Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 12
28
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001
Sport
DV
Stelpurnar eru byrjaöar aö undirbúa sig fyrir kvennahlaupiö sem fer fram 16. júní nk. Pessi hópur á vegum íþrótta fyrir alia kom saman í fyrsta skipti í síöustu viku.
DV-myndir Hari
Nokkrar konur farnar aö hita upp fyrir kvennahlaupið:
Hlaupa hver á
sínum forsendum
Þó að kvennahlaupið sé ekki fyrr
en 16. júní eru konur þegar famar að
huga að því. íþróttir fyrir alla standa
að þessu hlaupi og eru samtökin nú
búin að setja saman sérstakan skokk-
hóp fyrir konur 1 tilefni af þessum
viðburði.
Hópurinn kom fyrst saman í síð-
ustu viku og þar fara konurnar í létta
þjálfun undir leiðsögn til þess að
koma sér í aðeins betra form fyrir
stóra daginn.
Gígja Gunnarsdóttir hjá íþróttum
fyrir alla segir markmiðið með
kvennahlaupinu í raun það að vekja
konur til umhugsunar um heilsu og
hreyfingu. „Þessi hópur er í raun og
vera liður í því. Þarna er verið að fá
konur til að koma sér af stað og byrja
að hreyfa sig.
Margar konur geta ekki haft sig út
í að fara inn á líkamsræktarstöðvar
eða almenna skokkhópa en við töld-
um að þetta væri þá kjörinn vettvang-
ur fyrir þær að koma sér í gang. Ég
veit um margar konur sem hafa byrj-
að að hreyfa sig reglulega í kjölfar
kvennahlaupsins."
Gígja segir kvennahlaupið líka tO-
valið fyrir allar konurnar í fjölskvld-
unni. „Það sem er kannski það besta
við hlaupið er að það getur verið mjög
fordæmisgefandi. Rannsóknir sýna
t.d. að það sé mjög sterkur aflvaki fyr-
ir ungar stúlkur ef mæður þeirra
hreyfa sig og það er einmitt algengt í
kvennahlaupinu að mæður og dætur
hlaupa saman og ömmumar koma
jafnvel með líka. Þetta gefur mjög sér-
staka og skemmtilega stemningu."
Gígja segir einnig áberandi að kon-
ur séu mjög jákvæðar gagnvart hlaup-
inu. „Einn góður kostur er að það er
engin tímataka, allar fara á sínum
hraða og þetta er í raun engin keppni.
Þær fara bara í þetta hlaup hver á sín-
um forsendum."
Að sjálfsögðu eru allar konur hvatt-
ar til að taka þátt í kvennahlaupinu
til að kynnast þeirri einstöku stemn-
ingu sem þar ríkir.
-HI
Námsflokka-
hlaupiö:
Tíu ára af-
mælishlaup
Námsflokkahlaup verður
þreytt næstkomandi laugardag,
19. maí. Þetta er afmælishlaup í
tilefni af því að tíu ár eru liðin
síðan skokkhópur á vegum
Námsflokka Reykjavikur tók til
starfa. Þetta afmælishlaup fór
síðast fram fyrir fimm árum.
Keppt verður í sex aldurs-
flokkum í báðum kynjum og fá
þrír fyrstu í hverjum flokki verð-
laun. Hlaupið er 10 kílómetra
langt meö tímatöku. Það hefst kl.
13 við Miðbæjarskólann.
Nánari upplýsingar veitir Pét-
ur Frantzson i símum 551-4096 og
898-9902.
-HI
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir dreif sig út eftir barnsburö:
Erum allar saman í þessu
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir er ein af þeim sem skellti sér í
þennan skokkhóp og er farin að æfa fyrir kvennahlaupið. Hún
átti stúlku fyrir sex mánuðum og er nýkomin úr bamsburðarleyfi
í kjölfar þess. „Ég var staðráöin í að fara af stað eftir að bams-
burðarleyfínu lauk. Þetta er góð leið til að komast út, fá ferskt loft
og hitta fólk. Við erum allar saman í þessu sem er frábært,“ seg-
ir hún og bætir því að við það sé alls ekki ólíklegt að litla stelp-
an fái að fljóta með í kerrunni í kvennahlaupinu.
Hrafnhildur hefur hlaupið kvennahlaupið í nokkur skipti áður.
„Það er alltaf gaman að vera með. Allar konumar þátt í því á sín-
um forsendum og hlaupa eftir sinni getu. Þama geta allir verið
með, hvort sem þeir fara hægt eða hratt eða reyna að ná ein-
hverju sérstöku markmiði.“
Þegar Hrafnhildur var spurð hvort hún hefði hreyft sig reglu-
lega fyrir harnsburðinn sagði hún: „Maður gerði eitthvað í ein-
hvem tíma, sneri sér svo að einhverju öðru seinna. Það var
kannski ekki mikil regla á þessu en maður reyndi alltaf að gera
eitthvað.“
Hrafnhildur er landfræðingur og vinnur við að gera kort. Hún
þarf því töluvert að sitja kyrr í vinnunni. „Það er þess vegna mjög
gott að komast út og hreyfa sig þegar maður situr annars á rass-
inum allan daginn,“ sagði Hrafnhildur að lokum.
-HI
Skokkiö er góö leiö til aö komast út, fá
ferskt loft og hitta fólk. Allir geta verið
meö, hvort sem þeir fara hægt eöa hratt.