Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Page 12
32 MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000 Sport i>v Evrópska knattspyrnan: Loksins góður leikur - hjá lærisveinum Erikssons í Lazio sem ekki hafa spilað vel að undanförnu Roma hefur sex stiga forystu í ítölsku A-deildinni eftir leiki helgar- innar en liöið sigraði Udinese á heimavelli, 2-1. Gabriel Batistuta skoraði 10. mark sitt í deildinni í jafnmörgum leikjum áður en Francesco Totti skoraði annað mark liðsins sem var svo glæsilegt að jafnvel Luigi Turci, markvörður Udinese, gat ekki annað en klappað fyrir honum. Erkifjendur Roma, nágrannarnir í Lazio, hittu loks á góðan leik þeg- ar þeir sigruðu Vicenza, 1-4, á úti- velli þar sem Pavel Nedved skoraði tvö mörk. Andriy Shevchenko komst upp að hlið Batistuta í keppninni um markakóngstitilinn þegar hann skoraði tvö mörk í 4-1 sigri AC Mil- an á Lecce á San Siro. Bologna, sem verið hefur á flugi undanfarið, tapaði fyrir Bari en Atalanta tókst ekki að sigra Perugia á heimavelli og missti þess vegna Roma lengra frá sér en orðið var. Deportivo náöi aöeins jöfnu Deportivo missti af gullnu tæki- færi til að komast í efsta sætið í spænsku 1. deildinni í kvöldleik umferðinnar í gærkvöld. Makaay kom meisturunum yfir í Deportivo en á 52. minútu síðari hálfleiks missti liöið mann út af og lék einum færri það sem eftir var. Stórveldin unnu bæöi Bæði Barcelona og Real Madrid unnu nokkuð auðvelda sigra í spænsku 1. deildinni í gær. Barcelona sigraði nágrannana í Espanyol á Camp Nou, 4-2, og hefur nú ekki tapað fyrir grönnum sínum á heimavelli í 18 ár. Barcelona hafði alltaf frumkvæðið í leiknum og þeg- ar gestimir skoruðu juku heima- menn einfaldlega bilið aftur. Real spilaði einn af sínum bestu leikjum gegn Celta Vigo á heima- velli og vann þægilegan sigur, 3-0, og endapunktinn átti Roberto Car- los úr einni af sínum frægu auka- spyrnum af 30 metra færi. Racing Santander krækti í lang- þráðan sigur gegn Alaves undir stjórn nýs þjálfara, Gregorios Manz- ano, sem var að stjóma liðinu í sin- um fyrsta leik. Norðmaðurinn John Carew var maður leiksins hjá Valencia, skor- aði fyrra mark liðsins og lagði upp það síðara þegar liðið vann Real Sociadad á laugardag. Valencia-liðið var aftur með Gaizka Mendieta í fyrirliðastöðunni og munar um minna. Þórður Guðjónsson og félagar í Las Palmas guldu afhroð á heima- vefli gegn Villarreal, 1-5. Þeir voru að vísu orðnir níu undir lokin en staöan var orðin 1-4 áður en fyrri maðurinn fór út af. Numancia og Zaragoza þurftu að sættast á skiptan hlut í liflegum leik en úrslit leiksins eru þó vart ásætt- anleg fyrir liðin sem bæði eru í neðri hluta deildarinnar. Frakkland Bordeaux tók forystuna í frönsku knattspyrnunni í gærkvöld. Liðið lenti undir um miðjan fyrri hálfleik en þeir Marc Wilmots og Pedro Pauleta tryggðu Bordeaux mikil- vægan sigur. Paris SG má þakka stjörnufram- herja sínum, Nicolas Anelka, fyrsta sigur sinn i 10 leikjum í frönsku deildinni en hann skoraði eina mark leiksins gegn Metz á laugar- dag. PSG var manni færri í 35 mín- útur í leiknum. Þetta var einnig fyrsti deildarleikur Luis Femandez sem þjálfara liðsins. -JKS/ÓK Luis Figo, Real Madrid, á hér í baráttu viö Brasilíu- manninn Doriva, Celta Vigo, í leik liöanna í gær. Reuters Blarad í poka Þórdur Guójónsson kom inn á sem varamaður í liði Las Palmas