Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2001, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2001, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 2001 I>V Tilvera Mike Oldfield Tónskáldiö og hljóð- færaleikarinn Mike Old- field er afmælisbarn dagsins. Segja má að þessi einfari í tónlist- inni hafi gert nafn sitt ódauðlegt í tónlistarsög- unni þegar hann sendi frá sér verkið Tubular Bells. Um leið kom hann hinu þekkta plötufyrirtæki Virgin Records á blað en Tubular Bells var fyrsta platan sem gefin var út undir þessu merki. Eins og oft vill verða um þá sem senda frá sér snilldarverk í upphafi hefur Oldfield átt erfitt með að fylgja eftir meistaraverkinu þó margt gott hafi frá honum komið. 48 ara Gildir fyrir miövikudaginn 16. maí Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.): I Þú mætir mikilli góð- vild í dag og færð hjálp við erfitt verk- efni. Vinur þinn hefur um mikið að hugsa og þarf á þér að halda. Fiskarnir (19, febr.-20. marsl: Enginn veit jafnvel og Iþú hvemig best er að haga deginum í vinnmmi svo þú skalt ekki láta aðra segja þér fyrir verkum. Hrúturinn (21. mars-19. aorill: Vertu jákvæður í garð þeirra sem vilja hjálpa þér en tekst það kannski ekki vel. Happatölur þinar eru 6,17 og 32. Nautid (20. apríl-20. maii: Þér er umhugað um fjölskyldu þína og hún nýtur athygh þinnar í dag. Notaðu kvöldið fyrir sjálfan þig og farðu eitthvað út að skokka.. Tvíburarnir (21. maí-2i. iúníi: Einhver er óánægður með frammistöðu þína í ákveðnum viðskipt- um. Sýndu fólki að þú vitir þínu viti. Happatölur þinar eru 5, 12 og 26. Krabblnn 0.2. iúní-22. iúin: Aðstæður gera þér kleift að hrinda breyt- ingum í framkvæmd án þess að þú þurfdr að hafa mikið fyrir þvi. Happatölur þinar eru 13,19 og 27. Liónlð (23. iCilí- 22. áaúst); I dag virðast viðskipti ekki ætla að ganga vel en ef þú ferð varlega og hlustar á ráð reyndra manna gengur allt að óskum. IVIevlan (23. áaúst-22. sept.): Þú ættir að huga að persónulegum málum þínum í dag og lofa öðrum að bjarga sér á eigin spýtur. Happatölur þínar eru 1, 5 og 7. Vogin (23. sept.-23. okt.): Hætta er á að ákveðin manneskja komi af stað deilum ef margir hittast á sama stað. Reyndu að halda þig utan þeirra. Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.): Ferðalag gengur að óskum og ástæða er dl að ætla að rómantík sé á næsta leití. Þér geng- ur ekki eins vel í vmnunni. Happatölur þínar eru 11, 23 og 37. Bogamaður (22. nóv.-21. des.l: Vinur þinn er hjálp- samur en ekki notfæra þér hjálpsemi hans án þess að endurgjalda hana. Happatölur þínar eru 8, 22 og 35. Stelngeltln (22. des.-19. ian,): Þín biður annasamur dagur bæði heima og í vinnunni. Fjölskyldan ætti að vera saman í kvöld. Happatölur þínar eru 7, 16 og 31. DV-MYNDIR VALDIMAR HREIÐARSSON Unnu í tónlistinni Þessar stúlkur unnu í tónlist á vormótinu. Unglingar hittast á vormóti DV, VESTFJORÐUM:__________________ Fyrir stuttu var haldið vormót grunnskólanna í ísafjarðarbæ. Þá skunda nemendur 7.-10. bekkjar til ísafjarðar og taka sér margt upp- byggilegt og skemmtilegt fyrir hend- ur. Meðal þess sem fengist var við að þessu sinni var kvikmyndagerð, dans, leiklist, matarlist, hljóðfæra- gerð, tónlist og ljóðlist. Vormótið er ævinlega tilhlökkunarefni enda gaman að hitta jafnaldra og kunn- ingja á stöðunum, Þingeyri, Flat- eyri, Suðureyri og Isafirði. Mótið þótti heppnast afar vel að þessu sinni og þykjast kennarar sjá fram- farir milli ára í vinnu nemenda á vormóti. -VH muiguiisiuiiu Hér má sjá hluta hópsins njóta afraksturs morgun- starfanna á