Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Qupperneq 14
34
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000
Sport unglingá
Hér sjást stelpurnar sem unnu til verðlauna í flokki stúlkna í 8.-10. bekk. Taliö frá vinstri: Jóhanna Eliasdóttir (Álftamýrarskóla), Erla ívarsdóttir (Árbæjarskóla), Anna
Guðmundsdóttir (Hagaskóla), Kristín Hjálmarsdóttir (Hagaskóla), og Halldóra Ólafsdóttir, Jóna Porvaldsdóttir og Ásthildur Björnsdóttir (Árbæjarskóla).
Grunnskólamót í borötennis:
Borðtennistaktar
- hjá unglingum í grunnskólum Reykjavíkur sem fjölmenntu á mótið
Jólaborötennismót ÍTR fyrir
Grunnskóla Reykjavíkur fór fram í
íþróttahúsi TBR sunnudaginn 3.
desember á vegum íþrótta og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur og tókst
mótið vel. Keppt var í liðakeppni
og sendu margir skólar lið til leiks
og varð því nokkuð góð þátttaka.
Á mótinu var tekið vel á og sýndu
unglingarnir góð tilþrif.
Uppbyggingarstarfiö aö
aukast
Borðtennis hefur jafnan talist til
litlu iþróttagreinanna á Islandi en
með aukinni þátttöku yngri kyn-
slóðarinnar gæti það breyst á
næstu árum.______________________
Uppbyggingar-
starf félaganna
hefur verið aö__
aukast síðustu
ár og einnig er
borðtennis —
leikinn í flest-
um grunnskólum Reykjavíkur.
Á jólamóti ÍTR var keppt í
drengja- og stúlknaflokki og leiddu
Umsjón:
Benedikt Guðmundsson
saman hesta sína krakkar í 5.-7.
bekk og síðan unglingar í 8.-10.
bekk. í keppni 5.-7. bekkjar pilta
____________________var það
Grandaskóli
sem fór með
__sigur af hólmi
en Selásskóli
hjá stelpun-
--------------------um. Hjá
drengjunum í
8.-10. bekk sigraði Breiðholtsskóli
en Hagaskóli hjá stelpunum.
Fleiri stelpur
Margir unglinganna sem tóku
þátt í mótinu æfa borðtennis hjá
félögum sínum og t.d. hefur verið
rekið öflugt starf hjá Víkingi i
gegnum árin. Gaman er að sjá
fleiri stelpur vera farnar að æfa og
margar þeirra sem tóku þátt í
mótinu eru mjög efnilegar.
Hér fyrir neðan má sjá úrslit
mótsins og hverjir komust á verð-
launapall í hverjum flokki fyrir sig
hjá stelpum og strákum.
-BG
Urslit á jólamóti ITR
8.-10. bekkur (drengir)
1. sæti: Daði Guðmundsson
og Óli Páll Geirsson, Breið-
holtsskóla.
2. sæti: Matthías Stephen-
sen og Finnur Magnússon,
Laugalækjarskóla.
3. sæti: Sölvi Pétursson og
Magnús Magnússon, Árbæjar-
skóla.
8.-10. bekkur (stúlkur)
1. sæti: Anna Guðmunds-
dóttir og Kristín Hjálmars-
dóttir, Hagaskóla.
2. sæti: Jóhanna Elíasdóttir,
Álftamýrarskóla, og Erla
ívarsdóttir, Árbæjaskóla.
3. sæti: Jóna Þorvaldsdóttir,
Ásthildur Bjömsdóttir og
Halldóra Ólafsdóttir, Árbæj-
arskóla.
5.-7. bekkur (drengir)
1. sæti: Daníel Kristinsson,
Grettir Ólafsson og Björn
Bjömsson, Grandaskóla.
2. sæti: Hlynur Gíslason og
Ragnar Einarsson, Korpu-
skóla.
3. sæti: Davíð Teitsson og
Hreinn Þorvaldsson, Ártúns-
skóla.
5.-7. bekkur (siúlkur)
1. sæti: Rósa Hauksdóttir og
Thelma Lind Steingrimsdótt-
ir, Ártúnsskóla.
