Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Page 13
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000
33
I>V
Það var stór helgi hjá Hermann Maier um helgina en hann er óumdeilanlega besti skíðamaður heims i alpagreinum. Hann hefur tekið þátt i 100
heimsbikarmótum og sigrað í 33 þeirra. Sannarlega glæsilegur árangur. Hér fagnar hann sigri i Frakklandi í gær. Reuters
28 ára afmæli og 100 keppnir að baki í heimsbikarnum
- Hermann Maier virðist algjörlega óstöðvandi
___________________Sport
Úrslit í
heims-
bikarnum
Karlar:
Stórsvig, Val d’Isére:
1. Hermann Maier, Austurr. 2:30,63
2. H. Schilchegger, Austurr. 2:31,99
3. A. Schifferer, Austurr. . . 2:32,00
4. M. Von Grunigen, Sviss .2:32,08
5. F. Covili, Frakklandi . . .2:32,15
Heildarstaða:
1. Hermann Maier, Austur. 140 stig
2. Fredrik Nyberg, Svíþjóð 129 stig
3. Lasse Kjus, Noregi .... 125 stig
Brnn, Val d’Isére:
1. Hermann Maier, Austurr. 1:45,04
2. S. Eberharter, Austurr. . . 1:45,35
3. Fritz Strobl, Austurr. . . .1:45,59
4. A. Schifferer, Austurr. . .1:46,04
5. Didier Cuche, Sviss . . . .1:46,15
Heildarstaða:
1. S. Eberharter, Austurr. . 240 stig
2. Hermann Maier, Austur. 216 stig
3. Lasse Kjus, Noregi .... 140 stig
Samanlögð heildarstaða:
1. Hermann Maier, Austur. 616 stig
2. S. Eberharter, Austurr. . 409 stig
3. Lasse Kjus, Noregi .... 397 stig
4. Fredrik Nyberg, Svíþjóð 297 stig
5. A. Schifferer, Austurr. . 288 stig
Konur:
Svig, Sestriere:
1. J. Kostelic, Króatíu....1:41,82
2. Sarah Schleper, BNA . . . 1:42,15
3. Trine Bakke, Noregi .... 1:42,17
4. Martina Ertl, Þýskal. . . . 1:42,66
5. Anja Párson, Sviþjóð . . . 1:42,78
Heildarstaða:
1. J. Kostelic, Króatiu .... 300 stig
2. Martina Ertl, Þýskal. . . 210 stig
3. Vanessa Vidal, Frakkl. . 108 stig
Stórsvig, Sestriere:
1. M. Dorfmeister, Austurr. 2:19,88
2. Anja Parson, Svíþjóð . . .2:20,71
3. Sonja Nef, Sviss .......2:20,75
4. Martina Ertl, Þýskal. . . . 2:22,05
5. J. Kostelic, Króatiu ...2:22,12
Heildarstaða:
1. Anja Párson, Sviþjóð . .200 stig
2. Martina Ertl, Þýskal. . . 186 stig
3. M. Dorfmeister, Austurr. 186 stig
Samanlögð heildarstaða:
1. Martina Ertl, Þýskal. . . 560 stig
2. R. Cavagnoud, Frakkl. . 439 stig
3. M. Dorfmeister, Austurr. 396 stig
4. J. Kostelic............ 393 stig
5. Isolde Kostner, ftalíu . .294 stig
Hermann Maier er óumdeildanlega besti
skíðamaðurinn í alpagreinum i dag. Eftir að
hafa tekið þátt í 100 heimsbikarkeppnum og
sigrað í 33 þeirra er Maier í sérflokki. Um helg-
ina tók hann þátt í tveimur mótum, í bruni og
stórsvigi, og sigraði í þeim báðum. Þá sýndi
Janica Kostelic fram á það að hún getur einnig
unnið vel undir pressu er hún vann sitt þriðja
svigmót í vetur í jafnmörgum keppnum.
