Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Side 7
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001
23
dv________________________Sport
Oddaleik þarf
- Keflvíkingar jöfnuðu metin gegn Tindastóli í gærkvöld
Keflvíkingar tryggðu sér með
naumindum oddaleik er þeir
sigruðu Tindastólsmenn, 67-66, i
Keflavík í gærkvöld. Heima-
menn leiddu 48-35 í hálfleik.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti og Calvin Davis
var óstöðvandi i fyrsta leikhluta
þar sem hann gerði 15 stig. Kefl-
víkingar leiddu eftir fyrsta leik-
hluta, 31-14. Þeir héldu áfram að
bæta í og náðu mest 23 stiga for-
skoti, 41-18. Tindastólsmenn
komu þó til baka og náðu með
mikiili baráttu og góðum körfum
frá stóru mönnunum að komast
inn i leikinn og minnka niður i
10 stig en það var Falur Harðar-
son sem átti lokaorðið i fyrri
hálfleik með 3ja stiga körfu og
hálfleikstölur eins og áður sagði
48-35.
Tindastólsmenn léku feikna-
sterka vöm i seinni hálfleik og
var sóknarleikur Keflvíkinga í
molum og þeim tókst aðeins að
gera 13 stig gegn 24 í 3. leikhluta
og skyndilega var staðan orðin
61-59. Pomonis lék sérlega vel í
3. leikhluta og gerði margar mik-
ilvægar körfur og 9 stig alls í
leikhlutanum. Þá var Myers
einnig sterkur.
Shawn Myers kom Tindastól
yfir í fyrsta sinn, 61-62, með
þriggja stiga körfu. Calvin Davis
svaraði með tveimur vítum og
einni körfu til og Keflvíkingar
voru komnir í 65-62. Pomonis
minnkaði muninn í 2 stig með
vítaskoti en Calvin Davis svaraði
með körfu. Þá var komið að
Myers aftur, 3ja stiga karfa og
staðan 67-66. Tindastólsmenn
fóra svo i sókn er 1 mínúta var
eftir en tókst ekki að nýta hana
og Keflvíkingar fengu boltann er
44 sekúndur voru eftir.
Falur tók 3ja stiga skot, hitti
ekki en heimamenn náðu sóknar-
frákasti er 28 sekúndur voru eft-
ir. Eftir mikla baráttu náðu
Tindastólsmenn boltanum og
Lárus Dagur fann Kristin Frið-
riksson sem reyndi 3ja stiga skot
sem geigaði, Andrapov reyndi
skot úr sóknarfrákasti, og Myers
skilaði knettinum í körfuna, en
of seint og Keflvíkingar sluppu
með skrekkinn.
Það er óhætt að segja að taug-
arnar hafi verið þandar til hins
ýtrasta að þessu sinni. Eftir að
hafa sýnt frábæran karakter og
komið til baka, voru gestirnir
hársbreidd frá því að tryggja sér
sæti i úrslitum um íslandsmeist-
aratitilinn. Keflvíkingar sem
léku eins og englar i upphafi
voru í vandræðum gegn sterkri
vöm Tindastóls, en á móti má
segja að heimamenn hafi haldið
velli með sterkri vörn í lokin.
Það má segja að spenna og sterk
vöm hafi tekið öll völd á veilin-
um, þar sem að heimamenn
gerðu 6 stig í 4.1eikhluta gegn 7
stigum gestanna. Keflvíkingar
gerðu reyndar aðeins 19 stig í
seinni hálfleik og það er sjald-
gæft á Sunnubrautinni.
Calvin Davis var í sérflokki
hjá heimamönnum, skoraði
grimmt og sterkur í fráköstun-
um. Hjörtur átti góða innkomu í
fyrri hálfleik, og Birgir Örn barð-
ist að vanda. Annars gerðu að-
eins þrír leikmenn Keflavíkur
körfu í seinni hálfleik. Auk Cal-
vin komust Hjörtur (2) og Birgir
Örn (4) á blað og þurfa Keflvík-
ingar að fá meira frá bakvörðum
sínum i næsta leik. Guðjón, sem
hefur verið að leika mjög vel í
vetur, náði sér ekki á strik og þá
eiga Keflvíkingar landsliðsbak-
vörðinn Gunnar Einarsson alveg
inni.
Hjá Tindastóli voru það er-
lendu leikmennimir þrír, ásamt
Keflvíkingnum Kristni Friðriks-
syni, sem voru að leika best.
Myers og Andrapov voru sterkir,
og þá sérstaklega i vörninni og
fráköstunum. Kristinn hitti
mjög vel og Pomonis átti sérstak-
lega góðan 3. leikhluta.
