Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001
Fréttir DV
. Höfundarréttargjald innheimt af geisladiskum:
Oréttlætanlegt
- meö öllu, segir Ásgeir Ásgeirsson hjá Hans Petersen
Mikil óánægja hefur skapast
vegna nýrrar reglugerðar um inn-
heimtu höfundarréttargjalds á
óskrifaða geisladiska og geislaskrif-
ara. Á hvern geisladisk hefur verið
sett fast 35 króna gjald sem mun
hækka verð til neytenda sem því
nemur, auk þess sem geislaskrifar-
ar hækka töluvert í verði. Undir-
skriftasöfnun til þess aö mótmæla
þessu stendur yfir á Netinu og hafa
safnast um tólf þúsund undirskrift-
ir. Tónlistarmenn hafa fagnað reglu-
gerðinni, þar sem þeir munu nú fá
greitt fyrir efni sem hugsanlega er
fjölritað með slíkum búnaði, en
Samtök íslenskra hugbúnaðarfram-
leiðenda hafa sent frá sér yfirlýs-
ingu um að reglugerðin feli í sér
mismunun gagnvart höfundarrétt-
höfum, háð eðli hugverka þeirra.
ímyndað tap
höfundarrétthafa
En það eru fleiri sem eru óá-
nægðir. Hans Petersen hefur und-
anfarin ár boðið viðskiptavinum
sinum upp á svokallaða
mynddiskaframleiðslu sem fer
þannig fram að viðskiptavinurinn
kemur með filmu og myndimar af
henni eru skannaðar inn og
brenndar á stafrænt form - á
geisladisk. Þessi þjónusta hefur að
sögn Ásgeirs Ásgeirssonar, sölu-
og markaðsstjóra stafræns búnað-
ar hjá Hans Petersen, verið afar
vinsæl, en ef fram heldur sem horf-
ir mun kostnaður við hana aukast.
„Þessi gjaldtaka er óréttlætanleg
með öllu,“ segir Ásgeir. „Um er að
ræða háar fiárhæðir sem á að inn-
heimta í nafni höfundarréttar, en ég
Asgeir Asgeirsson hjá Hans Petersen
Brennsta Ijósmynda á geisiadiska er
þjónusta sem hefur verið mjög vinsæl.
Sú þjónusta mun sennilega hækka
veruiega ef af gjaldtökunni verður.
hef ekki heyrt neitt sem sannfærir
mig um að þetta sé rétt aðferð við
að bæta höfundarrétthöfum eitt-
hvert ímyndað tap sem þeir verða
fyrir vegna þjófnaðar á tónlist af
ótilgreindum aðilum. Ég fagna
þeirri athygli sem þetta mál hefur
vakið og sýnir það okkur að islensk-
ir neytendur láta ekki vaða yfir sig
með reglugerðum sem gerðar eru í
skjóli nætur.“
Ásgeir hefur ásamt lögmanni og
fulltrúum frá Tæknivali, Opnum
kerfum, Aco og Tölvudreifingu sem
eru í svipaðri aðstöðu, mælt sér mót
við Eirik Tómasson, lögfræðing
STEFs. „Við viljum fá svör, til þess
að við getum skoðað stöðuna og leit-
að leiða til að sætta sjónarmið allra
sem að málinu koma,“ segir Ásgeir
að lokum. -þhs
Gareth Ellis og Víðir Þorgeirsson dæmdir í 7 ára fangelsi vegna 5007 e-taflna:
Meiri sannanir hefðu þýtt
þyngri refsingu Bretans
- dómari taldi framburð Vídis stööugan - frásögn Gareths talin ótrúveröug
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Lengi beðið eftir dómi
Lögmenn aðstandenda manna sem dæmdir voru í stóra fíkniefnamáiinu svo-
kallaða biðu eftir að komast í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Sex vikur eru síðan málin voru dómtekin og þurfti að taka þau upp á ný
bæði vegna þess hversu langur tími hefur iiðiö og vegna nýfallins
dóms Hæstaréttar ísiands í máiinu.
Seinni hluti stóra fíkniefnamálsins:
Málið endurupptekið
vegna langrar biðar
Þrjár af fimm ákærum í seinni hluta
stóra fíkniefnamálsins voru endurupp-
teknar i Héraðsdómi Reykjavíkur i gær.
