Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Síða 4
24 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000 Sport DV Vegleg bók um sögu körfunnar á íslandi í tilefni af 40 ára afmæli KKÍ sem verður 29. janúar næstkomandi mun sambandið gefa út bók um körfuknattleik á tslandi í hálfa öld. Þessi bók verður mjög vegleg, um 400 blaðsíður og spannar sögu körfuknattleiksins allt frá því hann var kynntur hér á landi fyrst fram til dagsins í dag. KKÍ hefur gefið áhugasömum einstaklingum sem tengjast íþróttinni á einhvern hátt tækifæri til að kaupa bókina fyrirfram og fá í staðinn nafn sitt skráð fremst í bókina í „tabula gratulatoria". Hringt hefur verið í fjölda manns og hafa undirtektir verið góðar. Ritnefndin hefur samt áhyggjur af því að ekki hafi náðst í alla þá sem áhuga hafa á að kaupa bókina fyrirfram og fá nafn sitt ritað fremst í bókina. Þeim sem áhuga hafa á að fá nafn sitt í bókina og ekki hefur verið haft samband við er bent á að hafa samband við skrifstofu KKÍ í síma 568-5949. 1.DIIID KVENNA KR 8 6 2 519-408 12 KFÍ 8 5 3 483421 10 Keflavík 8 5 3 503444 10 ÍS 8 4 4 470436 8 Grindavík 8 0 8 325-591 0 Úrslit Kjörísbikars kvenna næstu helgi Úrslitakeppni Kjörísbikars kvenna fer fram um næstu helgi í Strandgötu í Hafnarfiröi. Fjögur efstu lið deildarinnar hafa tryggt sér þátttökurétt en þetta er í fyrsta sinn Leikstjórnendur Keflavíkur oh KFI eigast hér viö í leik liðannaum helgina. Marín Rós Karlsdóttir hjá Kefiavík er til varnar jnna Björk Sigmundsdóttir horfir í átt- ina til Jessicu gaspar, bandaríska leikmannsins í ísafjaröarliönu. DV-mynd KK sem deildarbikarkeppni fer fram í kvennaflokki í körfunni. Undanúrslitaleikirnir eru á milli Keflavíkur og KFÍ, hann hefst klukkan tvö á laugardag, og KR og ÍS en sá leikur er strax á eftir eöa klukkan fjögur. úrslitaleikurinn er síðan á sunnudeginum klukkan Qögur. Keflvíkingar fengu ísfirðinga i heim- sókn á fóstudagskvöld og laugardag. Það fór svo að liðin höfðu sinn hvorn sigurinn, KFÍ á föstudagskvöld og Kefl- víkingar á laugardag. Leikurinn á fóstudag var jafn og leiddu KFÍ-stúlkur 17-19 eftir 1. leikhluta. Baráttan hélt áfram og er flautað var til hálfleiks var staðan jöfn, 35-35. Birna Valgarðsdótt- ^ 1. deild kvenna í körfubolta: IS-kaldar - Stúdínur, nema á vítalínunni sem færði þeim nauman sigur á Grindavík, 37^0 Stúdínur voru nálægt því að verða fyrsta liðið til að tapa fyrir hinu unga liði Grindavíkur á laug- ardaginn. ÍS hafði að lokum þriggja stiga sigur, 37-40, en tæpur var hann og ljóst að Pétri Guðmunds- syni, þjálfara Grindavíkurstelpn- anna, gengur vel að kenna þessum ungu stelpum að fóta sig í deildinni og liðið bætir sig með hverjum leik. Hafi Hafdís Helgadóttir, hin 35 ára gamli fyrirliði ÍS, ekki sannað mikilvægi sitt áður þá var leikur- inn á laugardag til að ítreka leið- togahlutverk hennar enn frekar. Auk þess að ná flestum fráköst- um sem leikmaður hefur náð í vet- ur (22) þá skoraði hún 10 af 16 stig- um sínum í fjórða leikhlutanum þegar hún hitti úr öllum skotum sínum (2 skotum utan af velli og 6 vítum). Stúdínur voru annars is- kaldar í leiknum, hittu aðeins úr 13 