Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Síða 3
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000
23
DV
Sýning Hauka
- þegar þeir völtuðu yfir SandeQord í Evrópukeppninni, 34-24
Haukar buðu upp á sannkallaða
flugeldasýningu á heimavelli sínum á
ÁsvöOum. Þeir gáfu strax tóninn með
fjórum fyrstu mörkum leiksins, löm-
uðu sóknarleik gestanna með frá-
bærri vörn og gáfu hinu annars
sterka norska liði engin grið uns
fjórtán marka forskoti var náð. í lok-
in munaði svo tíu mörkum, 34-24,
sem var meira en jafnvel bjartsýn-
ustu Haukamenn höfðu búist við, og
þessi munur ætti undir eðlilegum
kringumstæðum að duga liðinu tO
áframhaldandi þátttöku í Evrópu-
keppninni.
Það var strax ljóst að Haukar ætl-
uðu að selja sig dýrt. Þeir byrjuðu
með knöttinn og eftir 17 sekúndur
fiskaði HaOdór vítakast. í næstu sókn
Sandefjord varði Bjami þrjú fyrstu
skotin sín og þau urðu aOs 15 sem
hann varði í fyrri hálfleik. Þannig
gekk þetta í byrjun, Haukamir léku
3-3 vöm þar sem Einar Örn, Rúnar
og Baumruk komu mjög framarlega
út á móti leikstjórnandanum og skytt-
unum og þetta lamaði sóknarleik
Norðmannanna gjörsamlega. Eftir
rúmar íjórar mínútur voru Haukar
komnir í 4-0 og þá sáu Norðmennim-
ir ástæðu tfl að taka leikhlé.
Rétt á eftir fékk Rúnar Sigtryggs-
son tveggja mínútna brottvísun sem
getur aOtaf gerst þegar svona vöm er
leikin og það tækifæri notuðu leik-
menn Sandefjord til að komast inn í
leikinn. Sú sæla stóð reyndar ekki
lengi því munurinn var aldrei meiri
en tvö mörk og oftast reyndar meiri
Haukamegin. Vömin hélt áfram að
styrkjast og Bjami hélt áfram að
verja frábærlega fyrir aftan hana og
tO marks um styrk vamarinnar skor-
aði Sandefjord aðeins eitt mark á síð-
ustu tólf mínútum leiksins.
Munurinn í leikhléi var sex mörk,
14-8, og siðan hélt hann áfram að
aukast jafnt og þétt í seinni hálfleik.
En það má segja að á sex mínútna
kafla í hálfleiknum hafi Haukar gert
endanlega út um leikinn. Þá breyttu
defldinni og hljóta það að teljast veru-
leg vonbrigði.
-HI
þeir stöðimni úr 17-11 í 26-14 og þar
fór homamaðurinn Einar Örn Jóns-
son á kostum og skoraði sex af þess-
um níu mörkum. Og enn voru tökin
hert og þegar átta mínútur voru tfl
leiksloka var munurinn orðinn 14
mörk, 31-17. Hreint ótrúlegar tölur!
Þarna gerði sennflega blanda af
þreytu og kærifleysi vart við sig hjá
Haukum. Sandefjord lagaði stöðuna
og skoraði flmm mörk i röð. Þar með
var munurinn orðinn níu mörk og
endaði í tíu eins og áður sagði.
Það sem skóp þennan frábæra sig-
ur Hauka var fyrst og fremst góð
vörn og markvarsla, einkum í fyrri
hálfleik. Rúnar, Einar Öm og
Baumruk fóru þar fyrir og gerði Ein-
ar Örn sérstaklega vel í að halda Kim
Jacobsen niðri en spO norska liðsins
virtist að mOdu leyti byggjast á hon-
um. Þá varði Bjami Frostason stórvel
í fyrri hálfleik og Einar Örn átti frá-
bæran síðari hálfleik. HaOdór Ingólfs-
son fyrirliði var gerði einnig mikil-
væg mörk en í raun á allt Haukaliðið
hrós skOið fyrir góða frammistöðu.
Lið Sandeíjord átti afar slakan dag
og það má aOs
ekki dæma liðið
eftir þessari
frammistöðu.
Varnarleikur
Haukanna virtist
hins vegar koma
þeim gjörsamlega
í opna skjöldu og
i raun fundu þeir
aldrei svar við
honum nema á
kafla í seinni
hálfleik. Skyttun-
um var gjörsam-
lega haldið niðri
en hornamenn-
irnir Eivind Ell-
ingsen og Thom-
as Pettersen áttu
góða spretti sem
og línumaðurinn
Paal Cramer.
Aðsóknin að
leiknum í gær
ofli vonbrigðum.
Um 800 manns
komu að sjá leik-
inn þegar ætla
hefði mátt að
meiri áhugi hefði
verið á að styðja
Haukana í þess-
ari baráttu. Þessi
aðsókn var í
raun ekki meiri
en á stórleik í 1.
Bjarni Frostason fór mikinn í marki Hauka í fyrri hálfleik og
varöi þá 15 skot.
DV-mynd Hilmar Þór
Sagt eftir leikinn
„Ég átti aOs ekki von á þessum
úrslitum," sagði Einar Örn Jóns-
son hornamaður Hauka eftir leik-
inn. „Þetta spilaðist alveg frábær-
lega nema að við gáfum aðeins eft-
ir seint í leiknum. Vömin gekk al-
veg upp enda vorum við búnir að
skoöa þá á myndabandi og Viggó
sá að þeir myndu eiga erfitt með
að leika gegn svona vöm. Miðju-
maðurinn þeirra var ekki með í
leiknum og þá lentu skytturnar í
vandræðum. Við fengum hraðupp-
hlaup þegar vörnin gekk svona
vel. Bjarni lokaði líka markinu vel
og það kom tíu mínútna kafli þar
sem bókstaflega rigndi hraðupp-
hlaupum. Maður er eiginlega al-
veg búinn eftir þetta. Raunhæft
séð ættu tiu mörk að duga en það
hefði verið ákjósanlegra að taka
þá með 14 mörkum. Ég vona bara
að þetta dugi okkur."
