Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Page 26
42
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001
íslendingaþættir__________________________________________________________________________________________________________py
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Fólk í fréttum
Geir H. Haarde
Stórafmæli
95 ára_______________________________
Sigdór Hallsson,
Löngumýri 8, Akureyri.
85 ára_______________________________
Þorsteinn Jóhannsson,
Melabraut 48, Seltjarnarnesi.
80 ára_______________________________
Einar Nikulásson,
Breiðageröí 25, Reykjavík.
Kristján Guömundsson,
Skáldsstöðum, A.-Barðastrandarsýslu.
TSára________________________________
Ólafur G. Hjartarson,
Ásvallagötu 33, Reykjavík.
Guörún Jónsdóttir,
Sóltúni 13, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson,
Hlíðargötu 39, Sandgerði.
70 ára_______________________________
Þórey Ólafsdóttir,
Njálsgötu 36b, Reykjavík.
Hróömar Gissurarson,
Kleppsvegi 4, Reykjavík.
Marvin Guömundur Hallmundsson,
Engihjalla 9, Kópavogi.
Hailur Ólafsson,
Merkurgötu 5, Hafnarfiröi.
Óttar Gunnlaugsson,
Vallholti 31, Selfossi.
60 ára_______________________________
Guörún Ingólfsdóttir,
Sóltúni 28, Reykjavík.
Ingi Sigurður Helgason,
Faxatúni 18, Garðabæ.
Ibsen Angantýsson,
Heiðargarði 13, Keflavík.
María Lúðvíksdóttir,
Hlíðarvegi 46, Njarðvík.
Rafn Sveinsson,
VTðilundi lOg, Akureyri.
50 ára_______________________________
Kristín Márusdóttir,
Klyfjaseli 12, Reykjavík.
Ingibjörg Haröardóttir,
Þrándarseli 3, Reykjavik.
Edda Hlín Hallsdóttir,
Barðastööum 89, Reykjavik.
Sólfríöur Guömundsdóttir,
Skólagerði 15, Kópavogi.
Jóhanna Björnsdóttir,
Álfaskeiði 100, Hafnarfirði.
Geröur Garöarsdóttir,
Lækjargötu 34d, Hafnarfirði.
Inga Ólína Anna Jóhannesdóttir,
Brautarholti 17, Snæfellsbæ.
fj ármálaráðherra
Geir Hilmar Haarde fjármála-
ráðherra, til heimilis að Grana-
skjóli 20, Reykjavík, kynnti á
mánudaginn var nýtt fjárlaga-
frumvarp ríkstjórnar Islands.
Starfsferill
Geir fæddist í Reykjavík þann
8.4. 1951 og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1971,
BA-prófi í hagfræði við Brandeis
University í Waltham í Massachu-
setts í Bandaríkjunum 1973, MA-
prófi i alþjóðastjórnmálum við
John Hopkins University, School
of Advanced International Studies
í Washington DC í Bandaríkjun-
um 1975 og MA-prófi í þjóðhag-
fræði við University of Minnesota
í Minneapolis í Bandaríkjunum
1977.
Geir var blaðamaður við Morg-
unblaðið á sumrin 1972-77, hag-
fræðingur í alþjóðadeild Seðla-
banka íslands 1977-83, aðstoðar-
maður íjármálaráðherra 1983-87,
varaþm. Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavik frá 1983, er alþm. frá
1987 og var formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins 1991-98.
Geir var formaður SUS 1981-85,
forseti Norðurlandaráðs 1995, for-
maður þingmannahóps vestrænna
ríkja innan Alþjóðaþingmanna-
sambandsins 1992-94, í fram-
kvæmdastjórn sambandsins frá
1994 og varaforseti þess frá
1995-97, formaður flokkahóps
íhaldsmanna innan Norðurlanda-
ráðs 1995-97 og formaður utanrík-
ismálanefndar alþingis 1995-98.
Fjölskylda
Eiginkona Geirs er Inga Jóna
Þórðardóttir, f. 24.9. 1951, við-
skiptafræðingur og borgarfulltrúi.
Hún er dóttir Þórðar Guðjónsson-
ar, skipstjóra og útgerðarmanns á
Akranesi, og k.h., Marselíu Guð-
jónsdóttur húsmóður.
Börn Geirs og Ingu Jónu eru
Borgar Þór Einarsson, f. 4.5. 1975
(stjúpsonur Geirs); Helga Lára, f.
27.1. 1984; Hildur María, f. 15.11.
1989. Dætur Geirs frá fyrra hjóna-
bandi og Patriciu Mistrettu Guð-
mundsson eru Ilia Anna, f. 28.7.
1977, og Sylvía, f. 9.6. 1981.
Bræður Geirs: Bernhard Haar-
de, f. 31.1. 1938, d. 2.3. 1962, banka-
maður í Reykjavík; Steindór Helgi
Haarde, f. 12.9. 1940, bygginga-
verkfræðingur og lektor við
Tækniskóla íslands, búsettur á
Seltjamarnesi, kvæntur Jórunni
Hönnu Bergmundsdóttur, hús-
móður og tækniteiknara, og eiga
þau þrjú börn.
Foreldrar Geirs: Tomas Haarde,
f. í Sandeid í Rogalandi í Noregi
14.12. 1901, d. 18.5. 1962, símafræð-
ingur í Reykjavík, og k.h., Anna
Steindórsdóttir, f. 3.5. 1914, hús-
móðir.
Ætt
Anna er dóttir Steindórs Helga,
forstjóra Bifreiðastöðvar Stein-
dórs Einarssonar, b. í Ráðagerði,
bróður Elínar, ömmu Bjöms R.
