Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2001, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001
I>V
Fréttir
Stórum skuldum Thermo Plus breytt í hlutafé:
Villandi upplýsingar um
sölugengi hlutabréfa
- engar kvittanir gefnar fyrir sölu á margföldu nafnverði
Thermo Plus í Keflavík
Fjöldi einstaklinga og fjölskyldna situr eftir meö sárt ennið.
Fjármálaeftirlitið hefur hið gjald-
þrota fyrirtæki Thermo Plus í Kefla-
vík nú til skoðunar. Ýmislegt þykir
benda til að ekki hafi verið farið að
settum reglum um sölu hlutafjár í
fyrirtækinu og misvisandi upplýs-
ingar eru um á hvaða gengi hlutir i
félaginu hafi veriö seldir. Þá var
undir lok síðasta árs umtalsverðum
skuldum breytt í hlutafé.
Samkvæmt upplýsingum hlut-
hafa, sem DV hefur rætt við og
ákvað að leggja fé í hlutafjárkaup,
voru upplýsingar um stöðu og gengi
félagsins á allt annan veg en siðar
kom í ljós. Fjöldi einstaklinga og
fjölskyldna situr eftir með sárt enn-
ið og hafa í sumum tilfellum tapað
mörgum milljónum króna.
Fullyrt var við DV fyrir skömmu,
úr innsta hring í Thermo Plus, að um
70 milljónir að nafnverði hefðu verið
seldar á genginu 1,1 í mars, aprU og
maí á síðasta ári. Samkvæmt upplýs-
ingum frá hluthöfum sem rætt var
við í gær og í fyrradag voru þeim
hins vegar boðin bréf í mars og apríl
á genginu 6 til 7 með fullyrðingum
um að um kostaboð væri að ræða.
Raunverulegt virði bréfanna var þá
sagt um 10 og væntingar gefnar um
að gengið færi i 18 til 20 þegar líða
tæki á árið 2001. DV hefur heimildir
fyrir að i einhverjum tilvikum hafi
ekki einu sinni verið gefnar út kvitt-
anir fyrir sölu á margföldu gengi, en
á hlutabréf viðkomandi var skráð
gengið einn.
Stefán Bj. Gunnlaugsson skipta-
stjóri segir að ferlið varðandi uppgjör
þrotabúsins sé rétt að hefjast en eftir
er að lýsa eftir kröfum. Þá þurfi að
loka dótturfyrirtæki erlendis, en um
tveir mánuðir líði frá innköOun og
birtingu í Lögbirtingablaði þar til
ljóst er hvaða kröfur eru endanlega
gerðar í fyrirtækið.
Skuldum breytt í hlutafé
í samtali við DV fullyrðir einn
hluthafa að þó opinberlega hafi verið
talað um að seld hafi verið hlutabréf
að nafnvirði 110 milljónir fyrir gjald-
þrotið, eins og heimild var til að selja
af hálfu hluthafa, þá hafi á síðustu
mánuðum síðasta árs verið gengið frá
aukingu á hlutafé um 90 milljónir til
viðbótar upp í væntanlega heimild á
aukningu hlutaíjár. Ekki er á þessari
stundu vitað á hvaöa gengi það hluta-
fé var selt. Heimild til hækkunar
hlutafjár úr 110 milljónum króna í 400
milljónir króna var hins vegar ekki
samþykkt fyrr en á hluthafafundi 27.
mars 2001. Kaupendur þessa hlutafjár
eru sagðir Eignarhaldsfélag Suður-
nesja sem er í eigu sveitarfélaganna á
svæðinu, Sparisjóðurinn í Keflavík
og Lífeyrissjóður Suðurnesja. Sam-
kvæmt heimildum DV mun þar að
mestu hafa verið um að ræða breyt-
ingu á skuldum í hlutafé. -HKr.
Mættur í breytinguna
Hér er Geirfugl GK 66 kominn til
Akraness til breytinga.
