Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2001, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2001, Síða 2
16 MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 Sport___________________________________________________________________________dv Bland í poka Vegna breytinga á símkerfi Iþrótta- og ólympíusambands ís- lands hefur ÍF fengiö nýtt síma- númer. Aðalnúmer er 514 40 80, faxnúmer 514 4081, bein númer til starfsmanna: Anna Guórún Sig- uróardóttir, 514 4082, Anna Kar- ólína Vilhjálmsdóttir, 514 4083, og Ólafur Magnússon, 514 4084. Hinar vinsœlu sumarbúóir ÍF á Laugarvatni verða tvær vikur í sumar, 29. júní - 6. júli og 6.-13. júlí. Umsjónarmenn verða Baldur Þor- steinsson og Jóhann Arnarson íþróttakennarar. Umsóknareyðu- blöð má fá á skrifstofu ÍF í Laugar- dal en umsóknarfrestur er til 28. apríl. Íþróttanefndir ÍF hafa skipulagt hringferð um landið með æfinga- búðir sem eiga fyrst og fremst að stuðla að aukinni nýliðun og stuðn- ingi við þá sem áhuga hafa á íþrótt- um fatlaðra víða um landið. Verk- efnið er liður í nýliðunarátaki ÍF en markmið ÍF er nú sem fyrr að ná til þeirra sem ekki hafa fengið tæki- færi til að kynnast íþróttatilboðum fyrir fatlaða. Auk þess er þetta verkefni sett á með það að mark- miði að auka samstarf með þeim aðilum sem starfa að íþróttaþjálfun fatlaðra og koma á tengslum á milli aðila. Æfingabúðirnar eru ætlaðar fötluðu íþróttafólki og þjálfurum sem áhuga hafa á að kynna sér ólík- ar greinar og/eða fá ráðgjöf og að- stoð vegna ákveðinna greina. Allir eru velkomnir, byrjendur sem lengra komnir. Æfingabúöirnar veröa á eftirtöld- um stöðum: í Borgarnesi helgina 11.-13. maí. Á Austurlandi 29. júní - 1. júlt. Á Vestfjörðum í september 2001. Á Laugarvatni í janúar 2002. Á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2002. Á Akureyri í september 2002. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til þess að hafa samband á skrifstofu IF og skrá sig til þátttöku. -AKV Ráðstefna IPC: Leitað til íslands Á ráðstefnu IPC (Alþjóða ólympíuhreyfingar fatlaðra) sem fram fer í Kuala Lumpur í Malasíu 25.-29. apríl verður m.a. rætt um framtíðarskipu- lag hreyfingarinnar og skipu- lag alþjóðamóta. Norðurlöndin þ.m.t. ísland hafa lagt ríka áherslu á mikilvægi þess að ekki verði breytt því fyrir- komulagi sem verið hefur, þar sem IPC hefur haft umsjón með heimsmeistaramótum í hverri íþróttagrein auk Ólymp- íumóts fatlaöra. Aukinn þrýstingur hefur komið fram undanfarið frá al- þjóðaíþróttasamtökum hvers fötlunarflokks um að heims- meistaramótum verði skipt upp m.t.t. fótlunarflokka og verði þá í umsjón viðkomandi alþjóðasambands í stað IPC. Slíkt fyrirkomulag kallar á stóraukinn kostnað vegna þátt- töku í mótum erlendis sem gæti haft mjög mikil áhrif á möguleika smáþjóða þ.m.t. ís- lands til að senda keppendur á mót. Leitað hefur verið til íslands vegna þessa máls og óskað eft- ir því að Sveinn Áki Lúðvíks- son, formaður ÍF verði þátttak- andi í panelumræðum sem munu taka fyrir þetta mikil- væga mál. Sérstök áhersla er lögð á að fá fulltrúa frá íslandi þar sem meginmarkmið er að ná til þeirra smáþjóða sem virðast ekki hafa gert sér grein fyrir alvöru málsins m.t.t þeirra eigin stöðu. Þaö verð- ur spennandi að fylgjast með því hvernig þetta mál þróast en hér er um mikið hagsmunamál að ræða fyrir fatlað