Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Page 6
22 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 Sport DV ÍMB&tr «* '*i mmí - P: ■'PAp I 1 , í :3 ÍHH Islandsmeistn uröu Selfyssil Grindavík f un ovœnTSg gei fyrir og kla spennandi úr* m l'gmr '1 Selfyssingar unnu - toppuðu á hárréttum tíma og spiluðu liða best í úrslitum íslandsmótsins í 10. flokki karla Selfoss eignaðist íslandsmeistara þegar 10. ílokkurinn gerði sér lítið fyrir og sigraði óvænt bæði Grinda- vík í undanúrslitum og síöan Njarð- vík í úrslitum. Þessi árgangur hjá Selfossi hefur verið sterkur undan- farin ár en þetta árið þótti liðið ekki líklegt til afreka. En það toppaði á hárréttum tima og átti tvo mjög góða leiki sem tryggðu því íslandsmeist- aratitilinn. í undanúrslitum mættu Selfyssingar Grindavík og unnu þeir þá örugglega með 17 stiga mun, 62-45. í hin- um undanúrslitaleikn- um mættust Njarðvík og íslands- og bikar- meistarar Fjölnis. Einar að gera góöa hluti með Njarövík Þessi tvö lið mættust í úrslitum í fyrra og þar hafði Fjölnir betur og tryggði sér síðan bikar- inn fyrr í vetur. En Njarðvíkingar komu á óvart og unnu Fjölni, 73-68, í hörkuleik. Þar með var ómögulegt að spá í sjálfan úrslitaleik- inn þar sem fáir reikn- uðu með þessum tveim- ur liðum. Þetta er ann- að árið í röð sem Einar Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, fer með sína stráka í úrslit og verður það að teljast frábær árangur þar sem hans strákar voru ekki líklegir til afreka fyrir tveimur árum. Selfoss byrjaði leikinn betur og hafði undirtökin í fyrri hálfleik. Staðan i hálíleik var 32-29 fyrir Sel- foss og byrjaði liöið af miklum krafti i seinni hálfleik. Það komst mest 10 stig yfir, 53-43, en þá tóku Njarðvík- ingar sig saman í andlitinu og gerðu 13 stig í röð og breyttu stöðunni í 53-56. Þarna virtust Njarðvíkingar vera að hafa þetta en Ragnar Gylfa- son jafnaði með þriggja stiga körfu og við tóku æsispennandi lokamínút- ur. Það fór síðan þannig að Selfoss reyndist sterkari aðilinn í restina og þegar lokaflautið gall var fógnuður leikmanna liðsins gífurlegur enda ekki á hverju ári sem lið frá Selfossi hampar íslandsmeistaratitli. Engin þreytumerki Það mæddi mikið á leikmönnum Selfyssinga þar sem aðeins 7 eru í liðinu og einn spilar nánast ekkert. Það virtist ekki há þeim leikmönn- um í lokin sem spiluðu allan leikinn því þeir spiluðu best á lokakaflan- um. Ragnar Gylfason var besti leik- maður liðsins i þessum leik og var drjúgur á lokakaflanum. Hann gerði flmm þriggja stiga körfur og þar á meðal jöfnunarkörfuna sem var sú mikilvægasta. Hjá Njarðvík voru Jóhann Ólafs- son og Torfi Gíslason bestu menn liðsins en Jóhann er að spila upp fyr- ir sig með þessum flokki. Torfi barð- ist vel undir körfunni og var sterkur í fráköstunum en lykilmenn liðsins fram að þessu áttu ekki góðan dag að þessu sinni. Stig Selfoss: Ragnar Gylfason 24 (5 3ja stiga körfur, 6 fráköst, 4 stoðs.), Karl B. Lúðvíksson 13 (8 fráköst, ívar F. Hafsteinsson 12 (8 fráköst), Bjarni Bjamason 12 (8 fráköst, 6 stoðs., 2 varin), Guömundur Stein- þórsson 2. Stig Njarðvíkur: Jóhann Ólafs- son 18 (13 fráköst, 6 stoðs., 2 varin), Helgi Már Guðbjartsson 14, Jónas Ingason 10, Torfl Gíslason 9 (12 frá- köst, 2 varin), Sigurður Ingólfsson 7, Kristján Sigurðsson 2. -BG Guömundur Steinþórsson, leikmaöur 10. flokks Selfoss, er hér ásamt bróöur sfnum, Inga Þór Steinþórssyni, þjálfara meistaraflokks KR. DV-mynd BG Umsjón: Benedikt Guðmundssi Ragnar Gylfason fyrirliöi tekur hér á móti bikarnum fyrir hönd liðsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.