Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2001, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001
DV
Fréttir
Hásetar ekki í verkfalli en neitað um kauptryggingu:
Staðan er orðin hroðaleg
- segir skipverji á Núpi BA - málið fyrir dómstóla, segir forseti ASV
Frá Patreksfjaröarhöfn
Ellefu hásetar af Núpl BA sem ekki eru í verkfalli telja sig eiga rétt á kaup-
tryggingu og aö verkbann útvegsmanna sé ólöglegt.
Frank Lúðvíks-
son, háseti á Núpi
BA frá Patreksfirði,
segir að hásetum á
skipinu sé neitaö
um greiðslu á
tryggingu þrátt fyr-
ir að þeir séu ekki í
verkfalli. Um er að
ræða 11 undirmenn
en yfirmenn í verk-
falli eru þrír. Hóta
hásetarnir aö mæta ekki til skips
þrátt fyrir lagasetningu á verkfallið.
„Staðan er orðin hroðaleg hjá
mörgum okkar. Við fáum ekki
krónu en yfirmenn fá greitt úr verk-
fallssjóði. Svo er okkur bara sagt að
þetta verði að hafa sinn gang og við
skulum vera rólegir á meðan. Þá
höfum fengiö boð um það frá útgerð-
inni að við megum búast við að
vera boðaöir á sjó í kvöld.“
Frank segir að hásetamir hafi
rætt það sín á milli að mæta ekki til
skips nema þeir fái greidda um-
rædda kauptryggingu.
Pétur Sigurðsson, forseti Alþýöu-
sambands Vestfjarða, segir að sjó-
menn sem tilheyra verkalýös- og
sjómannafélögum á sunnanverðum
Vestíjörðum hafi aldrei boðað verk-
fall. Fyrir þeirra hönd hafi ASV lagt
fram kröfu um endurnýjun á samn-
ingi sem gerður hefur verið í sam-
floti allra sjómanna á Vestfjörðum
sl. 40 ár. Sjómannafélag ísfirðinga
og félagið í Bolungarvík hafi reynd-
ar klofið sig út úr þessu samfloti
núna. Pétur segir aö þegar ljóst var
aö sjómenn innan ASV væru ekki í
verkfalli hafi Útvegsmannafélag
Vestfjaröa gripið til þess ráðs að
boða einhliða verkfall á þessa sjó-
menn, sem kallað var verkbann
samkvæmt gömlu löggjöfinni.
„Við mótmæltum þessu,“ segir
Pétur. „Til þess að geta boðað verk-
fall (verkbann) þá þurfa að hafa far-
ið fram samningaviðræður og ár-
angurslausir samningafundir hjá
sáttasemjara. Þetta er það sem
breyttist þegar vinnulöggjöfinni var
breytt." Pétur segir að slíkar við-
ræður hafi aldrei farið fram og
hann hafi því óskað eftir fundi hjá
ríkissáttasemjara til að mótmæla
þessum aðgerðum útvegsmanna.
„Útgerðarmenn samþykktu á
þessum fundi að þetta væri rétt hjá
mér og drógu boðunina til baka.
Þegar þeir sendu mér síðan bréfið
með afturköllun á verkbanni til-
kynntu þeir mér um leið að sama
dag hefði farið fram atkvæða-
greiðsla um nýja boðun verkfalls og
hún tilkynnt okkur. Við svöruðum
þá á sama veg um að ekkert hefði
breyst og fundurinn hjá sáttasemj-
ara hefði ekki verið neinn samn-
ingafundur."
Pétur segir að við þetta sitji og
málið fari því annaðhvort í gerðar-
dóm eða verði rekið sem innheimtu-
mál fyrir dómstólmn.
Einar Valur Kristjánsson, for-
maður Útvegsmannafélags Vest-
flarða, segir það mat útvegsmanna
að hásetum á Núpi beri ekki að fá
greidda kauptryggingu. „Lögmenn
Samtaka atvinnulifsins hafa skýra
afstöðu í málinu og við reiöum okk-
ur á fagmennina.“ Einar Valur seg-
ist einnig telja að löglega hafi verið
staðið að boðun verkbanns.
-HKr.
