Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Page 5
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001
21
Paul Ince og félagar hans hjá Middlesbrough tóku til sín 90% af veltu félagsins í formi launa á keppnistímabilinu 1999-2000. Petta háa hlutfall launa miöað
viö veltu gerði það að verkum að Middlesbrough tapaöi 2,4 milljörðum króna á umræddu keppnistímabili. Reuters
Fjármál enskra úrvalsdeildarliöa keppnistímabilið 1999-2000:
í tap samanlagt hjá liðunum 20 en aðeins sjö þeirra skiluðu hagnaði
Alþjóðlega endurskoðunar og ráð-
gjafarfyrirtækið Deloitte & Touche
gefur á hverju ári út skýrslu um
fjármál enskra úrvalsdeildarliða.
Nú fyrir skömmu kom út skýrsla
fyrirtækisins sem nær yfir keppnis-
tímabilið 1999-2000 og er þar margt
athyglisvert að sjá.
Enska úrvalsdeildin hefur náð
gífurlegri útbreiðslu á siðustu ár-
um. Það er varla til það land í heim-
inum sem ekki sýnir beint frá leikj-
um þaðan og það ásamt tilkomu
Netsins hefur gert hana að vinsæl-
ustu og aðgengilegustu deildar-
keppni í heimi.
Veltan jókst um 15%
Peningastreymið í deildina hefur
aldrei verið meira, velta félaganna
20 var 108 milljarðar króna keppnis-
tímabilið 1999-2000 sem er 15%
aukning frá fyrra ári. Þar vógu
þyngst auknar tekjur af sjónvarps-
réttindum, þær jukust um 23% og
hafa aukist um tæplega 450% síðast-
liðin fimm ár. Ekki sér fyrir endann
á þessari tekjulind þvi nú standa yf-
ir samningaviðræður á milli félags-
skapar þess sem stjórnar ensku
deildarkeppninni og sjónvarps-
stöðva sem vilja gjarnan tengjast
þessari vinsælu deild. Búið er að
skrifa undir þriggja ára sjónvarps-
samning sem hljóðar upp á rúma
180 milljarða króna. Ekkert lið í úr-
valsdeildinni ætti að bera skarðan
hlut frá því veisluboröi.
Þrátt fyrir þessar fáránlega háu
upphæðir gengur rekstur liðanna
misvel. Sum lið eins og Everton
hafa tapað meira en þremur millj-
örðum á siðustu tveimur árum en
önnur lið eins og Arsenal og
Manchester United mala gull.
Upp úr öllu valdi
Launakostnaður liða í deildinni
hefur hins vegar farið upp úr öllu
valdi. Hann hefur sjöfaldast siðan
keppnistímabilið 1991-1992 og hafa
nokkur félög sett sig í fjárhagsvand-
ræði vegna of mikils launakostnað-
ar.
Sérfræðingar Deloitte & Touche
hafa komist að þeirri niðurstöðu að
launakostnaður liða megi ekki vera
meira en 2/3 af veltu félagsins, þá sé
skollið á hættuástand.
Helmingur liðanna í úrvalsdeild-
inni er yfir þessum mörkum og aö-
eins tvö þeirra, Liverpool og
Leicester, skiluðu hagnaði á keppn-
istímabilinu 1999-2000. Wimbledon
bar ægishjálm yflr önnur félög hvað
varðar launakostnað sem hlutfall af
veltu því liðið greiddi leikmönnum
sínum 200 milljónum meira í laun
heldur en nam veltu félagsins.
Middlesbrough er einnig með ægi-
legan launákostnað ef miðað er við
veltu og gengi í deildinni og ekki
ljóst hversu lengi Steve Gibson, eig-
andi liðsins, er tilbúinn að ganga á
eigin sjóði þótt digrir séu.
