Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2001, Page 14
30
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 2001
Sport
DV
Eins og sjá má á þessum myndum var vei tekiö á í tímanum hjá Eddu Bergmann.
Fólkiö er duglegt í vatninu.
Edda Bergmann hefur starfrækt trimmhóp
fyrir fatlaöa í 14 ár við miklar vinsældir:
Beint
áSýn
2. - 3, apríl
mán Southampton - Ipswich Town Enski boltinn kl. 18:50
þri Man. Utd - Bayern Munchen Meistarakeppnin kl. 18:40
Þri Galatasaray - Real Madrid Meistarakeppnin kl. 20:45
mið Arsenal - Valencia Meistarakeppnin kl. 18:40
mið Leeds Utd - Deportivo La Coruna Meistarakeppnin kl. 20:45
fim Barcelona - Líverpool UEFA-keppnin kl. 19:05
fim Bandariska meistara- keppnin i golfi
fös Bandaríska meistara- keppnin i golfi kl. 20:00
lau Bandaríska meistara- keppnin i golfi kl. 19:30
l'™ Prinsinn Naseem Hamed - Marco Antonlo Barrera Hncfaleikar kl. 00:55
sun Arsenal - Tottenham Hotspur Enski bikarinn kl. 12:10
sun Wycombe Wanderers - Uverpool Enski bikarínn kl. 14:45
sun Sacramento Klngs - Portland Trail Blazers NBAkl. 17:00
sun Bandariska meistara- keppnin i golfi kl. 20:00
www.syn.is
eðafsímaS156100
Edda Bergmann stofnaði
fyrir 14 árum trimmhóp
sem er sérstaklega ætlaður
fótluðum einstaklingum.
Edda, sem sjálf fékk löm-
unarveiki og hefur skerta
hreyfigetu í fótum, hefur
síðan leitt þennan hóp og
þjálfað hann reglulega allan
þennan tima ásamt aðstoð-
arkonum sínum, ýmist með
sundi, gönguferðum eða
örðuvísi trimmi.
Yfir vetrartímann hittist
þessi hópur 1-2 sinnum i
viku í sundi og á sumrin
taka svo gönguferðirnar við
einu sinni í viku. Þá er
einnig boðið upp á jógatíma
einu sinni i viku þannig að
hópurinn heldur sér í góðri
þjálfun allan ársins hring.
Sundtímanum er skipt i
tvennt þar sem ein klukku-
stund er ætluð sjáandi fólki
og síðan ein klukkustund
fyrir blinda.
Þegar DV ieit inn á sund-
æflngu hjá hópnum í sund-
lauginni á Grensásdeild
voru um 15 manns við æf-
ingar sem var óvenju fátt
því yfirleitt mæta hátt í 30
manns í tímana. Það var
hins vegar ekki að sjá að
þetta fólk ætti við nokkra
fotlun að stríða en Edda
sagði skýringuna á því vera
að finna í hversu auðvelt
væri að hreyfa sig í vatn-
inu. „í vatni getur jafnvel
mjög hreyfihamlað fólk
hreyft sig mun meira en
venjulega og þetta gerir
þess vegna því fólki mjög
gott. Þarna gerir það æfing-
ar sem það gæti annars
aldrei gert. Fólk er svo glatt
í vatninu," segir hún.
Edda segist hafa góða að-
stoðarmenn sem vinna starf
sitt í sjálfboðavinnu. En
fólkið sem tekur þátt í æf-
ingunum er mjög liðugt.
„Hér segir enginn nei. Hér
hugsa menn: Ef ég get þetta,
geta það allir!“
Eitt af því sem Edda hef-
ur tekið eftir er að í kjölfar
þjálfunarinnar verða marg-
ir af þeim sem eru blindir
beinir í baki en oft loðir það
við þá að vera dálítið hokn-
ir. „Þetta gagnast því fólki á
ýmsan hátt, ekki bara lík-
amlega heldur andlega
líka,“ segir Edda að lokum.
-HI
liðkar allan skrokkinn"
„Þetta
Sigfús Brynjarsson, 72 ára, hefur ver-
ið í hðpnum hennar Eddu frá upphafi.
Hann er lamaöur á vinstra fæti en læt-
ur það ekki aftra sér frá hollri hreyf-
ingu.
Sigfús lætur vel af tímunum hjá
Eddu. „Ég finn bara að ég er mun
liðugri i öllum skönkum og liðamótum
og öll hreyfing er auðveldari. Maður
slappar vel af i þessum timum og þetta
er gott fyrir öll liðamót og allan skrokk-
inn. Svo eykur þetta þol og alla mýkt i
hreyfingum."
Sigfús hefur notfært sér töluvert
sundið og tekur mun meiri þátt í því en
gönguferðunum á sumrin. Hann syndir
yfirleitt 1,5 kílómetra í einni lotu þegar
hann skellir sér í laugina. „Ég geng
reyndar dálítið lika en vinn hins vegar
töluverða næturvinnu og þá get ég ekki
verið á fullu á daginn. Þá er sundið gott
fyrir mig.“
Sigfús telur að án tímanna væri
hann töluvert stirðari. „Það er engin
hætta á því í vatninu að maður snúi sig
eða togni. En maður þreytist enda er
það líka nauðsynlegt. Ég mun halda
þessu áfram á meðan ég hef heilsu til
því ég finn að ég hef gott af þessu.“
Blindir fá líka þjálfun hjá Eddu og
meðal þeirra er Ólafur Þór Jónsson
sem hefur einnig verið í hópnum frá
upphafi. Hann hefur verið blindur i
hartnær 30 ár. „Það má segja að ég leyfi
mér fátt annað á þessum tíma en að
fara í þjálfun hjá Eddu. Þetta hefur for-
gang hjá mér fram yfir flest annað,"
segir hann.
Ólafur synti töluvert með íþróttafé-
lagi fatlaðra á árum áður og þegar
hann hætti því fannst honum tilvalið
að nota sundið sem trimm. „Það aftrar
mér ekki frá góðri hreyfingu að vera
blindur. Þetta eru yfirleitt sömu æfmg-
amar sem við gemm en við fáum góð-
ar leiðbeiningar frá kennurunum ef á
að breyta einhverju," segir hann.
Ólafur segir öllum nauðsynlegt að
hreyfa sig, ekki síst blindum. „Viö höf-
um verið með í nokkuð mörg ár
blindraheimili sem tryggir blindum að-
stöðu til æfinga. Ég vinn sjálfur við
sjúkranudd þannig að ég veit hvaða
gildi hreyfing hefur fyrir líkamann,"
segir Ólafur að lokum.
-HI