Engir Norðmenn
Eftir að hafa fagnað 28 ára afmæli sínu á
föstudag var Hermann Maier greinilega vel upp-
lagður fyrir mót helgarinnar. Það kom þó fáum
á óvart að Austurríkismenn mynduðu efstu
fjögur sæti brunkeppninnar á laugardag enda
Norðmennirnir Lasse Kjus og Kjetil-André
Aamodt fjarri góðu gamni. En þrátt fyrir næst-
um fullkomna ferð Stefans Eberharters nægði
það ekki til að stööva Maier sem var einfaldlega
of fljótur niður brekkuna. Eberharter varð að
gera sér annað sætið að góðu.
Fritz Strobl, sem hafði verið fljótastur í æf-
ingum fyrir keppni, varð þriðji. í stórsviginu í
gær var Maier með rásnúmer 1. Og það var ekki
að spyrja að því - enginn gat ógnað Maier frá
því að hann fór fyrstur niður brekkuna og þar
til að hann innsiglaði sigurinn í síðari umferð-
inni þegar hann fór síðastur yfir marklinuna.
Eins og fyrri daginn hirtu Austurríkismenn
alla verðlaunapeninga sem í boði voru en þeir
Heinz Schilchegger og Andreas Schifferer
fylgdu fast á hæla heimsmeistaranum. Kom þá
ekki að sök að þeir Kjus og Aamodt voru meðal
keppenda. En kastljósinu var ekki aðeins beint
að Maier og löndum hans heldur einnig Frakk-
anum Frederic Covili sem byrjaði með rásnúm-
er 40 en lauk keppni í 5. sæti.
Frábær sigur Kostelic
Janica Kostelic frá Króatiu sýndi það enn og
sannaði að árangur hennar er engin tilviljun.
Fyrir svigmót helgarinnar var hún búin að
sigra I báðum mótum vetrarins og því kom það
mörgum á óvart að hún skyldi aðeins ná 10.
besta tímanum í fyrri umferð. Hún lét það þó
ekki hafa áhrif á sig og setti í fluggírinn í þeirri
síðari. Þegar uppi var staðið hafði hún sigrað
með 0,33 sekúndna forskoti á Sarah Schlopy frá
Bandaríkjunum.
Öruggur sigur Dorfmeister
Michaela Dorfmeister frá Austurríki vann á
laugardag stórsvigskeppnina í Sestriere og
fylgdi þar með sigrinum í risasvigi í Lake Lou-
ise eftir. Hún gerði engin mistök í hvorugri
ferðinni og þrátt fyrir mikla keppni frá Anja
Parsson frá Sviþjóð og hinni svissnesku Sonju
Nef var sigur Dorfmeister frekar öruggur þegar
uppi var staðið.
„Ég er fegin því að vera aftur í Evrópu, ég
þarf nefnilega á hvildinni að halda. Ég stóð mig
vel i Ameríku og vissi að það myndi ég einnig
gera hér. Ég var ekkert taugaóstyrk, æfingarn-
ar gengu vel og ég vissi að með þolinmæði
myndi árangurinn ekki láta standa á sér.”
í dag verður svo keppt í svigi karla í Sestri-
ere á Ítalíu og hefst keppni kl. 17 að íslenskum
tíma.
an Krist-
ina Kozn-
ick æfir
ekki leng-
ur með
bandaríska
liöinu þar
sem hún
kýs að æfa
ein, að eig-
in sögn.
-esá
RADÐU DJÖFLARNIR
Knattspyrnustjörnurnar í sögu
Manchester United
Ómissandi bók fyrir alla Rauða Djöfla.
Ferð þú á Old Trafford?
Sjá nánar á kápu bókarinnar. ^^3
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR^'
Meissnitzer meö eftir
378 daga fjarveru
Hin Austurríska Alex-
andra Meissnitzer keppti á
miðvikudaginn í heimsbik-
amum í fyrsta sinn í 378
daga en hún hefur verið frá
vegna meiðsla í hné. Þegar
upp var staðið átti hún 7.
besta tímann og var fagnað
sem sigurvegara.
Haldin var afmælisveisla í
tilefni 28 ára afmælis Her-
manns Maiers og lauk henni
með því að ítalska herlög-
reglan þurfti að fylgja meist-
aranum upp á hótel. Ástæða
þess var víst að hann var
með of mikil læti á götum
Bormeo, þar sem veislan var
haldin.
Þess má geta að banda-
ríska stúlk-
Árangur Janicu Kostelic frá Króatíu á mótunum í vetur er
engin tilviljun. Reuters