Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Page 13
13 MIÐVIKUDAGUR 3, OKTÓBER 2001____________________________________________________________________________________________ I>V ^ Útlönd Hamas-skæruliðar réðust inn í landnemabyggð á Gazasvæðinu: Vopnahléssamkomulag ísraela og Palestínumanna er nú í miklu upp- námi eftir óvænta árás palestínskra byssumanna inn í ísraelska land- nemabæinn Alei Sinai á Gazasvæð- inu. Tveir ísraelskir borgarar, ungur maður og kærasta hans, féllu í árásinni og að minnsta kosti flmmtán særðust. Árásarmennirnir, sem voru tveir liðsmenn Hamas-samtakanna, ruddust inn í íbúðahverfi bæjarins í gærkvöld og skutu á óbreytta borgara og hermenn, auk þess sem þeim tókst að henda handsprengjum inn í íbúðar- hús áður en ísraelskum hermönnum tókst að skjóta þá til bana. Árásin, sem þegar hefur verið harðlega fordæmd af palestínskum stjórnvöldum, er gerð aðeins viku eft- ir vopnahlésfund þeirra Yassers Arafats, leiðtoga Palestinumanna, og Shimonar Peres, utanríkisráðherra ísraels, en síðan hafa tuttugu Palest- inumenn og tveir ísraelar látið lífið, auk þess sem bílsprengja sprakk í Jer- Grimmileg árás á ísraelska borgara í gær Tíu ára ísraelskur drengur var meöal þeirra særöu eftir árás Hamas- skæruliöanna á landnemabyggöina á Gazasvæöinu í gær. Skutu tvö ungmenni til bana og særðu fimmtán úsalem og ótal skotbardagar hafa orð- ið víða á óróasvæðinu. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, kallaði ríkisstjórn sína saman til fundar fljótlega eftir árásina og sagði hann eftir þriggja klukkustunda fund að árásin hefði verið óvægin og grimmdarleg. Hann kallaði palestínsk yfirvöld til ábyrgðar og sagði að hún væri afleiðing þess að Yasser Arafat héldi hlifikildi yfir hryðjuverkamönn- um. Sharon sagði að herinn myndi gera allt til að vernda ísraelska borgara og væri nú verið að rannsaka hvernig Hamas-skæruliðarnir komust inn á landnemasvæðið. í morgun gerði ísraelski herinn svo skriðdrekaárásir á palestínsk svæði í Gaza og sagði talsmaður öryggissveita Palestínumanna að þeir hefðu skotið að minnsta kosti tíu eftirlitsstöðvar í rúst, auk þess að særa fjölda manns, þar á meðal einn lögreglumann. REUTER-MYND Kosiö í Bangladess Begum Khaleda Zia, leiötogi stjórn- arandstööunnar, sigraöi meö yfír- buröum í þingkosningunum. Bangladess: Sigur stjórnar- andstöðunnar Stjórnarandstaðan í Bangladess, undir forystu Begum Khaleda Zia, fyrrum forsætisráðherra, sigraði með yfirburðum í þingkosningun- um á mánudag. Forsætisráðherrann, Sheikh Hasina, sakaði Khaleda og íslamska bandamenn hennar um að hafa haft rangt við og spáði því að kjósendur myndu hafna niðurstöðunni. Sex manns létust í átökum á kosningadag en síðan hefur allt ver- ið með kyrrum kjörum. Swissair í fjárhagserfiðleikum Svissneska flugfélagiö Swissair hætti öllu flugi í gær vegna slæmrar fjárhagsstööu í kjölfar hryöjuverkaárásanna í Bandaríkjunum. Vélar félagsins voru kyrrsettar víöa um heim vegna skulda viö flugyfírvöld og olíufélög og bíöur félagiö nú fyrirgreiöslu svissneskra banka til aö geta haldiö áfram starfsemi sinni. Hér á myndinni sjáum viö þrjár flugfreyjur félagsins yfírgefa eina af vélum Swissair á flugvellinum í Zurich. Meintur