Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001
DV
Fréttir
Hóteleigendur vilja aö samkeppnisyfirvöld kanni útleigu á íbúðum stéttarfélaga til utanfélagsmanna:
Stéttarfélögin
keppa við hótelin
- allt að þrefaldur verðmunur, segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Sumarhús stéttarfélaga
Fyrir féiagsmenn á sumrin en hvern sem er þegar engin er eftirspurnin. Samkeppni viö gististaöi vilja hóteleigendur meina.
„Við gerum ekki
athugasemdir við að
stéttarfélög séu að
leigja út orlofshús
til félagsmanna
sinna, enda eru þau
byggð eða keypt af
þeim fyrir lögboðn-
ar tekjur þeirra úr
Hauksdóttir um. Það sem við
- þessi sam- gerum hins vegar
keppni getur athugasemdir við er
ekki gengiö. að þegar ekki er
........ nægileg eftirspurn
félagsmanna eftir íbúðunum, þá eru
þær settar á almennan markað, jafn-
vel leigðar út af þjónustufyrirtækjum,
eins og Securitas á Akureyri sem er
þjónustuaðili fjölmargra stéttarfélaga
sem eiga íbúð í bænum og leigðar
hverjum sem er án aðildar að stéttar-
félagi. Ég veit að þar hefur verið hægt
að fá íbúð leigða á 3.000 til 3.500 krón-
ur fyrir eina nótt á Akureyri á meðan
nótt í tveggja manna hóteli kostar um
10.000 krónur,“ sagði Erna Hauksdótt-
ir, framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar, við DV.
Leigja hverjum sem er
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF)
hafa fyrir hönd félagsmanna sinna
sem reka gistiþjónustu óskað eftir við
samkeppnisyfirvöld að þau nýti sér
þær heimildir sem þeim eru veittar i
lögum til að grípa til aðgerða gegn
samkeppnishamlandi aðstæðum. í er-
indi SAF segir að orlofssjóðir stéttar-
félaga eigi fjölda orlofshúsa og íbúða
víðs vegar um iandið. Bæði sé um að
ræða orlofshús í dreifbýli og íbúðir í
helstu þéttbýliskjörnum landsins, svo
sem í Reykjavík og á Akureyri. Áður
fyrr hafi félagsmenn þurft að sækja
um með löngum fyrirvara og hafa
minnst nokkurra ára félagsaðild hjá
stéttarfélaginu til að eiga möguleika á
úthlutun orlofshúsa. Þetta eigi að vísu
að einhverju leyti enn við um úthlut-
un yfir sumartímann, en þegar kemur
að leigu yfir vetrartímann er aðstaðan
allt önnur. Nú sé fjöldi orlofshúsa og
ibúða orðinn svo mikill að félagsmenn
Njörður Helgason
blaðamaöur
nýti ekki nema brot þeirra yfir vetrar-
tímann.
SAF segir að í úthlutunarreglum
orlofshúsa einhverra stéttarfélaga
komi fram að einungis félagsmenn fái
leigð orlofshús. í öðrum kveði á um að
félagsmenn hafi forgang um útleigu
húsanna. Það sé þó staðreynd að hjá
fjölda stéttarfélaga skipti ekki máli
hvort umsækjandi sé félagsmaður eða
utanfélagsmaður þegar sótt er um
leigu orlofshúss á vetrartíma. Sé íbúð
laus, þá fær sá sem fyrstur kemur.
Með þessu séu stéttarfélögin komin
inn á sama markað og hótel og gisti-
staðir í landinu sem reka gistiaðstöðu
samkvæmt opinberum leyfum.
„Þessar íbúðir stéttarfélaganna eru
undanþegnar öllum opinberum gjöld-
um sem rekstraraðilar gistiheimila og
hótela verða að greiða, virðisauka-
skatti, heiibrigðisgjaldi og öðrum
greiðslum vegna opinberra leyfa og
eru auk þess ekki teknar út af viðeig-
andi heilbrigðisyfirvöldum sem gisti-
staðir," sagði Erna. „Stéttarfélög eru
að misnota undanþágur sem þeim eru
veittar af ríkisvaldinu. Að okkar mati
getur þessi samkeppni við gististað-
ina ekki gengið,“ sagði Erna Hauks-
dóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar.
