Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Blaðsíða 11
í 1 fókus •Leikhús ■ HÁALOFT Háaloft er einleikur um konu með geðhvarfasýki eftir Völu Þórsdóttur. Sýningin hefst kl. 21.001 kvöld í Kaffileikhúsinu í Hlað- varpanum. •Síöustu forvöð ■ CAFE9.NET í dag er síðasti dagur netkaffis- ins cafe9.net í Listasafni Reykjavíkur. Hér er um að ræða samstarfsverkefni 8 af 9 menn- ingarborgum Evrópu árið 2000. ■ OU'A OG PASTEL Á CAFÉ MILANÓ í dag lýkur sýningu Hólmfríðar Dóru Sigurðardóttur á olíumálverkum og pastelmyndum í Café Milanó, Faxafeni 11. Á sýningunni eru sýnd 18 verk. Dóra hefur ekki sýnt áður í Reykjavík, en haldið einkasýningar og tekið þátt í nokkrum samsýningum á landsbyggðinni. Hún býr á Hvammstanga og starfrækir þar gailerí, sem sérhæfir sig I persónulegum gjöfum. Sýningin er opin á opnunartíma kaffihúsins. ■ TÁR TÍMANS í dag lýkur sýningu á verki listamannsins Greipar Ægis sem nefnist Tár Timans í Gleraugnaversluninni Sjáðu, Lauga- vegi 40. •Fundir ■ BÓKAKAFFl Síung, félag barnabókahöfunda og bækur íslandsdeildar IBBY standa fyrir bókakaffi á Súfistanum í Máli og menningu í kvöld, kl. 20.15. Þarna verða upplestrar, um- fjallanir og kaffispjall. Meðal annarra koma fram Þorvaldur Þorsteinsson, Jón Hjartarson og Kristín Helga Gunnarsdóttir. ■ HÁDEGISITJNDUR SAGNFRÆÐINGA Há- degisfundur verður haldinn f Norræna húsinu á vegum Sagnfræöingafélags íslands í dag. Þema fundanna í vetur er hvaö sé stjórnmála- saga. Davíð Oddsson forsætisráðherra mun velta þessu fyrir sér í samnefndu erindi sínu, “Hvað er stjórnmálasaga?" Fundurinn hefst kl. 12.05 og lýkur kl. 13.00. Popp ■ MAGGA STÍNA í BÓUÐ Magga Stína verð- ur með tónleika á vegum Tilraunaeldhússinns ásamt sjö smávöxnum tónlistarmönnum í Kaffi- leikhúsinu í kvöld. Eyjólf- ur Kristjánsson þeytir skíf- ur og sönglar "Ninu” f hug- anum og flutt verður sfm- gjörningurinn Telefónían. Tónleikarnir hefjast klukk- an 21.00 og forsala miða fer fram í 12Tónum. •Krár ■ MARGRÉT EIR Á NÆSTA BAR Söngdivan Margrét Eir fer með Ijúfa tóna við þéttan undirleik Kristjáns Eldjárns gítar- leikara og Birgis Baldurs- sonar ásláttarleikara. Músíkin fer af stað kl. 22.00 og það er fritt inn. •K1ass í k ■ NÍNA MARGRÉT CRÍMSPÓTTIR Nína Mar- grét Grimsdóttir píanóleikari heldur tónleika f kvöld, kl. 20, f Salnum í kvöld. Rutt verða öll pf- anóverk dr. Páls ísólfssonar (1893-1974) en þau hafa hvorki verið hljóðrituð né flutt áður I heild sinni á tónleikum. •Leikhús ■ HORFÐU REIÐUR UM ÓXL Horfðu reiður um öxl í Þjóðleikhúsinu í kvöld á Litla-sviðínu, kl. 20.00. ■ KIRSUBERJAGARÐURINN í kvöld verður sýnt f Þjóðleikhúsinu leikritið Kirsuberjagarður- inn eftir Anton Tsjekhov. ■ LANGAFI PRAKKARI Möguleikhúsið (við Hlemm) sýnir Langafa prakkara eftir Sigrúnu Eldjárn í dag kl. 10.30. Uppselt. Hjá Möguleik- húsinu fást nú svokölluð VINAKORT sem er 10 miða leikhúskort