Sjö skila hagnaði
Þrátt fyrir mikla aukningu í veltu
eru það aðeins sjö lið sem skiluðu
hagnaði á umræddu keppnistíma-
bili. Heildartapið hjá liðunum 20
nam um fimm milljörðum króna en
árið á undan skiluðu félögin tveggja
milljarða króna hagnaði. Launa-
kostnaður jókst um 20% á milli ára
auk þess sem kostnaður vegna leik-
mannaskipta (35,7 milljarðar) og
breytinga og viðhalds á völlum (19,7
milljarðar) hafa aldrei verið meiri.
Eyðsluklær
Forráðamenn félaga í ensku úr-
valsdeildinni hafa farið mikinn á
leikmannamörkuðum undanfarin
fimm ár. Alls hafa félögin tuttugu
eytt 154 milljörðum króna í leik-
menn á þessu tímabili, þar af 35,7
milljörðum á síðasta keppnistima-
bili. Þar af var 21 milljarði varið til
leikmannakaupa utan Englands, 7,5
milljörðum í kaup á leikmönnum
innan ensku úrvalsdeildarinnar og
7,2 milljörðum i leikmenn úr neðri
deildum Englands. Liðin í ensku úr-
valsdeildinni seldu leikmenn út fyr-
ir landsteinana fyrir 5,8 milljarða og
keyptu fyrir 21 milljarð. Mismun-
inn, 15,2 milljarða, er hægt að túlka
sem „viöskiptahalla", þ.e. úrvals-
deildarfélögin eyða meiru í erlenda
leikmenn en þau fá fyrir sölu á eig-
in leikmönnum til félaga utan Eng-
lands. Þetta hefur skilað sér í sterk-
ari liðum en jafnframt aukið mjög
fjárhagsbagga liðanna.
-ósk
Enskir velta mestu
- samanborið við aðrar deildarkeppnir
Enska úrvalsdeildin veltir meiru
heldur en nokkur önnur deildar-
keppni í Evrópu. Liðin í henni veltu
eins og áður hefur komið fram 108
milljörðum króna keppnistímabilið
1999-2000.
Á sama tímabili veltu liðin í
ítölsku 1. deildinni „aðeins“ 92,9
milljörðum, liðin í spænsku 1. deild-
inni 56,6 milljörðum og liöin í
frönsku 1. deildinni 52,6 milljörðum.
Tekjur vegna sjóvarpsréttar hafa
aukist jafnt og þétt á Ítalíu, Spáni
og í Frakklandi og þýöing þessara
tekna fyrir liöin verði sífellt
mikilvægri en deildirnar þar eiga
samt sem áður langt í land með að
ná því sem ensku úrvalsdeildarlið-
in fá fyrir sinn snúð þegar sjón-
varpsrétturinn er seldur í
Englandi. -ósk
Arangur í launaumslagi
- sterk fylgni á milli hárra launa og góðs árangurs
Það er athyglisvert að skoða
fylgnina á milli árangurs í deild og
kostnaðar vegna launa hjá enskum
úrvalsdeildarliðum.
Ef síðustu fimm ár í ensku úr-
valsdeildinni eru skoðuð kemur I
ljós að mjög há fylgni (0,72) er á
milli góös árangurs í deild og mik-
ils launakostnaðar. Þessar upplýs-
ingar ættu að sefa forráðamenn
þeirra félaga sem borga há laun
nokkuð samanborið við þá sem
fara hamfórum á leikmannamark-
aðnum því lítil fylgni er á milli ár-
angurs i deild og kostnaðar vegna
leikmannakaupa (0,45). Forráða-
menn Tottenham koma sérlega illa
út úr þessum tveimur könnunum.
Þeir borga há laun, eyða miklu í
leikmannakaup en uppskera lítið í
formi árangurs inni á vellinum.