Náðum upp stemningu
„Við náðum upp mikilli stemn-
ingu og hörku vörn og vinnum
þetta á því. Vömin gerði það að
verkum að ég fékk á mig frekar
auðveld skot en í seinni hálfleik
voru menn farnir að þreytast svo-
lítið og fá þá inn í dauöafærum og
þá fjölgaði mörkunum sem við
fengum á okkur. Við hefðum vel
getað farið með meira forskot út
en á móti segi ég aö ef maður tap-
ar úti með tíu mörkum á maöur
ekki skilið að fara áfram.“
Engir möguleikar
Bárd Kristian Tönning, þjálfari
Sandefjord, var að vonum ósáttur.
„Frammistaða liðs míns olli mikl-
um vonbrigðum. Viö lékum ein-
faldlega mjög iila. Mér fannst
Haukarnir reyndar leika mjög vel
en undir eðlilegum kringumstæð-
um hefðum við aldrei átt að tapa
með tíu mörkum. Okkur virtist dá-
lítið brugöið við þessa vörn en þaö
er engin afsökun. En burtséð frá
sóknarleik okkar þá fáum við við
á okkur 34 mörk og það er alltof
mikið. Það var því ekki bara sókn-
arleikurinn sem brást heldur
vömin líka og í raun leikur okkar
í heild. Ég tel að Haukar séu nán-
ast komnir með báða fætur í fjórð-
ungsúrslitin. Ég held að við náum
aldrei að vinna þá með tíu mörk-
um. Aðalmarkmið okkar í heima-
leik okkar veröur að ná aö leika
vel og vinna þá því þessi frammi-
staða var skelfileg," sagði hann.
Viggó Sigurðsson:
Sáttur
„Ég er þokkalega sáttur eftir
leikinn en ég hefði samt viljað
enda með meiri forystu. Við náð-
um mest 14 marka forystu en
það var óþarfi að missa það nið-
ur f tíu mörk,“ sagði Viggó Sig-
urðsson þjálfari Hauka. „Við yf-
irspiluðum þá gjörsamlega á
löngum köflum og það gekk allt
upp sem við vorum að gera.“
Viggó sagðist hafa séð á mynda-
bandi að þeir myndu lenda í
vandræðum gegn framliggjandi
vörn. „Ég er mjög ánægður með
hversu vel það gekk upp,“ sagði
hann.
Um seinni leikinn sagði hann:
„Maður vill ekki hafa uppi mjög
stór orð en við þurfum að spila
góðan og agaðan leik til að klára
þetta. Nú er boltinn í okkar
höndum. En þessi stutti kafli
þegar við misstum niður fjögur
mörk er okur vissulega áminn-
ing um hvað getur gerst ef við
spilum ekki agaðan handbolta."
Viggó gagnrýnir hins vegar
vinnubrögð HSÍ í ljósi erflðra
leikja sem Haukar þurfa að leika
á stuttum tíma. „Við þurfum að
spila bikarleik á miðvikudaginn
og útileikinn í Evrópukeppninni
á sunnudaginn. Svo er leikurinn
sem við áttum að spila í deild-
inni í gær einfaldlega settur á á
miðvikudaginn og okkur er neit-
að um að færa hann. Ég skil ekki
þessa hjálp frá HSÍ, ef ég á að
segja alveg eins og er.“
-HI
Sport
idefjord 34-24
4-0, 5-3, 7-4, 9-5, 10-7, (14-8), 16-8,
17-11,19—12, 24-13, 26-14, 27-16, 31-17,
31-22, 33-23, 34-24.
Haukar
Mörk/víti (Skot/víti): Halldór Ingólfs-
son 10/5 (13/5), Einar Örn Jónsson 8 (11),
Shamkuts 5 (6), Þ. Tjörvi Ólafsson 4 (6),
Petr Baumruk 3 (7), Einar Gunnarsson 2
(4), Rúnar Sigtryggson 2 (4), Óskar Ár-
mannsson (1).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 11 (Einar
4, Shamkuts 2, Tjörvi 2, Halldór, Einar,
Baumruk).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 5.
Varin skot/viti (Skot á sig): Bjarni
Frostason 19 (41/4, 46%, eitt víti í
stöng), Magnús Sigmundsson 1 (3/1,
33%).
Brottvísanir: 8 mínútur.
Sandefíord
Mörk/viti (Skot/viti): Eivind Erlingsen
7/4 (13/4), Paal Cramer 6 (7), Thomas
Pettersen 5 (9/1), Jan Kirkegaard 3 (10),
Andreas Hansen 1 (1), Kim Jacobsen
1(3), Erik Hucko 1 (6), Frederick Peder-
sen (2), Kenneth Kiev (8).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 7 (Cramer
2, Hucko , Erlingsen, Pettersen, Hansen,
Kirkegaard).
Vitanýting: Skorað úr 4 af 5.
Varin skot/viti (Skot á sig): Marinko
Kurtovic 12 (41/4, 29%), Simen Hansen
(5/1, 0%)
Brottvísanir: 8 mínútur. (Undir lok
leiksins fékk Kurtovic rautt fyrir að
henda boltanum i Rúnar).
Dómarar (1-10): Jens Carl Nielsen og
Henrik Le Cour Bruun frá Danmörku
(7).
Gœði leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 800.
Menn leiksins: Bjarni Frostason
og Einar Örn Jónsson, Haukum.