á sýningar að eigin vali. Verð aðeins kr. 8.000. ■ MEÐ FULLRI REISN í TJARNARBÍÓI Með fullri reisn verður sýnt f Tjarnarbíói f kvöld klukkan 20:30. Miðapantanir f 561-0280. •Kabarett ■ MAGGA STÍNA OG DVERGARNIR SJÓ Til- raunaeldhúsið verður f kvöld með óvænta ból- félaga f Kaffileikhúsinu á dagskrá Menningar- borgar 2000. Magga Stína og dvergarnir sjö koma fram. Dvergarnir eru sjö kornungir lista- menn sem skapa með tónlistarflutningi ógn- vekjandi stemningu. Tilraunaeldhúsið verður opnað kl. 21.00. •Síöustu forvöö ■ SVETLANA MATUSA Svetlana Matusa sýn- ir um þessar mundir keramik skúlptúra og nefnist sýningin ís og hraun. Sýningin er f List- húsi Ófeigs á Skólavörðustfg 5. Svetlana er fædd f Júgóslavfu 1959 og útskrifaðist frá UnF versity of Applied Arts Belgrade. Síðan 1986 hefur hún tekið þátt f 100 sýningum og haldið 12 einkasýningar. Sýningin er opin á verslunar- tímum og lýkur l.nóvember. Fimmtudagut) 02/11 Popp ■ BRAVO Á THOMSEN Það verður nóg um að vera á Thomsen f kvöld jjegar þriðja Bravo-kvöldið fer f loftið. Snillingarnir f Úlpu eru aðalnúmerið en með þeim spila Skurken og Dlrty Blx. Bix er á land- inu f tvær vikur og féilst af sinni alkunnu góð- mennsku á að grfpa í plötuspilarana þetta kvöld. Dæmið hefst klukk- an 21.30 og er 500 kall inn. •Sveitin ■ GERPU GOTT ÚR GÆS MAÐUR Námskeið- iö Geröu gott úr gæs maður er endurtekið í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað. Nám- skeið fyrir karlmenn í matreiöslu úr gæs undir handleiöslu meistarakokksins Gróu Kristínar Bjarnadóttur. •Leikhús ■ ABIOAIL HELDUR PARTÍ Leikritið Abigail heldur partí eftir Mlke Leigh verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í kvöid. Leikritið gerist eina kvöldstund á heimili hjónanna Beverly og Laurence.Beverly, sem Margrét Helga Jó- hannsdóttir leikur, er afskaplega þreytandi og Iftt dönnuð húsfreyja sem er umhugað um að vera hinn fullkomni og heillandi gestgjafi, en tekst það einhverra hluta vegna ekki sem skyldi.Laurence, leikinn af Hjalta Rögnvalds- syni, er dæmigerður vinnuþjarkur, á sífelldum þönum vegna vinnunnar og skipana konu sinn- ar. Beverly og Laurence hafa boðið nágrönnun- um til sfn f vfnglas og snakk.Aðrir leikarar: SóF ey Elíasdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Harpa Arnardóttlr. Leikstjóri er Hilmir Snær Guöna- son og er þetta fyrsta verkefni hans f Borgar- leikhúsinu. Kristján Þórður Hrafnsson þýddi verkið á íslensku. ■ LÓMA Möguleikhúsið (viö Hlemm) sýnir Lómu - mér er alveg sama þótt einhver sé að hlæja aö mér eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur í dag kl. 10.00. Uppselt. Hjá Möguleikhúsinu- fást nú svokölluð VINAKORT sem er 10 miða leikhúskort á sýningar að eigin vali. Verð að- eins kr. 8.000. ■ SJEIKSPÍR í LOFTKASTALANUM Þaö er sýning á Sjeikspír eins og hann leggur sig f Loftkastalanum f kvöld. Kvikindið hefst