Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2001, Síða 28
Opel Zafira
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
Forstjóri ístaks um tengsl viö Árna Johnsen:
Vona að Árni hafi verið rukkaður
„Ég vefengi ekki að maðurinn hafl
unnið hjá okkur og verið sendur í þetta
viðvik. Ef við látum vinna fyrir ein-
staklinga þá eru skrifaðir út reikning-
ar og viðkomandi rukkaðir," sagði Páll
Sigurjónsson, forstjóri Istaks, í morgun
vegna framburðar Óskars Sigurðsson-
ar trésmiðs sem kveðst hafa unnið fyr-
ir Áma Johnsen samkvæmt skipun
verkstjóra. Páli forstjóri svaraði DV á
símafundi í morgun þar sem hann kall-
aði til sín Tómas Tómasson, verkfræð-
ing ístaks. Hvorugur þeirra mundi eft-
ir umræddu atviki en þeir ítekuðu að
ístak gæfi ekki slíka vinnu.
- Var Ámi þá rukkaður fyrir þessa
vinnu sem átti sér stað árið 1995?
„Ég ætla bara rétt að vona það,“
svaraði Páll.
„Það getur vel verið að við höfum
unnið viðvik fyrir Áma en þá fer það á
reikning til hans,“ segir hann.
Þeir voru spurðir hvort Ámi hafi
einhvem timann fengið sendan reikn-
ing frá ístaki vegna viðvika sem þess
sem hér er rætt.
„Það ætla ég rétt að vona en ég þekki
það ekki í smáatriðum. Það er unnið
fyrir hina og þessa. Núna grófum við
eitthvað smávegis í garðinum hjá Áma
og þá er gerð samantekt á því og hon-
um sendur reikningurinn. Við erum
mjög hjálplegir við menn,“ segir Páll.
Varðandi verkefni sem ístak hefur
fengið hjá Þjóðieikhúsinu að tiistuðlan
Áma segja þeir Páll og Tómas að það
hafi verið vegna þess að nauðsynlegt
hafi verið að bjarga málum.
„Þetta em smá viðhaldsverk þar sem
við höfum brugðist við þegar um yfir-
vofandi lokun hefur verið að ræða,“
segja Tómas og Páll.
DV óskaði eftir að fá að sjá reikning
á Áma Johnsen vegna vinnunnar frá
1995 eða til vara reikning ístaks á Áma
Johnsen frá öðmm tíma. Forsvars-
menn ístaks lofuðu að leita uppi slíkan
reikning. -rt
Dósent um þorskstofninn:
Hrun blasir við
Einar Júlíusson, dósent við sjáv-
arútvegsdeild Háskólans á Akur-
eyri, gagnrýnir starfsaðferðir Haf-
rannsóknastofnunar og sókn íslend-
inga í þorskinn harðlega í kjallara-
grein sem birtist hér í blaðinu í dag.
Einar víkur sérstaklega að aflaregl-
unni svokölluðu og segir: „Aflaregl-
an mun líklega koma stofninum vel
niður fyrir 200 þús. tonn á næsta ári
og á þar næsta ári niður undir 100
þús. tonn. Ég vil ekki aðeins taka
svo djúpt í árinni að segja að við
séum komin á hættusvæði varðandi
þorskstofninn. Ég vil segja að hrun
þorskstofnsins blasi við.“
Sjá nánar á bls. 14-15
TIMBURMENNIRNIR
FYLGJA!
heim
Ríkið sýkn-
að af öllum
kröfum ASÍ
Lánaði skipbrotsdreng fötin sín dv-mynd bg
Sveinbjörn Guölaugsson á Blönduósi stendur hér meö poka meö fötum sem hann iánaöi unga skipbrotsdrengnum
sem komst lífs af ásamt þremur öörum þegar rækjubáturinn Una í Garöi sökk í gærmorgun. Skipbrotsmennirnir voru
mjög klæölitlir þegar þeir komust í björgunarbát og var því hringt í land og óskaö eftir fötum. Sveinbjörn brást vel viö
og lánaöi sín. Tveir eru taldir af eftir sjóslysiö. Sjá bls. 6.
Héraðsdómur í Reykjavík sýkn-
aði í morgun íslenska ríkið af
kröfum Alþýöusambands íslands
um að lög, sem sett voru á sjó-
menn i vor og bundu enda á verk-
fall þeirra, taki ekki til þeirra að-
ildarfélaga sem ekki höfðu boðað
verkfall. í kröfum ASÍ var farið
fram á að lögin næðu ekki til
þriggja félaga, sem ekki áttu í
verkfallsátökum.
Auk þess gerði ASÍ kröfu um
að viðurkennt yrði að lagasetn-
ingin hefði í för með sér ólög-
mæta skerðingu á samningsfrelsi
og verkfallsrétti þeirra félaga
sem voru í verkfalli. Til vara
kraföist ASÍ þess að dómurinn
úrskurðaði að lögin fælu í sér
ólögmæta skerðingu á verkfalls-
rétti þeirra þriggja félaga sem
ekki höfðu boðað verkfall.
Héraðsdómur hafnaði öllum
kröfum Alþýðusambands íslands.
-aþ
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Trésmiður ístaks í Þjóðleikhúsinu vann fyrir Árna Johnsen:
Sendurl
Itil
þingmannsins
- aldrei beðinn um að sundurliða vinnuna, segir Óskar Sigurðsson
„Verkstjórinn á verkstæðinu gaf
mér fyrirmæli um að smíða vagna á
hjólum. Þetta áttu að vera eins konar
bókaskápar fyrir alþingismanninn
Árna Johnsen," segir Óskar Sigurðs-
son trésmiður sem vann hjá ístaki
árið 1995 við að breyta leikmuna-
geymslu í verkstæði.
