Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Blaðsíða 14
30
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001
Sport
i>v
Hestamolar
íþróttamót Andvara var haldið
um helgina. I barnaflokki sigraði
Bergrún Ingólfsdóttir í tölti á
Muggi frá Kálfholti, Anna G.
Oddsdóttir í fjórgangi og ís-
lenskri tvíkeppni og varð stiga-
hæst á Braga frá Sperðli og Anna
Þorsteinsdóttir í fimi á Krumma
frá Skálatúni. í unglingaflokki
sigraði Halla M. Þórdardóttir á
Regínu frá Flugumýri í fjórgangi
og íslenskri tvíkeppni, Hrönn
Gauksdóttir í tölti á Sikli frá
Stóra-Hofi og varö stigahæst og
Margrét S. Kristjánsdóttir sigr-
aði í fimi á Dreka frá Vindási.
í ungmennaflokki sigraði Bylgja
Gauksdóttir í fjórgangi á Sleipni
frá Garðabæ og tölti á Kolgrímu
frá Ketilsstöðum, Theodóra Þor-
valdsdóttir sigraði í fimi á Feng
frá Eyrarbakka og varö stigahæsti
knapinn, Ingunn B. Ingólfsdóttir
á Kjarna frá Kálfholti í íslenskri
tvíkeppni og Þórunn Hannesdótt-
ir í gæðingaskeiði á Gáska frá
Reykjavík.
f fjórgangi í opnum flokki sigraði
Jón Styrmisson á Adam frá Götu,
Siguroddur Pétursson i tölti og
íslenskri tvíkeppni á Sögu frá
Sigluvík, Arnar Bjarnason í
fimmgangi á Sif frá Glæsibæ og
gæðingaskeiði á Gasellu frá Hafn-
arfirði, Jón Ó. Guðmundsson í
fimi á Röndólfi frá Hnaukum og
150 metra skeiði á Blæ frá Árbæj-
arhjáleigu og Erling Sigurðsson í
250 metra skeiði og skeiðtvikeppni
á Funa frá Sauðárkróki og hann
varð einnig stigahæstur keppenda.
-EJ
Hesta
molar
Sörlamenn í Hafnarfirði héldu opið
íshestamót frá miðvikudegi til fostu-
dags. Keppt var í A- og B-flokki
áhugamanna og atvinnumanna auk
100 og 150 metra skeiði með fljótandi
starti. Keppendur voru flestir innan-
félagsmenn en einnig komu góðir
gestir að prófa hesta sína.
/ A-flokki áhugamanna sigraöi
Sunna frá Syðra-Skörðugili með
knapann Hildu K. Garóarsdóttur. í
A-flokki, opnum flokki, sigraði Þytur
frá Kálfhóli og Elsa Magnúsdóttir
en þau voru einnig valin glæsileg-
asta par mótsins.
í B-flokki áhugamanna sigraöi
Fjarki frá Hafsteinsstöðum og Jó-
hann G. Jóhannsson. í B-flokki,
opnum flokki, sigraði Krummi frá
Geldingalæk og Jón Ólsen. Kolbrá
frá Skarði sigraði í 100 metra skeiði
með fljúgandi starti á 9,41 sek. og var
knapi Eyjóifur Þorsteinsson. í 150
metra skeiði með fljótandi starti
sigruðu Ótta frá Svignaskarði og
Berglind Guömundsdóttir á 13,49
sek.
Þegar einu móti er ólokið af sjö í
Meistaradeild 847 eiga þeir Sigur-
björn Báröarson með 38 stig og
Siguröur Sigurðarson með 37 stig
einir möguleika á sigri í mótinu. Ad-
olf Sncebjörnsson er í þriðja sæti
með 22 stig en fimm knapar eiga
möguleika á þriðja sætinu Veitt
verða peningaverðlaun fyrir þrjú
efstu sætin, 300.000,200.000 og 100.000
krónur, svo til mikils er að vinna.
Sigurbjörn sigraði í tölti á síðasta
mótinu sem var haldið í Reiðhöll-
inni á Oddi frá Blönduósi og fékk 10
stig, Sigurður Siguröarson varð
annar á Fróða frá Miðsitju með 8
stig og Sigurður Kolbeinsson þriðji
á Núma frá Miðsitju með 6 stig. 23.
maí fer fram lokaumferðin og verður
keppt í gæðingaskeiði í reiöhöllinni
á Ingólfshvoli.