klukk- an 20. Miðapantanir í 552-3000. ■ SÝND VEIÐI í IÐNÓ Það er önnur sýningin á Sýnd veiði f Iðnó í kvöld. Ballið byrjar klukk- an 20, örfá sæti eru laus og sfminn er 530- 30303. ■ VITLEYSINGAR í HAFNARFIRÐI Hafnar- Qaröarleikhúsið sýnir í kvöld Vitleysingana eft- ir Ólaf Hauk Simonarson. Sýningin hefst klukk- an 20, miðasala 555-2222 og á Visi.is en þvf miður er uppselt f kvöld. •Kabarett ■ KVENNA HVAÐ...! Kvenna hvað...! I tilefni af kvennafrídeginum var búin til dagskrá sem sýnd er í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum. Þetta er dagskrá með Ijóðum og söngvum um Islenskar konur. Umsjón og flutningur eru I höndum Önnu Pálínu Árnadóttur og Völu Þórs- dóttur sem leika og syngja íslenskum konum til heilla. Pfanóleikur Gunnar Gunnarsson. Sýn- ingin f kvöld hefst ki. 20.30. •Fundir ■ KONUR OG STJÓRNUN í dag mun Penelopa Lisi menntunarfræðingur ræða “Konur og stjómun: Saga rannsókna á kvenstjórnendum í bandaríska menntakerfinu. Hvaða lærdóma má draga af þessum rannsóknum?” f hádeg- israbbi Rannsóknastofu í kvennafræðum. Rabbið verður haldið f Odda, stofu 201, kl. 12.00-13.00. Allir velkomnir. Bíó ■ NAKED í tengslum við frumsýningu leikrits- ins Abigail heldur partí f Borgaleikhúsinu sýn- ir Kvikmyndaklúbburinn Filmundur hina marg- verðlaunuðu kvikmynd Naked eftir Mike Leigh f kvöld kl. 22.30 f Háskólabíó. myndlist ■ JYRKI PARANTAINEN I NORRÆNA HÚS- INU Um þessar mundir sýnir Jyrki Parantainen verk sfn I Norræna húsinu. Sýningin stendurtil 17. desember. ■ ÞETTA VILL DIDDÚ SJÁ Nú stendur yfir sýn- ing á verkum sem söngkonan þjóðfræga Diddú hefur valið til sýningar í Gerðubergi. Sýningin stendur til 19. nóvember. ■ JÓN AXEL í USTASAFNI ASÍ Um þessar mundir sýnir Jón Axel Björnsson ný verk f Listasafni ASÍ - Ásmundarsa! viö Freyjugötu. Sýningin stendur til 12. nóvember og er opin daglega nema mánudaga frá kl. 14.00 - 18.00. ■ UST í LANGHOLTSSKÓLA Nú standa yfir tvær listsýningar í Langholtskirkju. Önnur sýn- ingin nefnist "Kaleikar og krossar". Hin sýn- ingin eru myndir Þorgerðar Sigurðardóttur sem eru einþrykk af tréplötum. Sýningarnar standa til 19. nóvember. ■ SIGMAR VILHELMSSON Sigmar Vilhelms- son sýnir olfumálverk f sýningarsal Galleris Reykjavíkur, Skólavörðusfg 16. Sýningunni lýkur 12. nóvember. ■ @ Á AKUREYRI Nú fer hver að verða síðastur að skoða margmiðlunarsýninguna @ ogmyndbandsverkið Hraun og mosi eftir Steinu Vasulka f Lisasafninu á Akureyri, en þeim Ifkur báðum núna um helgina, sunnudaginn 29. október. ■ GANGURINN Um þessar mundir stendur yfir 20 ára afmælissýningu Gangsins í Listasafni Reykjavfkur í Hafnarhúsi. Gangurinn er heimagallerf sem myndlistarmaðurinn Helgi Þorgils Friðjónsson hefur rekið um tuttugu ára skeið. Leiðsögn er um sýninguna sunnudaginn 29. október kl. 16, sýningunni lýkur þann sama dag. ■ ÁSMUNDUR SVEINSSON Nú stendur yfir yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar í Ásmundarsafni viö Sigtún. Sýningunni lýkur 29. október. Safnið er opið daglega frá kl. 13- 16. ■ JYRKI PARANTAINEN í 18 Um þessar mundir sýnir Jyrki Parantainen verk sfn f i8 í Ingólfsstræti. Sýningin stendur til 26. nóvem- ber. ■ UÓSMYNDIR OG UÓÐ Nú stendur yfir sýn- ing á Ijósmyndum Nönnu Bisp Búchert við Ijóö Kristínar Ómarsdóttur í Hafnarborg. Sýningin heitir Sérstakur dagur. Út er komin bók með myndum Nönnu og Ijóöum Kristínar. ■ MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR Margrét Guðmundsdóttir sýnir verk sfn f kaffistofunni f Hafnarborg. Opið alla daga nema þriðjudaga frá 11 -18. Sýningunni lýkur 6. nóvember. ■ ILMUR HJÁ SÆVARI llmur Maria Stefáns- dóttir sýnir innsetningu f Galleríi Sævars Karis. Sýningin er opin á opnunartíma verslun- innar. Sýningin stendur til 9. nóvember. ■ SIGURÐUR GUÐMUNPSSON Nú stendur yfir I Listasafni íslands sýning á nýjum verkum Siguröar Guðmundssonar. Á sýningunni eru sjö þrívíð verk frá árunum 1995 - 2000. Ekkert þessarra verka hefur sést á íslandi áður, en þau eru m.a. unnin í Kína, Svfþjóð og Hollandi.Sýningin verður opin alia vika daga, nema mánudaga, frá klukkan 11 til 17. Sýning- unni lýkur þann 26. nóvember. ■ fifli i fbí fljggyg Um þessar mundir sýnir Gréta Gísladóttir verk sin í Galleri Garði i Mið- garði á Selfossi. Gréta málar olfu- akrýl- og vatnslitamyndir og eru verkin fjölbreytt og tak- mörkin f litavali nær engin. Þetta er sötusýning og henni lýkur 15. nóvember. ■ ERLA STEFÁNSPÓTTIR Erla Stefánsdóttir sýnir um þessar mundir Ijósmyndir í sal félags- ins íslensk grafík, Tryggvagótu 17 í Hafnar- húsinu. Sýningin stendur til 5. nóvember. ■ SVETLANA MATUSA Svetlana Matusa sýn- ir um þessar mundir keramik skúlptúra og nefnist sýningin ís og hraun. Sýningin er f List- húsi Ófeigs á Skólavöröustíg 5. Sýningunni lýk- ur l.nóvember. ■ TÍMINN OG TRÚIN Tíminn og trúin er far- andsýning sjö listakvenna sem verður opnuð verður í dag i Grensáskirkju að lokinni messu. Listakonurnar sem eiga verk á sýningunni eru Alda Ármanna Sveinsdóttir, Auður Ólafsdóttir, Gerður Guðmundsdóttir, Guðflnna Anna Hjálmarsdóttir, Kristín Amgrímsdóttir, Sofffa Ámadóttir og Þórey (Æja) Magnúsdóttir. Sýn- ingin er opin virka daga frá kl.8.00 -16.00 og kring um messutíma á sunnudögum. Sýning- unni Ifkur þann 29. október. ■ ÞÓRARINN B. ÞORLÁKSSON Nú stendur yfir yfirlitssýning á verkum brautryöjanda ís- lenskrar nútímlistar, Þórarins B. Þorlákssonar, í Listasafni íslands. Sýningin verður opin frá kl. 11 til 17, alla daga nema mánudaga og stend- ur til 26. nóvember. ■ HJARNHVÍTT-HRÍMHVÍTT-BEINHVÍTT Nú stendur yfir á neðri hæð Listasafns Kópavogs, Gerðarsafni, sýning á verkum ívars Valgarðs- sonar sem hann nefnir HJARNHVÍTT-HRÍM- HVÍTT-BEINHVÍTT. Sýningunni lýkur sunnudag- inn 29. október og er opin alla daga nema mánudaga frá 