á 46. mínútu í tapleiknum gegn Villarreal. Sven Göran Eriksson, þjálfari Lazio, hefur boðið Peter Taylor, fram- kvæmdastjóra Leicester City, þá Ro- berto Mancini, aðstoðarþjálfara Róm- arliðsins, og miðvallarleikmanninn efnilega Roberto Baronio að láni. Mancini er ekki talinn liklegur til þess að taka við af Eriksson hjá Lazio þegar hann tekur við enska landslið- inu. Leicester þarf leikmann til að fylla í skarðið nú þegar Neil Lennon hefur verið seldur til Glasgow Celtic. Sven Göran Eriksson og Roberto Mancini vilja vinna saman áfram. Mancini mun þó ekki eingöngu gegna knattspymustarfmu heldur er það talið líklegt að hann muni vera Eriksson innan handar með mat á leikmönnum fyrir ensku landsliðin. Búast má viö því að Inter Milan þurfi að punga út um 60 milljónum punda (rúmum 7 milljörðum króna) vilji það krækja í ástralska leikmann- inn Harry Kewell hjá Leeds United auk þess að liðið viil krækja í David O’Leary, stjóra Leeds. Það mun þurfa að greiða 40 milljónir punda fyrir Kewell og 20 milljónir í bætur til Leeds ef O’Leary ákveður að hverfa á braut Gríska knattspyrnusambandið stendur frammi fyrir ákveðnum vanda um þessar mundir þar sem nokkrir stjörnuleikmenn iandsliðs landsins hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér fyrir leikinn gegn Englandi í júní nk. ef ekki koma til breytingar á dómgæslu í leikjum á vegum sam- bandsins. Menn vilja meina að dómar- ar séu of vilhallir undir meistara síð- ustu fjögurra ára, Olympiakos, og vilja að komið verði upp stétt at- vinnudómara sem þurfi að svara til ákveðinnar nefndar varðandi ákvarð- anir sinar. Ruslan Nigmatulli, markvörður Lokamotiv Moskvu, sem hefur verið eftirsóttur af stórum félögum i Evrópu, hefur látið það uppi að loks sé komið að því að hann færi sig um set. Hann mun að öllum líkindum vera á leið tfl Sporting Lissabon, að þvi er fram kem- ur á netmiðlinum onefootball.com, en þegar þessi kaup eru skoðuð verður að setja stórt spumingarmerki við fram- tíð Danans sterka, Peters Schmeichel, hjá félaginu. Galatasaray hefur gefió það upp að það ætli sér að krækja i tvo leikmenn frá Ajax, þá Christian Chivu og Ric- hard Knopper. Chivu, sem er landi Gheorghes Hagis sem spflar hjá tyrk- neska liðinu, er afar vinsæll hjá félag- inu sem og stórliðum í Evrópu og til marks um báðar hliðar má benda á að þegar fréttir bárust af 18 milljóna punda tilboði Barcelona i piltinn varð allt brjálað i Amsterdam og skrifstof- ur Ajax voru umsetnar reiðum áhangendum sem lýstu yfir vanþókn- un sinni á slíku tilboði. Knopper er fyrrverandi unglingalandsliðsmaður Hollands og hefur frá því Jari Lit- manen hvarf frá félaginu verið fastur póstur á miðjunni. Belgíska félagió Club Briigge, sem hefur byrjað leiktíðina feikivel, er nú miðpunktur í rannsókn á ólöglegum leikmannakaupum en stjórnarmönn- um hjá félaginu munu hafa verið boðnar mútur af hálfu júgóslavnesks umboðsmanns sem vildi falbjóða leik- menn á sínum vegum. -ÓK/AÁ fi FRAKKLAHD .jr----------- Auxerre-Troyes..............2-2 Guingamp-Monaco ............2-2 Lille-Sedan ................2-0 Lyon-Bastia.................1-0 Paris SG-Metz...............1-0 Strasbourg-Rennes .........1-1 Toulouse-Lens...............1-0 Bordeaux-St. Etienne.......2-1 Marseille-Nantes............2-0 Bordeaux 20 9 7 4 27-16 34 Nantes 19 10 3 6 32-23 33 Sedan 20 9 6 5 30-21 33 Lflle 19 8 