Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001 29 DV Sport Skotinn David Couitard sæll á svipinn eftir sigurinn í formúlunni sem fram fór í Austurríki í gær. Petta var annar sigur kappans á árinu. Reuters Austurríski kappaksturinn á Al-ring - rændi sigrinum úr greipum Ferrari í formúlunni í gær Skotinn David Coulthard vann sína aðra keppni á árinu með stórglæsileg- um akstri á Al-ring kappakstursbraut- inni í Austurríki í gær. Eftir að hafa ræst keppnina á sjötta rásstað barðist hann alla keppnina og var að lokum kominn í hörkubaráttu við báða Ferrari-ökumennina. Skotinn fór síðastur allra inn á þjónustusvæðið eftir eldsneyti og dugði það honum til sigurs og hann fékk tíu dýrmæt keppnisstig i baráttunni um meist- aratitilinn við Michael Schumacher sem kom annar i mark eftir að félagi hans Rubens Barrichello „gaf ‘ hon- um eftir sæti sitt. Brasilíumaðurinn kom því þriðji í mark á undan Kimi Raikonen, Oliver Panis og Jos Ver- stappen. Eftir sigur Coulthards er sigakeppnin einskorðuð við hann og Michael Schumacher sem hefm' ekki nema fjögurra stiga forskot á McL- aren ökumanninn sem er kominn með 38 stig. Keppnin fór ekki vel af stað fyrir Mika Hakkinen en hann sat eftir í ræsingunni ásamt báðum Jordan ökumönnunum Jamo Trulli, H-H Frentzen og Nick Heidfeld. Það mátti þakka fyrir að ekki hlaust stórslys af er aðrir ökumenn flugu fram hjá á öðru hundraði. Ráspólsmaðurinn Michael Schumacher var líka í vand- ræðum og átti slaka ræsingu og báð- ir Williams-bílamir að sama skapi mjög góða og tóku forystuna á eftir öryggisbílnum sem kallaður var út í kjölfar vandræðanna í ræsingunni. Fljótlega eftir að keppnin fór af stað aftur var Ijóst að Raif Schumacher, sem var þá í öðra sæti, átti í vand- ræðum með bíl sinn og féll út á XX hring eftir bilun i bremsubúnaði. Bróðir hans tók þá við stöðunni á eftir Juan Pablo Montoya sem leiddi keppnina. Ferrari-bfllinn var mun fljótari og á 16. hring reyndi Schumacher framúrakstur á Montoya sem gaf ekkert eftir og end- uðu báðir utan brautar. Við það tók Rubens Barrichello forystuna með David Coulthard á hælunum en hann hafði ræst á sjöunda rásstað og unnið sig hægt og rólega upp eftir góða ræsingu og bflanir annarra. Schumacher og Montoya féliu niður í 7. og áttunda sætið eftir byltuna. Eftir að Michael Schumacher hafði „étið“ upp næstu andstæðinga sem fóru ekki eins ifla með hann við framúraksturinn og Montoya, var hann kominn á hæla forystumann- anna Rubens og Davids og aðeins spuming um keppnisáætlanir lið- anna. McLaren gat einbeitt sér að Coulthard á meðan Ferrari hafði tvo ökumenn til að hugsa um. Fyrstur inn af tríóinu var Schumacher á 46. hring og kom Barricheflo inn í kjöl- farið á næsta hring. Þetta færði Coulthard forystuna á léttum bfln- um og tók hann nokkra hraða hringi og tók ekki eldsneyti fyrr en á 50. hring. Það dugði honum og hann hélt fyrsta sætinu og sigurinn var í seilingu. Rubens Barricheflo hafði mistekist að krækja í sigur sem hann hafði full tök á að taka en klækindi McLaren liðsins bára hann ofurliði. Rubens hafði annað sætið en aðeins um sinn. Á síðasta hring um það leyti sem David Coulthard sker endalínuna hægir Brasilíumað- urinn ferðina og „gefur“ félaga sín- um annað sætið og styrkir hann þar með í stigabaráttunni við Coulthard sem virðist vera hreint óstöðvandi um þessar mundir. Stigakeppnin er strax orðin það hörð að Ferrari-liðið sér sér ekki fært annað en að biðja Rubens um að gefa eftir og ekki er ósennilegt að McLaren verði að fara að taka upp svipað hugarfar í næstu keppnum því Mika Hakkinen er þvi næst kominn út af blaðinu sem keppinautur um heimsmeistaratitil- inn. Það bendir allt til þess að þeir Michael Schumacher og David Coulthard berjist hatrammlega