11-17. ■ GERARD GROOT Nú stendur yfir f Galleri Reykjavik sýning á verkum Gerard Groot frá Hollandi sem nefnist The Four elements. Á sýningunni eru olíumálverk eftir Groot. Sýning- in er opin virka daga kl.13:00 til 18:00 og laugardaga kl. 11:00 til 16:00 og sunnudaga kl.14:00 til 16:00. Sýningin stendur til 27. október. ■ HÓNNUNARSÝNING Á KJARVALSSTÓÐ- UM Sýning Mót hönnun á íslandi-fslenskir hönnuðir á Kjarvalsstöðum frá 14. október til 12. nóvember. ■ VALGERÐUR HAUKSDÓTTIR Nú stendur yfir f vestursal Listasafns Kópavogs sýning Valgerðar Hauksdóttur á 33 myndverkum sem öll eru unnin á þessu ári með blandaðri tækni og “collage” tækni á handgerðan japan papp- fr. Sýningin stendur yfir til sunnudagsins 29. október og er opnin alla daga nema mánudaga frá 11-17. ■ EGILL SÆBJÓRNSSON Egill Sæbjörnsson sýnir Ijósmyndir á veggnum f galleri@hlemmur. ■ RÓSKA í NÝLÓ Nú stendur yfir f Nýlista- safninu við Vatnsstfg yfirlitssýning helguð Iffi og starfi Rósku. Opið er fram eftir kvöldi fimmtudaga, föstudaga og laugadaga á póli- tísku kafflhúsi. Vegleg bók fylgir sýningunni. Sýningin stendur til 19. nóvember og er opin alla daga nema mánudaga frá klukkan 14.00 til 18.00. ■ HLÁTURGAS 2000 Nú stendur yfir sýningin Hláturgas 2000 f Heilbrigðisstofnun Suður- nesja í Reykjanesbæ. Sýningin er unnin f sam- starfi við íslandsdeild Norrænna samtaka um læknaskop (Nordisk Selskap for Medisinsk Humor). Sýningin er nú á ferð a milli 10 sjúkra- stofnana landsins. Sýningunni lýkur 11. nóv- ember. ■ JENNÝ í GERÐARSAFNI í austursal Lista- safns Kópavogs, er nú sýning Jennýja Guð- mundsdóttur myndlistarmanns sem ber yfir- skriftina Sköpun heimsins, í nafni Guðs, föð- ur sonar og heilags anda". Sýningunni iýkur sunnudaginn 29. október og er opnin alla daga nema mánudaga frá 11-17. ■ VIO ÁRBAKKANN Elínborg Kjartansdóttir sýnir 45 koparristur á kaffihúsinu Við Árbakk- ann og stendur sýning yfir til 10. nóvember. ■ NIKE OG ADIDAS Jón Bergmann Kjartans- son (Anand Ransu) sýnir málverk í galleri@hlemmur.is um þessar mundir. Sýningin stendur til 5. nóvember og er opin vikulega á fimmtudögum til sunnudags frá klukkan 14:00-18:00. ■ TÁR TÍMANS Nú stendur yfir sýning á verki listamannsins Greipar Ægis sem nefnist Tár Tfmans i Gleraugnaversluninni Sjáöu, Lauga- vegi 40. Sýningin stendur út október. ■ JOHN KROGH í GUK Um þessar mundir sýnir danski myndlistarmaðurinn John Krogh í GUK - exhibition place. GUK er sýningarstaður fyrir myndlist sem er f þremur löndum: f hús- garði f Ártúni 3 á Selfossi, f garðhúsi í Lejre í Danmörku og i eldhúsi f Hannover í Þýska- landi. Sunnudagana 5. nóvember og 3. og 17. desember verður opið milli kl. 16 og 18 að staðartíma en að auki er sýningin opin á öðr- um tímum eftir samkomulagi. Sýningunni lýkur 17. desember. ■ HELGI HÁLFDÁNARSON Um þessar mund- ir sýnir Helgi Hálfdánarson málverk ! Gallerí, Usthúsinu