íþróttafólk um allan heim. -AKV Fjölmiðlar keppast við að vekja athygli landsmanna á margs konar afrekum og staðfesta með umíjöllun sinni að sum afrek eru greinilega meira fréttaefni en önnur. Almenn- ingur verður fyrir áhrifum af fjöl- miölaumfjöllun og það á ekki síður við um fréttamennsku sem lýtur að afrekum mannfólksins. Þegar bet- ur er að gáð eru þó oft stærstu af- íslandsleikar Special Olympics í knattspymu fóru fram í Laugardals- höllinni laugardaginn 7. apríl. ís- landsleikarnir voru liður i Evrópu- verkefni Special Olympics en um 4.000 knattspyrnumenn og konur tóku þátt í knattspyrnuviku Evrópusam- taka Special Olympics sem stóð dag- ana 2.-8. apríl. Iþróttasamband fatl- aðra er umsjónaraðili Special Olympics hér á landi en KSÍ aðstoðaði ÍF vegna leikanna nú eins og í fyrra. íslandsleikar SO í knattspymu voru haldnir í fyrsta skipti árið 2000 en þá fóru þeir fram í Reykjanesbæ. Stefn't er að þvi að slík knattspyrnuvika verði haldin árlega en markmiðið er að ná 50.000 þátttakendum árið 2005. Verkefnið nýtur stuðnings UEFA með það að leiðarljósi að knattspyma eigi að vera í boði fyrir alla. UEFA hefur mælst til þess að knattspyrnusam- bönd í Evrópu styðji þetta verkefni. KSÍ hefur tekið virkan þátt í Is- landsleikunum og vonandi verður þess ekki langt að bíða að knatt- spymufélög bjóði í auknum mæli æf- rekin að gerast án athygli fjölmiðl- anna. I íþróttatímunum í Safamýrar- skóla virðast verkefnin auðveld en þegar litið er nánar á hvað þar fer fram kemur annað í ljós. Þar þarf hver nemandi á öllum sínum kröft- um að halda til að takast á við hin- ar einfóldustu hreyfingar. Hvernig á að skilgreina þeirra sigra á hverri ingar fyrir þennan hóp. Knattspymu- æfingar eru á vegum nokkurra aðild- arfélaga ÍF en mörg þeirra hafa ekki tök á að bjóða upp á þessa grein i heimahéraði nema í samvinnu við knattspyrnufélagið á staðnum. Slík samvinna er að mati ÍF grundvöllur þess að vakning verði í greininni meðal fatlaðs íþróttafólks. Mikið Qör var á íslandsleikunum í Laugardalshöllinni. Konur jafnt sem karlar virtust skemmta sér konung- lega og mikill fógnuður fylgdi hverju skoruðu marki. Það vakti athygli að þrátt fyrir mikinn styrkleikamun voru allir jafnáhugasamir um að taka þátt sem staðfestir að þessi íþrótt get- ur verið skipulögð þannig að henti öllum og að enginn verði út undan. Það setti mikinn svip á mótið að fá landsliðsþjálfara KSÍ til að skipu- leggja upphitun og afhenda verðlaun- in. Magnús Gylfason, þjálfari U-17 landsliðs karla, sá um að hita liðið upp fyrir keppnina og Ólafur Þór Guðbjömsson, þjálfari U-19 landsliðs kvenna, afhenti verðlaun fyrir liða- einstakri æfingu öðruvísi en sem afrek? I Safamýrarskóla eru fjölfatlaðir nemendur á grunnskólaaldri og þar starfa tveir íþróttakennarar, Guð- rún Gunnarsdóttir og Inga Maggý Stefánsdóttir, sem skipuleggja iþróttatíma fyrir hvern hóp í íþróttasal og sundlaug. DV heim- sótti Safamýrarskóla miðvikudag- keppni. Landsliðsþjálfarinn Atli Eð- vaídsson sá síðan um verðlaunafhend- ingu fyrir einstaklingskeppnina og það var greinilegt að þetta kunni hóp- urinn mjög vel að meta og sjálfsagt hafa landsliðsþjálfaramir ekki síður haft gaman af. Margir keppendur höfðu um margt við þá að tala og nokkrir sögðust örugglega vera skyldir þeim, frændur eða frænkur. Úrslit á íslandsleikum: Liðakeppni 1. styrkleikaflokkur 