Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2001, Page 28
v 'y es
SYLVANIA
tilboösverA kr. 2.750,-
Merkilega heimilistækió'
Nú er unnt að '
merkja allt á
heimilinu, ^
kökubauka,
spólur, skóla-
Rafport £
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Hnífur og dóp
Lögreglan í Reykjavík handtók þrjá
menn eftir að hnífur, ætluð fíkniefni
og tól til neyslu fundust á þeim. Lög-
reglumenn stöðvuðu bíl mannanna í
Hálsahverfínu í Reykjavík um klukk-
an tvö í nótt. Þeim þóttu ferðir mann-
anna grunsamlegar og fengu að leita í
bílnum. Einn mannanna var með lítil-
ræði af ætluðum fíkniefnum og tól til
neyslu, en hnífurinn fannst í bílnum.
Mennirnir voru handteknir og fluttir
í fangageymslur lögreglunnar. -SMK
Opel Zafira
Viðvaranir tii
flugfarþega
„Við erum að vinna í því að koma
upplýsingum til ferðaskrifstofa, bæði
innlendra sem og breskra, og í fram-
haldinu munum við
að festa upp til-
kynningar i Leifs-
stöð fyrir farþega
sem eru að koma tfl
landsins," sagði
Halldór Runólfsson
yfirdýralæknir um
aðgerðir vegna gin-
og klaufaveikifar-
aldursins i Bret-
landi.
Veikin breiðist hratt út og getur
fólk auðveldlega borið sýkilinn á milli
með ferðalögum. Yfirdýralæknir sagði
í morgun að embætti sitt væri að
leggja lokahönd á gerð þess upplýs-
ingaefnis sem nauðsynlegt væri að
dreifa vegna faraldursins. -EIR
Halldór
Runólfsson.
i
i
i
i
i
i
i
í Fókus á morgun er að finna viðtal
við klámkóng íslands, Sigurð Johnny,
sem er ekki sáttur við meðferðina
sem hann fær i kerfinu. Rætt verður
við höfuðpaur Camus-koníaksfyrir-
tækisins sem verið hefur númer eitt
hérlendis í 15 ár og kíkt á framboðs-
fund í stúdentapólitíkinni, þar sem
vitað er að enginn breytir um skoðun.
Nokkrar konur eru spurðar um hvað
sé kvenlegt og styttur höfuðborgar-
innar fá nýja merkingu í augum nýrr-
ar kynslóðar og Þórdís Filipsdóttir
ræðir um heima og geima.
EINN TVOFALDUR!
FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001
Jón Adolf og Stefán Pálsson hætta í Búnaðarbankanum
Einn fýrir tvo bankastjóra
„Ég er mjög sáttur við að hætta
og mín biður heillandi verkefni við
að skrifa sögu bankans," sagði Jón
Adolf Guðjónsson, bankastjóri
Búnaðarbankans, í morgun en
hann lætur af störfum sem banka-
stjóri ásamt Stefáni Pálssyni í
næstu viku og víkja þeir fyrir
Árna Tómassyni endurskoðanda.
„Árni hefur verið endurskoðandi
Búnaðarbankans síðastliðin ár og er
mjög hæfur maður,“ sagði Jón Adolf
sem er 62 ára og snýr sér nú að ritun
sögu Búnaðarbankans. „Það má segja
að ég sé nú loks kominn heim eftir
langan snúning en ég las sögu og ís-
Árni Tómasson. Jón Adolf
Guðjónsson.
lensku í
Háskólanum á sínum tíma og hef
alltaf haft mikinn áhuga á þeim fræð-
um.“
Árni Tómasson endurskoðandi er
45 ára og sonur Tómasar Ámasonar,
fyrrum ráðherra Framsóknar-
flokksins og seðlabankastjóra.
Árni verður bankastjóri við hlið
Sólons Sigurössonar og verða
bankastjórar Búnaðarbankans
því tveir í stað þriggja eins og
verið hefur.
„Það er bankaráð sem ræður
og rekur bankastjóra en ég viður-
kenni að ég þekki Áma Tómas-
son í sjón,“ sagði Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráðherra í morgun.
„Þetta er búið að vera ágætt," sagði
Jón Adolf og ítrekaði að hann léti af
bankastjórastarfi að eigin ósk líkt og
Stefán Pálsson. -EIR
Stefán Pálsson.
Klám og kvenleiki
DV-MYND HILMAR ÞÖR
Kveður Héraösdóm Reykjavíkur eftir farsælt starf
Ingibjörg Ben eins og hún ergjarnan nefnd kvaddi samstarfsfólk í Héraösdómi Reykjavíkur meö tilheyrandi tertu í gær.
í lok vinnudags kvað hún svo upp sinn síöasta héraösdóm meö því aö dæma Breta og íslending í 7 ára fangelsi
fyrir innflutning á 5007 e-töfium. Ingibjörg hefur störf í dag í Hæstarétti íslands þar sem hún
hefur verið skipaöur dómari. Sjá bls. 2.