vormótinu. Verðandi leikkonur Þessar stúlkur voru aó búa sig undir leiklistarflutning á vormótinu. Pamela vinsælli en gæðingarnir Silíkonkrúttið Pamela Anderson stal svo sannarlega senunni í heljar- mikilli veislu sem haldin var fyrir íina fólkið sem sækir Kentucky Der- by-veðreiðarnar. Fyrir það fyrsta datt leikkonan fræga úr skyrtunni sinni, ef þannig má að orði komast. I öðru lagi drakk hún brennivín af stút. í þriðja lagi skreið hún um allt á Qórum fótum og, í fjórða lagi, gerði hún sér lítið fyrir og sleikti skallann á einum veislugestanna. „Pamela er indæl en hún varð sér til skammar," sagði einn gestanna við þekktan dálkahöfund. „Við höf- um áhyggjur af henni. Hún er kannski í vondum félagsskap." Blake hótaði að myrða konu Síðasta kvöldmáltíðin Eiginkona sjónvarpsieikarans Roberts Blake var skot- in til bana fyrir utan þennan veitingastaö. Nýjar grunsemdir hafa vaknað um að fyrrver- andi sjónvarpsleikarinn Robert Blake hafi sjálfur myrt eiginkonu sina, Bonny Lee Bakley. Ætt- ingjar Bonny segja að hann hafi hótaði henni lífláti og greint frá því að hann ætti byssukúlu með nafninu hennar á. Blake hefur viðurkennt að hjónabandið hafi ver- ið stormasamt en fullyrð- ir að sættir hafi náðst. Lögreglan leitaði að nýju í húsi leikarans seint á miðvikudagskvöld. Bonny var skotin í höf- uðið í bíl þeirra hjóna fyrir utan ítalskan veit- ingastað í Los Angeles. Robert Blake, sem lék leynilögreglumanninn Baretta, kveðst hafa yfir- gefið bílinn augnablik til að ná í byssu sem hann hafði gleymt á veitingastaðnum þar sem þau höfðu snætt. Hann hafi síðan komið að konu sinni látinni. Að sögn veitingamannsins kom leikar- inn aftur inn á veitingastaðinn og var þá æstur og bað um vatnsglas. Blake tjáði lögreglunni aö hann hefði borið byssu á sér vegna þess að konan hans, sem seldi einmana körlum nektarmyndir af sér, hefði óttast að einhver veitti henni eftir- for. Lögreglan fann áhugaverðan hlut í ruslatunnu við veitingastað- inn en hún hefur ekki viljað greina frá því hvað hún fann. Blake, sem er orðinn 67 ára, kvæntist Bonny Lee Bakley í nóv- ember síðastliðnum eftir að DNA- rannsókn sýndi að hann væri faðir dóttur hennar, Rose litlu. Bonny hafði fyrst talið að sú stutta, sem verður 1 árs í júní, væri dóttir Christians Brandos, sonar Marlons Brandos. Bonny á þrjú önnur börn. Meðal þeirra er dóttirin Jeri Lee Lewis sem er 7 ára. Systir Bonny, Margerry Bakley, segir hana hafa flutt til Tennessee um skeið þar sem hún hafi veriö með söngvarann Jerry Lee Lewis, sem býr þar, á heilanum. 51 exxxotíca GERUM GOTT KYNLÍF BETRA! LANDSINS MESTA ÚRVAL AF UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍFSINS Barónsstíg 27 - S: 562 7400 Ball í Gúttó Höfundur og leikstjóri Maja Árdal Næstu sýningar laugard. 19. maí, næstsíðasta sýningarhelgi. Föstud. 25. maí og laugard. 26. maí, síðustu sýningar sýningar hefjast kl. 20 Leikhúskórinn sýnir: Sígaunabaróninn eftir Johann Strauss. Leikstjóri Skúli Gautason. Tónlistarstjórn Roar Kvam. Einsöngvarar: Alda Ingibergsdóttir, Ari J. Sigurðsson, Baldvin Kr. Baldvinsson, Haukur Steinbergsson, Hildur Tryggvadóttir, Sigríður Elliðadóttir, Steinþór Þráinsson, Sveinn Arnar Sæmundsson og Þórhildur Örvarsdóttir. fimmtud. 17. maí sunnudaginn 20. maí, næstsíðasta sýning. Miðvikud. 23. maí, síðasta sýning. Sniglaveislan eftir: Ólaf Jóhann Ólafsson Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson. Sýningar í Loftkastalanum Miðasalan opin alla virka daga, nema mánudaga, frá kl. 13:00- 17:00 og fram að sýningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.