Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Qupperneq 2
18 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 Sport Maöur leit upp til Ólafs, Dags og Patreks - Ungur að árum varstu valinn í landsliðið. Það hlýtur að hafa verið mikill heiður og hvatning? „Undir niðri stefndi maður að því að komast einhvern tímann í landsliðið. Maður leit mikið upp til Ólafs, Dags og Patreks og fá svo tækifæri til að leika með þeim í landsliði var að sjálfsögðu mikill heiður. Ég var spenntur þegar ég mætti á fyrstu æfingu mína og var hræddur við að gera mistök en þetta vandist eins og allt annað. Það hefur gefið mér ómetanlega reynslu að leika með landsliðinu. Maður hefur kynnst mörgum leikmönnum og reynsl- an á eftir að nýtast manni enn frekar þegar fram í sækir.“ - Hvert stefnir þú sem hand- boltamaöur? „Ég er spenntur fyrir því að fara út og það er draumur minn að leika í atvinnumennsku. Það er ekkert öruggt í þeim efnum og á meðan reynir maður að bæta sig. Það væri óneitanlega gaman að geta einbeitt sér eingöngu að handboltanum í nokkur ár en það er ekki á allt kosið í þessum efn- um.“ Á leiö í viöræöur viö þýska stórliöið Essen - Hver staðan í þessum málum í dag. Ertu á leið í atvinnu- mennskuna? „Ég er að fara utan til við- ræðna við forsvarsmenn þýska liðsins Essen. Þeir hafa verið i sambandi við mig og vilja fá mig út og ræða málin frekar. Lengra eru þessi mál ekki komin. Ég og unnusta mín ætlum utan aö skoða málin. Ég hef ekki fengið neitt formlegt tilboð en heyrt svona aðeins hvað í boði er. Það er ekkert öruggt fyrr en maður hefur þetta á prenti fyrir framan kig. Þetta er tvímælalaust þess virði að skoða. Essen er stór- klúbbur og hefur verið í fremstu röð í mörg ár. Það væri frábært að komast út og geta lifað á handboltanum. - Hafa fleiri lið verið að bera víurnar í þig? „Það hefur aðeins verið hringt í mig en ég er ekki að velja úr fé- lögunum." Tel og vona aö ég sé tilbúinn aö fara utan - Ertu tilbúinn að leika i sterk- ustu deild i heimi? „Maður verður alltaf að hafa trú á því sem maður er að gera og ég tel og vona að ég sé tilbúinn að spreyta mig i bestu deild í heimi. Það gæti orðið skemmtilegt að takast á viö það og sjá hvar mað- ur stendur.“ - Hvernig finnst þér handbolt- inn hafa verið vetur og hvert finnst þér hann stefna? „Það verður reynt nýtt keppn- isfyrirkomulag á næsta vetri og þaö verður spennandi að sjá hvernig til tekst. Mér fannst ann- ars handboltinn vera flnn í vetur og deildin var óvenju jöfn. Flest liðanna voru að reyta stig af hvert öðru og ég held að deildin hafi verið skemmtileg fyrir áhorf- endur og þá alveg sérstaklega undir lokin. Við i KA-liðinu skemmtum okkur og höfðum gaman af því sem við vorum að gera. Það átti ekki sist þátt í þvi hvað við komumst langt. Ég held að handboltinn þurfi engu að kvíða og vonandi verður næsta tímabil með breyttu fyrirkomu- lagi skemmtilegt." - Hvernig líst þér á nýráðinn landsliðsþjálfara. „Bara vel. Ég þekkti hann ekk- ert fyrir og það verður örugglega gaman að vinna með honum. Það hefur verið gaman að vera í landsliöinu og verður það áfram. Landsliðið á ærið verkefni fram undan gegn Hvit-Rússum og við verðum með öllum ráðum að klóra okkur fram úr því og kom- ast á Evrópumótið. Það skiptir höfuðmáli og mannskapurinn er