Mikil eftirspurn
„Það eru eflaust til dæmi um að við
höfum leigt íbúðir stéttarfélaganna ut-
anfélagsmönnum eftir að félögin hafa
komið því til okkar að íbúðirnar séu á
lausu. Við erum ekki beðnir um að
ganga úr skugga um félagsaðild af
uinbjóðendum okkar, stéttarfélögun-
um,“ sagði Árni Steinsson hjá Secur-
itas á Akureyri. Hann segir að yfir-
leitt séu íbúðir félaganna á Akureyri
leigðar skólafólki yfir vetrartimann
en nokkrar séu leigðar út til félags-
manna viðkomandi félaga. Helstu
verkefni Securitas séu að afhenda
lykla að íbúðunum til félagsmanna
stéttarfélaganna og að fara yfir þær að
leigutíma loknum.
„Við þjónustum allmörg félög, um
40 íbúðir eru í okkar umsjá, Það er
ekki launungarmál að mikið er hringt
og spurt um þessar ibúðir. í einstaka
tilfellum hafa félögin haft samband
við okkur og gefið það til kynna að
íbúðir þeirra séu á lausu, við höfum
þá haft heimild til að leigja þær í um-
boði félaganna til fólks sem hingað
hefur leitaö," sagði Árni Steinsson.
Leigjum eingöngu okkar
félagsmönnum
„Við leigjum eingöngu okkar félags-
mönnum hús í eigu félagsins og höf-
um ekki getað annað þeirri eftirspurn
sem er eftir þeim innan félagsins.
Hins vegar skil ég það vel að gerðar
séu athugasemdir ef félög eru að leigja
öðrum en sínum félagsmönnum sín
hús,“ sagði Magnús L Sveinsson, for-
maður Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur.
-NH
Hótel Tindastóll á Sauöárkróki
Fallegt hús sem setur svip á gamla
bæjarhiutann á Króknum. Eignin var
slegin hæstbjóöanda í síöustu viku.
Hótel Tinda-
stóll sleginn
hæstbjóðanda
- fór á 26 milljónir
DV, SKAGAFIRÐI:
Ferðamálasjóður og Byggðastofn-
un keyptu Hótel Tindastól á Sauðár-
króki á nauðungaruppboði í síðustu
viku. Kaupverðið var 26 milljónir
króna. Þessir aðilar áttu veðkröfur í
eignina, Ferðamálasjóður átti kröf-
ur að upphæð liðlega 16,4 millj. og
Byggðastofnun að upphæð 42,7
milljónir. Þriðji kröfuhafinn var er-
lend lánastofnun sem hafði lánað
150 þúsund dollara í fyrirtækið, eða
sem nemur um 15 milljónum.
Hótel Tindastóll var tekinn í
notkun í apríl árið 2000. Það er eitt
af elstu húsunum á Sauðárkróki og
í því hafði verið margvísleg starf-
semi en þó lengst af hótelrekstur.
Það var Pétur Einarsson, fyrrrver-
andi flugmálastjóri, sem réðst í að
endurgera húsið og tóku þær fram-
kvæmdir um eitt og hálft ár. Endur-
gerðin þótti vönduð og húsið sér-
stakt, ekki síst kjallarinn sem hlað-
inn er úr grjóti. Eins og fyrr hefur
verið greint frá í blaðinu er Pétur
fluttur af landi brott. -ÖÞ
Slysaskrá íslands:
Formleg skrán-
ing hafin
Formleg skráning í Slysaskrá Is-
lands hófst þann 1. október að við-
stöddum ráðherrum heilbrigðis- og
félagsmála og aðstandendum verk-
efnisins að því er kemur fram á
heimasíðu Landlæknisembættisins.
Um er að ræða upphaf tilraunatima-
bils og er markmiðið með skráning-
unni að fá betra yfirlit yfir fjölda
slysa, orsakir þeirra og afleiðingar.
Einnig muni skipulagðar slysarann-
sóknir leiða til markvissari og öfl-
ugri forvarna. Skráin mun inni-
halda upplýsingar um öll slys með
meiðslum, sem og upplýsingar um
eignatjón í umferðaróhöppum.
-MA
Erfitt aðgengi að heilsugæslustöðinni við Smáralind:
Búið að vera hræðilegt
- segir yfirlæknir sem kvartað í gær yfir átroðningi verktaka
Túnþökur á bílastæöi heilsugæslustöövarinnar Hvamms i Kópavogi.
Framkvæmdir í og viö Smáralind hafa valdiö starfsfólki og sjúklingum
heilsugæslustöövarinnar miklum ama.