hryðjuverkamaður í haldi í París: Sjálfsmorðsárás skipulögð gegn bandaríska sendiráðinu Franskur karlmaður af alsírskum uppruna greindi frönskum rann- sóknardómara í gær frá samsæri þar sem gera átti sjálfsmorðsárás inni í bandaríska sendiráðinu í Par- ís, að því er heimildarmaður Reuters-fréttastofunnar innan franska dómskerfisins sagði. Fréttum bar hins vegar ekki sam- an um hvort maðurinn, hinn 35 ára gamli Djamel Beghal, hefði tekið við skipunum frá Osama bin Laden, sem grunaður er um aö hafa staðið fyrir hryðjuverkunum í Bandaríkj- unum í síðasta mánuði. Heimildarmaður Reuters sagöi að Beghal, sem var framseldur frá Sameinuðu arabísku furstadæmun- um á mánudag, hefði skýrt frá því að maður frá Túnis hefði átt að laumast inn i sendiráðið með REUTER-MYND Viö bandaríska sendiráöiö Þessi mynd var tekin viö bandaríska sendiráöiö í París þremur dögum eft- ir árásirnar á Bandaríkin. Nú berast fréttir um aö sjálfsmorösárás hafí verið skipulögö gegn sendiráöinu. sprengiefni innan klæða. Túnisbú- inn var handtekinn með sprengiefni í Belgíu tveimur dögum eftir árás- irnar í Bandaríkjunum. Beghal sagði að svipuö árás hefði verið skipulögð gegn bandarískri menningarmiðstöð í París. Hann gekkst við því að tilheyra islamskri hreyfmgu sem stofnuð var í Egypta- landi. Lögmaður hans vísaði aftur á móti á bug að skjólstæðingur hans hefði játað að hafa tekið við fyrir- skipunum frá bin Laden. Annar heimildarmaður hafði sagt áður að Beghal hefði heimsótt aðal- stöðvar bin Ladens í Afganistan og gert samning við aöstoðarmann um að gera árásimar á sendiráðið og menningarmiðstöðina í París. Beghal var handtekinn í Dubai við Persaflóa í júlí. CIA þjálfaði Pakist- ana gegn bin Laden Bandaríska leyniþjónustan CIA þjálfaði og útbjó sérsveit pakist- anskra hermanna árið 1999 sem átti að ráðast til atlögu gegn Osama bin Laden í Afganistan. Áformin fóru hins vegar út um þúfur þegar her- inn í Pakistan rændi völdum, að því er bandaríska dagblaðið Was- hington Post greindi frá í morgun. í blaðinu kom fram að CIA hefði á laun þjálfað um sextíu pakist- anska sérsveitarmenn í samvinnu við stjórn Nawaz Sharifs, fyrrum forsætisráðherra Pakistans. „Þetta var á góðu róli,“ hafði Washington Post eftir fyrrum emb- ættismanni í stjórn Bills Clintons, þáverandi Bandaríkjaforseta. Áætlunin var slegin af þegar Per- vez Musharraf hershöfðingi velti Sharif úr sessi í október 1999. Bandarísk stjórnvöld reyndu ít- rekað aö telja nýja valdhafa á að fallast á áformin en ekkert gekk. Musharraf hefur síðan gerst einn helsti bandamaður Bandaríkja- manna í baráttunni gegn hryðju- verkamönnum. Annað dagblað í bandarísku höf- uðborginni, Washington Times, greindi frá því í morgun að banda- rískar leyniþjónustur hefðu bent á 23 bækistöðvar hryðjuverkamanna í Afganistan og nokkrar herstöðvar talibanastjórnarinnar sem skot- mörk í yfirvofandi árásum Banda- ríkjanna á Afganistan. Skotmörkin eru víðs vegar um Afganistan. JmuúESTonE Jeppadekk samkvæmt formúlunni! Við munum á næstu dögum opna dekkja verkstæði í Ármúla 1 (bakvið). Fylgstumeð. BOSCH Mikið úrval af Ijóskösturum BOSCH HUSIÐ BRÆBURNIR 0RMS80N Lágmúla 9, sími 530-2801

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.