innstilltur á það,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson. -JKS Guöjón Valur Sigurösson meö tveggja ára dóttur sína, Dagbjörtu ínu, í fanginu og sér viö hlið unnustu sína, Þóru Þorsteinsdóttur. Guöjón Valur segir aö sætasta augnablikið á ferli sínum til þessa sé þegar KA lagöi Aftureldingu aö velli í undanúrslitum íslandsmótsins. DV-Hari Guðjón Valur Sigurðsson, handknattleiksmaður hjá KA: Draumurinn að fara ut - átti í viðræðum við forsvarsmenn Essen um helgina Guðjón Valur Sigurðsson hefur skipað sér á bekk á meðal bestu handknattleiksmanna landsins. Hann lék stórt hlutverk með KA- liöinu í vetur, ekki síst í úrslita- keppninni, og það kom því fáum á óvart að hann var útnefndur leik- maður ársins annað árið röð. Guð- jón Valur hefur sl. tvö ár átt fast sæti í íslenska landsliðinu og er ekki nokkur spuming um að hann á eftir að ná langt í íþróttinni. Framganga Guðjóns Vals hefur ekki farið fram hjá erlendum stór- liðum og geta málin allt eins þró- ast á þann veg aö Guðjón Valur verði kominn í atvinnumennsk- una fyrr en varir. Það er þvi ekki víst að KA-menn fái að njóta krafta hans áfram. Þessi mál kunna að skýrast á næstu dögum. Það liggur beinast við að spyrja Guðjón Val hvort hann hafi verið sáttur við tímabilið með KA-lið- inu? „Heildarárangurinn, þegar litið er á pappirana, er eflaust ágætur. Fyrst við vorum komnir í úrslitin þá erum við hundfúlir með að hafa orðið undir í þeim bardaga. Ann- ars þýðir lítið annaö en að horfa á björtu hliðarnar. Kannski var ekki búist við þessum árangri af liðinu og svona heilt yfir er árang- urinn bara viðunandi. Að tapa hins vegar úrslitaleiknum var al- veg hræðilegt," sagði Guðjón Val- ur. - Hvað með spilamennsku þína. Lékstu vel að þínu mati? „Mér gekk svo sem ágætlega en hafa verður í huga að það var ég að gera með með góðu liði. Mann- skapurinn vann vel saman, allir sem einn, og ég held að enginn einn leikmaöur hafi verið að skara fram úr þar. Mér fannst flestir í liðinu leika vel í vetur og liðs- heildin fleytti okkur svona langt.“ - Hvað með leikform þitt í vet- ur, miðað við tímabilið í fyrra? „Formið var svipað og áriö áður. Maður er alltaf að bæta við reynsluna og þannig verður mað- ur sterkari. Auðvitað má samt alltaf gott bæta og að því verður stefnt í framtiðinni." - Hvaða væntingar voru gerðar til KA-liðsins í upphafi tímabils- ins? „Við unnum tvö æfingamót í upphafi þess og þau gáfu kannski einhverja visbendingu um fram- haldið. Við pössuðum okkur á því að gera ekki neinar væntingar, ákváðum að gera okkar besta. Það tókst ekki í byrjun í deildinni en upp úr miðjum nóvember fór allt að smella saman. Við sáum þá að það var raunhæfur möguleiki að stefna hátt og það gerðum við leynt og ljóst.“ - Þú ert ungur að árum og kom- inn í fremstu röð hér á landi. Hvaö ertu búinn að leika handbolta lengi? „Þetta er kannski spuming sem mamma ætti að svar við. Ég æfði með KR frá níu ára aldri til tólf ára aldurs, skipti síðan yfir í Gróttu og fór til KA þegar ég var 19 ára gamall. Á sínum tíma velti ég því mikið fyrir mér hvort hand- boltinn eða fótboltinn yrði fyrir valinu. Fótboltinn vék hægt og bít- andi til hliðar og þegar ég var val- inn í meistaraflokk hjá Gróttu varð ekki aftur snúið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.