Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2001, Page 22
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2001
rSeimur
Yahoo! lokar á klám
Veffyrirtækið
Yahoo!, sem rek-
ur stærsta vef-
torgið á Netinu í
dag, hefur
ákveðið að loka
fyrir alla sölu á
kynlífstengdu efni sem og auglýs-
ingar fyrir klámsíður og einkamála-
auglýsingar á vef sínum eftir mikil
mótmæli frá hluta notenda vefsvæð-
is fyrirtækisins.
Trúarleiötogar mótmæla
Yahoo! hefur um tveggja ára
skeið boðið upp á kynlifstengdan
söluvarning á vefsvæði sínu og
fengið hlut í ágóða sölu hans. Fyrir
stuttu ákvað fyrirtækið að auka
hlut þess á vefsvæði sínu og olli það
miklu uppnámi hjá siðsamari hluta
viðskiptavina sem létu rafrænum
kvartanapósti rigna á fyrirtækinu.
Auk þess hvöttu trúarleiðtogar í
Sádí-Arabíu þann milljarð múslíma
sem í heiminum býr til að snið-
ganga Yahoo! og öll önnur vefsvæði
sem létu efnis- og gróðahyggju ráða
rekstri sínum á kostnað siðvendni.
Viðbrögð fyrirtækisins hafa verið
snögg og samkvæmt forseta fyrir-
tækisins, Jeff Mallett, mun Yahoo!
bregðast við þessum kvörtunum
- eftir öldu kvartana frá siðsömum netverjum
Þrátt fyrir aö hafa boðiö upp á kynlífstengdan söluvarning á vefsvæöi sínu í
tvö ár virðist steininn hafa tekið úr hjá siösömum netverjum þegar ákveöiö
var aö setja upp sérsvæöi fyrir þess háttar verslun.
með því að loka smám saman fyrir
framboð á kynlífstengdu efni yfir
næstu vikur. Hann vildi þó ekki við-
urkenna að umfang kynlífstengds
söluvarnings hefði aukist heldur
hefði aðeins verið búið til sér vef-
svæði fyrir slíka verslun og í leið-
inni hefðu verið gerðar ráðstafanir
til að tryggja að krakkar kæmust
ekki inn á svæðið. Fyrirtækið mun
einnig hætta að auglýsa klámsíður
á vefsvæði sínu.
Stöðugt í vandræöum
Þessi vandræði koma sér illa fyr-
ir Yahoo! þar sem gróði af auglýs-
ingum hefur dregist verulega sam-
an í kjölfar samdráttar i netfyrir-
Yahoo! virðist vera
ansi seigt í því að
koma sér í vandræði
vegna umdeilds efnis
á vefsvæði sínu. Þar
ber hæst málsókn á
hendur fyrirtækinu í
Frakklandi þar sem
hægt var að nálgast
minningargripi um
nasista á ýmsum upp-
boðssíðum YahooL
tækjageiranum. Yahoo! tilkynnti
um 11.5 milljóna dollara tap á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs miðað við
67,7 milljóna dollara hagnað fyrir
sama tímabil í fyrra. Auglýsinga-
tekjur frá netklámfyrirtækjum eru
hins vegar stöðugar þar sem sá geiri
netfyrirtækjanna er einn hinna fáu
sem skilar hagnaði.
Yahoo! virðist vera ansi seigt að
koma sér í vandræði vegna um-
deilds efnis á vefsvæði sínu. Þar ber
hæst málsókn á hendur fyrirtækinu
í Frakklandi þar sem hægt var að
Auk kiáms hefur Yahoo! fengiö
ákúrur fyrir aö bjóöa upp á minja-
gripi um nasista og hýsa spjall-
svæöi öfgafullra kynþáttahatara.
nálgast minningargripi um nasista
á ýmsum uppboðssíðum Yahoo!.
Auk þess hefur fyrirtækið verið
gagnrýnt fyrir að hýsa spjallsvæði
þar sem nýnasistar og aðrir kyn-
þáttahatarahópar hafa skipst á
skoðunum.
Vísindamenn klóna
genabætta grísi
- möguleikar á varalíffærum úr svínum í menn
Vísindamönnun-
um, sem kynntu
fyrir heiminum
klónuðu kindina
Dollí, hefur nú
tekist að ná enn
einu stóra skrefinu í klónun. Að
þessu sinni klónuðu þeir hóp
grísaunga. Reyndar tókst þeim að
klóna hóp grísaunga í fyrra. í þetta
sinn var hins vegar komið fyrir
aukageni í þeim frumum sem notað-
ar voru til klónunar á grísunum.
