Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Page 11
FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 11 DV Hagsýni Flugfélag íslands: Miði greiddur við bókun - 4800 kr. ódýrari en viö brottför Tæplega fimm þúsund króna munur er á fargjaldi með Flugfé- lagi Islands til Egilsstaða eftir því hvort miðinn er greiddur við bók- un eða brottför. Ef hringt er til fyr- irtækisins og miði bókaður án þess að hann sé greiddur kostar ferðin 20.330 kr. Sé miðinn hins vegar greiddur, annaö hvort með kredit- korti i gengum síma eða upphæðin lögð samdægurs inn á reikning Flugfélags íslands lækkar verð flugmiðans í 15.530 kr. Munurinn er 4.800 kr. Því er ljóst að hægt er að spara töluverðan pening ef sýnd er sú fyrirhyggja að greiða við bók- un. Þegar spurt var hverju þetta sætti fengust þau svör hjá bókunar- deildinni að þessi verðmunur væri til kominn vegna þess að töluvert væri um að fólk bókaði miða án þess að greiða fyrir þá og hætti síð- an við ferðina en léti flugfélagið ekki vita. Því hefði oft komið upp sú staða að ákveðnar vélar væru skráðar fullbókaðar og neita yrði farþegum sem óskuðu eftir sæti í þeim. En svo þegar farið væri af stað vantaði 4-5 farþega og því væri flogið með þau sæti auð. Því var gripið til þess ráðs að krefja þá sem ekki greiddu við bókun um hærra fargjald til að hvetja fólk til að festa sér sæti með borgun. Þó þessi regla sé skiljanleg út frá sjónarhóli flugfélagsins þá getur hún skapað skrítnar aðstæður, t.d. má hugsa sér tvær manneskjur sem ætla með sama fluginu. Önnur þeirra sýnir þá fyrirhyggju að bóka sæti en greiðir ekkert fyrr hún mætir á völlinn. Hún þarf að borg- ar 4800 kr. meira heldur en hin manneskjan sem mætir á völlinn rétt fyrir flugið, án þess að hafa bókað sig og kaupir sér miða. Þetta kerfi er við lýði. Ekki alltaf þörf á aö kaupa nýtt: Hvaða efni er hægt að lita? Þó hægt sé að lita flest efni eru þar undantekningar á, t.d. þarf sér- stakan tækjabúnað til að lita pólý- ester en hann hefur ekki verið not- aður hérlendis. Flest önnur efni, svo sem bómull, hör, viscos, nælon, ull og silki, er hægt að lita. „Vert er að benda á að mikið stungnar flikur geta verið vandamál því tvinni er mjög oft úr pólýester, þó ekki alltaf. Það getur komið ágætlega út að lita t.d. rúmteppi sem er mikið stungið en velja þarf litinn með það í huga að tvinninn geti haldið sínum upp- runalega lit,“ segja þær. „Við höfum stundum litað flíkur sem í er pólý- esterblanda, t.d. bómull og pólýest- er, og þá litum við í raun bara bómullarhlutann. Það getur komið Gamla kápan Verður sem ný eftir að valinn hefur verið á hana annar litur. Hægt að lita flest efni - og gera leðrið upp, segja Áslaug Gunnarsdóttir og Þorbjörg E. Kristinsdóttir hjá Leðri og litun í Hafnarfirði Er gamli leðurjakkinn orðinn svo snjáður að þú ert farin að líta í kringum þig eftir nýjum? Eru appel- sínugulu gardínurnar í stofunni, sem voru svo flottar fyrir 15 árum, að gera þig vitlausa en þú átt ekki fyrir nýjum? Hvað ætli það séu margar flíkur í skápum lands- manna sem sitja þar ónotaðar af því að þær eru ekki í rétta litnum eða leðurjakkar og mokkakápur sem eru orðnar snjáðar og ljótar? Þeir sem eru hagsýnir vita að það borgar sig að kaupa sér vandaða hluti og flíkur og borga aðeins meira fyrir þær því þær endast oft árum saman. Hvort sem um er að ræða gluggatjöld, fatnað eða annað slíkt vill það oft henda að eftir nokk- ur ár er liturinn kannski ekki alveg réttur, kominn úr tísku eða eigand- inn einfaldlega búinn að fá leið á honum. í stað þess að hlaupa af stað og kaupa sér nýja kápu eða gardín- ur í stofuna, sem hvort tveggja get- ur kostað tugi þúsunda, má skoða þann möguleika að láta breyta litn- um fyrir aðeins brot af því sem nýir hlutir myndu kosta. Hagsýni fór á stúfana til að kanna