um heimsmeistaratitflinn næstu eflefu keppnir. Næsta keppni verður háð á götum Monte-Carlo í Mónakó þann 27. maí. -ÓSG Þrír efstu veifa til áhorfenda af verðlaunapallinum í gær. Reuters Bensín- dropar Wú'ZÍ/ams-ölpfmaðurihn Juan Pablo Moritoya. sem íejddi keppn- ina eftir/fyrsta hring en ffell svo niö- ur i það sjöunda eftir árekstur viö Michael Schumacher, varð aö játa sig Sigraðan eftir vökvakerfisbilun í bíl itans á 42. hring. Eftir keppnina vildi hann meina að það sem kóm lyrir á milli hans og Schumachers hefði bara verið kappakstursóhap] tnn bremsaði frekar seint, ég breinsaði lika seint, læsti afturhiol- ununt og rann til.“ Þeir lentu baðir utan brautar en Schumache/ var ekki einSAjtægur með atvi „Hann var ekki að fylgjast með því hvert hann var að fara, heldur var hann að fylgjast iueð þvi hvert ég var að fara,“ sagði Sdiumacher eft- ir keppnina í gæt. Hahhyildi meina að keppnin á milli þeirra þefði ver- ið réttlát fram að atvikinu. Jordan-ljðið átti ekki sæludag í gær þráft fyrir að helgin lieföi ekki í heiWina verið svo slæm. Jari Trulli, sem ræsti fimmti, komsi ekki/af stað því ræsibúnaður, sei leyfður var í Formúlu 1 bílunum fráj og með síðustu keppni, virkaði ekkil Honum var ýtt inn á þjónust svæð'ið þar sem hann mátti ræsa rauð ljps loguðu á útleið svæðisíhs og fyrir það fékk hann svart Jlagg. Það þýðir banjrúrjtepi Frentzen var einn þeirra sem varö eftir í ræsingunnj og var orsökin brotinn girkassÉMlika Hakkinen og Nick Heidfeld ientu í svipuðum vandræðum og Jarno Trulli er ræsibúnaðurinn virkaðisekki. Báðir fóru aí'tur af stað en Mika hætti skörpmu siðar en billinn\irkaði ekkfsem skyldi. „Erfiöleikar Mika í raísingunni voru vandræöi hieð rgesibúnaðinn. Eigum við ekki að ia eitthvað á milli búnaðarins ög Ökumanns,” sagði Adrian Newej iknistjóri McLaren, um atvikið ot :efur vísbendingu um að Hakkinon ifi sjálfur gert mistök. Sauber- ökumaðurinn Heidfeld kláraði t’ní- unda sæti, tveim hringjum á'eftir Coutthard. Arrows-liöió féklTsitt fyrsta stig á keppnistíðinni er ökumaður þeirra Jos Verstappettcéflérabi i sjötta sæti á tveggja-stoppa áætlun. Þetta var hans jjo: keppnii í F1 og var hann að/vonum ánægður með ár- angur sinn. „Ég verð að segja að ég naut þess sannarlega að áka þessa kepphi, sérstaklega í upphafi þar serh ég elska það að aká gegn „tópp“-ökumönnunum,“ sagði\ Ver- stáppen i gær og hann vonaði að jtetta yrði fyrsta stigið af mörgiim í „Þtrrt hlýtur aö hafa verið gaman að Tylgjast með þessari keppni,“ sagði'Jiavid Coulthard við blaða- menn eft'ir keppnina í gatr en hann sagðist í það~nrmnSfa hafa notið þess að aka keppnina. „Við hófum keppnina á talsvert þungum bíl til að gefa okkur moguleika á sveigjan- leika í keppnisájBtlún. Það þýddi að ég gat verið fjóíum hringjum lengur úti en Schumacher og þremur hringjum lengur en Bavrichello áður en ég fór inn i stoppið mitt.“ Michale Schumacher kiáraði ann- ar oa sagðist ánægður með félaga sinry sem hleypti honum í anhað sætið sitt. „Það er greinilegt að ejft- ir að Hakkinen kláraði ekki mun McÉaren einbeita sér að Davitj í meistarakeppninni,“ og viðurkenn- ir aö Skotinn komi til með að yerða aöalkeppinautur hans. " ÓSG Úrslitin í Austurríki 1. David Coultrad .. . . . 1:27,45,927 2. Michael Schumacher . 1:27,48,118 3. Rubens Barrichello . 1:27,48,455 4. Kimi Raikkonen . . . 1:28,27,521 5. Oliver Panis . 1:28,39,703 6. Jos Verstappen . . . hring á eftir Staða ökumanna (stig) 1. Michael Schumacher 42 2. David Coultrad . . . . 38 3. Rubens Barrichello . 18 4. Ralf Schumacher ... 12 5. Nick Heidfeld 8 6. Jarno Trulli 7 Staða ökuliðanna 1. Ferrari 60 2. McLaren 42 3. Willaims 18 4. Jordan 13 5. Sauber 12 6. BAR . 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.