EESIBMM
Álver er forsendan
Halldór Ásgríms-
son, formaður Fram-
sóknarflokksins,
segir að eyðilegt
muni um að litast í
íslensku efnahagslífi
ef ekki verður af
stækkun álvers
Norðuráls eða að til
komi nýtt álver í Reyðarfirði.
Háseti getur tapað
Sjómenn hafa barist af öllu afli
gegn því að „Laxdæla", nýgerður vél-
stjórasamningur, verði notaður sem
viðmið i væntanlegri lagasetningu
vegna deilu þeirra og útvegsmanna.
Bent er á að hluti sjómanna lækki í
launum gangi samningurinn eftir.
deCODE fellur
Verð á hlutabréfum í deCode, móð-
urfyrirtæki íslenskrar erfðagreining-
ar, féll um 8,5% í gær.
Gengi hlutabréfanna var fimm og
hálfur dollari þegar viðskiptum lauk
í kauphöllinni í New York í gær-
kvöld. deCode birtir afkomutölur sín-
ar fyrir fyrsta fjórðung ársins eftir
lokun markaða í New York í kvöld.
Pétur
Sigurösson.
Frekari rannsókn í Bláhvammsmálinu:
Verkfræðingar
rannsaka
manndrápsmál
Tveir sérkvaddir verkfræðingar
hafa lokið mati á aðstæðum á vett-
vangi í svokölluðu Bláhvammsmáli,
á sveitabæ í Reykjahreppi í Suður-
Þingeyjarsýslu, þar sem ungur mað-
ur var ákærður fyrir að bana íoður
sínum. Hæstiréttur vísaði málinu
aftur heim í hérað með ýmsum at-
hugasemdum þar sem lagt var fyrir
að ýmis atriöi yrðu rannsökuð frek-
ar. Ríkissaksóknaraembættið er að
hlutast til um að fleiri möt verði
lögð á aðra rannsóknaþætti í sam-
ræmi við þær linur sem Hæstiréttur
lagði í dómi sínum.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
dæmdi sakborninginn í 4ra mánaða
fangelsi skilorðsbundið. Hann var
sýknaður af manndrápi af ásetningi
en sakfefldur fyrir manndráp af gá-
leysi. Þessum dómi áfrýjaði ákæru-
valdiö. Þegar málið kom fyrir
Hæstarétt hélt Bogi Nilsson ríkis-
saksóknari því fram að lögfull sönn-
un hefði komið fram um hið gagn-
stæða - ásetningsmanndráp, enda
hefði ákærði hlaðið byssuna tvisvar
eftir að fyrsta skotið hafði komið í
höfuð hins látna. Ekki liggur fyrir
hvenær framhaldsrannsóknunum
lýkur og heldur ekki hvenær málið
verður tekið fyrir að nýju fyrir
héraösdómstólnum á Akureyri.
Trúveröugleiki ákærða
metinn
Hæstiréttur lagði það fyrir hér-
aðsdóm að aflað yrði frekari gagna
um ýmis þau atriði sem fram höfðu
komið og gátu varpað skýrara ljósi
á málið. Þar var einmitt átt við rök-
stutt sérfræðilegt mat á því hvort
eða hvemig ætlaðar staðsetningar
ákærða við rúm hins látna geta
komið heim og saman við frásögn
hans um slysaskot og við skot-
áverka á hinum látna. Einnig var
lagt til að sérstök athugun yrði gerð
á því hvort unnt sé að meta út frá
blóði á líkinu og umhverfis það
hver staða höfuðs hins látna hafi
verið þegar skotum var hleypt af.
Einnig lagði Hæstiréttur til að
kannað yrði til þrautar hvort unnt
væri með tæknilegum rannsóknum
að fá fram frekari visbendingar af
ljósmyndum sem teknar voru á vett-
vangi hinn 18. mars 2000 - daginn
sem lögreglan kom að hinum látna.
Á þeim tíma hélt ákærði því fram
við lögreglu að faðir hans hefði
framið sjálfsvíg. Það var ekki fyrr
en þremur dögum síðar, þegar rann-
sókn fór fram á líkinu, að í ljós kom
að hann var með þrjú skotsár á
höfði. Vöknuðu þá grunsemdir lög-
reglu um ásetningsverknað og við-
urkenndi ákærði að hafa handleikið
og hlaðið byssuna á mifli skota -
hann hefði sturlast áður en hann
hleypti síðustu tveimur skotunum
af.