Eins og fram hefur komið í DV hef-
ur ístak annast flest þau verk sem
unnin hafa verið i Þjóðleikhúsinu. í
fæstum tilvikum hefur verið um að
ræða útboð heldur hefur Árni John-
sen, formaður byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins, úthlutað verkunum til
ístaks. Þá má nefna það að ístak ann-
aðist uppbyggingu Þjóðhildarkirkju
og skála Eiríks rauða í Brattahlíð.
Óskar segist hafa orðið undrandi
þegar hann komst að því að verið var
að smíða fyrir alþingismanninn en
hann hafi unnið verkið. „Það var
nokkuð grínast með þetta. Ég kallaði
bókaskápana
kartöfluvagna
og það varð
samheiti
skápanna."
Hann segir að
Árni Johnsen
hafi komið i
Þjóðleikhúsið
um það leyti
sem hann var að
smíða skápana.
Þar hafi hann
gantast við
starfsmenn
ístaks.
„Þetta var um
það bil
DV-MYND H.ÓL.
Óskar Sigurðsson
- smíöaöi fyrir þingmann.
kjaradómur hækkaði laun þingmanna
stórlega. Ég spurði Árna í glettni
hvort allir þingmenn ynnu fyrir sínu
kauph Hvort þeir væru ekki í alls
kyns nefndarstörfum og störfum utan
Alþingis. Árni
varð ævareiður
og sagði mér að
grjóthalda
kjafti og vera
ekki aö gaspra
um það sem ég
hefði ekkert vit
á. Þá lögðust fé-
lagar mínir á
sveif með mér
og Árni féllst á
að verið gæti
að einhverjir
hefðu auka-
störf,“ segir
Óskar.
Hann segir
að nokkrum dögum seinna hafi verk-
stjórinn falið honum meiri vinnu fyr-
ir Árna.
„Nokkru seinna var ég sendur heim
til Árna til að gera við vegg. Mér var
ekkert vel við það í ljósi deilunnar um
þingfararkaupið. Óttinn reyndist þó
ástæðulaus og ágætlega fór á með okk-
ur og Ámi bauð upp á kaffi," segir
hann.
Ætli þetta hafi ekki verið þrír til
fjórir dagar sem ég vann fyrir þing-
manninn en ég var aldrei beðinn um
að gera sérstaklega grein fyrir þeirri
vinnu. Ég hef enga ástæðu til að ætla
að ístak hafi rukkað fyrir þessi viðvik
og þá sérstaklega í ljósi atburða síð-
ustu daga,“ segir Óskar.
Hann segir umrædd viðvik fyrir
Árna hafa verið þau einu sem hann
var látinn vinna það ár sem hann vann
hjá fyrirtækinu.
„Ég hef stundum hugsað um þetta
og þetta kom mér mjög spánskt fyrir
sjónir. Mér finnst sjálfsagt að segja frá
þessu nú þegar málefni Áma Johnsen
em ofarlega á baugi,“ segir Óskar tré-
smiður. -rt
Olvunarakstur
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2001
Lögin á sjómenn:
á 100 þúsund
Sektir vegna umferðarlagabrota
hækka verulega um næstu mánaða-
mót samkvæmt nýrri reglugerð dóms-
málaráðherra. Upphæðir sekta eru
einfaldaðar þannig að þær standa á
hálfum eða heiium tug þúsunda
króna. Á heildina litið er um 50%
hækkun á sektum að ræða og er sér-
stök áhersla lögð á hækkun sekta við
svokölluðum hættubrotum, til dæmis
vegna ölvunar- og hraðaksturs.
Lægsta sekt fyrir ölvunarakstur
hækkar úr 30 þúsund í 50 þúsund
krónur og hæsta sekt fyrir sama brot
verður 100 þúsund krónur. Hraðakst-
urssektir hækka úr 25 þúsund í 50 eða
60 þúsund krónur.
Þá verður ekki heimilt að ljúka
með sektargerð lögreglustjóra málum
vegna ýmissa alvarlegra umferðar-
lagabrota heldur munu þau leiða til
ákæru og refsimáls fyrir dómstólum.
^ Breytingar á fjárhæð sekta vegna
umferðarlagabrota hafa ekki orðið
síðan 1998 en starfshópur, sem skipað-
ur var af dómsmálaráðherra fyrr á ár-
inu, taldi að hækka þyrfti sektir veru-
lega enda sýni rannsóknir aö háar
sektir virðist hafa veruleg áhrif á
hegðun ökumanna. -aþ
Árni í morgun:
Sólin að
» koma upp
Haildóra Filippusdóttir, eiginkona
Áma Johnsens, staöhæfir að skemmd-
arverk hafi verið unnin við heimili
I þeirra hjóna i Reykja-
vík en, sjáif hafa þau
flutt sig til Vest-
mannaeyja vegna
ágangs ókunnugra.
Telur Halldóra að
vörð þurfi við húsið
en sonur þeirra Árna
| dvelur þar nú og gæt-
Árni Johnsen * eigna þeirra.
„Eg vil ekki tjá mig
um þetta né annað,“ sagði Ámi John-
sen í morgun. „En sólin er að koma
upp hér í Vestmannaeyjum." -EIR