Ástgeir Sigmarsson fékk þrjá gull-
peninga í bamaflokki á íþróttamóti
Sleipnis um helgina. Hann stýrði
Fáki frá Hárlaugsstöðum í tölti og
fjórgangi og sigraði einnig í ís-
lenskri tvíkeppni. Freyja A. Gísla-
dóttir fékk einnig þrjá gullpeninga
fyrir sigur í tölti, fjórgangi og is-
lenskri tvíkeppni í unglingakeppni.
Hún keppti á Muggi frá Stangarholti.
Ekki var keppt í ungmennaflokki.
Einar Ö. Magnússon sigraði í tölti
og íslenskri tvikeppni á Glóð frá
Grjóteyri og í gæðingaskeiði á Sif frá
Hávarðarkoti. Olil Amble sigraði í
fjórgangi á Snerri frá Bæ og flmm-
gangi á Ljósvaka frá Akureyri. Sig-
uröur Ó. Kristinsson sigraði í 150
metra skeiði á Röðli frá Norður-
Hvammi og var stigahæsti knapinn.
Páll B. Hólmarsson sigraði í skeið-
tvíkeppni á Frosta frá Fossi.
Enn eru uppi deildar meiningar um
það hvort knapar eigi eða megi
keppa I meistarflokki hafl þeir náð
viðunandi árangri til að keppa í
þeirri deild. Einn knapi var kærður
hjá Fáki fyrir að hafa náð stigum til
að keppa í meistarailokki en hann
keppti í 1. flokki. Fáksmenn töldu að
lög Landssambands hestamanna
tækju ekki alveg af skarið um hvort
knapar væru skyldugir til þess eða
hvort þeh mættu keppa í 1. flokki.
Þetta þarf að komast á hreint.
Geldingum fækkar smám saman i
gæðinga- og íþróttakeppni. Á Reykja-
vikurmeistaramótinu voru stóðhest-
ar mjög áberandi hjá fullorðnu knöp-
unum. Sem dæmi má nefna að í
fimmgangi fullorðinna voru skráðir
til keppni þijátíu hestar og voru að
minnsta kosti tíu stóðhestar þeirra á
meðal og sex hryssur.
Reykjavíkurmeistaramótiö var
opið að þessu sinni. Sennilega verð-
ur þetta mót annað stærsta mót sum-
arsins með tæplega 280 skráningar.
Knapar komu frá ellefu félögum og
fengu sigurvegararnir eðlilega gull-
pening en sá Fáksmaður sem stóð
sig best var Reykjavíkurmeistari í
greininni.
Olíklegt er að Fáksmenn muni
standa fyrir raðkappreiðum i Víði-
dalnum i sumar og haust. Slíkar
kappreiðar eru baggi á félaginu og
erfitt að fá kostnaðaraðila. Það er
spuming hvort annað félag er tilbú-
iö að slá til. -EJ
Pær eru enn ungar en hafa unnið til fjölda verðlauna þær Camiiia P. Sigurðardóttir (Mána), sem fékk fjögur gull á mótinu, og Sara Sigurbjörnsdóttir (Fáki),
margfaldur Reykjavíkurmeistari. DV-mynd Eirikur Jónsson
Reykjavíkurmótið í hestaíþróttum:
Sigurbjörn í ham
Reykjavíkurmeistaramótið í hestaí-
þróttum var opiö að þessu sinni og
varð fyrir vikið eitt stærsta mót sum-
arsins. Það þýddi að Fáksmaður sem
sigraöi í sinni grein fékk tvo titla, ann-
ars vegar sem sigurvegari Reykjavík-
urmótsins og hins vegar sem Reykja-
víkurmeistari. Sigurbjöm Bárðarson
vann sem dæmi sjö guU á mótinu og
fékk um leið sjö gull önnur sem Reykja-
víkurmeistari í sömu greinum. Hann
er greinilega að ná sínum fyrra styrk.
Ef litið er á sigurvegara mótsins
fyrst: í bamaílokki sigraði Camilla P.
Sigurðardóttir (Mána) í tölti, íjórgangi
og islenskri tvíkeppni á Fróöa frá Mið-
sitju og einnig varð hún stigahæst
knapa. I unglingaflokki sigraði Her-
mann Unnarsson (Mána) í fjórgangi á
Mósa frá Múlakoti, Bjamleifur Bjam-
leifsson (Gusti) sigraði í fimmgangi á
Pjakki frá Miðey og Sigurþór Sigurðs-
son (Fáki) sigraöi í tölti og íslenskri
tvíkeppni á Funa frá Blönduósi og
einnig varð hann stigahæsti knapinn.