af 72 skotum sínum (18%) og það var einungis Hafdís sem hitti úr skoti utan af velli síðustu sautján mínútur leiksins en Hafdís skoraöi 12 af síðustu 17 stigunum hjá ÍS. Stúdínur björguðu deginum á vítalínunni en þær nýttu 11 af 12 vítum sínum í fjórða leikhluta (92%) og skoruðu 11 af 15 síðustu stigum sínum þaðan. Grindavíkurliðiö vantaði reynslu Hafdísar í lokin en liðið var borið upp af fjórutn fimmtán ára stúlkum sem gerðu 24 af 37 stigum þess. Petrúnella Skúladóttir og Ólöf Helga Pálsdóttir fóru þar fremstar. Liðið byrjaði vel og leiddi 10-6 eftir fyrsta leikhluta en eftir að ÍS kom til baka í öðrum og vann þá 4-13 þá voru þær alltaf skrefinu á eftir þótt það væri aðeins örstutt. Stig Grindavíkur: Petrúnella Skúladótt- ir, 11, Sigurrós Ragnarsdóttir, 8 (10 frá- köst), Jovana Stefánsdóttir, 5, Rut Ragn- arsdóttir, 5, Sigríður Anna Ólafsdóttir, 4 (13 fráköst), Ólöf Helga Pálsdóttir, 3 (11 fráköst, 4 stolnir, 4 stoðsendingar), Sandra Guðlaugsdóttir, 1. Stig ÍS: Hafdis Helgadóttir, 16 (22 frá- köst, 8 í sókn, 4 varin, 4 stolnir), María B. Leifsdóttir, 8, Stella Rún Kristjáns- dóttir, 5 (6 stolnir), Lovísa Guðmunds- dóttir, 4 (12 fráköst, 5 stoösendingar, 5 varin), Jófríður Halldórsdóttir, 3, Krist- jana B. Magnúsdóttir, 2, Hekla Maídís Sigurðardóttir, 2 -ÓÓJ ir var í villuvandræðum og setti það strik í reikninginn hjá Keflvíkingum en Theódóra Káradóttir átti góða inn- komu í Keflavíkurliðinu en hjá gestun- um var Jessica Gaspar að leika sérlega vel. Seinni hálfleikur var á sömu nótum og sá fyrri, jafn, 47-47, er síðasti flórð- ungur hófst. KFÍ náði 5 stiga forskoti er 5 mínútur lilðu af leik og héldu haus og höfðu góðan sigur, 57-63. Jessica Gaspar átti frábæran leik og Fjóla Ei- ríksdóttir átti einnig mjög góðan leik. Hjá Keflvíkingum átti Theódóra góðan dag og Erla lék ágætlega. Birna var í villuvandræðum og komst þvi ekki í takt við leikinn. Stig Keflavíkur: Theódóra Káradóttir 14, Bima Valgarðsdóttir 12 (8 fráköst), Erla Þor- steinsdóttir 11 (13 fráköst), Kristín Blöndal 9, Marin Karlsdóttir 5, Svava Stefánsdóttir 3, Sigríður Guðjónsdóttir 2, Stefanía Bonnie Lúðvíksdóttir 1. Stig KFÍ: Jessica Gaspar 30 (15 fráköst, 8 stoðsendingar, 4 stolnir), Tinna Sigmunds- dóttir 9, Fjóla Eiríksdóttir 8 (14 fráköst), Helga Ingimarsdóttir 6, Sólveig Gunnlaugs- dóttir 5, Stefanía Ásmundsdóttir 3, Anna Sig- urlaugsdóttir 2. Seinni leikurinn var ekki síður spennandi þó Keflvíkingar hefðu frum- kvæðið allan fyrri hálfleikinn. Heima- menn höfðu 21-15 forystu eftir fyrsta leikhluta og þá kom Birna Valgarðs- dóttir inn hjá Keflvíkingum og skoraði 11 stig í flórðungnum. Lítið fór fyrir Jessicu Gaspar á þessum tima og skor- aði hún aðeins eitt stig í öðrum flórð- ungi. Aftur á móti var það Stefanía Ásmundsdóttir sem var að leika vel og skoraði hún 12 stig í flórðungnum. Um miðjan 3. leikhluta skipti Karl Jóns- son, þjálfari KFÍ, í 1:3:1 svæðisvörn og skyndilega var 8 stiga forskot Keflvík- inga farið og Tinna Sigmundsdóttir skoraði 3ja stiga körfu og kom KFÍ í 50-51 á lokasekúndum 3. leikhluta. Barátta var það sem einkenndi lokakafla leiksins og leiddu heima- menn en