Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2001, Blaðsíða 4
e f n i samfélagiö i f ó k u s Friðný Herberts- dóttir er of- „4 , sóknaróður ætt- fræðifasisti og skrifar um sam- félagsmál í fókus. Ég virði mína Yoni Mikiö hefur verið rætt um öryrkja frá því um jólin. Ýmist þykir mönnum þeir öfundsveröir af kjörum sínum eöa fólk vorkennir þeim. Hvorugt er til eftirþreytni. Ég er sjálf öryrki og hef frá tvítugu staöið ein með mismarga krakkagrislinga í fanginu. Alls hef ég aliö um 13 börn inn í þennan heim og hef ekki fengiö neitt hrós fyrir. Enda eru stór hluti þessara króga varla neitt til að hrópa húrra fyrir. Fimm eru alkóhólistar, tveir for- fallnir eiturlyfjasjúklingar, tveir hafa dáið úr sýfilis og öörum sjúkdómum sem smitast viö kynferðismök og fjórir eru kennarar. Umræöan I fjölmiðlum vill oft fara út og suð- ur um víöan völl án þess að koma að þeirri kviku sem allt tal ætti í raun að snúast um. Kynlíf öryrkja hefur til að mynda ekki veriö mikiö í brennidepli fjölmiðlanna. Gisli Mart- einn hefur ekki svo mikið sem vikiö að því orði þrátt fýrir að hann líti á sig sem „kötting- edsj“ fjölmiölamann. Ég er 75% öryrki en 100% kynverá. Ég viröi mína Yoni og hef alltaf gert. Hins vegar hef- ur virðing annara fýrir minni Yoni ekki alltaf veriö upp á marga fiska, þrátt fýrir að sumir hafi þóst finna fisklykt. Ég hef ekki tekið þátt I lesbískum ástarsam- böndum að neinu ráöi. Ég hef einbeitt mér aö leitinni að hinum eina sanna Lingam sem er rétt sveigöur og með réttan radíus til aö finna minn helga blett sem liggur 4,2 cm uppi f Yoni minni. Hann hefi ég ekki enn fund- iö enn, en fyrir áhugasama þá er betra seint en aldrei. heimasíöan www. Blow theDotOut YourAss.com „lf you can't beat 'em - join 'em“ segir ein- hvers staðar. Þeir sem hata Netið hafa vett- vang á Netinu. Síðan www.blowthedotoutyou- rass.com er andspyrnusíða þeirra sem þola ekki netiö. Það sem hefur gert þeim verulega gramt í geði er að síðan fékk Webby-verölaun- in og í kjölfarið á því hafa komið frasar eins og: FuckYouAndYourWebby.com, YourStockls- InTheToiletButAtLeastYourWereNominated- ForAWebby.com og WhosldeaWasThatMar- ketCorrectionCrap.com. Síðast en ekki síst má nefna skemmtilega hugmynd að dottkomi: BiteMyBigRoundAsslsFiveWords.com. Þann 7. apríl síðastliðinn var hín átján ára Sonja Rut Aðal- steinsdóttir krýnd fegurðardrottning Norðurlands á Sjallanum, Akureyri. Nú taka við strangar æfingar fyrir keppnina um titil- inn ungfrú ísland 2001 sem fram fer á Broadway 23. maí. Fók- us fékk fegurðardísina í stutt spjall. Aldrei brosað jafn mikið á einu kvöldi „Þetta var rosalega skemmtilegt kvöld og ég var alls ekkert stressuð. Konan sem farðaði mig hafði meira að segja orð á því hvað ég væri ró- leg og yfirveguð. En það þýðir bara ekkert að vera stressaður," segir fegurðardrottningin. Viss draumur að rætast Var þetta gamall draumur sem rœttist? Langaði þig að verða feg- urðardrottning þegar þú varst litil stelpa? „Vilja ekki allar litlar stelpur verða fegurðardrottningar?" spyr Sonja á móti og hlær. „Jú, auðvitað var þetta viss draumur að rætast hjá mér þó ég hafi alls ekki búist við þessu.“ Sonja Rut er nemandi við Verkmenntaskólann á Akureyri en hún lýkur stúdentsprófi þaðan næstu jól af sálfræðilínu félags- fræðibrautarinnar. „Ætli ég haldi ekki áfram á þeirri braut og fari í nám í sálfræði eða eitthvað því tengt,“ segir hún, aðspurð hvað hún ætli að verða þegar hún verður stór. Langar þig ekki að reyna fyrir þér í fyrirsœtubransanum? „Það er aldrei að vita. Ef ég fæ tækifæri til þess gæti ég vel hugsað mér að prófa það.