i Laugardal. Opið alla daga frá 9 - 19. Lokað á sunnudögum. Sýningin stendur yfir til 5. nóvember. ■ TEIKNINGAR KATRÍNAR BRIEM Nú stend- ur yfir sýning á teikningum Katrínar Briem f safninu f kjallara Skálholtsskirkju Myndirnar eru unnar við sálma og Ijóð Valdimars Briem. Sýningin er opin frá kl. 10 - 18 alla daga og henni lýkur 30. nóvember. ■ UÓSMYNDASÝNING í GOETHE-ZENTRUM í gær opnaði Ijósmyndasýningin “Kvikmynda- hús í Austur-Þýskalandt" ! Goethe-Zentrum á Lindargötu 46. ■ EPAL í ALDARFJÓRPUNG í verslunninni Epal, Skeifunni 6, er búið aö taka til f tilefni af- mælisins. Þar hefur veriö komið upp einstæðu yfirliti yfir nýja hönnun á húsbúnaöi. Opið á verslunartíma. ■ OLÍA OG PASTEL Á CAFÉ MILANÓ NÚ stendur yfir sýning Hólmfriöar Dóru Siguröar- dóttur á olíumálverku og pastelmyndum í Café Milanó, Faxafeni 11. Café Mílanó er opið alla virka daga kl. 9 til 23.30, laugardaga kl. 9 til 18, sunnudaga kl. 13 til 18. Sýningin verður á opin á opnunartíma kaffihúsins til október- loka. ■ THOR í GERÐUBERGI Nú stendur yflr sýn- ing á verkum Bjarna Þórs Þorvaldssonar (Thor) f Gerðubergi. Myndirnar á sýningunni eru unnar með biekpenna, vatnslitum, olfulit- um og akrýlmálningu. Sýningunni lýkur 29. október. ■ SÝNING í ÁMUNPARSAFNI Nú stendur yfir sýning á verkum í eigu Ámundarsafns f safn- inu. Sýningin stendur til 1. nóvember. ■ HANDRITASÝNING í ÁRNAGARÐI í vetur stendur yfir handritasýning f Árnagarði, Árna- stofnun. Opiö er þriðjudaga til föstudaga frá 14 -16. Sýningunni lýkur 15. maí. Unnt er að panta sýningu utan reglulegs sýningartíma sé þaö gert með dags fýrirvara. ■ DflVÍÐ ART Á CAFÉ 22 Nú stendur yfir sýn- ing á verkum Davíös Art Sigurðssonar á Café 22 (Laugavegi 22). Verkin á sýningunni eru 15 talsins, unnin með pastel- og olíulitum. ■ CAFE9.NET cafe9.net er netkaffihús átta menningarborga Evrópu árið 2000 sem starfa sameiginlega gegnum Netið. Netkaffið er stað- sett i Ustasafni Reykjavíkur. Sýningin stendur til 31. október. ■ HEIMIR í KETILSHÚSI í Ketilshúsi á Akur- eyri er til sýningar audio visual list Heimis Freys Hlöðverssonar. Sýningin er á vegum Ustasumars á Akureyri og lýkur 4. september. ■ ARNA í KOMPUNNI í Kompunni á Akureyri stendur nú yfir myndlistarsýning Ömu Vals- dóttur á vegum Listasumars á Akureyri. ■ UÓSMYNDIR I USTHÚSINU Nú stendur yfir Ijósmyndasýning Hjördfsar í Gallerf í List- húsinu f Laugadal. Sýningin ber heitið íslensk augnablik. Sýningin stendur til 15. ágúst. Gall- erí f Listhúsinu í Laugadal er opið alla daga 1. nema sunnudaga frá 09 - 22. ■ ftfli i ppí cm n Harry Bllson sýnir málver f I galleri Fold. Sýningin er opin á opnunartíma gallerísins. ■ HÁR OG LIST Jón Thor Gíslason sýnir teikn- ingar og málverk f gallerí Hár og list við Strand- götu f Hafnarfirði. ■ RAUPAVATN 17 listamenn hafa sett upp útilistaverk viö Rauðavatn. Reyndu að finna þau. ■ EINN