Sex vikur eru síðan fiórar ákæranna
voru dómteknar og þurfti því að taka
málin upp aftur vegna þess tima sem
liðið hefur, sem og vegna þess að í milli-
tíðinni hefur dómur Hæstaréttar fallið
yfir þeim fimm sem áfiýjuðu héraðs-
dómi. Fimmtán voru sakfelldir í fyrri
hluta málsins í sumar en hinir tíu undu
sínum dómum. Hæstiréttur mildaði ein-
ungis dóm eins manns en þyngdi eða
staðfesti héraðsdóma hinna fiögurra.
Fólkið í þessum hluta málsins er
sakað um peningaþvætti og minni
háttar fikniefhamisferli en fyrri hluti
þessa máls fiallaði um stórfeOt fikni-
efnasmygl til landsins og voru höfuð-
pauramir dæmdir í allt að níu ára
fangelsi. Við rannsókn málsins var
lagt hald á gífurlegt magn eiturlyfia og
talið er að forsprakkar smyglsins hafi
hagnast um tugi milljóna króna á
fikniefnabraski sínu. Eiturlyfiunum
var smyglað til landsins f gámum ís-
lensks skipafélags og höfðu forsprakk-
amir starfsmenn innan skipafélagsins
á sínum snærum.
Meðal ákærðu í þessum síðari hluta
málsins em sjötug kona, sambýliskona
eins forsprakkans, tannlæknir og lög-
fræðingur. Búast má við að Hjördís Há-
konardóttir og meðdómendur hennar
felli dóma í tveimur ákæranna á næstu
vikum en lengri bið verður eftir hinum
þremur, meðal annars vegna þess að
einn hinna ákærðu er í Bretlandi.
Peningaþvættisákærumar í þessu
máli em þær fyrstu sem íslenskir dóm-
stólar fá inn á borð til sin og hefur Jón
Snofrason saksóknari því lagt fram
norska dóma til stuðnings máli sínu.
-SMK
Gareth John Ellis, 28 ára Breti
sem búið hefur hér á landi síðustu
4 ár, og Víðir Þorgeirsson, 34 ára
Hafnfirðingur, voru í gær báðir
dæmdir i 7 ára fangelsi fyrir að
hafa hvor á sinn hátt stuðlað að
innflutningi á 5007 e-töflum til ís-
lands síðastliðið sumar.
Mennirnir báru sök hvor á ann-
an í málinu. Víðir, sem frá upphafi
var talinn mjög trúverðugur, var
handtekinn með efnin á sér og í
farangri er hann kom til íslands.
Hann kvaðst hafa átt að fá 350 þús-
und krónur fyrir að taka innflutn-
inginn að sér fyrir Gareth. Þeir
höfðu farið saman til London.
í niðurstöðu Héraðsdóms
Reykjavfkur kemur fram að þó svo
að framburður Gareths sé ótrú-
verðugur - það er að Víðir hafi
fengið hann með sér til London í
því skyni að kaupa þar fikniefnin
og afhenda sér áður en farið yrði
til íslands - telur dómurinn sönn-
unargögn skorta fyrir því aö Gar-
eth hafi verið upphafsmaður að
innflutningnum. Með þessu er ver-
ið að segja að hvorki lögreglu né
ákæruvaldi hafi tekist að leggja
fram gögn um annað en játningu
Gareths um að hann hafi sótt efn-
in í London og afhent þau Víði -
sannanir skorti fyrir því að hann
hafi fjármagnað og lagt á ráðin um
innflutninginn.
Dómurinn tekur engu að síður
fram að stöðugur framburður Víð-
is hafi verið trúverðugur. Athygl-
isvert er aö dómurinn metur sekt
mannanna engu að síður jafna - 7
ára fangelsi. í dóminum er fylli-
lega látið að því liggja að hefði það
sannast í málinu að Gareth hefði
verið upphafsmaður, eins og líkur
voru taldar á, þá hefði hann feng-
ið þyngri refsingu. Brot hans á
hinn bóginn, sem felst í því að
sækja efnin ytra og afhenda þau
manni sem hann vissi að myndi
flytja þau til íslands, þykir svo al-
varlegt með hliðsjón af 5007 e-töfl-
um aö hann fær 7 ára fangelsi.
