut gífurlegra vinsælda á
liðnu leikári. Takmarkaöur
sýningafjöldi. Nú eru síö-
ustu forvöð að sjá félagana í Latabæ í Þjóðleik-
húsinu!
■ HORFÐU REIÐUR UM ÖXL Horfðu reiður
um öxl í Þjóðleikhúsinu í kvöld á Litla-sviðinu,
kl. 20.00. Uppselt.
■ LÓMA Möguleikhúsið (við Hlemm) sýnir
Lómu eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur í dag kl.
14.00. Uppselt. Hjá Möguleikhúsinu fást nú
svokölluð VINAKORT sem er 10 miða leik-
húskort á sýningar að eigin vali. Verð aðeins kr.
8.000.
Borgarleikhúsinu. Aukasýning.
■ SNUÐRA OG TUÐRA Mögulelkhúslð (við
Hlemm) sýnir Snuðru og Tuðru eftir Iðunni
Steinsdóttur í dag kl. 16.00. Hjá Möguleikhús-
inu fást nú svokölluð VINAKORT sem er 10
miða leikhúskort á sýningar að eigin vali. Verö
aðeins kr. 8.000.
■ STORMUR OG ORMUR I dag verður sýndur í
Kaffileikhúsinu hinn stórskemmtilegi barnaein-
leikur Stormur og Ormur sem hefur hlotið ein-
róma lof gagnrýnenda. Sýningin hefst kl.
15.00.
■ ALLT í PLATI í MOSFELLSBÆ Leikfélag
Mosfellsbæjar sýnir Allt í plati í dag klukkan 14
og 17. Miðapantanir í síma 566-7788
■ GLANNI GLÆPUR í LATABÆ Glanni glæpur
i Latabæ eftir Magnús Scheving og Sigurð Sig-
urjónsson í Þjóðleikhúsinu í dag kl. 17.00.
Spriklandi fjörugt barnaleikrit sem naut gifur-
legra vinsælda á liðnu leikári. Takmarkaður sýn-
ingafjöldi. Nú eru síðustu forvöð að sjá félag-
ana í Latabæ i Þjóðleikhúsinu!
■ GÓÐAR HÆGÐIR Það er sýning á Góðar
hægðir eftir Auði Haralds klukkan 20 í Tjarnar-
bíói. Miðapantanir í 530-3030
■ TRÚÐLEIKUR
í IÐNÓ Verkið
Trúðleikur verð-
ur sýnt í Iðnó i
dag klukkan 14
og 20, örfá
sæti eru laus og
siminn er 530-
3030.
•Kabarett
■ HRATT OG BÍTANDI Skemmtidagskrá í kvöld
í Kaffileikhúsinu í tengslum við útkomu mat-
reiðslubókarinnar Hratt og bítandi eftir Jó-
hönnu Sveinsdóttur. Sýningin hefst kl. 19.30.
■ S'IÐASTA SÝNING ÓMARS Síðasta sýning
Ómars Ragnarssonar
verður í kvöld á Broa-
dway. Ómar er auð-
vitað snillingur
þannig að þetta er
siðasta tækifærið til
að sjá kallinn fara á
kostum í þakföllum
og öðru. Áfram Ómar!
•Síöustu forvöö
■ 20 ÁRA AFMÆUSSÝNINGU GANGSINS i
dag lýkur 20 ára afmælissýningu Gangsins í
Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Gangurinn
er heimagalleri sem myndlistarmaðurinn Helgi
Þorgils Fríðjónsson hefur rekið um tuttugu ára
skeið. Leiðsögn er um sýninguna í dag, kl. 16.
■ BJARNI ÞÓR í GERÐUBERGI I dag lýkur
sýningu á verkum Bjarna Þórs Þorvaldssonar
(Thor) i Gerðubergi. Bjarni skilgreinir sig sem
sjálfmenntaðan súrrealista. Hann skapar
myndir af innsæi sínu, þ.e.a.s. hann sér,
skynjar og skapar. Myndirnar á sýningunni eru
unnar með blekpenna, vatnslitum, olíulitum
og akrýlmálningu.
■ JENNÝ GUÐMUNDSPÓTTIR í dag i austur
sal Listasafns Kópavogs, lýkur Jenný Guð-
mundsdóttir myndlistarmaður sýningu sinni
sem ber yfirskriftina Skopun heimsins, í
nafni Guðs, föður sonar og heilags anda" og
er form myndflatarins og texti við myndirnar
sótt i Biblíuna. Jenný Guðmundsdóttir er út-
skrifuð frá grafíkdeild MHl árið 1978 og
stundaði hún framhaldsnám í grafík við Kon-
sthögskolan i Stokkhólmi 1979-91. Jenný hef-
ur aðallega unniö í grafík og tekið þátt I sýn-
ingum hér heima og erlendis. Á sýningunni í
Gerðarsafni fer Jenný nýja leið í myndsköpun
sinni hvað varðar tækni og útfærslu. Sýning-
unni er opnin frá 11-17.
■ SÝNING í ÁMUNDARSAFNI í dag lýkur sýn
ingu á verkum Ásgríms Sveinssonar í eigu
Ámundarsafns í safninu.