2. sæti: Björk Ólafsdóttir og
Magnea Ólafsdóttir, Selás-
skóla.
Á myndinni hér fyrir ofan sjást Daði Guömundsson og Óli Páll Geirsson taka viö verðlaunum
sínum fyrir sigur i sínum flokki. Óli Páll er greinilega sáttur viö lífiö og tilveruna.
Karfa:
Unglingaflokkur
íslandsmótið í unglinga-
flokki hefur verið í fullum
gangi í vetur. Alls keppa 13 lið
og er spilað í tveimur riðlum.
Leikmenn unglingaflokks eru
drengir, fæddir 1980 og 1981.
Margir af strákunum eru þegar
farnir að láta vel að sér kveða
í meistaraflokki og spiia sumir
þeirra ekki með unglingaflokki
vegna anna með meistara-
flokki.
Engu að síður er spennandi
keppni fram undan og virðast
nokkur lið getað blandað sér í
baráttuna um íslandsmeistara-
titilinn, þó svo að KR-ingarnir
séu sigurstranglegastir. Þeir
hafa unnið alla sína leiki sann-
færandi, fyrir utan hörkuleik á
Akureyri við heimenn í Þór.
Þórsarar mæta einnig öflugir
til leiks og gera tilkail til Is-
landsmeistarabikarsins.
Tindastóll hefur einnig á að
skipa sterku liði sem getur far-
ið alla leið og Stjarnan hefur
verið að láta að sér kveða í
upphafi móts. Islandsmeistar-
amir frá því í fyrra, Kefl-
víkingar, hafa verið rólegir í
tíðinni það sem af er móti en
það skýrir sig sjálft þar sem
lykilmenn eins og Magnús
Gunnarsson og Jón Hafsteins-
son hafa ekki leikið með ung-
lingaflokki. Svipaða sögu er að
segja af ÍR en þar hafa ekki
spilað þeir strákar sem eru
orðnir lykilmenn í meistara-
flokki. Ef þeir strákar koma
inn í dæmið þá er ÍR orðið lið
sem gæti tekið titilinn. Ung-
lingalandsliðið spilar sem
gestalið í unglingaflokki og er
það skipað strákum, fæddum
1984. Þetta hefur verið gert
undanfarin ár hjá Körfuknatt-
leikssambandinu að láta ung-
lingalandsliðin spila í ung-
lingaflokki til að skapa liðinu
verkefni yflr vetrartímann og
hefur það komið vel út. Þó svo
að landsliðið nái ekki oft hag-
stæðum úrslitum þá fá þessir
ungu strákar mikla reynslu út
úr þessum leikjum sem nýtist
þeim þegar á hólminn er kom-
ið með landsliðinu á sterkum
mótum. Þar þurfa þessir dreng-
ir oft og tíðum að kljást við
stærri og sterkari stráka sem
er einmitt það sem þeir gera í
unglingaflokksleikjunum.
Hér fyrir neðan er staðan i
unglingaflokki og næstu leikir
fara fram eftir jólafrí. -BG
Riðin í
Tindastóll 5 4 1 315-290 8
Breiðablik 4 4 0 339-298 8
Stjarnan 5 4 1 387-338 8
Keflavík 5 3 2 406-390 8
Grindavík 6 1 5 394-426 2
Valur 5 1 4 333-366 2
Ung.landsl. 4 0 4 Riðill 258-324 2 0
KR 4 4 0 358-224 8
Þór AK. 5 4 1 492-367 8
ÍR 4 2 2 350-354 4
ÍA 4 1 3 266-332 2
Haukar 5 1 4 203-258 2
UMFS 4 1 3 225-359 2
Næstu leikir
8. janúar
ÍA-KR 20.00
Stjaman-Breiðablik 20.00
UMFS-ÍR 20.00
Grindavík-Valur 20.00
Ung.landsliðið-Keflavík 20.00
12. janúar
ÍA-ÍR 20.00
15. janúar
UMFS-Haukar 20.00
Ung.landsliðið-Valur 20.00
Grindavík-Breiðablik 20.00
19. janúar
Haukar-ÍA 21.30