Ingibjörg Benediktsdótti héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Hann
var hennar síðasta embættisverk
hjá Héraðsdómi Reykjavíkur áður
en hún hefur störf sem hæstarétt-
ardómari í samræmi við skipun
dómsmálaráðherra. -Ótt
Tveir fá 7 ára fangeisi
Þeir Víðir, sem hér er með verjanda sínum, og Gareth fóru saman með
unnustu Bretans í rómantíska ferð til London. Feröin var hins vegar
þaulskipulögð fyrirfram, samkvæmt því sem fram kom í máiinu.
Krefur bæinn bóta
Valgerður Bjama-
dóttir, framkvæmda-
stjóri Jafnréttisstofu,
telur að von sé á
fleiri málum þar sem
konur muni krefiast
bóta fyrir launamis-
munun í kjölfar
dóms Héraðsdóms
Norðurlands eystra fyrrverandi starfs-
manni Akureyrarbæjar í hag. Valgerð-
ur hefur sjálf gert kröfu á bæinn um
bætur.
Fornminjar undir Austurvelli
Grunur leikur á að fomminjar séu
undir þeim hluta Pósthússtrætis sem
liggur að Austurvelli. Sigurður Skarp-
héðinsson, gatnamálastjóri Reykjavík-
urborgar, segir að þarna sé óhreyft
land og af þeim sökum verði að fara
mjög varlega við uppgröft. - Dagur
greindi frá.
Segjast reikna rétt
Ríkiskaup hafa sent frá sér athuga-
semdir vegna frétta af tilboðum í við-
gerðir á varðskipunum Tý og Ægi. Þar
staðhæfa Ríkiskaup að reikningur
þeirra um siglingarkostnað varðskip-
anna til og frá Póllandi sé réttur og að
VSÓ-ráðgjöf hafi rangt fyrir sér.
Tæknifræðingar semja
Samninganefndir Kjarafélags
Tæknifræðingafélags íslands og rikis-
ins undirrituðu í gærkvöld nýjan
kjarasamning sem gildir til 30. apríl
2004. Auk almennra launahækkana
var m.a. samið um viðbótarframlag í
lífeyrissjóð, gerð stofnanasamninga og
endurskoðun á endurmenntun.
Fordæmir vinnubrögð
Gunnar Þór Jóns-
son, prófessor við
læknadeild HÍ, for-
dæmir þau vinnu-
brögð sem hafa verið
viðhöfð í heilbrigðis-
ráðuneytinu og koma
fram i svari ráðuneyt-
is við sfiómsýslu-
kæru Gunnars. Bæði umboðsmaður Al-
þingis og Læknafélagið hafi krafið ráðu-
neytið um svar við kærunni en ráðu-
neytisstjóri vísað henni frá í gær eftir
fióra og hálfan mánuð.
Nær 2000 á biðlista
Um síðustu áramót
voru 1.861 manns á
biðlista eftir annað-
hvort mælingum og
skoðun hjá Heymar-
og talmeinastöð ís-
lands eða biðu eftir
heymartækjum. Sam-
kvæmt upplýsingum
Ingibjargar Pálmadóttur er allt að árs
bið eftir því að fá heymartæki úthlutað.
Málamet hjá Tölvunefnd
Samkvæmt nýútkominni ársskýrslu
Tölvimefhdar fyrir árið 1999 (seinna
leysti Persónuvemd nefndina af
hólmi) var málafiöldi nefndarinnar
það árið upp á 519 og höfðu aldrei ver-
ið fleiri. Árið 1991 vom málin 141 og
aukningin því 268% á 8 árum.
700 þúsund tonn
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð-
ingur á Hafrannsóknastofnun, segir
að stærð loðnugöngunnar á Faxa-
flóa sé um 700 þúsund tonn.
Haldið til haga
Þau mistök urðu við uppsetningu
forsíðu DV í gær að sagt var að eng-
inn hjúkrunarfræðingur hefði verið á
vakt á hjúkrunardeild Elli- og hjúkr-
unarheimilisins Grandar þegar
öldruð kona lést. Hið rétta er að eng-
inn hjúkranarfræðingur var þar á
vakt þegar konan veiktist og var flutt
á sjúkrahús þar sem hún lést tveimur
dögum síðar. -HKr.