1. Ösp 2. Nes 3. Eik 4. Öskjuhlíðarskóli 2. styrkleikaflokkur 1. Öskjuhlíðarskóli 2. Ösp 3. Nes 4. Eik Einstaklingskeppni 1. Gunnar Örn Ólafsson, Ösp 2. Guðmundur. I. Einarsson, Nesi 3. Ottó B. Amar Ösp -AKV íþróttasamband fatlaðra Iþróttamiðstöðinni Laugardal Sími 514 4080 Fax: 514 4081 inn 28. mars en þá var í gangi stöðvaþjálfun í leikfimissalnum í umsjón Guðrúnar íþróttakennara. Guðrún lýsti tímanum á eftirfar- andi hátt; „Á þessum stöðvum er farið eftir ákveðnum reglum, þ.e. við spilum alltaf sömu tónlist þannig að á hverri stöð upplifir nemandinn alltaf sama lagið í sömu athöfninni. Þá eru nemendur m.a. að vinna með rökhugsun, líkams- þjálfun og boðskipti. Öll hafa þau mikla ánægju af leikfiminni. Á sí- valningi og á trampólíni er verið að vinna með jafnvægi. Sjúkraþjálfunarboltinn og stóra hjólabrettið eru góð áhöld til að þjálfa bakvöðva. Á dýnunni fá þau aðstoð til að velta sér frá maga yf- ir á bak og öfugt. Eftir þessar fimm stöðvar er hlustað á rólega tónlist og slakað á.“ Slökun mikilvæg Það var mikil ró yfir tímanum og greinilegt að hver nemandi þurfti að einbeita sér mjög að hverju verk- efni til að geta leyst það með aðstoð kennara. Kennari eða aðstoðar- maður fylgir hverjum einstaklingi og aðstoðar hann við að takast á við hverja æfingu. Starfsfólkið lagði sig fram við að skapa gleði hjá nemendunum svo þeir hefðu gaman af að taka þátt í þvi sem fengist var við hverju sinni. Slökun er mjög mikilvægur þáttur af hverjum tíma og allir timar enda á góðri slökun sem nemendur og starfsfólk taka þátt í. Að loknum iþróttatímanum hjá yngri hópi nemenda tók við dans- tími sem var ekki síður áhugaverð- ur en þar voru mun fleiri nemendur saman komnir. Verkefni Special Olympics Special Olympics samtökin, sem ÍF er aðili að, hafa skipulagt íþrótta- æfingar og keppni fyrir fjölfatlaða einstaklinga sem felst í margvisleg- um verkefnum sem hver og einn þarf að leysa. Upphaflega var þetta verkefni sett á fót fyrir fjölfötluð börn sem búa á stofnunum en staða þessa hóps í aðildarlöndum Special Olympics er viða mjög slæm. ÍF hefur fylgst með þeirra þróun sem átt hefur sér stað við uppbygg- ingu þessa verkefnis en það er ljóst að ísland getur þar lagt hönd á plóg. ÍF hefur leitað til sérfróðra aðila, m.a. kennara í Safamýrarskóla, um hugmyndir og ráðgjöf til Special Olympics-samtakanna en mikil reynsla og þekking er til staðar hér innanlands sem getur nýst þeim i öðrum löndum. Góð hugmynd getur breytt miklu Margir hafa talið að íþróttaæfing- ar séu ekki á færi fjölfatlaðra ein- staklinga, hvað þá íþróttakeppni, en hugmyndaríkir þjálfarar geta aðlag- að ótrúlega margt þeirra þörfum. I mörg ár hafa mikið hreyfihamlaðir og/eða fjölfatlaðir einstaklingar keppt á íslandsmótum ÍF í boccia þar sem notuð hefur verið sérstök renna til aðstoðar. Þessi hugmynd um að nýta rennu fyrir útkastið gerði þeim kleift að njóta jafnræðis við aðra keppendur. Það sama get- ur átt við um aðrar hugmyndir sem upp koma, einfóld útfærsla á góðri hugmynd getur opnað dyr að fleiri íþróttatilboðum fyrir fjölfatlað fólk. Á skrifstofu ÍF er hægt að fá margs konar upplýsingar um út- færslur á íþróttaæflngum fyrir fjöl- fatlaða og hugmyndir um tæki sem nýtt eru við æfingar. -AKV í knattspyrnu - styrkleikamunur sló ekki á áhugann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.