á síðustu mínútunni stal Sól- veig Gunnlaugsdóttir knettinum og skoraði og fékk vítaskot og staðan 66- 65. Henni brást bogalistin, KFÍ náði sóknarfrákasti en þær töpuðu boltan- um og Jessica Gaspar fékk sína 5.villu. Þær fengu þó annað tækifæri í lokin en Kristín Blöndal stal boltanum í seinustu sókn KFÍ og Keflvíkingar unnu, 68-65. Sýndum karakter Kristinn Einarsson, þjálfari Keflvík- inga, var að vonum ánægður eftir að hafa náð að hefna fyrir tapið á fóstu- dagskvöld. „Munurinn á leiknum í dag og í gærkvöldi er kannski sá að skotin voru að detta hjá okkur í dag og þó baráttuna hafi ekki vantað í gær þá var hún enn meiri í dag. Við sýndum karakter í dag og ég er stoltur af stelp- unum.“ Karl Jónsson, þjálfari KFÍ, var vit- anlega ekki eins ánægður í leikslok. „Þetta var svekkjandi, mannskapurinn var ekki tilbúinn í leikinn og það geng- ur ekki að halda að við getum unnið ís- landsmeistarana tvo daga í röð án þess að vera skynsamar." Stig Keflavíkur: Bima Valgarðsdóttir 18, Erla, 18 (8 fráköst, 5 stoðs.), Marin, 12 (hitti 5 af 8 skotum, 4 stoðs., 4 stolnir), Svava, 10, Kristín, 7 (5 stoðs., 5 stolnir), Theódóra, 2, Sigríður, 1. Stig KFl: Stefanía, 16, Gaspar, 14, Tinna, 14 (hitti úr 3 af 5 þriggja stigá skotum), Sólveig, 12, Fjóla, 7, Helga, 2. -EAJ • • Grindavíkurstúlkur vaxa með hverjum leik: Okklinn. hvað KFÍ varð í gær flórða liðið til að komast í úrslit Kjörísbikars kvenna þegar ísaflarðarstelpur unnu seinni leikinn sinn við Grindavík, 59-66, en þetta var 3. leikur ísaflarðarstelpn- anna á Suðurnesjunum um helgina. Það þurfti þrefalda tvennu frá hinum bandaríska leikmanni KFÍ og 31 stig samtals frá Grindvíkingunum tveimur í ísaflarðarliðinu til þess að vinna sigur á hinu unga og vaxandi liði Grindavíkur sem bætir sig í hverjum leik. Sérstaka athygli vakti framganga 15 ára stúlku í Grindavíkurliðinu, Ólafar Helgu Pálsdóttur. Ölöf meiddi sig illa á ökkla í fyrri hálfleik og þurfti að kæla ökklann í 12 mínútur. Þegar 17 mínútur voru eftir kom hún aftur hölt inn á og KFÍ var 3041 yfir. Ólöf lét ekki þessi meiðsli hafa nein áhrif á sig heldur skoraði 10 stig, tók 5 fráköst og gaf 5 stoðsendingar og það sem eftir var leiksins leiddi Grinda- víkurliðið sem náði að minnka mun- inn niður í þrjú stig, 59-62. Síðustu skotin vildu þó ekki ofan í og ísaflarðarstelpur náðu að klára erf- iða helgi með sigri. Alls skoraði Grindavíkurliðið átta þriggja stiga körfur í leiknum, sjö af þeim gerðu 15 ára stelpur líkt og 37 af stigum liðsins. Stig Grindavíkur: Ólöf Helga Pálsdótt- ir, 13 (7 stoðsendingar, hitti úr 3 af 4 þriggja stiga skotum, 4 stolnir), Jovana Lilja Stef- ánsdóttir, 10, Petrúnella Skúladóttir, 10, Sigurrós Ragnarsdóttir, 9, Sandra Guð- laugsdóttir, 6, Sigríður Anna Ólafsdóttir, 5 (12 fráköst, 6 stolnir), Rut Ragnarsdóttir, 2, Ema Rún Magnúsdóttur, 2, Bára Vignis- dóttir, 2. Stig KFl: Sólveig Gunnlaugsdóttir, 21, (hitti úr 7 af 11 skotum) Jessica Gaspar, 17 (10 fráköst, 10 stoðsendingar), Tinna Björk Sigmundsdóttir, 13, Stefanía Ásmundsdótt- ir, 10, Hansína Gunnarsdóttir, 4, Fjóla Eiríksdóttir, 1. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.