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflvíkinga, var ánægður í
leikslok. „Það er sigurinn sem
Nissandeild kvenna:
Eyjastúlkur áfram
- eftir sigur á Fram. Mæta Haukum annað kvöld
IBV og Fram léku hreinan úr-
slitaleik um hvort liðið léki gegn
Haukum um íslandsmeistaratitilinn
og fór leikurinn fram í Eyjum. Lið-
in höfðu unnið sinn leikinn hvort
með tveimur mörkum og því ljóst
að um hörkuleik yrði að ræða.
Eyjastúlkur voru ávallt skrefi á
undan en gekk illa að hrista bar-
áttuglaða Framara af sér. En leik-
menn ÍBV tryggðu sér fjögurra
marka sigur á lokakaflanum og
lokatölur leiksins urðu 26-22.
Framarar byrjuðu leikinn ágæt-
lega, skoruðu fyrsta markið úr
fyrstu sókn sinni en Eyjastúlkur
náðu fljótlega undirtökunum og eft-
ir átta mínútna leik var staðan orð-
in 5-2, ÍBV í vil. Mestur varð mun-
urinn á liðunum í fyrri hálfleik,
flögur mörk, 9-5, en Framarar náðu
að jafna leikinn í 10-10 stuttu fyrir
leikhlé. Eyjastúlkur náðu samt sem
áður að leiða í hálfleik með einu
marki og staðan þegar gengið var til
leikhlés var 13-12.
Það tók ÍBV ekki langan tíma að
ná aftur þriggja marka forystu en
IBV byrjaði seinni hálfleikinn á því
að skora tvö fyrstu mörkin. Smám
saman jókst munurinn á liðunum
og voru Eyjastúlkur lengst af fjór-
um mörkum yfir í seinni hálfleik.
En lið Framara er reynslumikið og
með mikilli baráttu náði það að
minnka muninn niður í eitt mark
þegar rétt um tíu mínútur voru eft-
ir af leiknum. En ÍBV teflir einnig
fram mjög reynslumiklu liði sem
aldrei gefst upp. Vigdís Sigurðar-
dóttir skellti í lás í marki heima-
manna á lokakaflanum og ÍBV
tryggði sér fjögurra marka sigur og
sæti í úrslitum íslandsmótsins.
Leikir liðanna í undanúrslitum
voru hnífjafnir og líklega jafnari en
flestir áttu von á. Flestir veðjuðu á
að Eyjastúlkur ættu víst sæti í úr-
slitunum en lið Framara var vel
skipulagt og vantaöi aðeins
herslumuninn á að það kæmist í úr-
slit. Það munaði mikið um það að
Marina Zoueva átti erfitt uppdráttar
í sóknarleik liðsins í leiknum á
laugardaginn en á móti var inn-
koma Guðrúnar Hálfdánardóttur
góð. Eyjastúlkur sýndu hins vegar
styrk sinn í leiknum á laugardag-
inn. Skytturnar þrjár, Tamara,
Amela og Anita, skoruðu samtals 22
marka liðsins en upp úr stendur
frammistaða fyrirliðans í markinu.
„Þetta voru hörkuleikir gegn
Fram og leikurinn í dag var jafn og
spennandi ■ eins og hinir voru,“
sagði fyrirliði ÍBV, Vigdís Sigurðar-
dóttir. „Það hefði ekki mikið þurft
að fara úrskeiðis hjá okkur til að
þær ynnu leikinn en við höfðum
þetta á skapinu og baráttunni.
Fram er með mjög gott lið og mikil-
ir reynsluboltar í liðinu þannig að
við vissum að leikurinn yrði mjög
erfiður fyrir okkur. Það verður
mjög gaman að mæta mínu gömlu
félögum í Haukum aftur í úrslitum
enda eru bæði lið með mjög góða
umgjörð í kringum sig og góður
stuðningur við bæði lið.“
Hverjir veröa íslandsmeistarar?
„Við vinnum þetta 3-2. Þetta
verða allt geðveikir leikir og barátta
upp á líf og dauða allt fram á síö-
ustu mínútu," sagði Vigdís.
Hafdís hætt
Hafdís Guðjónsdóttir, fyrirliði
Fram, sagði eftir leikinn að þrátt
fyrir allt þá væri hún nokkuð sátt
við veturinn.