hvaða möguleikar eru fyrir hendi þegar lagfæra á fatnað sem er heil- legur en kannski ekki alveg í móð, Leður og litun Áslaug Gunnarsdóttir og Þorbjörg Elín Kristinsdóttir segja að mun hagkvæmara sé að laga gamla leðuijakkann en kaupa nýjan. ' Mikill sparnaður Vandaðar velúrgardínur eru alltaf jafn fallegar en ekki er v/st að allir vilji þenn- an bleika lit inni hjá sér. Þá er tilvalið að lita þær í einhverjum flottum lit. Sem nýr Þessi snjáði ieðurjakki var meðhöndlaður eftir kúnstarinnar reglum og er ekki hægt að segja annað en að útkoman sé góð. eins og amma var vön að segja. Þær Áslaug Gunnarsdóttir og Þorbjörg Elin Kristinsdóttir, sem reka Leður og litun i Hafnarfirði, sögðu okkur frá því hvað hægt er að gera og hvað ber að hafa i huga þegar lita á efni eða laga illa farið leður. „Við tökum að okkur að lita næst- um alla skapaða hluti og að hreinsa leður og rúskinn," segja þær stall- systur. „Mjög margir koma með uppáhaldsflíkina sína í litun, jafn- vel oftar en einu sinni. Til að mynda fáum við oft til okkar velúrg- ardínur sem margar eru komnar til ára sinna. Mörgum finnst þær flott- ar og þær eru vandaðar þannig að þær endast vel þó liturinn á þeim sé kannski ekki alltaf í tísku. Leður og rúskinn Töluverð vinna liggur að baki vel heppnaðri hreinsun á leðurflíkum og getur meðferðin verið vandasöm. En oft er árangurinn góður og illa farnar, snjáðar leðurflíkur verða allt að því sem nýjar. „Við byrjum á þvi að blettahreinsa og svo fer flik- in i hreinsivélina. „Við notum sér- stakan hreinsivökva, Hydrocarbon, sem er sérlega mildur við öll við- kvæm efni, svo sem leður, rúskinn og loðfeldi. Við erum þær einu á landinu sem hafa hafið notkun á þessum vökva. Þegar flíkin kemur úr hreinsivélinni er aftur bletta- hreinsað, ef þörf er á, og leðrið er nært og litað.“ Þær stöllur segja að miðað við alla þá vinnu sem fari í hreinsun á leðri sé hún ekki dýr. „Það kostar á milli þrjú og fjögur þúsund krónur að taka í gegn jakka eða kápu og er verðið nokkuð svip- að hjá flestum sem eru að fást við þetta. Þetta eru ekki miklir pening- ar þegar tekið er tiflit til þess að verið er að fást við mjög dýrar flík- ur sem með þessu hljóta endumýj- un lífdaga." skemmtilega út, sérstaklega ef pólý- ester er í minnihluta í efninu. Ef lita á slíkar flíkur þarf fólk að vera opið fyrir tilraunum því ekki er hægt að lofa neinu um útkomuna." Áslaug og Þorbjörg segja það al- gengt að ullarkápur, jakkar og frakkar séu litaðir og nefna það að einhverra hluta vegna fái þær mik- ið af rauðum flíkum sem litaðar eru í einhverjum dekkri lit. „Þetta eru oft vandaðar dýrar flíkur sem sér ekki mikið á en eigandinn er orðinn hundleiður á litnum og við reynum að bjarga því.“ Gluggatjöld Eins og allir vita þá upplitar sól- in oft gluggatjöld og þá er tilvalið að láta hressa upp á þau með nýjum lit. En hafa verður í huga að ef gard- ínur eru búnar að vera lengi í sólar- ljósinu þá skemmist þráðurinn í efninu og litast þá ekki eins vel. Þær segja að þeir sem hyggjast láta lita gardínur taki þær einfald- lega niður og mæti með þær. Ekki þurfi að fjarlægja litlu plasthjólin eða taka af þeim borðana. „En ef þær eru mjög skítugar eða blettótt- ar er betra að fara með þær í hreins- un fyrst því við rekum ekki hefð- bundna hreinsun. En það er þó ekki algengt að þess þurfi því yfirleitt eru gardínur bara rykugar." Ágæt regla þegar saumaðar eru gardínur úr efni sem síðan á að lita að geyma að falda þær þar til eftir litunina, en það er nokkuð um það að fólk kaupi sér óbleikjað léréft eða ódýrar hvítar gardínur og láti siðan lita þær í draumalitnum. í flestum tilfellum hlaupa þó efnin ekki eða óverulega þar sem oft er þegar búið að hleypa þeim. -ÓSB tuiniii t ,H; s 11 i s I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.