Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Page 15
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001
31
Sport
Mörgum stundum hefur
verið eitt viö að dytta að
veiðihúsunum víða um land,
enda styttist í að veiðitíminn
byrji fyrir alvöru. Það hefur
verið málað og málað í þeim
mörgum.
Vió Eystri-Rangá er verið
að reisa nýtt veiðihús fyrir
veiðimenn sem renna í ána og
á efra svæðinu í Hítará á
Mýrum á að koma nýtt veiði-
hús fyrir veiðitímabilið.
Skil á veiðikortunum fyrir
síðasta veiðitímabil hefur
gengið vel og núna hafa 4200
veiðimenn skilað. Rjúpurnar
eru orðnar 107 þúsund og
verða líklega í kringum 140
þúsund þegar allar tölur eru
komnar í hús.
Þeim fjölgar vötnunum
þar sem fiski er sleppt og því
nýjasta, Hólavatni í Eyjafirði,
hefur verið vel tekið af veiði-
mönnum á öllum aldri. Þarna
er hægt að veiða lax og regn-
bogasilung með allri fjöl-
skyldunni og allir fá eitthvað.
Veiöimenn eru mismikið
bókaðir í sumar í veiðinni og
við fréttum af einum sem alls
ekki gat bætt við sig fleiri
veiðidögum. Hann var upp á
hvern einasta dag í ágúst og
stóran hluta af júní og júlí.
Björn G. Sigurðsson með fallega urriða sem hann veiddi í Vestmannsvatni fyrir nokkrum dögum en mikið var af fiski í vatninu. DV-mynd G.Bender
Veiðivon
Þessa dagana
er verið að
leggja lokahönd
á afmælisblaö
Sportveiöiblaðs-
ins en blaðið
verður 20 ára á
árinu og verður
í stærri kantin-
um í tilefni af-
mælisins.
- vænn urriði veiðist í vatninu og er mikið af honum
Silungsveiðin hefur gengið vel
það sem af er og vötnin virðast
koma vel undan vetri.
Þeir veiðimenn sem DV-Sport
ræddi við voru sammála um að sil-
ungurinn kæmi vel undan vetri og
væri feitur og fallegur.
í Meðalfellsvatni í Kjós hefur
verið ágæt veiði og einn og einn
vænn urriði hefur verið að veiðast.
í Elliðavatni hefur veiðin gengið
vel og þegar kíkt var upp að vatni í
vikunni voru margir að veiða en
fáir fiskar komu á þurrt.
í Vífilsstaðavatni hefur verið góð
bleikjuveiði og stærstu fiskarnir
eru um 2 pund.
Veiðimaður sem var þarna fyrir
fáeinum dögum veiddi 12 fiska.
1 Hlíðarvatni í Selvogi hefur geng-
ið vel og veiðimenn sem voru þar
fyrir nokkrum dögum veiddu ágæt-
lega. Sá sem fékk mest veiddi 9 fiska
og var fiskurinn vænn.
„Veiðin gekk feiknavel í Vest-
mannsvatni og fiskurinn er vænn.
Vatnið var samt aðeins gruggugt
ennþá,“ sagði Bjöm G. Sigurðsson
sem var að koma úr Vestmanns-
vatni fyrir fáum dögum með fallega
urriða í skottinu.
„Fiskurinn er feitur og fallegur
Laxveiðin:
Verður loksins
góð laxveiði?
veiðimenn að fjölmenna um helg-
ina. Verulega hefur hlýnað og
bleikjan ætti að gefa sig næstu daga.
G.Bender
„Ég held að það verði góð laxveiði í
sumar, fiskifræðingar spáðu lélegri
veiði og það boðar gott fyrir veiði-
menn,“ sagði veiðimaður við Elliða-
árnar í vikunni er veiðiskap bar á
góma.
Það vakti þónokkra athygli á árs-
fundi Veiðimálastofnunar að fiski-
fræðingar töluðu um að líklega yrði
laxveiðin léleg í sumar. Mörgum
finnst það boða gott fyrir veiðimenn.
í fyrra veiddust rétt 26 þúsund laxar
á móti 40 þúsund árið áður. Laxveiðin
hefur ekki verið góð síðustu árin og
má batna verulega, alla vega eru veiði-
leyfin dýr og fiskinum fækkar veru-
lega.
Fyrstu árnar verða opnaðar 1. júní,
Norðurá og Þverá í Borgarfirði, auk
þess Straumarnir, líka ættaðir úr
Borgarfirði.
Verður gaman að sjá hvemig byrj-
unin verður í laxveiðinni. Opnunin í
Norðurá og Þverá gæti orðið fróðleg
mjög.
Veiðimenn eru byrjaðir að kíkja i
veiðiárnar en hafa séð lítið ennþá.
Fyrstu laxamir gætu farið að láta sjá
sig á allra næstu dögum og þá helst í Baldvin Valdimarsson meö 20 punda lax sem hann veiddi
Borgarfirðinum. G.Bender Miöfjaröará á flugu. DV-mynd GG
og mikið af honum. Ég fékk þessa
fiska á spúnninn. Næstu dagar gætu
orðið góðir þegar vatnið hreinsar
sig og þá tekur fiskurinn örugglega
betur,“ sagði Björn ennfremur.
Veiði-
menn eru
eitthvað
byrjaðir
að veiða í
Hópinu í
Húna-
vatns-
sýslu og
þangað
ætluðu
Eins og viö
sögðum frá fyrir skömmu
ætlar Gylfi Pálsson að hætta
sem ritstjóri Veiðimannsins
og hefur enginn verið nefnd-
ur til sögunnar ennþá.
Stangaveidifélag Reykja-
víkur ætlar á næstu vikum að
friska upp á vefinn sinn og
gera hann virkari en veriö
hefur. Hefur heyrst að Gylfi
Pálsson muni sjá um hann.
Sportvörugeröin hefur
flutt og er komin í Skipholtið
og hefur vakið athygli þeirra
sem séð hafa nýja staðinn,
risastór mynd af Jón Skelfi í
glugganum en myndina tók
Rafn Hafnfjörð.
Veidimenn bíða víst
spenntir eftir þvi aö opna
Fiskilækjarvatn í Leirársveit
en það opnar 1. júní. Silung-
urinn er vænn í vatninu,
bæði bleikja og urriði. Skaga-
menn stunda mikið vatnið og
fleiri og fleiri veiðimenn
hafa uppgötvað það í gengum
árin. Best er að veiða í vatn-
inu í júní og júlí.
Veióimenn geta alls ekki
beðið eftir aö veiðin byrji fyr-
ir alvöru og á Akureyri eru
veiðimenn á öllu aldri byrjað-
ir að veiða í sjónum. Og sum-
ir eru kræfari en aðrir og
hafa veitt í næsta nágrenni
við Eyjafjarðarána. Þeir hafa
snarlega verið reknir i burtu.
Vorveiöin hefur farið ró-
lega af stað í lóninu í Hvolsá í
Dölum en ein og ein bleikja
hefur þó verið aö veiðast.
-G. Bender