NÚLL EINN Egili Sæbjörnsson snill- ingur sýnir verk sfn f gallerí Einn núll einn, Laugavegi 48b. Sýningin er opin á opnunar- tíma verslunarinnar en um er ræða fatabúð. ■ HELGIÞORGILS Helgi Þorgils sýnir málverk i , i verslun Reynissonar og Blöndals, Skipholti 25. Sýningin er opin á opnunartima versluninn- ar, frá 11-18 á virkum dögum og frá 11-14 á laugardögum. ■ UÓSMYNDIR Á MOKKA Gunnlaugur Árna- son sýnir Ijósmyndir á Mokka. Sýningin er opin á opnunartíma kaffihússins. ■ SAFNASAFNIÐ. SVALBARÐSSTRÓND Val- geröur Guðlaugsdóttir sýnir málverk f Safna- safninu á Svalbarðsströnd, skammt utan Akur- eyrar. Opið daglega frá 10-18. ■ CAFÉ KAROLÍNA. AKUREYRI Á Café Kar- olínu, Akureyri, sýnir Guðrún Þórsdóttir verk sfn og á Karólínu Restaurant sýnir Sigurður Árni Sigurðarson. ■ GALLERÍ SÆVARS KARLS Erna G. Sigurð- ardóttir sýnir málverk Sævari Karli. Opið á opnunartfma búllunnar. ■ CAFÉ 22 Hjördís Brynja sýnir málverk á 22. Opið á opnunartfma kaffihússins. ■ USTASAFN ÍSLANDS í safninu stendur yfir myndbandabrjálæði. Á hverjum degi er sýnd ný og ný ræma. Ef þú hefur áhuga er sfminn f Listasafni íslands 562 1000. ■ SIRKUS Ljósmyndarinn Gabriel Batay sýnir Ijósmyndir á Sirkus. ■ HAFNARBORG Louisa Matthíasardóttir, Leland Bell og Temma Bell voru fjölskylda og í tengslum við útkomu bókar um Louisu, blessuð sé minning hennar, er nú veriö aö sýna fullt eftir familúna í Hafnarborg. ■ MYNJASAFNH) Á AKUREYRI Saga Akureyr- ar er alsráöandi f Minjasafnlnu á Akureyri. i) Sigríður Zoéga sýnir Ijðsmyndir og er sýningin opin alla daga frá kl. 11-17 og auk þess á mið- vikudögum til kl. 21. ■ SJÓMINJASAFNH) Sýning Jóns Gunnars- sonar listmálara verður opin á opnunartfma safnsins alla daga frá kl. 13-17. ■ SAFNAHÚSH) SVALBARÐSSTRÓNP Skúlp- túrar e. Svövu Björnsdóttur og útilistaverk e. nemendur f Myndlistaskóla Akureyrar. Opið daglega frá kl. 10-18. Aðgangseyrir 300 krón- ur. ■ LANDSVIRKJUN Tvær myndlistarsýningar eru i orkustöðvum Landsvirkjunar til 15. sept- ember. Annars vegar við Ljósafoss við Sogniö og hinsvegar f Laxárstöð í Aðaldal. ■ ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN Kvennasögusafn ís- lands minnist listamannsins Ástu Sigurðar- dóttur f Þjóðarbókhlöðunni. ■ SÓGUSETRro Á HVOLSVELU Sögusetrið É á Hvolsvelli býður upp á Söguveislu út sumar- ið. ■ GERÐUBERG í Gerðubergi stendur yfir sýn- ing á Nýsköpunarhugmyndum grunnskóla- nema. Þarna er margar forvitnilegar hugmynd- ir að finna og örugglega munu einhverrar þeirra slá í gegn. ■ GANGURINN Gangurinn, Rekagranda 8, er með 20 ára afmælissýningu til 15. október. Hér sýna 39 erlendir listamenn sem sýnt hafa f húsnæöinu síöustu 20 árin. ■ USTASAFN AKUREYRAR Úr og í heitir sýn- ingin sem er í gangi f Ustasafni Akureyrar en það sýna ungir tískuljósmyndarar og fata- og skartgripahönnuðir verk sín. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.