Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2000, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 11. DESEMBER 2000
35
Sport
JOV
áM:
www.tluRyvckf?
' V
v-:í. •
Toffmynotr*l t>(ioíiíóoTJTi
llUU.
M |=
. = Laxá í AÖaldal
„^4—,: Laxa i Þmgeyjarsýslu
^c^ígjt “ Loftmyndir frá vi/Ljun upp aö Mývatni
I Litlaá í Kelduhverfi
Loftmy.icíir frí Laxarósum upp að viritjun
Aíls eru 134 rr.j-ndlr cl Laxá I AAiIdaf.
fjfíldi iTíerktra veiAijtaAa
f - V
A!l» eni 4S4 myjuSir i disknum
230 mytsdir af Laxánni í MývalnMvetl.
&2 myfsUir af trtlua » Krlduhverfi
Fíestar myndimar a/ LaxÁ cnr merirtar
Ha*Rt tt *A skoAa ntyndimar
r ínt tig htlmatiðu
rwst et aO shoda rtryndim
ílft* OK h«ima»idu
vsvrwJJuguveidi.is
Veiðivon
Þessi mynd er úr Stóru-Laxá í Hreppum. A litlu myndunum þremur má sjá þrjú sýnishorn af diskunum sem komnir eru út. Hér er um lofsvert framtak aö
ræöa og kærkomiö stangaveiöimönnum sem hljóta að fagna því mjög aö geta skoðaö ána sína í smáatriöum. Mynd Einar Guömann
Kærkomið
geisladiskar með myndum af veiðistöðum í helstu ám landsins komnir út
Gefnir hafa verið út fimm geisla-
diskar með loftmyndum af veiði-
stöðum í mörgum helstu laxveiðiám
landsins. Þetta er líklega í fyrsta
skipti sem ljósmyndari gefur út ljós-
myndir í þessum mæli á geisladisk-
um og einnig í fyrsta skipti sem ár
og vötn eru mynduð sérstaklega í
þessum tilgangi.
„Diskamir eru allir eins uppsett-
ir. í byrjun velur veiðimaðurinn
skjal á viðkomandi diski sem heitir
loftmyndir. Þá kemur upp valmynd
með lista yfir þær ár sem eru á
disknum. Síðan er áin valin og þetta
virkar síðan alveg eins og hver önn-
ur heimasíöa. Þegar búið er að velja
ákveðna á koma upp litlar smá-
myndir með skýringum á því um
hvaða veiðistað er að ræða. Svona
er hægt að fletta yfir alla diskana.
Það eru merkingar undir myndun-
um en ef þær vantar getur viðkom-
andi veiðimaður sent mér orðsend-
ingu um nafn staðarins og ég bæti
því við. Það er svo líka hægt að
sækja skjal sem er inni á flugu-
veidi.is þar sem alltaf er að fmna
nýjustu merkingamar," sagði Einar
Guðmann á Akureyri í samtali við
DV-Sport en hann hefur tekið allar
myndirnar sem eru á umræddum
diskum. Á einum diskinum eru
myndir af veiðistöðum í Laxá í
Þingeyjarsýslu frá virkjun og upp
að Mývatni og Litluá i Kelduhverfl.
Einn diskurinn er helgaður Laxá i
Aðaldal, frá Laxárósum og upp að
virkjun. Þriðji diskurinn er með
myndum frá Norðurá í Borgarfirði,
Stóru-Laxá, Laxá í Kjós, Langá á
Mýrum, Grímsá í Borgarfirði, Hít-
ará og Haffjarðará. Loks er diskur
með myndum frá Eyjaijarðará,
Fnjóská og Hörgá. Á fimmta diskn-
um eru myndir af allri strandlengju
Þingvallavatns og Soginu í fram-
haldi af því. Frábærar myndir af
Soginu. Elliöavatn er tekið vel fyrir
og á diskinum er einnig íjöldi
mynda af vötnum sem hafa orðið á
vegi ljósmyndarans. Þá má einnig
nefna myndir af Tungufljóti og
Brynjudalsá. Samtals eru 2700
myndir á diskunum fimm. Fyrir
veiðimenn eru myndimar ómetan-
leg
hjálpartæki til þess að læra um
veiðistaði og ár enda byggist veiði-
mennska að verulegu leyti á því að
þekkja ána sem veitt er i og fjöldi
veiðistaða eru merktir á diskunum.
„Ég vona að veiðimenn komi til
með að hafa gagn af þessum disk-
um. Myndimar eiga eflaust eftir að
koma mörgum á óvart enda allt ann-
að að skoða veiðistaði á loftmynd-
um,“ sagði Einar ennfremur.
Þetta framtak hans er lofsvert og
kærkomið, svo vægt sé til orða tek-
ið.
Verðið á diskunum er mjög gott,
2.900 og 3.900 krónur. Það er sannar-
lega lítið verð fyrir hreint frábæra
vöru. -G.Bender
Stangaveiðifélag Reykjavíkur:
Hellingur af
umsóknum
„Þaö hefur verið nóg að gera að
flokka allar þær umsóknir sem við höf-
um fengið og þær em fleiri en í fyrra,
enda félagarnir komnir í 2550,“ sagði
Bjami Ómar Ragnarsson, formaður
Stangaveiöifélags Reykjavíkur, í sam-
tali við DV-Sport.
