Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001 Fréttir DV Hæfnisnefnd hunsuð við val á Kaupmannahafnarpresti: Mun kanna laga- lega stöðu mína - segir séra Ágúst Einarsson sem talinn var hæfastur. Prestafélag aðhefst ekkert „Ég mun óska skýringa á þessari ákvörðun og kanna lagalega stöðu mina,“ segir séra Ágúst Einarsson sem hæfnisnefnd biskups mælti með sem presti íslendinga í Kaup- mannahöfn. Hæfnisnefndin taldi séra Sigrúnu Óskarsdóttur vera næstbesta kostinn en neðst á lista nefndarinnar var séra Þórir Jökull Þorsteinsson. Samkvæmt lögum vel- ur biskup íslands þann prest sem á endanum er skipaður. Vegna mægða við séra Þóri Jökul vék herra Karl Sigurbjörnsson sæti í málinu og séra Sigurður Sigurðar- son vígslubiskup tók að sér að velja prestinn. Hann gekk þvert á vilja nefndarinnar og valdi Þóri Jökul til embættisins. Embætti prests íslendinga í Dan- mörku er að hálfu greitt af Trygg- ingastofnun ríkisins. Eins og DV greindi frá í gær hafði Þjóðkirkjan ekkert samráð við Tryggingastofn- un um skipun Þóris Jökuls. Karl Steinar Guðnason, forstjóri TR, for- dæmdi þessa tilhögun í DV í gær og sagði framkomu kirkjunnar manna vera „móðgandi". Þar vísaði Karl Steinar til samkomulags um að hæfnisnefndin veldi þann er best væri fallinn til starfans. I nefndinni sem hunsuð var sat Kristján Guð- jónsson, lögfræðingur Trygginga- stofnunar, ásamt fulltrúa biskups og Prestafélags Islands. Nefndin var á einu máli um að Ágúst væri best fallinn til starfans. „Ég hef verið aö hugsa minn gang en átta mig ekki því til hvaða ráða ég get gripið,“ sagði séra Ágúst í gær. Séra Jón Helgi Þórarinsson. Guðmundur Einarsson. Meðal presta gætir óánægju vegna framgangs vígslubiskups í málinu. Mörgum þykir sem ekki sé farið að leikregl- um og að Þórir Jökull njóti mægða sinna við biskup og vináttu við vígslubiskup. Jón Helgi Þórarinsson, formaður Prestafélags íslands, sagði að félag- inu hefði ekki borist erindi vegna þessa máls. „Við aðhöfumst ekkert í málinu að svo stöddu. Ég býst við að biskup verði beöinn um rökstuðning vegna DV-MYND HARI Hafnað Séra Ágúst Einarsson, prestur í Seljakirkju, var að mati hæfnisnefndar bisk- ups talinn hæfastur til að gegna embætti prests islendinga í Danmörku. Vígslubiskup ákvað að ýta áliti nefndarinnar til hliðar og skipaði pann sem aftastur var á listanum. Séra Bernharður Guðmundsson. þessarar ákvörðunar. Ég vil sjá þann rökstuðning áður en ég segi meira um málið,“ segir séra Jón Helgi. Herra Karl Sigurbjörnsson, bisk- up íslands, sá ekki ástæðu til að svara skilaboðum DV vegna þessa máls. Hann glimir nú við þann vanda að stór hluti prestastéttarinn- ar er ósáttur við framgöngu hans og vígslubiskups. Þá er biskup íslands sakaður um að hafi brotið sam- komulag við Tryggingastofnun um að samráð yrði viðhaft um skipan Kaupmannahafnarprests. Þetta er annað málið á skömmum tíma þar sem einstaklingar tengdir biskupsfjölskyldunni fá embætti með umdeildum hætti. Þess er skemmst að minnast að séra Bern- harður Guðmundsson, mágur herra Karls Sigurbjörnssonar, var ráðinn rektor Skálholtsskóla. Við ráðningu hans gengu yfirvöld Þjóðkirkjunnar þvert gegn vilja skólanefnar Skál- holtsskóla sem mælti ítrekað með Guðmundi Einarssyni, fyrrum framkvæmdastjóra Hjálparstofnun- ar kirkjunnar. -rt Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norðurlands gagnrýnir stjórnvöld harðlega: Lífeyrissjóðirnir mæta skömmum - og eru gerðir að blóraböggli, að mati Kára Arnórs Kárasonar Kári Arnór Kárason, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norður- lands, segir að lífeyrissjóðirnir í landinu