-ósk
Sport
Enska úrvalsdeildin
1999-2000
Liö meö mestu veltu
1. Man. Utd . . 16,4 milljaröar króna
2. Chelsea . . .. 10,7 milljarðar króna
3. Arsenal ... . 8,6 milljarðar króna
4. Leeds . 7,9 milijarðar króna
5. Tottenham . . 6,7 milljarðar króna
6. Liverpool . . . 6,5 milljarðar króna
7. Newcastle . . . 6,3 milljarðar króna
8. Sunderland . . 5,2 milljarðar króna
9. Aston Villa 5,1 milljarður króna
10. West Ham . . 4,9 milljarðar króna
11. Everton . . . . 3,9 milljaröar króna
12. Middlesbr. . 3,8 milljarðar króna
13. Leicester . . . 3,6 milljarðar króna
14. Derby .... 3,1 milljarður króna
15. Bradford . . 2,9 milljarðar króna
16. Coventry . . 2,8 miiljarðar króna
17. Sheff. Wed. 2,5 milljarðar króna
18. Watford . . 2,4 milljaröar króna
19. Southampt. 2,3 milljarðar króna
20. Wimbledon 2,1 milljarður króna
Lið meö mestan gróöa
1. Arsenal . . . 2,9 milljarðar króna
2. Man. Utd .. 2,4 milljarðar króna
3. Watford .. . . . 553 milljónir króna
4. Liverpool .. . 314 milljónir króna
5. Leeds . 174 milljónir króna
6. Leicester . . . .. 86 milljónir króna
7. Sunderland . . . 59 miUjónir króna
8. Tottenham . -106 milljónir króna
9. West Ham . -294 mUljónir króna
10. Wimbledon -366 miUjónir króna
Liö meö mest tap
1. Newcastle . . -2,6 miUjaröar króna
2. Middlesbr. . -2,4 miUjarðar króna
3. Everton .... -1,6 mUljarðar króna
4. Coventry . . -914 miUjónir króna
5. Aston Villa -679 miUjónir króna
6. Derby -592 milljónir króna
7. Chelsea . . . —483 milijónir króna
8. Southampt. -479 milljónir króna
9. Bradford . . -407 mUljónir króna
10. Sheff. Wed. -368 milljónir króna
Liö sem borguðu hæstu
launin
1. Chelsea . . . 6,6 milijarðar króna
2. Man. Utd . . 6,3 miUjarðar króna
3. Liverpool . . 5,6 mUljarðar króna
4. Arsenal . . . 4,7 mUljarðar króna
5. Newcastle . . 4,1 mUljaröur króna
6. Leeds 3,9 miUjarðar króna
7. Tottenham . 3,7 mUljaröar króna
8. West Ham . 3,5 miUjaröar króna
9. Middlesbr. . 3,4 milljarðar króna
10. Everton . . 3,1 miUjarður króna
Mesta hlutfailslega aukning
launa undanfarin 4 ár
1. Wimbledon . 720%
2. Chelsea . . . . 410%
3. Sunderland . 398%
4. Derby 312%
5. West Ham .. 305%
6. Middlesbr. . . 283%
7. Leicester . . . 275%
8. Arsenal .... 238%
9. Man. Utd. . . 237%
10. Southampton 236%
Hæsta hlutfall launa af veltu
1. Wimbledon . 109%
2. Middlesbr. . 90%
3. Liverpool . . 86%
4.-5. Southampt 81%
4.-5. Derby . . . 81%
6. Sheff. Wed. . 80%
7.-8. Everton . 79%
7.-8. Coventry . 79%
9. Leicester . .. 78%
10. West Ham . 70%
Besta áhorfendasókn
(að meðaltali)
1. Man. Utd. .. 58.017 manns
2. Liverpool . . 44.074 manns
3. Sunderland .
4. Leeds 39.155 manns
5. Arsenal .... 38.033 manns
6. Newcastle . . 36.311 manns
7. Tottenham . 34.902 manns
8. Everton .... 34.880 manns
9. Chelsea .... 34.531 manns
10. Middlesbr. . 33.263 manns
Velta á hvern áhorfenda
1. Chelsea ....
2. Man. Utd . . . 254.100 krónur
3. Arsenal .... 189.280 krónur
4. Leeds 166.180 krónur
5. Tottenham . 160.860 krónur
6. West Ham . . 155.960 krónur
7. Newcastle . . 145.460 krónur
8. Leicester . . . 127.820 krónur
9. Aston Villa . 122.640 krónur
10. Bradford . . 115.080 krónur