Það er von vísindamannanna að
þessi framfór komi til með að gera
vísindamönnum kleift að klóna svín
til ræktunar þar sem líffæri þeirra
yrðu notuð í menn. Svin eru talin
henta einna best til þess háttar að-
Nú þegar eru hjarta-
lokur úr svínum notað-
ar til að koma í stað
gallaðra hjartalokna í
mönnum. Hins vegar
er þó nokkur hætta á
að mannslikaminn
hafni hjartalokunum
sem og öðrum líffær-
um úr svínum.
gerða nú á dögum þar sem líffæri
þeirra eru mjög svipuð líffærum
manna. Nú þegar eru hjartalokur úr
svínum notaðar til að koma í stað
gallaðra hjartalokna í mönnum.
Hins vegar er þó nokkur hætta á að
mannslíkaminn hafni hjartalokun-
um sem og öðrum líffærum úr svín-
um.
Meö því að setja inn viss gen úr
mönnum telja vísindamennimir að
hægt sé að rækta svín sem hafa líf-
færi sem eru það lík mannaliffær-
um að minni hætta sé á höfnun.
Annar kostur við þetta er sá að til-
raunir og ræktun svína er ekki
eins umdeild og notkun apateg-
unda sem varahluta í menn.
Enn eru þó nokkur ár í það að
genabætt klónuð svín verði nýtan-
leg sem varahlutalager í menn og á
meðan gefst vísindamönnum tími
Líffæri svína eru afar lík líffærum manna og henta þvi vel sem varalíffæri.
Hins vegar er bæöi hætta á höfnun líffærisins sem og tilkoma nýrra vírusa
sem hugsanlega eru hættulegir mönnum.
til að ræða og leysa tæknileg og sið-
ferðileg vandamál sem tengjast til-
raunum sem þessum. Eitt af þeim
vandamálum sem vísindamenn
hafa áhyggjur af er tilkoma nýrra
vírusa sem hættulausir eru líffæra-
gjafategundinni en gæti reynst
hættuleg mönnum.
Góðar fréttir fyrir tölvumenntað fólk í Bandaríkjunum:
Vantar fólk í þekkingariðnaðinn
- þrátt fyrir verðfall fyrirtækja og efnahagslægð
Svo virðist sem
spár svartsýn-
ustu manna um
þá lægð sem
bandarískur
tölvuiðnaður á
að vera að ganga
í gegnum og með því færri störf í
þekkingariðnaðinum séu ekki alveg
á rökum reistar. Þvert á móti hafa
nýjustu kannanir sýnt að eftirspurn
eftir tölvumenntuðu fólki sé sífellt
aö aukast.
Eftir mikla uppsveiflu í mark-
aðsvirði tölvufyrirtækja - og þá sér-
staklega svokallaðra .Com-fyrir-
tækja, netfyrirtækja með ákveðnar
hugmyndir um rekstur á Netinu en
oft ekkert meira en hugmyndina -
hrundi allt og nýgræðlingar í tölvu-
géiranum fóru umvörpum á haus-
inn. Þetta töldu margir að leiddi til
mikils samdráttar í eftirspurn á
vinnuafli í þekkingariðnaðinum.
Töivur eru greinilega komnar til aö vera og þaö ætti enn um sinn aö lýsa sér
í áframhaldandi aukningu á eftirspurn eftir tölvumenntuöu fólki, bæöi í
Bandaríkjunum sem og annars staöar.
Raunin hefur hins vegar verið
á annan veg. Atvinnumálaráðu-
neyti Bandaríkjanna birti fyrir
stuttu tölur sem sýndu að eftir-
spurnin er enn til staðar i þekk-
ingariðnaðinum. Samkvæmt töl-
um ráðuneytisins bættust við
12.000 ný störf einungis á milli
febrúar og mars sl. Frá í mars í
fyrra þegar niðursveiflan fór að
gera vart við sig hafa bæst við
um 100.000 ný störf í þekkingar-
iðnaðinum.
Talsmaður Ameríska þekking-
artæknifélagsins (ITAA) segir
skýringuna á þessu vera þá að
mikill vöxtur sé hjá hefðbundnari
tölvufyrirtækjum, s.s. tölvu- og
hugbúnarframleiöendum, auk
fyrirtækja í hefðbundnum at-
vinnugreinum. Nýleg könnun,
sem ITAA lét gera, sýndi að útlit
er fyrir að fylla þurfi allt aö
900.000 ný störf sem krefjast náms
Talsmaður Ameríska
þekkingartæknifélags-
ins (ITAA) segir skýr-
inguna á þessu vera
þá að mikill vöxtur sé
hjá hefðbundnari
tölvufyrirtækjum, s.s.
tölvu- og hugbúnar-
framleiðendum, auk
fyrirtækja í hefð-
bundnum atvinnu-
greinum.
í tölvu- eða kerfisfræði á þessu
ári og að ekki muni takast að
fylla nema um 475.000 þeirra
starfa.