verði að geta stjórnað sín- um fjárfestingará- kvörðunum sjálf- ir. Það sé ekki hlutverk stjórn- málamanna að segja forsvars- mönnum lífeyris- sjóðanna fyrir verkum og vísar Kári Arnór þar til gagnrýni sem beindist að lífeyrissjóð- unum í kjölfar lítils áhuga sjóðanna á kaupum i Landssímanum. Kári Arnór Kárason. „Það sem mér finnst athyglisverð- ast við þetta útboð er viðhorf stjórn- málamanna til markaðarins. Mark- aðinum er sagt að ef menn kalli þá eigi hann að hlýða. Þetta er hrokafull afstaða og lýsir vanþekkingu á stöðu markaðarins eins og hann er í dag. Það er ekki stjórnmálamanna að stýra fjárfestingum lífeyrissjóðanna. Stjórnmálamenn eiga að stýra efna- hagsmálunum og hafa ekki staðið sig sérstaklega vel í því. Þeim væri nær að líta í eigin barm frekar en að fara sífellt út og skamma aðra. Okkur fmnst sem lífeyrissjóðirnir hafi verið gerðir að blórabögglum," segir Kári Arnór og bendir á að bankar og ýms- ir hlutabréfasjóðir hafi lika sýnt út- boði Landssímans lítinn áhuga en gagnrýnin hafi þrátt fyrir það eink- um beinst að lífeyrissjóðunum. Ólíkt stærstu lifeyrissjóðunum tók Lífeyrissjóður Norðurlands þátt í út- boðinu en óvissa er hvort af kaupun- um verður þar sem fyrirtækið upp- fyllir ekki skilyrði til skráningar á Verðbréfaþing. Aðeins náðist að selja um fimmtung þess sem ríkisstjórnin hafði stefnt að og gagnrýndu formað- ur einkavæðingarnefndar, forsætis- ráðherra og samgönguráðherra líf- eyrissjóðina í kjölfarið vegna áhuga- leysis þeirra á kaupunum. M.a. féllu dylgjur um meint samráð þeirra stærstu i að sniðganga útboðið. Kári Arnór segir tvær skýringar á því að menn hafi ekki keypt meir í Landssimanum en raun bar vitni. Annars vegar hafi gengið veriö of hátt og hins vegar hafi ferlið verið unnið í öfugri röð. Óvissan með kjöl- festufjárfestinn hafi klárlega átt þátt í hinni dræmu sölu og fylgjast Almennt er þungt hljóð i lífeyris- sjóðum landsins í augnablikinu og svartsýni gagnvart framtíðinni. Fjár- málamarkaðurinn er gríðarlega erf- iður sem stendur, að sögn Kára Arn- órs, og ekki líklegur til að ná sér á strik á næstunni. „Ég sé ekki að út- lönd muni rétta úr kútnum á næstu þremur til sex mánuðum og mér finnst liklegt að niðurstaðan verði sú sama hérlendis." -BÞ Jaröskjálftarnir ollu skemmdum á Alþingishúsinu: Gert við fýrir rúmar 23 milljónir króna - um þrjátíu hús á höfuðborgarsvæðinu hafa fengið tjón bætt Lagt er til í fjárlagafrumvarpi næsta árs að veittar verði 23 millj- ónir í tímabundna fjárveitingu til að hægt sé að lagfæra skemmdir á Alþingishúsinu af völdum Suður- landsskjálftanna á síðasta ári. Að sögn Friðriks Ólafssonar, skrifstofustjóra Alþingis, urðu menn varir við skemmdir strax i kjölfar skjálftanna en þær hafa ver- ið meiri en í fyrstu var talið. Til að hægt væri að meta skemmdimar þurfti til að mynda að fara inn í veggi og athuga vel burðarvirki og annað slíkt. Friðrik segir að í ár- anna rás hafi margt farið aflaga í húsinu, sem var byggt 1881, en innri strúktúr þess hafi ekki mikið verið skoðaður í gegnum tiðina. Jarðskjálftamir hafi leitt i ljós að margt þurfi að endurbæta og að margir veikleikar í húsinu hafi op- inberast enn meira við þá. „Sprungur eru í veggjum frá góifi til lofts og einnig eru sprungur í út- veggjum alveg í gegn,“ segir Frið- rik. Skemmdirnar séu taldar svo miklar að ekki sé hægt að bíða lengi með viðgerðirnar og sé því gert ráð fyrir hefjast handa við þær strax næsta vor þegar þinginu verður frestað. „Þetta verður gert Alþingishúsið Stefnt er að því aö hefjast handa við viðgerðirnar á húsinu næsta vor. um leið og þinghúsið verður