í ungmennaflokki sigraði Sylvía Sig-
urbjömsdóttir (Fáki) i tölti og fjórgangi
á Fógeta frá Oddhóli. Guöni S. Sigurðs-
son (Mána) sigraði í funmgangi og
skeiðtvíkeppni og varð stigahæsti
knapinn á Njálu frá Amarhóli. Eva
Benediktsdóttir (Herði) sigraði í ís-
lenskri tvíkeppni. í 1. flokki opnum
sigraöi Davíð Matthíasson (Fáki) í
fimmgangi á Hörpu frá Sauðárkróki og
varð stigahæsti knapinn, Matthías Ó.
Barðason (Fáki) sigraði í fjórgangi á
Ljóra frá Ketu og Gylfl Gunnarsson
(Fáki) sigraði í tölti á Erli frá Kópa-
vogi.
Sigvaldi Ægisson (Fáki) sigraði í is-
lenskri tvíkeppni á Gylli frá Engihlíð
og Hinrik Bragason (Fáki) í skeiðtví-
keppni á Ómi frá Brún. í 2. flokki opn-
um sigraði Róbert G. Einarsson (Geysi)
í tölti á Júpíter frá Stóm-Hildisey,
Haukur Þorvaldsson (Herði) sigraði i
fjórgangi og íslenskri tvíkeppni á
Fróða frá Hnjúki og hann varð einnig
stigahæstur knapa. Ólöf Guðmunds-
dóttir (Fáki) sigraði í fimmgangi á
Óskírð frá Miðhjáleigu. Alexander
Hrafnkelsson (Fáki) sigraði í gæðinga-
skeiði í opnum flokki á Lord frá Stóra-
Hofi og Snorri Dal (Fáki) sigraði í
slaktaumatölti i opnum flokki á Frama
frá Tröðum.
Sigurbjöm Bárðarson (Fáki) sigraði
í tölti í meistaraflokki á Oddi frá
Blönduósi, fimmgangi á Byl frá Skán-
ey, slaktaumatölti á Húna frá Torfu-
nesi, gæðingaskeiði og 150 metra skeiði
á Neista frá Miðey, 250 metra skeiði á
Ósk frá Litla-Dal og einnig varð hann
stigahæstur keppenda. Tómas Ragnars-
son (Fáki) sigraði í skeiðtvíkeppni og
Bjami Sigurðsson (Gusti) sigraði í is-
lenskri tvíkeppni. Berglind Ragnars-
dóttir (Fáki) sigraði í fjórgangi á Bassa
frá Möðmvöllum.
Reykjavíkurmeistarar
Reykjavíkurmeistarar urðu eftirtald-
ir knapar: í bamaflokki Sara Sigur-
bjömsdóttir í tölti, fjórgangi, á Hirti frá
Hjarðarhaga.
í unglingaflokki Þóra Matthíasdóttir
í fimmgangi á Gosa frá Auðsholtshjá-
leigu og Sigurþór Sigurðsson í tölti og
fjórgangi á Funa frá Blönduósi. t ung-
mennaflokki Sylvía Sigurbjömsdóttir í
tölti og fjórgangi á Fógeta frá Oddhóli.
Viðar Ingólfsson í fimmgangi. í 1.
flokki opnum Davið Matthíasson í
fimmgangi á Hörpu frá Sauðárkróki,
Matthias Ó. Barðason í fiórgangi á
Ljóra frá Ketu og Gylfi Gunnarsson í
tölti á Erli frá Kópavogi. 12. flokki opn-
um Þorbjörg Sigurðardóttir í tölti á
Erli frá Leifsstöðum, Valdimar Snorra-
son í fiórgangi á Barða frá Grenstanga.
Ólöf Guðmundsdóttir í fimmgangi á
Óskírð frá Miðhjáleigu. Alexander
Hrafnkelsson í gæðingaskeiði í opnum
flokki á Lord frá Stóra-Hofi og Snorri
Dal í slaktaumatölti í opnum flokki á
Frama frá Tröðum. Sigurbjöm Bárðar-
son í tölti í meistaraflokki á Oddi frá
Blönduósi, fimmgangi á Byl frá Skán-
ey, slaktaumatölti á Húna frá Torfu-
nesi, gæðingaskeiði og 150 metra skeiði
á Neista frá Miðey, 250 metra skeiði á
Ósk frá Litla-Dal. Berglind Ragnars-
dóttir í fiórgangi á Bassa frá Möðra-
völlum.
Því miður náðu mótshaldarar ekki
að reikna út stig ailra Fáksmanna til að
finna út sigurvegara í íslenskri tví-
keppni, skeiðtvíkeppni og hver væri
stigahæsti knapinn nema þá sem sigr-
uðu á opna mótinu og vora nefndir í
greininni um sigurvegara mótsins.