Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2000, Qupperneq 7
Ifókus
Vikan 24. nóvember til 30. nóvember
lifið
F F T T R Y I N N
Ef Singapore Slíng væri videospóla en ekki hljómsveit væri
hún sett í nýtt og nýlegt-rekkann á leigunni, en í staðinn
verður hún á hinu fyrsta, í nýrri seríu Stefnumóta. Það fer
fram á Gauki á Stöng næsta þriðjudag og ættu því allir tón-
listarunnendur að sperra eyrun og taka gleði sína. Með Singa-
pore Sling verða sveitirnar Traktor og Úlpa. Henrik Björnsson,
söngvari og gítarleikari, var tekinn á beinið af þessu tilefni.
Gamlar hefðir án þess
að vera gamaldags
„Hljómsveitm var stofnuð í sumar
en síðan þá hafa orðið nokkrar
mannabreytingar," segir Henrik í
stuttri sögukennslu um sveitina
Singapore Sling. Nýlega voru teknir
inn trommuleikari og „hristari" og
nú skipa sveitina sex hijóðfæraleik-
arar sem eiga það eitt sameiginlegt
að vera með typpi, en eru annars úr
öllum áttum.
Hétu Mikado
„Við spilum aðallega rokk & ról,
höldum í gamlar hefðir, án þess að
verða of gamaldags," segir Henrik
um tónlistarstefnu bandsins. Nafnið
Singapore Sling þykir nokkuð sér-
stakt og hann segir það hafa verið
límt endanlega á sveitina eftir mikl-
ar vangaveltur. „Við vorum búnir að
fara í gegnum svo mörg nöfn og flest
þeirra voru verulega vond,“ segir
Henrik og hlær. „Ég man nú voðalít-
ið af þessu drasli, en upphaflega ætl-
uðum við að heita Mikado af því það
lá mikadospil fyrir framan okkur
þegar við vorum að reyna að flnna
nafn eitt kvöldið. Singapore Sling er
nafn á einhverri mynd sem ég rakst
á, svo er líka kokkteill sem heitir
þessu nafni og við vorum bara sam-
mála um aö þetta væri flott,“ segir
hann um skírnina.
Stressaðir í MH
Henrik kann ágætlega við lands-
lagið í tónlistarbransanum um þess-
ar mundir. „Það er rosalega margt i
gangi. Nokkur bönd eru mjög góð,
önnur léleg og svo eru náttúrlega
heilmörg sem ég hef ekki heyrt í,“
segir Henrik og telur frekar auðvelt
fyrir nýliða að komast inn í hring-
iðuna. SS-liðar hafa ekki enn gefið
frá sér neitt efni fyrir neytendur en
stefna að því að gefa eitthvað út einn
góðan veðurdag. „Ég veit nú ekki til
þess að við eigum marga aðdáendur,
en það eru eflaust einhverjir sem eru
með svipaðan tónlistarsmekk og við
sem fila þetta,“ segir hann og er hóg-
værðin uppmáluð, aðspurður um
frægð og grúppíur. Sjálfur er Henrik
enginn græningi á tónlistarsviðinu.
Hann hefur dundað við eigin tónlist
um nokkurt skeið og gaf meira að
segja sjálfur út skífuna Overdriver,
sem hann tók upp á eigið fjögurra
rása tæki. Sökum ungdóms Singa-
pore Sling hefur íslendingum aðeins
gefist kostur á að hlýða á sveitina
tvisvar áður. „Þegar við spiluðum í
MH um daginn vorum við svolítið
stressaðir og sumir kvörtuðu undan
því að viö værum fúlir og stífir. Það
er ekki alveg rétt, en það eru ekki
mikil læti á tónleikum hjá okkur,
það væri bara tilgerðarlegt. Við mæt-
um bara á svið og spilum," segir
Henrik um tónleikavenjurnar, en
vonast eftir almennri gleði og stuði á
Gauknum á þriðjudaginn.
Bíóborgin
Nurse Betty Betty
(Renee Zellwegerjer
ekki hjúkka, en hún lif-
tr sig ef til vill einum of ]
vel inn í hlutverk hjúkr-
unarfræðings, í gegn-
um spítalasápuóper-
ur. Sýnd kl.: 5,40, 8,
10,20
Human Traffic Að
verða fyrir bíl er eitt,
en það kemst enginn frá því lifandi að verða
fyrir manneskju. En þessi mynd fjallar eimitt
um það hversu örðugt er að fá ökuskirteinið í
mannlegum samskiptum.