Innlend skipamíði
sigraði erlenda
DV, AKRANESI:
Framkvæmdir við breytingar á Geir-
fugli GK 66 úr nótaveiðiskipi í línuveiði-
skip eru hafhar í Skipasmíðastöð Þor-
geirs og Ellerts á Almanesi sem átti
lægsta tilboðið í verkið, að sögn Andrés-
ar Á. Guðnasonar, útgerðarstjóra hjá Þor-
bimi Fiskanes hf. á Suðumesjum.
„Við buðum fyrst út með stærri breyt-
ingu og þá buðu sex innlendir og erlend-
ir aðilar í verkið og vom pólsk tilboð
lægst en við höfnuðum öllum þeim tilboð-
um og buðum verkefnið út aftur til Qög-
urra stöðva, tveggja innlendra og tveggja
erlendra. Tilboðin komu frá Skipasmíða-
stöð Njarðvíkur og frá Þorgern og Ellert á
Akranesi, Pasija á Spáni og Nordship frá
Póllandi. Þorgeir Ellert kom best út þeg-
ar búið var að reikna ferðakostnað og
annað og var tilboð þeirra upp á um 44
milljónir," segir Andrés. „Við ætlum að
breyta lestum, millidekki, endurnýja
borðsal, koma fyrir línubeitningarvélum
og auk þess þarf að setja nýja vél í skip-
ið. Við ætluðum aö setja skipið á loðnu-
veiöar en hann komst aldrei á þær veið-
ar þar sem vélin bræddi úr sér. Geirfúgl-
inn á að afhendast okkur 20. ágúst þannig
að við ætlum að setja hann á veiðar á
nýju fiskveiðistjómunarári, ef það verður
•þá búiö að semja,“ segir Andrés í samtali
við DV. -DVÓ
Fjölmiðlakönnun Gallups fyrir auglýsendur og fjölmiðla:
63,5% lesa DV í viku hverri
- notkun á netmiðlum eykst töluvert sem og áhorf á sjónvarp
Lestur dagblaða dregst lítillega
saman frá síðasta hausti, sam-
kvæmt nýjustu fjölmiðlakönnun
Gallups en reynsla undanfarinna
ára hefur verið sú að lestur dag-
blaða er minni á vorin en á
haustin. Alls sögðust 80,3% hafa les-
iö eitthvað í Morgunblaðinu í könn-
unarvikunni en 63,5% lásu DV.
Meöallestur dagblaðanna
tveggja lækkar nokkuö á milli
kannana, lestur flestra þeirra
tímarita sem könnunin nær til
dregst einnig saman en þó eykst
lestur Myndbanda mánaðarins og
Lifandi vísinda. Mest lestnu tíma-
ritin eru Dagskrá vikunnar og
Sjónvarpshandbókin.
90 JHDrjBunbIat>ií>
80 L 75.76j77g
81,9 81,8 81 81,6 80.3
70
60
50
40
30
61
63
rsra'
65,6 64,9 63,5
Fjöimiöiakönnun
_____________________________mars.2001
Blöö eitthvað lesin í vikunni
- samanburður við ffyrri kannanir
20 6.1 7,1 8,6 12,8 8,9
10 410* 3 " 4 5
% okt. mars okt mars okt. apríl okt mars okt mars
1996 1997 1997 1998 1998 1999 1999 2000 2000 2001
Könnun Gallups leiðir í ljós að Ríkissjónvarpið gefur litillega eftir
áhorf á Skjá einum eykst verulega, en Stöð 2 stendur í stað.
Meiri notkun á Netinu
Að meðaltali hefur heimsókn-
um á Vísi.is fjölgaö um 17,7% frá
því í október í fyrra, samkvæmt
fjölmiðlakönnun Gallups. Fjórðu
könnunina í röð er munurinn á
aðsókninni að tveimur stærstu
netmiðlunum vart marktækur en
fjölgun heimsóknanna nam 15,0%
hjá mbl.is á sama tímabili.