“ Engar harðsperrur Sonja segist ekki hafa fundið fyr- ir samkeppni við ungfrú ísland.is- keppnina sem var haldin í annað sinn fyrir skömmu: „Ég horfði á keppnina í sjónvarpinu og lærði reyndar mikið af því að fylgjast með stelpunum. En ég hef ekki orð- ið vör við neina neikvæða sam- keppni." Fegurðardrottningar þurfa alltaf að brosa svo mikið, er það ekki erfitt? „Það fannst mér ekki. En ég er reyndar mjög brosmild aö eðl- isfari en hef r e y n d a r aldrei áður brosað jafn- mikið á einu kvöldi," segir Sonja bros- andi. Vaknaðir þú ekki með harósperrur í munnvik- um daginn eftir keppn ina? nei. var svo að s a að Nei, Það yfir miklu b r o þannig þetta var al- veg eðlilegt mig.“ Nú er keppnin á Broadway á nœsta leiti, munt þú vinna hana líka? „Ég er ekkert byrjuð að hugsa út í það enn þá. Aðalmál- ið er að hafa gaman af þessu og ef ég vinn einhvern titil þá er það bara aukabónus." „Vilja ekki allar litlar stelpur veröa fegurð- ardrottningar?" Sonja Rut Aðalsteins- dóttir (til hægri) með írisi Egilsdóttur sem ienti í öðru sæti. fyrir ML-ingar halda því fram að skólinn þeirra sé frábær og það er ekki ólíklegt því allir hafa einhvern tímann látið sig dreyma um að losna frá pabba og mömmu og kom- ast á almennilega heimavist. Bömin heim á Laugarvatn Hilmar Steinn Grétarsson verkefnisstjóri og Þorkell Snæbjörnsson vilja börn ís- lands heim á heimavist Menntaskólans við Laugarvatn. Á myndina vantar Odd Magnús Sigurðsson. Nemendur Menntaskólans að Laug- arvatni hafa tekið völdin og stefna á heimsyfirráð. ML-ingar vita að sveltur sitjandi en fljúgandi fær og hafa mark- aðslögmálin með sér í skipulagðri markaðsherferð ML. Hilmar Steinn Grétarsson var einn af heilunum á bak við þá hugmynd að nemendur ML tækju sig til og gæfu út kynningarrit um skólann sinn til að trekkja að nemendur. Sjálfur er hann úr Borgarfirði en býr í Reykjavík. „Félagslífið er margbreytilegt og frá- brugðið þvl sem flestir þekkja vegna heimavistarinnar," segir Hilmar Steinn. „Hérna þarf maður að standa á eigin fótum. Hér er líka alltaf eitthvað að gerast á hverju einasta kvöldi og reynt að hafa ball einu sinni í mánuði." Allar hugmyndir um að það sé dýrt að vera í heimavistarskóla eru slegnar út af borðinu i bæklingi ML-inga. „Nánast eini kostnaðurinn við að vera í heimavistarskóla er fæðið og það er ekki nema 1100 krónur á dag sem er eins og biti á Subway." íþróttaskor Kennaraháskólans er að Laugarvatni og öll aðstaða til íþróttaiðk- unar í hágæðaklassa. „Næsta vetur verður ný braut við ML. Það er íþróttabraut sem á að starf- rækja í tengslum við KHÍ. Við vonum að það komi mikið af íþróttafólki í skólann og við höfum sent öllum íþróttakennur- um i grunnskólum landsins bréf þar sem við lýsum kostum brautarinnar.“ Hilmar Steinn vill taka það fram að þótt félagslífið sé skemmtilegt þá sé ekki stanslaust fyllirí á vistinni. Hús- verðir passa upp á að fjörið fari ekki úr hófi og farið sé eftir reglum. Þeir sem ekki gera það eiga á hættu að verða reknir. t bæklingum er sagt að á heimavist- inni kynnist fólk „mjög náið". Margir hengja sig örugglega í þetta en Hilmar Steinn segir að þaö sé ekki bara verið að tala um rómantíkina. „Þetta er aðallega út af því að fólk kynnist öðruvisi í heimavistarskóla þvi þar er fólk saman frá morgni til kvölds. Hvað varðar rómantíkina þá blómstrar hún auðvitað." Einhverjir ófrískir? „Það kemur auðvitað fyrir en það er bara ein stelpa í skólanum núna sem á barn. Það eru líka til getnaðarvarnir á Laugarvatni." Er smokkasjálfsali á vistinni? „Nei, en það er sjoppa í þorpinu.“ Myndasagan: Maó for- maður kaupir klámblað Nikita: Tekur flugið Quarashi snýr aftur: ísland fyrir íslendinga Avalanches: Andfætlingar með bland Sepultura: Djöfull í spilaranum Listrýni: Gúrkur og sjálfsmorð Ræðumaður Islands: Kynlífs- þjónusta aldraðra www.visir*is/fokus fokusSfokus • is I# gm, • m 1 l 10 aMMB— Enemv at the Gates Þrettán daaar Minoaue lögulegri en Siaurfón Klartans Filmundarhátíð f ókus fylgir DV á fösfudögum Forsíðumyndina tók Hari af Quarashi og öðrum íslendingum. f Ó k U S 20. apríl 2001

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.