Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Síða 7
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 23 DV Sport Alexander Ermolinski, leikmaður og þjálfari Skallagríms hlaðinn verðlaunum frá DV-Sporti: Lífsstarf mitt - Ermolinski valinn þjálfari ársins hjá íþróttafréttamönnum DV-Sports, auk þess sem hann varði flest skot og hitti best úr þriggja stiga skotum Alexander Ermolinski, leikmaöur og þjálfari Skallagríms, er á 42. ald- ursári en stendur samt uppi með þrenn verðlaun i lok Epsondeildar- innar. Ermolinski var valinn besti þjálfari ársins af blaðamönnum DV- Sports og sem leikmaður náði hann í tvenn einstaklingsverðlaun, varði flest skot og hitti best úr þriggja stiga skotum af öllum íslenskum leikmönnum Epsondeildarinnar. Ermolinski, sem er íslenskur rík- isborgari, kom fyrst hingað til lands árið 1992 og lék þá íjögur ár í röð með Skallagrími áður en hann gekk til liðs við Skagamenn þar sem hann þjálfaði og lék í þrjú ár. Síðan lá leiöin til Grindavíkur þar sem hann lék síðasta tímabil en i fyrra gekk hann aftur til liðs við Skalla- grím þar sem hann þjálfaði liðið og lék með því með frábærum árangri. Aöeins fimm leikmenn í æfingahópnum í upphafi Að sögn Ermolinskis, sem er fæddur og uppalinn í Rússlandi, var hann nokkuð ánægður með ár- angurinn í vetur. „Miðað við stöð- una i upphafí tímabilsins var þetta mjög góður árangur en okkur hafði verið spáð fallinu. Ég hafði ekki úr miklu að spila á undirbúningstím- anum og var i upphafi með aðeins fimm menn í æfmgahópnum. í sept- ember bættust svo ungu strákamir í hópinn, auk þess sem við fengum þá Peebles og Tomilovski til liðs við okkur. Ég sagði við strákana í upp- hafi að við þyrftum að vinna tvo af fyrstu þremur leikjunum til að þetta gengi upp hjá okkur og það tókst. Við töpuðum reyndar illa gegn Þór á Akureyri í fyrsta leiknum en unn- um svo tvo næstu gegn Val og KFÍ. Síðan fylgdu fimm tapleikir i kjöl- farið þannig að staðan var orðið nokkuð erfið. Þá náðum við okkur aftur á strik og unnum tvo af síð- ustu þremur leikjunum fram að ára- mótum, gegn ÍR og Hamri, og það gaf okkur aukið sjálfstraust. Það var síðan mikill styrkur að fá Hlyn Bæringsson til liðsins um áramótin en hann átti stóran þátt í velgengni okkar í upphafi ársins en þá unnum við fjóra leiki í röð og tryggðum okkur góða stöðu fyrir lokaátökin, sem fleytti okkur inn í úrslita- 3ja stiga skotnýting Alexander Ermolinski, Skallagr. . 49,2% hitti úr 32 af 65 skotum Lárus Dagur Pálsson, Tindastóli. . 44,2% hitti úr 42 af 95 skotum Hermann Hauksson, KR ...44,1% hitti úr 26 af 59 skotum Guðlaugur Eyjólfsson, Grindavik. 41,7% hitti úr 63 af 151 skoti Ólafúr Jón Ormsson, KR..41,1% hitti úr 69 af 168 skotum Magnús Þ. Gunnarsson, Keflavík. 40,7% hitti úr 44 af 108 skotum Bragi Magnússon, Haukum...40,3% hitti úr 31 af 77 skotum Logi Gunnarsson, Njarövik.39,3% hitti úr 46 af 117 skotum Efsti erlendur leikmaður: Brenton Birmingham, Njarðvík .. 43,4% hitti úr 49 af 113 skotum keppnina. Við þurftum virkilega að hafa fyrir þessu en með góðum stuðningi og mikilli baráttu tókst okkur það sem fæstir áttu von á í upphafi leiktíðarinnar. Auðvitað háði það okkur hvað hópurinn var fámennur í upphafi og það kom reyndar í veg fyrir að við gætum spilað alla leikina af fullum krafti. En við ætluðum að sanna okkur og með mikilli baráttu tókst það.“ Veöur áfram í Borgarnesi næsta vetur Að sögn Alexanders verður hann áfram hjá Skallagrími næstu leik- tíð. „Við erum þegar með eina sex heimamenn sem allir verða með í liðinu næsta vetur og ég vona að við getum styrkt okkur enn meira. Við verðum að gera mun betur en í fyrra til að halda okkur á sama plani og til þess þurfum við fleiri leikmenn. Öll liðin eru að styrkja sig og það þurfum við líka að gera til að dragast ekki aftur úr.“ Aðspurður um það hvort hann mundi sjálfur leika áfram með lið- inu næsta vetur, sagðist hann ekki hafa ákveðið það enn þá. „Ég mun meta það út frá stöðunni og ef það er betra fyrir liðið mun ég spila áfram. Á meðan ég styrki liðið er ég tilbúinn og ég geri mér fulla grein fyrir því að okkur veitir ekki af hæðinni. Ég fann mig vel í vetur og get þess vegna vel hugsað mér að spila áfram næsta vetur og tel reyndar mjög liklegt að ég geri það.“ Körfuboltinn er lífsstarf mitt Þegar Ermolinski var spurður um framtíðaráformin sagðist hann stefna að því að starfa áfram við þjálfun. „Ég lít fyrst og fremst á mig sem atvinnumann í körfuboltanum og það er reyndar lífsstarf mitt. Ég þekki reyndar lítið annað, enda byrjaöi ég mjög ungur í boltanum heima í Rússlandi og hef verið í at- vinnumennsku frá átján ára aldri. Ég gæti vel hugsaö mér að hverfa aftur heim til Rússlands í einhver ár og reyna þar fyrir mér sem þjálf- ari í atvinnumennskunni. Annars líöur mér vel hérna á íslandi og sama er að segja um konuna mín. Ég á því frekar von á að ég dvelji áfram hér á landi og þá vonandi við þjálfun. En ég væri þó alveg tilbú- inn að breyta aðeins til, en þá þá að- eins í einhver ár og koma svo aftur heim til íslands. -EK/ÓÓJ Varin skot Alexander Ermolinski, Skallagr. 1,32 Hjalti Pálsson, Hamri..........1,23 Óðinn Ásgeirsson, Þór, Ak.....1,23 Jón N. Hafsteinsson, Keflavík . .1,21 Magni Hafsteinsson, KR ........1,19 Hjörtur Þór Hjartarson, Val . . . 0,94 Sigurður Þorvaldsson, ÍR ......0,73 Eyjólfur Jónsson, Haukum .... 0,68 Skarphéðinn Ingason, Hamri .. 0,64 Efstu erlendu leikmenn: Calvin Davis, Keflavik ........3,41 Mike Bargen, Haukum ...........2,59 Bryan Hill, Val................2,47 Michail Antropov, Tindastóli . . 2,32 Shawn Myers, Tindastóli .......2,10 Cerdick Holmes, ÍR.............1,64 Alexander Ermolinski var valinn besti þjálfari ársins hjá DV-Sporti og sem feikmaður náði hann í tvenn einstaklings- verðlaun, fyrir flest varin skot og bestu þriggja stiga hittni. DV-mynd ÞÖK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.