Sýnd kl.: 10
íslenski draumurinn ★★★ „Á heildina litið
ræður Robert I. Douglas vel við formið. fs-
lenski draumurinn lofar góðu um framtíðina
hjá honum." -HK
Sýnd kl.: 6, 8
Bedazzled Brendan Fraser fær aðstoð djöf-
uls til þess að vinna hjarta stúlku sinnar.
Sýnd kl.: 6, 8,10
Bíóhöllin
Charlie's Angeis
Þær eru girnilegri en
nýbakað brauð láfurn-
ar þrjár sem halda
uþþi dampnum í þess-
ari ræmu. Hér eru það
bara hasarinn og gell-
urnar sem fá notið sín
til fullnustu og ef Pee
Wee Herman færi á
þessa yrði hann vafalítiö handtekinn öðru
sinni fyrir ósiðlega tilburði í bíóhúsi.
Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10
Chicken Run ★★★ „Húmorinn í Kjúklinga-
flóttanum er einstaklega frumlegur og góður
auk þess sem fígúrurnar eru vel heppnaðar
og raddir eins og best verður á kosið." -HK-
Sýnd kl.: 4, 6, 8
The Nutty Professor li Framhaldsmynd af
endurgerðri mynd. Þetta hljómaði ekkert
voöalega vel, ef ekki væri fyrir Eddy Murphy.
Sýnd kl.: 3,40, 5,50, 8,10,15
Nurse Betty (Sjá BíóborgjSýnd kl.: 5,55, 8,
10,10
Space Cowboys Nokkrir gamlir refir úr geim-
ferðaráætlunum NASA fá uppreisn æru á
gamalsaldri. Snilldarteymi leikara.
Sýnd kl.: 8, 10,15
The Exorcist Þetta er ein frægasta hryllings-
mynd allra tíma, f þeim búningi sem leikstjór-
inn hefði helst kosið. Særingamaðurinn flæk-
ist milli hverfa og rekur á undan sér fjörulalla
og púka.
Sýnd kl.: 8, 10,15
Asterix & Obelix Sýnd kl.: 4
The Kid Bruce Willis hefur gleypt ótæpilegt
magn geðlyfja og hittir æskumynd sjálfs síns
í eiturvfmunni. Ekta Disneymynd.
Sýnd kl.: 3,50, 5,55
U-571 ★★ „Ef litiö er fram hjá hnökrum og
myndin og sagan tekin án hugleiðinga um
mótsagnir og sannleiksgildi þá er U-571 ffn
spennumynd sem stundum myndar rafmagn-
að andrúmsloft.“-HK
Sýnd kl.: 10
Háskólabíó
Óskabörn þjóðarinnar Jóhann Sigmarsson
er kominn aftur á stjá og loksins kemur þessi
mynd hans í kvikmyndahús, en hún hefurtek-
ið rúm þrjú ár f vinnslu.
Sýnd kl.: 10,15
The Nutty Professor II (Sjá Bfóhöll)
Sýnd kl.: 5,45, 8, 10,15
Chicken Run ★★★ (Sjá Bíóhöll) Sýnd kl.: 6
Den eneste ene Ef þú ert framhaldsskóla-
nemandi fastur f kennaraverkfalli, er tilvallið
að halda baunlenskunni ferskri með bíóferð-
um á danskar gæðaræmur. Eldra fólk verður
að lesa textann.
Sýnd kl.: 5,45, 8, 10,15
Dancer in the Dark ★★★★ „Ég mæli hins
vegar mjög með þvf að þú drffir þig, lesandi
góður, og dæmir fyrir þig." -ÁS-
Sýnd kl.: 8
101 Reykjavík ★★★ 101 Reykjavík liggur
mikið á hjarta en gleymir aldrei því hlutverki
að skemmta Sýnd kl.: 8, 10,10
Fantasía/2000 ★★ „Þegar á heildina er lit-
ið þolir Fantasía 2000' ekki samanburð við
forvera sinn, “ -HK
Sýnd kl.: 6
Kringlubíó
Dinosaur Það er al-
þekkt að sumir geti
haft gaman af saur og
Dinosaur ætti að
stuðla að útvíkkun
þess hóps. Hér takast
á mismunandi risaeðl-
ur og litla söguhetjan
á erfitt uppdráttar,
föst milli átakanna og
saurugra hugsanna.
Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10
The Exorcist (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 8, 10,15
The Kid (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 3,50, 5,55, 8, 10,05
Laugarásbíó
Charlie's Angels (Sjá Bfóhöll)
Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10,10
The Art of War Wesley snfpur nuddar sér
upp við glæpahyski, eins og svo oft áður og
lítur á kónana hvasseygður þegar hann seg-
ir:“Þekkir þú óvini þína?"
Sýnd kl.: 10
Óskabörn þjóðarinnar
(Sjá Háskólabíó)
Sýnd kl.: 8, 10
Dinosaur (Sjá
Kringlubíó)
Sýnd kl.: 2, 4, 6
Shaft Shaft er einn
vfgalegasti negrinn á
svæðinu og þegar
hann er leikinn af
Samuel L. Jackson
lokast hringurinn. Þetta er endurgerð af klass-
ískri bíómynd.
Sýnd kl.: 8
Regnboginn
Dinosaur (Sjá Kringlubfó)
Sýnd kl.: 4, 6
What Lies Beneath ★★ (Sjá Störnubfó)
Sýnd kl.: 5,30, 8, 10,30
MU- Beyond the promised land Hér fara leik-
menn Manchester ögn lengra heldur en til fyr-
irheitna landsins, enda allt á öðrum endanum
f ísrael um þessar mundir og öruggara að fara
bara til Egyptalands eða Jórdaníu. Ef þú fílar
Rauðu djöflana er þetta ábyggilega ágætis-
ræma, ef ekki þá ekki.
Sýnd kl.: 4, 8, 10
Snatch Snatch er frá
þeim hinum sama
manni, sem gerði
LS2SB sér og öðrum
að gamni. Ekki á þessi
að vera sfðri en sú, en
um hvað hún er hafa
fæstir klú.
Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10
The Art of War (Sjá
Laugarásbíó)
Sýnd kl.: 5,30, 8,
10,30
Stjörnubíó
Charlie’s Angels (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 4, 6, 8,10,12
Scary Movie mynd.
Sýnd kl.: 4, 6
What Lies Beneath ★★ (Sjá Bfóhöll)
Sýnd kl.: 8,10,30
kabarett
Það er Kaupum ekkert dagur í dag og er fólk hvatt til að taka sér hlé í amstri
dagsins til að velta fyrir sér afleiðingum neyslunnar.
Þú skalt eigi III
Kaupum ekkert dagurinn er al-
þjóðlegt fyrirbrigði en er nú
haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti
hér á landi. Er það með ráði
gert að dagurinn er settur í byrj-
un jólaflóðsins, fólk ætti þá að
sjá áhrifln. Nóg verður um að
vera í bænum í dag og ættu
flestir að finna eitthvað við sitt
hæfi.
Að Skólavörðustíg 21a verður
starfrækt Kaupum ekkert versl-
un til klukkan 18 í dag og í
musteri Mammons, ef svo má
segja, Kringlunni, verða gjörn-
ingar og sprell frá 14-16. Á horni
Hverfisgötu og Smiðjustígs
verða aftur á móti samsýning,
upplestur og tónlist eftir klukk-
an 17. Á samsýningunni koma
fram Djammdúettinn Kókaín,
höfundar Dís, Andneyslufélag-
ið, Múm og Andri Snær
Magnason, svo einhverjir séu
nefndir. Fjölmargir listamenn
taka svo auðvitaö þátt i sýning-
unni. Eftir miðnætti verður svo
boðið upp á gleði í Skötuhúsinu
þar sem fram koma xxx
Rottweiler, Botnleðja,
Stjörnukisi, Delphi, Vítissódi
og hinir ýmsu plötusnúðar.
5«®R5sHt» n»
Botnleöja er ein þeirra
hljómsveita sem koma fram
á Kaupum ekkert degi.
Laugavegi 62- Sími: 551 4100