6 5 20-14 30 Lens 20 8 6 6 23-19 30 Guingamp 20 8 5 7 23-24 29 Lyon 19 6 10 3 23-16 28 PSG 19 8 4 7 30-28 28 Bastia 19 8 4 7 21-19 28 Troyes 20 7 6 7 24-28 27 Rennes 20 7 5 8 20-19 26 Monaco 20 7 5 8 28-28 26 Auxerre 20 7 5 8 21-24 26 St. Etienne 20 6 6 8 27-29 24 Marseflle 20 7 3 10 21-25 24 Metz 20 5 6 9 15-24 21 Toulouse 19 4 6 9 17-22 18 Strassborg 20 4 5 11 16-39 17 STy ÍTALÍA Brescia-Napoli...............1-1 1-0 Diana (32.), 1-1 Pecchia (58.). Reggina-Verona...............1-1 0-1 Bonazzoli(2.), 1-1 Stovini (90.). Atalanta-Perugia.............0-0 Bari-Bologna.................2-0 1-0 Bellavista (7.), 2-0 Cassano (46.) Fiorentina-Inter Milan ......2-1 1-0 Chiesa (48.), 1-1 Vieri (60.), 2-1 Costa (90.) Juventus-Parma ..............1-0 1-0 Ferrara (14.). AC Milan-Lecce...............4-1 1-0 Leonardo (19.), 1-1 Conticchio (21.), 2-1 Shevchenko (26.), 3-1 Shevchenko (31., víti). Roma-Udinese.................2-1 1-0 Batistuta (21.), 2-0 Totti (33.), 2-1 Muzzi (44.). Vicenza-Lazio ...............1-4 0-1 Nedved (13.), 0-2 Crespo (25.), 0-3 Nedved (73.), 1-3 Kallon (77.), 1-4 Salas (88.). Staðan Roma 10 8 1 1 22-8 25 Atalanta 10 5 4 1 15-8 19 Juventus 10 5 4 1 15-9 19 Lazio 10 5 3 2 17-10 18 AC Milan 10 5 3 2 18-12 18 Parma 10 5 2 3 13-8 17 Bologna 10 5 2 3 16-12 17 Udinese 10 5 1 4 17-11 16 Fiorentina 10 3 5 2 17-15 14 Inter Milan 10 3 3 4 12-14 12 Lecce 10 3 3 4 8-14 12 Verona 10 2 5 3 13-17 11 Perugia 10 2 4 4 11-15 10 Vicenza 10 2 3 5 11-18 9 Bari 10 2 2 6 8-15 8 Brescia 10 1 4 5 11-16 7 Napoli 10 1 4 5 8-16 7 Reggina 10 1 1 8 5-19 4 Markahæstir: Andriy Shevvhenko, Milan........10 Gabriel Batistuta, Roma ........10 Roberto Carlos, Udinese .........7 Francesco Totti, Roma ...........6 Leandro, Fiorentina .............5 David Trezeguet, Juventus .......5 df-*) SPÁNN Las Palmas-ViUarreal.....1-5 0-1 Mariano (33.), 0-2 Lopez (41.), 0-3 Lopez (48.), 1-3 Guary (57.), 1-4 Mariano (67.), 1-5 Garcia (90.). Numancia-Zaragoza .......1-1 1-0 Navarro (4.), 1-1 Juanele (45.). Valencia-Real Sociadad .... 2-0 1-0 Carew (68.), 2-0 Sanchez (87.). Athletic Bilbao-Oviedo .... 4-0 1-0 Yeste (48.), 2-0 Yeste (57.), 3-0 Gonzalez (64.), 4-0 Guerrero (89.). Barcelona-Espanyol .......4-2 1-0 Rivaldo (15.), 2-0 Xavi (44.), 2-1 Posse (53.), 3-1 Rivaldo (57., víti), 4-1 Enrique (62.), 4-2 Arteaga (88.). Deportivo-Vallecano.......1-1 1-0 Makaay (35.), 1-1 Bolic (71.) Malaga-VaUadolid..........3-1 1-0 Silva (1.), 2-0 Silva (49.), 3-0 Musampa (80.), 3-1 Sales (88.). Real MaUorca-Osasuna .... 1-1 0-1 Rosado (26.), 1-1 Nadal (55.) Santander-Alaves..........2-1 0-1 Moreno (69.), 1-1 Tais (81.), 2-1 Amavisca (89.). Real Madrid-Celta Vigo .... 3-0 1-0 Helguera (11.), 2-0 Figo (34.), 3-0 Carlos (60.). Staðan Valencia 14 8 4 2 25-9 28 Deportivo 14 8 4 2 24-11 28 R. Madrid 13 8 2 3 29-16 26 Barcelona 14 7 2 5 27-22 23 Vaflecano 14 6 5 3 30-20 23 Mallorca 14 6 4 4 16-15 22 Alaves 14 6 3 5 20-14 21 Real Oviedo 14 6 2 6 19-22 20 Villarreal 14 5 4 5 17-18 19 Malaga 14 5 3 6 23-23 18 A. Bilbao 14 5 3 6 20-21 18 Espanyol 14 5 3 6 14-16 18 Celta Vigo 14 5 3 6 17-20 18 Las Palmas 14 5 3 6 16-29 18 Vafladolid 14 3 7 4 14-17 16 Zaragoza 13 3 6 4 14-14 15 Numancia 14 3 4 7 14-22 13 Santander 14 3 4 9 17-25 13 R. Sociadad 14 3 3 8 15-30 12 Osasuna 14 1 7 6 12-21 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.