tengt við skálabygginguna," segir Frið- rik. Ásgeir Ásgeirsson, framkvæmda- stjóri Viðlagatryggingar íslands, segir að ekki hafi borist tilkynning- ar þangað um skemmdirnar á Al- þingishúsinu. Hann segir að alls hafi verið greitt úr Viðlagasjóði vegna skemmda á um þrjátíu hús- um á höfuðborgarsvæðinu og voru flest þeirra í útjaðri svæðisins. „Bæði var um að ræða sprungu- skemmdir og skemmdir á innbúi,“ segir Ásgeir. -MA Umsjón: Birgir Guðmundsson netfang: biggi@dv.is Erlingur í framsókn? Framsóknarmenn á Akureyri koma saman til aðalfundar sins síðar í vik- unni og telja menn að þar verði meðal annars rætt um skipan framboðslista ílokksins fyrir bæj- arstjórnarkosning- arnar næsta vor. Þegar liggur fyrir að Ásta Sigurðar- dóttir er á útleið úr | bæjarmálunum. Menn telja aftur á I móti líklegt að þeir ' Jakob Bjömsson og Guðmundur Ómar Guðmundsson haldi áfram, eða að minnsta kosti fýsi það. Fram- sóknarmenn i bænum sjá hins vegar fyrir sér að nýliðunar sé þörf og þar er nú ekki síst horft til Erlings Krist- jánssonar, kennara og aðstoðarþjálf- ara handknattleiksliðs KA. Hann er af traustum framsóknarættum í bænum og þykir þess utan sigurstranglegur frambjóðandi, gefi hann kost á sér í slaginn. Erlingur hefur spilað vörn með KA-liðinu upp á síðkastið en eins og einn framsóknarmaðurinn orðaði það þá er kominn tími til að setja Er- ling i sókn - i Framsókn ...! Rætt um sætaskiptingu Framboðsmálin eru ofarlega í um- ræðunni i pottinum þessa dagana og þá ekki síst framboðsmálin í Reykja- vík. Nú heyrist að Reykjavíkurlista- viðræðurnar séu farnar að snúast um uppröðun á lista og skiptingu sæta milli fram- bjóðenda. í pottin- um heyrist nú að menn séu að verða ásáttir um að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir verði ekki talin með kvóta Samfylkingar í þess- ari uppstillingu heldur skipi hún 8. sætið utan ílokka. Þá eru þrír flokk- ar um hin sjö sætin sem þýðir tvö sæti á flokk og eitt sæti stendur út af. Mikil átök munu um það sæti og er talið allt eins líklegt að það verði tekið frá fyrir einhvern „utan flokka". í öllu falli munu hvorki framsóknarmenn né vinstri grænir geta sætt sig við að það færi til Sam- fylkingar því þá yrði Samfylkingin í raun með fjóra af átta mönnum á lista, ef borgarstjóri er talinn til Samfylkingarmanna ... Nýr borgarfulltrúakandídat Meira um Reykjavíkurlistann. Rætt er um að úr hópi vinstri grænna muni nú líta dagsins ljós nýr borgar- fulltrúakandídat en til þessa hefur einungis Árni Þór Sigurðsson verið framarlega í borg- armálum úr þess- um herbúðum. Þau nöfn sem þar munu heitust eru auk Árna Stefanía Traustadóttir, Kol-1 beinn Proppé, Svanhildur Kaaber og Sigríður Stefánsdóttir... Ásdís í Reykjavík? En það er ekki einvörðungu Reykjavíkurlistamegin sem spenna ríkir um uppstillingu, það er talað um algera óvissu í röðum sjálfstæðis- manna. í pottinum heyrist enn dregið í efa að Inga Jóna Þórðardóttir muni verða leiðtogi list- ans og vitað er um áhuga Júlíusar Vífils Ingvarsson- ar á að taka við af henni ef hún fer ekki fram, en Júlíus er talinn hafa það á móti sér að hann minnir um margt á Árna Sigfússon- báðir séu of miklir séntilmenn fyrir þetta at. Þá er Björn Bjarnason enn á hliðarlínunni og er beðið ákveðnari merkja frá honum. En i þessari miklu biðstööu hafa umræður skap- ast um enn aðra sem gætu verið kall- aðir og æ oftar heyrist nú nafn Ás- dísar Höllu Bragadóttur, bæjar- stjóra í Garðabæ. Hún er fyrrum að- stoðarmaður Bjöms og er talin hafa margt með sér sem nýst gæti til að vinna borgina aftur ...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.