Leit.is sýnir talsverðan vöxt frá
síðustu könnun Gallups og nemur
vöxturinn 23,0%. Meöalheim-
sóknafjöldi á leit.is er u.þ.b. tveir
þriöju af stærstu miðlunum tveim-
ur. Næstu miðlar þar á eftir í að-
sókn eru Strik.is og Torg.is sem
mælast um og innan við þriðjung
af heimsóknafjölda á stærstu miðl-
ana.
í könnuninni sögöust 79,5%
þeirra sem hafa aðgang að Netinu
hafa heimsótt Vísi.is en 79,8%
mbl.is.
-aþ
Veðriö i kvöld
Léttir til á Norðurlandi
Hæg suölæg eöa breytileg átt og víða stöku
skúrir en léttir til á Noröurlandi. Hiti 0 til 9
stig, hlýjast sunnan til en svalast á
Vestfjörðum.
ma® mm
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 21.30 21.26
Sólarupprás á morgun 05.20 04.57
Síödegisflóö 19.07 23.40
Árdeglsflóö á morgun 07.22 11..55
Skýrtagar 4 veðurtáknum
VINDATT 10 V- Hm Éi -10*
> VINDSTYRKUR ! nietriim i Siíkiimhi ^FROST HEIDSKlRT
o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
SKÝJAÐ
r «» w
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
•W hr F =
ÉUAGANGUR PRUiVlU* SKAF- R0KA
VEÐUR RENNINGUR
Ágæt færð um heistu þjóðvegi
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegageröinni er ágæt færö um helstu
þjóðvegi landsins. Snjókoma er á
Vestfjörðum og þar er hálka.
Suðlæg eða breytileg átt
Hæg suölæg eöa breytileg átt. Víða léttskýjað á Norðurlandi en skýjað
meö köflum og stöku skúrir eða slydduél í öörum landshlutum.
ism
Vindur: > O
5-8 „/. '0 L /
Hiti 1° til 7°
Hægt vaxandi suðlæg átt
og súld og síöan rignlng
sunnan- og vestanlands en
þurrt aö kalia noröan- og
austanlands. Hiti 1 til 7
stig, hlýjast sunnan til.
Rmmtu
Su&austan 8 til 13 m/s
og fignlng vi&a um land.
Hlýnandi veöur i blll.
Laugardai
Vindur.
5-10 nt/s
Hiti 0° til 9°
Austan- og noröaustan
&-10 m/s. Slydda noröan-
lands en stöku skúrir
syöra. Hiti 4 tll 9 stig
sunnanlands en kringum
frostmark noröan til.
AKUREYRI léttskýjaö -1
BERGSSTAÐIR léttskýjaö 0
BOLUNGARVÍK snjókoma 0
EGILSSTAÐIR 0
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 4
KEFLAVÍK hálfskýjaö 4
RAUFARHÖFN þokumóöa 0
REYKJAVÍK léttskýjaö 4
STÓRHÖFÐI úrkoma 5
BERGEN rigning 4
HELSINKI léttskýjaö 12
KAUPMANNAHÖFN alskýjaö 6
ÓSLÓ rigning 5
STOKKHÓLMUR þokumóöa 5
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 6
ÞRÁNDHEIMUR rigning 2
ALGARVE alskýjaö 15
AMSTERDAM léttskýjaö 7
BARCELONA léttskýjaö 12
BERLÍN léttskýjaö 6
CHICAGO
DUBLIN rigning 8
HALIFAX skýjaö 3
FRANKFURT hálfskýjaö 7
HAMBORG þokumóöa 4
JAN MAYEN þoka 1
LONDON alskýjað 7
LÚXEMBORG skýjaö 4
MALLORCA þokumóða 13
MONTREAL heiöskírt 10
NARSSARSSUAQ skýjaö 0
NEWYORK
ORLANDO
PARÍS skýjaö 7
VÍN léttskýjað 10
WASHINGTON
WINNIPEG heiöskfrt 3
ívcv.i a v>v>.iy\q.v rsi, v