Auk framangreindra atriða telur
Hæstiréttur nauðsynlegt að héraðs-
dómur kveði skýrar á um mat sitt á
sönnunargildi og trúverðugleika
framburðar ákærða.
-Ótt
DV-MYND HARI
Mikil tilþrif
Vorfiöringurinn segir til sín hjá þessum piltum. Stökkiö á línuskautunum er
því flott. Aöstaöan er góö fyrir þessar kúnstir á Ingólfstorgi.
Verkfall Hlífar:
Enginn skóli í Hafnarfirði á morgun
Rúmlega þrjú þúsund grunn-
skólabörn munu sitja heima á
morgun en þá verður grunnskólum
Hafnartjarðar lokað vegna verk-
falls Hlífar.
Enginn árangur varð af samn-
ingafundi deilenda í gær og stóð
hann í rétt rúma klukkustund. Að
sögn Þóris Einarssonar ríkissátta-
semjara er deilan í hnút.
„Staðan er óbreytt eftir þennan
fund, þeir vilja ekki hreyfa við
neinu og því er enginn möguleiki í
stöðunni," sagði Sigurður T. Sig-
urðsson, formaður Hlífar, i samtali
viö DV í gærkvöld.
.Verkfafl 400 félagsmanna í Hlíf
hefur þegar haft víðtæk áhrif í
Hafnarfiröi. Leikskólum, sem rúm-
lega þúsund böm sækja nám í, var
lokað á mánudag auk þess sem
gæsluvellir bæjarins eru lokaðir.
Um 200 heimili verða af heimaþjón-
ustu aldraðra. Mötuneytum aldr-
aðra við Hjallabraut og á vistiheim-
ilinu Höfn hefur verið lokað.
Næsti samningafundur í deil-
unni verður haldinn á morgun. -aþ
Dollarinn 99 krónur
Gengi krónunnar lækkaði nokkuð
í gær eftir að hafa hækkað fyrst eftir
opnun markaða í gærmorgun. Geng-
ishækkun um 1,4% við opnun er rak-
in til bjartsýni fjárfesta í kjölfar
ákvörðunar um lög á sjómannadeil-
'una. Gengið endaði 0,8% lægra en við
opnun og dollari í 99 krónum.
Borgin frestar
Reykjavíkurborg
mun fresta áform-
um um að skipu-
leggja reit milli
Lindargötu og
Hverfisgötu, vegna
óánægju íbúa. Hug-
myndir voru um að
fækka þarna um 40
hús til að rýma fyrir nýrri byggð.
Boða verkfall
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga hefur boðað til tveggja daga
verkfalls sem hefst á miðnætti mið-
vikudaginn 30. maí 2001. Verkfallið
nær til hjúkrunarfræðinga sem
starfa hjá ríkinu.
Gjöf frá ferðaskrifstofu
Þýska ferðaskrifstofan Studiosus
Reisen hefur fært Akureyrardeild
Rauða kross Islands vandaðan skjá-
varpa til fræðslustarfa í þakkarskyni
fyrir aðstoð við þýskan ferðahóp sem
lenti í rútuslysi á Norðurlandi síðast-
liðið sumar.
Beðinn afsökunar
Skúli Jón Sig-
urðsson, formaður
Rannsóknarnefndar
flugslysa, biðst af-
sökunar á því að
hafa blandað meint-
um pólitískum
tengslum Friðriks
Þórs Guðmundsson-
ar, faðir pilts sem lést eftir flugslys-
ið í Skerjafirði, við Lúðvík Bergvins-
son alþingismann í umræðuna um
flugslysið.
Haldið til haga
Þau mistök urðu í laugardagsblað-
inu að tónlistarmaðurinn Eggert
Pálsson var skrifaður Másson.
1 frétt DV síðasta laugardag var
Rico Saccani ranglega sagður hafa
gegnt starfi aðalstjórnanda Sinfóní-
unnar í áratug. Rétt er að tæp þrjú
ár eru síðan hann tók við starfinu.
Þá var sagt að hann hefði misst af
tvennum síðustu tónleikum Sinfóní-
unnar en þar var átt við þá tónleika
sem honum var ætlað aö stjórna.
-HKr.