„Við munum senda út til þeirra
sem fengu úthlutað fyrir jól og þá sjá
menn hvað þeir hafa fengið, þetta verð-
ur jólaglaðningurinn frá okkur í ár,“
sagði Bjami í lokin.
Þrátt fyrir frekar rólega veiði í laxin-
um i sumar virðast veiðimenn
ákveðnari en nokkru sinni í að tryggja
sér veiðileyfi næsta sumar. Vel hefur
gengið að selja í þær ár sem er byrjað
að selja veiðileyfi i og veiðimenn em
allavega búnir að panta víða í veiðián-
um.
í silungnum er sama sagan, enda fátt
skemmtilegra en að veiða vænan sil-
ung, og þarf víða að panta fyrir fram.
„Við ætlum að úthluta veiðileyfum í
janúar á silungavæðið í Víðidalsá og
það er ekkert lát á því að veiðimenn
panti veiðileyfi þessa dagana,“ sagði
Ragnar Guðlaugsson, formaður veiðifé-
lags Víðidalsár, í samtali við DV-Sport.
-G. Bender
Bjarni Ómar Ragnarsson, formaöur Stangaveiöifélags
Reykja-víkur, meö góöan bunka af umsóknum f veiöiár
félagsins fyrir næsta sumar. DV-mynd G.Bender
Vió fréttum af einum
rjúpnaveiðimanni sem hefur
farið lítið og fengið lítið í
næsta nágrenni við Ólafsfjörð.
Eitthvað var þó víst af merkt-
um rjúpum þar fyrir skömmu
og þegar vinurinn ætlaði að
kíkja eftir rollunum sá hann
tvær dauðar rjúpur. Þær voru
með merki um hálsinn og þetta
var jafn mikið og 'hann hafði
skotið allt tímabilið. Næst ætl-
ar hann byssulaus til rjúpna.
Heyrst hefur að Árni Bald-
ursson og veiðifélagið Lax-á,
sem eiga Litlu fluguna, það rót-
gróna fyrirtæki, hafi hug á að
selja það. Litla flugan hefur
verið starfrækt i 20 ár og það
var Kristján Kristjánsson
sem stofnaði hana. Fyrir eiga
Árni Baldursson og Lax-á Úti-
vist og Veiði í Síðumúlanum.
Eitthvað var rœtt um að
flyltja Litlu fluguna i Síðumúl-
ann en hætt við það. Af veiðifé-
laginu Lax-á er það annars að
frétta að nú styttist í að verð-
skráin komi út hjá því og verð-
ur hún víst óvenjulega glæsi-
leg. Enda bætast alltaf við
veiðiár.
Svo viróist sem það verði
ekki vandamál að selja veiði-
leyfin næst sumar í laxveið-
inni, þrátt fyrir frekar slaka
laxveiði. Við fréttum að í
ágætri laxveiðiá á Mýrunum
hefðu helmingi fleiri sótt um
veiðileyfi en mögulegt er aö út-
hluta. Þetta hefur heyrst víða í
veiðinni þessa dagana.
Verslunin Títan, með veiði-
manninn Róbert Schmidt
fremstan í flokki, hefur byrjað
með heimasíðu og fyrir
skömmu birti hún viðtal við
Sigurfinn Jónsson á Sauðár-
króki. Líka var rætt um vél-
sleðana sem eru notaðir mikið
á rjúpuna við lítinn fögnuð
venjulegra veiðimanna sem
nenna að labba.
Eins og flestir vita hefur
verið breytt um leigutaka í
Svartá í Húnvatnssýslu og hef-
ur lítið frést um þann hóp sem
tók hana á leigu. Þó hefur
heyrst að eingöngu eigi að
leyfa fluguveiði í ánni næsta
sumar.
Veióitölurnar streyma úr
veiðiánum þessa dagana og á
silungasvæðinu í Víðidalsá í
Húnvatnssýslu veiddust 1000
bleikjur og 120 sjóbirtingar.
Stœrsta bleikjan var 6 pund
en stærsti sjóbirtingurinn 13
pund. Það er ánægjulegt að sjá
að sjóbirtingurinn er allur aö
koma til aftur enda ekki á
hverjum degi sem veiðist 13
punda bolti og það norðan
heiða.
Stangaveiöimenn margir
hverjir eiga nokkuð bágt um
þessar mundir enda nokkuð
liðið frá lokum síðustu
vertíðar og dágóður tími í þá
næstu. Við fréttum af
veiðifélögum á landsbyggðinni
sem aka reglulega með
uppáhaldsánni sinni, svona til
að fylgjast með og athuga hvort
áin hafl eitthvað breyst. Þetta
er veiðidella eins og hún gerist
verst og líklega á lokastigi.
Landssamband veiðifélaga
hefur opnað nýjan vef fyrir
veiðimenn á ensku og íslensku.
LV hefur lengi verið með
heimasíðu í gangi á Netinu.
Um töluverða viðbót er að
ræða aö þessu sinni. Vefslóðin
er http://www.angling.is