■ TÍMINN OG TRÚIN Tíminn og trúin er farand-
sýning sjö listakvenna sem lýkur í dag í Grens-
ásklrkju. Upphaflega var efnt tii sýningarinnar í
tilefni kristnitöku-hátíðarhaldannasíðastliðið ár.
Verkin hafa öll skírskotun til yfirskriftarinnar og
eru byggð á víðtækri könnun á táknmáli og
sögu kristninnar og hinum ýmsu þáttum trúar-
innar. Listakonurnar sem eiga verk á sýning-
unni eru Alda Ármanna Sveinsdóttlr, Auður
Ólafsdóttir, Gerður Guðmundsdðttir, Guðfinna
Anna Hjálmarsdóttir, Kristín Arngrímsdóttir,
Soffía Árnadóttir og Þórey (Æja) Magnúsdótt-
ir. Sýningin er opin frá kl.8.00 -16.00.
■ VALCERÐUR HAUKSDÓTTIR í dag lýkur f
vestursal Listasafns Kópavogs sýningu Val-
gerðar Hauksdóttur á 33 myndverkum sem öll
eru unnin á þessu ári með blandaðri tækni og
“collage” tækni á handgerðan japan pappír.
Sýningin samanstendur af 8 myndröðum sem
saman mynd eina heild og nefnist “Púls”. Verk-
in fjalla um hrynjandi og samspil ólíkra þátta til-
verunnar og gegnsæi hennar, um hin fíngerðu
mörk milli lífs og dauða, milli efnis og andefnis
og um fegurðina í hinni eilífu hringrás. Sýning
Valgerðar í Gerðarsafni er tíunda einkasýning
hennar en jafnframt hefur hún tekið þátt í yfir
50 samsýningum í Evrópu, Afríku, Bandaríkj-
unum og Asíu. Sýningin er opin frá 11-17.
■ ÁSMUNDUR SVEINSSON í dag lýkur yfirlits-
sýningu á verkum Ásmundar Sveinssonar í Ás-
mundarsafni við Sigtún. Safnið er opið frá kl.
13-16.
■ ÍVAR VALGARPSSON i dag á neöri hæð
Listasafns Kópavogs, Geröarsafni, lýkur sýn-
ingu á verkum ívars Valgarðssonar sem hann
nefnir HJARNHVÍTT-HRÍMHVÍTT-BEINHVÍTT.
Þetta er 14. einkasýning ívars og hún sam-
anstendur af þremur þrískiptum verkum sem
saman mynda eina heild, auk boðskorts. Þau
eru gerð úr innanhússmálningu með nöfn og
eðli litanna I huga og skírskotun þeirra til um-
hverfis okkar. Sýningin er opin frá 11-17.
•Fundir
■ FÉLAG ELDRI BORGARA Félag eldri borg-
ara verður með fundi í Ásgarði, Glæsibæ. und-
ir yfirskriftinni Hreyfing er holl, en fyrirlesari er
Uggi Agnarsson sem ræðir um nýja rannsókn á
vegum Hjartaverndar. Einnig verður boöið upp
á fræðslu og kynningu frá heilsuræktinni World
Class.
Bíó
■ BRAUTARSTÖÐ FYRIR TVO Myndin Voksal
dlja dvoikh, eða Brautarstöð fyrir tvo, verður
sýnd í Bíóhúsinu MÍR að Vatnsstíg 10 í dag, kl.
15. Enskur texti er á myndinni og aðgangur er
ókeypis eins og alltaf í MlR. Brautarstöðin er
fræg kvikmynd Eldars Rjazanovs frá árinu
1983, með hinni vinsælu Ljúdmilu Gurtsenko í
einu aðalhlutverkanna. Hún leikur gengilbeinu í
veitingasal brautarstöðvar sem lendir fyrst í úti-
stöðum við tónlistarmann meðal farþeganna en
verður svo ástfangin af honum.
■ NORSKAR STUTTMYNDIR I dag, kl. 14,
verða sýndar norskar stuttmyndir í Norræna
húslnu.
Mánudagur \
30/10
• K 1 ass í k
■ ELLIOTT SCHWARTZ í TÓNSKÓLA SIGUR-
SVEINS Elliott Schwartz heldur fyrirlestur í sal
Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar á
Engjateigi 1 klukkan 20 í kvöld. I löngu spjalli
sínu mun kappinn fjalla um ameríska tónlist frá
þessari öld og með aðstoð tónlistarnema mun
hann flytja brot úr nokkrum verka sinna. Maður-
inn er víst í senn tónskáld, píanóleikari, rithöf-
undur og kennari og hefur komið víða fram í
Bandaríkjunum og Evrópu. Bæði hefur hann
flutt og hljóðritað mörg eigin verka. I tónlist
sinni bregður hann fyrir sig ólíkum stílbrigðum,
allt frá raftónlist og atónalisma til hljómrænni
verka. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Góða skemmtun.
Þriðjudagur^
31/10
• Krár
■ ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
HEIÐU Útgáfutónleikar
Heiðu, gömlu söngkonunn-
ar úr Unun, fara fram á
Gauknum í kvöld. Heiða
hefur verið í námi og gefur
nú frá sér sólóplötuna
Svarið.