„Það eru tugir manna sem geta
staðfest að það var sett á yfir-
vinnubann," sagði Jónas Magnús-
son, formaður
Landssambands
lögreglumanna, í
samtali við DV í
morgun. Eins og
kunnugt er hefur
Sólveig Péturs-
dóttir dómsmála-
ráðherra lýst því
yfir í utandag- Jónas
skrárumræðu á Magnússon.
Alþingi að yfirvinnubann hafi
ekki verið í gildi hjá lögreglunni í
Reykjavík í haust.
„Mínir félagar í fikniefnadeild-
inni segja að á fundi 11. september
hafi þeim verið tilkynnt um yfir-
vinnubann, og mjög fljótlega í kjöl-
far þess var túkynnt um yflr-
vinnubann í fleiri deildum, þar á
meðal þeirri deild sem ég starfa í,“
sagði Jónas, sem starfar í upplýs-
inga- og eftirlitsdeild Reykjavíkur-
lögreglunnar.
Jónas sagði að banninu hefði
verið haldið i tvær til þrjár vikur,
en þegar verkefni komu upp og
fólk vantaði var slakað á kröfun-
um og fólki leyft að vinna yfir-
vinnu.
I yfirlýsingu sem lögreglustjór-
inn i Reykjavík sendi frá sér í gær
segir að þótt dregið hafi verið úr
yfirvinnu fikniefnadeildarinnar
hafi aldrei verið sett á bann. „Yfir-
manni ávana- og fíkniefnadeildar
var þó gert að láta ekki þessar tak-
markanir standa því í vegi að
rannsaka ný mál, ef upp kæmu,“
sagði í tilkynningunni.
„Yfirvinna verður til vegna þess
að það eru ekki nógu margir til
þess að vinna úr málinu. Sá mann-
afli sem er til staðar nær ekki að
vinna úr verkefnum á reglubundn-
um tíma,“ sagði Jónas. -SMK
Sauðárkrókur:
Grunur um
íkveikju
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Sauðárkróki kviknaði í
litlu einbýlishús á Króknum í nótt.
Björn Mikaelsson yfirlögreglu-
þjónn segir að húsið sé frá því um
1930 og að í því hafi búið þriggja A
manna fjölskylda.
„Eldurinn kom upp í þvottahús- '
inu og fór þaðan upp í gegnum Á
gólfið í eldhúsinu, húsið sem er ö
forskalað er mikið skemmt af eldi, r
reyk og vatni. Húsið var mann- j
laust þegar eldurinn kom upp og gf
leikur grunur á að um íkveikju sé W
að ræða.“ Málið er í rannsókn en .
lögreglan telur sig vita hver stóð Æ
að ódæðinu. -Kip W
Bændaferð um gin- og klaufaveikisvæði Bretlands:
Hrein vitleysa
- segir formaður Bændasamtakanna sem sjálfur frestar Skotlandsferð
„Það er ekkert vit í þessu og
hrein vitleysa í raun. Ég trúi
ekki að bændur fari í slíka ferð
fyrr en landið
er orðið
hreint," segir
Ari Teitsson,
formaður
Bændasam-
takanna, um
fyrirhugaða
bændaferð
sem Úrval-Út-
sýn hefur
skipulagt um gin- og klaufa-
veikisvæði Bretlandseyja. Fyrir-
hugað er að ferðin verði farin
um páskana og þegar síðast fréttist
höfðu 30 bændur bókað sig í ferð-
ina.
„Það er mikið í húfi því gin- og
klaufaveiki hefur aldrei hingað til
iands komið, sem betur fer,“ segir Ari
Teitsson sem kallar það kaldhæðni ör-
laganna ef íslenskir bændur yrðu til
Urval-Utsýn með hópferð til Bretlandseyia:
Bændaferð um gin-
og klaufaveikisvæði
- 30 hafa þegar skráð sig - ferðinni ekki aflýst
Ari Teitsson.
Frétt DV um bændaferðina
Breskur landbúnaöur er í uppnámi
og fjaörafok i sveitum landsins.
þess að flytja sjúkdóminn hingað til
lands. „Við skulum hins vegar vona
að breskum yfirvöldum takist að upp-
ræta sýkilinn sem fyrst en mér skilst
að hann eigi stuttan liftíma."
Formaður Bændasamtak-
anna segir að gin- og klaufa-
veiki leggist ekki á fólk, í það
minnsta séu hverfandi líkur
á því. Sjúkdómurinn smitist
auðveldlega og fari hratt yfir
séu honum sköpuð skilyrði
til þess. Sjálfur ætlaði Ari
Teitsson að heimsækja son
sinn í Skotlandi á næstunni
en telur að ekki geti af því
orðið vegna faraldursins sem
sett hefur breskan landbúnað
í uppnám og ollið áður
J óþekktu fjaðrafoki í sveitum
landsins sem íslenskir bænd-
ur hyggjast nú heimsækja.
„Sonur minn býr í Edinborg og
ég sé ekki fram á að ég komist við
núverandi aöstæður. í það
minnsta ætla ég ekki að koma með
gin- og klaufaveiki heim,“ segir
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtakanna.
-EIR
Y f irvinnub ann:
Tugir manna
staðfesta
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
Bílheimar
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555