„Þetta var hörkuleikur og ef
þetta hefði fallið aðeins meira með
okkur þá hefðum við unnið. Mér
fannst annar dómarinn vera of hlið-
hollur ÍBV og öfl vafaatriði féllu því
liði í hag en ég er alls ekki að kenna
því um tapið. Okkur vantaði ein-
faldlega herslumuninn til að geta
unnið enda eru þetta mjög jöfn lið
og leikirnir gegn þeim hafa verið
mjög jafnir. Við sýndum góðan
karakter bæði í fýrri og seinni hálf-
leik þegar við unnum upp forystu
þeirra. En tímabilið er núna búið
og það er vissulega sárt að vera úr
leik eftir að hafa fengið smjörþefinn
af þessu. En ég verð að vera sátt,
ferillinn er búinn þannig að þetta
var kveðjuleikurinn minn. En það
er mikil framtíð hjá félaginu og rétt
að hleypa ungu stelpunum inn í
þetta.“ -jgi
skiptir öllu. Þeir hefðu getað
klárað dæmið og eftir frábæra
byrjun okkar fórum við að bulla.
í lokin voru þetta sterkar varnir
og mikil taugaspenna, enda mik-
ið í húfi. Nú er einn leikur eftir
og það skiptir engu máli hvar
hann fer fram þegar svona langt
er komið."
„Við sýndum karakter í að
koma til baka og við lékum frá-
bæra vörn í seinni hálfleik. En
það var smáorkuleysi í sókninni
og reyndar misstum við sjálfs-
traust í sókninni um tíma.
Heppnin var með þeim að þessu
sinni og nú er það oddaleikur
upp á líf og dauða,“ sagði Valur
Ingimundarson, þjálfari Tinda-
stólsmanna, að leik loknum.
-EÁJ
Keflavík-Tindastóll 67-66
0-2, 10-4, 22-10 (31-14), 37-16, 41-18,
43-30 (48-35), 50-40, 5(M6, 58-56,
(61-59), 61-62, 65-62, 67-63 (67-66).
Stig Keflavikur: Calvin Davis 34,
Hjörtur Harðarson 10, Birgir Örn Birg-
isson 8, Guðjón Skúlason 5, Magnús
Þór Gunnarsson 5, Faiur Harðarson 3,
Jón Norðdal Hafsteinsson 2.
Stig Tindastóls: Shawn Myers 23,
Kristinn Frirðiksson 15, Adonis
Pomones 13, Michail Andropov 8,
Svavar Birgisson 7.
Fráköst: Keflavík 40 (17 í sókn - 23 í
vörn - Davis 20), Tindastóll 40 (10 i
sókn, 30 í vörn - Myers 19).
Stodsendingar: Keflavik 18 (Falur 5),
Tindastóil 17 (Andropov og Myers 4
hvor).
Stolnir boltar: Keflavík 15 (Gunnar
Einarsson og Davis 4 hvor), Tinda-
stóli 5 (Myers 2).
Tapaðir boltar: Keílavík 9, Tinda-
stóll 22.
Varin skot: Keflavík 2 (Jón og Dav-
is), Tindastóll 5 (Andropov 3).
3ja stiga: Keflavík 20/5, Tindastóll
24/6.
Víti: Keflavík 12/6, Tindastóll 9/5.
Dómarar (1-10): Kristinn Albertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson. (8). Gteöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 700.
Maöur leiksins: Calvin Davis, Keflavík
1 1
ÍBV-Fram 26-22
0-1, 3-2, 9-5,10-10 (13-12), 14-12,19-15,
21-18, 22-21, 26-22.
ÍBV
Mörk/víti (skot/víti): Tamara Mand-
ichz, 9/6 (15/7), Amela Hegic, 8/3
(11/3), Anita Andreassen, 5 (11), Ándr-
ea Atladóttir, 2 (5), Edda B. Eggerts-
dóttir, 2 (5), Bjarný Þorvarðardóttir,
(1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 2
(Anita 2).
Vítanýting: Skorað úr 9 af 10.
Varin skot/víti (skot á sig): Vigdís
Sigurðardóttir 22/2 (44/7, 50%, eitt víti
i stöng).
Brottvísanir: 8 mínútur
Fram
Mörk/viti (skot/viti): Guðrún Þóra
Hálfdánardóttir, 5 (7), Marina Zoeva,
4/2 (12/4), Olga Prokhorova, 3 (3), Haf-
dis Guðjónsdóttir, 3 (6), Irina Sveins-
son, 3_(12), Katrín Tómasdóttir, 2/2
(5/3), Óiöf Erlingsdóttir, 1 (1), Svan-
hildur Þengilsdóttir, 1 (2), Díana Guð-
jónsdóttir, 0 (1).
Mörk úr hradaupphlaupum: 4
(Svanhildur, Hafdís, Olga, Marina)
Vitanýting: Skorað úr 4 af 7.
Varin skot/viti (skot á sig): Hugrún
Þorsteinsdóttir, 14 (40/10 35%).
Brottvísanir: 8 mínútur.
Dómarar (1-10): Valgeir E. Ómars-
son og Bjarni Viggósson (7).
Gceöi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 316.
Maöur leikins:
Vigdís Sigurðardóttir, ÍBV