Mikils urgs gætir hjá
starfsfólki heilsugæslu-
stöðvarinnar Hvamms
við Hagasmára í Kópa-
vogi vegna ágangs verk-
taka við Smáralind á lóð
stöðvarinnar. Keyrði um
þó þverbak i fyrradag, en
þá var búið að hlaða nið-
ur miklu af torfi á bíla-
stæði heilsugæslustöðv-
arinnar.
Sigurður V. Guðjóns-
son, yfirlæknir I
Hvammi, segir að ágang-
ur verktaka við Smára-
lind á lóð heilsugæslu-
stöðvarinnar hafi verið
mjög til ama undanfarin
misseri. „Ég kvartaði við
verktakann en stór hluti
bílastæðisins var þakinn túnþökum
þegar við mættum í morgun. Það var
hátt í helmingur bílastæðisins undir-
lagður," sagði Sigurður. Hann sagði
að þeir sem hefðu átt erindi í heilsu-
gæslustöðina að undanfórnu hefðu átt
í erfiðleikum með að finna bílastæði
við stöðina. „Bæði hafi bílastæði ver-
ið upptekin af starfsmönnum verk-
taka, auk þess sem aðgengi að stæðun-
um sé búið að vera hræðilegt. Það eru
komin umferðarljós hér allt um kring
en ég veit hrein-
lega ekki hvernig
þetta kemur til að
verða. Það getur
því orðið tafsamt
að komast til okk-
ar.“
Heilsugæslu-
stöðin er nýlega
byggð og var upp-
haflega á opnu
svæði. Nú má
hins vegar heita
að hún sé komin
undir gafl Smára-
lindar. Sigurður
segir að aðgengi
að stöðinni hafi
margsinnis komið
til umræðu á
fundum með
stjórn heilsugæslunnar. Hann telur
aðkomuna nú algjörlega óviðunandi.
Verktakar hófust handa strax eftir
að kvörtun barst um að fjarlægja þök-
urnar af bílastæðinu. Fulltrúi hjá
ístaki, sem er aðalverktaki vegna
framkvæmda við Smáralind, sagðist
ekki kannast við þetta mál. Hins veg-
ar væru margir verktakar að störfum
á svæðinu bæði innan og utan lóðar
við Smáralind. Þar væru líka verktak-
ar og starfsmenn á vegum Kópavogs-
bæjar. Hann kannaðist þó við að á
einhverjum stigum hefðu vinnuvélar
verið inni á lóð heilsugæslustöðvar-
innar vegna grjóthleðslu á lóðamörk-
unum.
Steingrímur Hauksson hjá tækni-
deild Kópavogsbæjar sagði að menn
yrðu að sýna einhverja biðlund með-
an framkvæmdir kláruðust í kringum
Smáralindina. Hann sagði að aðgeng-
ið ætti að verða mjög gott samkvæmt
skipulaginu. Þarna væru umferðar-
ljós fyrir gangandi umferð og akandi
umferð kæmist inn á sérafrein sem
líka yrði nýtt fyrir innkeyrslu að
vörugeymslum í Smáralind. Seinna er
gert ráð fyrir göngubrú að heilsu-
gæslustöðinni yfir Smárahvammsveg-
inn.
-HKr.
Yeik tollgæsla:
Ein lögga ann-
ast um 180
skipakomur
DV, AKRANESI:
Bæjarráð Akraness og Borgar-
byggðar hafa skorað á stjórnvöld að
tryggja fjármagn tO að halda uppi
nauösynlegri tollgæslu við Grundar-
tangahöfn. „Löngu er orðið tímabært
að efla tollgæslu á Grundartanga og
gera höfnina að aðalhöfn," segir í sam-
eiginlegri ályktun sveitarfélaganna.
Bent er á aö á Grundartanga er
starfrækt ein stærsta flutningahöfn
landsins fyrir millilandaflutninga.
Fjöldi skipakoma á Grundartanga hef-
ur nær tvöfaldast frá árinu 1995 og
verða þær um 180 á þessu ári. Þetta
þýðir komur millilandaskipa annan
hvern dag.
„Frekari uppbygging er fram undan
á Grundartanga sem leiða mun til þess
að viðkomum millilandaskipa fjölgar
enn. Einn lögreglumaður úr Borgar-
nesi hefur með höndum tollafgreiðslu
á Grundartanga, auk tilfallandi að-
stoðar. Við slíkt fyrirkomulag verður
ekki unað lengur og eru yfirvöld hvött
til aðgerða hið fyrsta," segir í ályktun
sveitarfélaganna. -DVÓ