Einarssonar hljóðfæraleikara.
Einar var sonur Björns, b. á Litla-
Hálsi, bróður Kristínar,
langömmu Gissurar, foður Hann-
esar Hólmsteins. Björn var sonur
Odds, b. á Þúfu í Ölfusi, Bjöms-
sonar, bróður Katrínar,
langömmu Vals leikara, föður
Vals bankastjóra, og langömmu
Garðars, foður Guðmundar H.,
fyrrv. alþm. Móðir Björns á Litla-
Hálsi var Jórunn, systir Magnús-
ar á Hrauni, langafa Aldísar, móð-
ur Ellerts B. Schram, forseta ÍSÍ.
Jórunn var dóttir Magnúsar ríka,
hreppstjóra í Þorlákshöfn, Bein-
teinssonar, b. í Þorlákshöfn, Ingi-
mundarsonar, b. á Hóli, Bergsson-
ar, ættföður Bergsættar, Stur-
laugssonar.
Móðir Steindórs Helga var Guð-
rún Steindórsdóttir, b. í Landa-
koti í Reykjavík, bróður Jóns í
Gröf, afa Ólafs Jóhanns Sigurðs-
sonar rithöfundar, föður Ólafs Jó-
hanns, rithöfundar og forstjóra.
Steindór var sonur Matthiasar,
kaupmanns í Hafnarfirði, bróður
Páls, langafa Ólafs Björnssonar,
hagfræðiprófessors og fyrrv.
alþm, og Guðrúnar, móður Vil-
mundar ráðherra og Þorvalds hag-
fræðiprófessors Gylfasona. Matth-
ías var sonur Jóns, pr. í Amar-
bæli, Matthíassonar, stúdents á
Eyri, bróður Markúsar, langafa
Ásgeirs forseta. Matthías var son-
ur Þórðar, ættfoður Vigurættar,
Ólafssonar, ættfoður Eyrarættar,
Jónssonar, langafa Jóns forseta.
Móðir Önnu var Ásrún Sigurðar-
dóttir, b. í Sigluvík á Svalbarðs-
strönd, Jónssonar, bróður Ás-
mundar, afa Guðmundar Bene-
diktssonar, fyrrv. ráðuneytis-
stjóra. Móðir Ásrúnar var Anna,
systir Guðnýjar, ömmu Halldórs
Laxdal í Radióbúðinni. Anna var
dóttir Gríms, b. í Garðsvík, og Sæ-
unnar Jónsdóttir frá Látrum.
Móðir Sæunnar var Jóhanna Jó-
hannesdóttir, b. í Grenivík, Árna-
sonar. Móðir Jóhannesar var Sig-
ríður Sörensdóttir frá Ljósavatni.
Móöir Sigríðar var Guðrún Þor-
valdsdóttir, pr. á Hofl, Stefánsson-
ar, skálds í Vallanesi, Ólafssonar,
prófasts og skálds á Kirkjubæ,
Einarssonar, prófasts og skálds í
Heydölum, Sigurðssonar.
40 ára__________________________
Jóel Brynjólfsson,
Bergþórugötu 41, Reykjavík.
Birgir Sævar Ellertsson,
Asparfelli 12, Reykjavík.
Guölaugur H. Guðjónsson,
Hvannarima 6, Reykjavík.
Bergur Már Sigurösson,
Reykjavíkurvegi 36, Hafnarfirði.
Janusz Malkowski,
Melteigi 10, Keflavík.
Þórlaug Ásgeirsdóttir,
Fjarðarstræti 59, ísafirði.
Ingibjartur A Ingvarsson,
Stakkanesi 4, Isafirði.
Anna Gísladóttir,
Móatúni 25, Tálknafirði.
Hilmar Haukur Aadnegard,
Dalatúni 13, Sauðárkróki.
Erlendur Steinþórsson,
Mánatröð 3, Egilsstöðum.
Sjötugur
Marvin Guðmundur Hallmundsson
húsasmiður
Marvin Guðmundur Hallmunds-
son húsasmiöur, Engihjalla 9, Kópa-
vogi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Marvin fæddist að Meiri Garði í
Dýrafirði og ólst þar upp. Hann nam
húsasmíði hjá Guðmundi Jóhanns-
syni og lauk sveinsprófi frá Meist-
araskólanum árið 1960. Marvin
starfaði lengst af í Trésmiðju Há-
konar og Kristjáns en síðustu 15 ár-
in hefur hann starfað hjá Húsa-
smiðjunni. Marvin sat í stjórn Tré-
smiðafélags Reykjavíkur. Hann er
einnig virkur félagi í Lionsklúbbn-
um Muninn í Kópavogi.
Fjölskylda
Marvin kvæntist 24.12. 1956 Ólöfu
Árnadóctur, f. 17.4.1930, d. 26.2 1997,
verslunarmanni, og
voru foreldrar hennar
Árni Daníelsson
verkamaður og Gyða
Steindórsdóttir hús-
móðir og bjuggu þau í
Vinaminni, Neskaup-
stað.
Börn Marvins og
Ólafar: Hallmundur
Rúnar, f. 26.8. 1957,
húsasmíðameistari í
Kópavogi, kvæntur
Guðrúnu Jónsdóttur
bókara og eiga þau
þrjú börn; Gyða María, f. 10.8. 1960,
skrifstofumaður í Kópavogi, gift Vil-
mundi Tryggvasyni lagerstjóra og
eiga þau þrjú böm; Eysteinn, f. 27.3.
1969, sölumaður, kvæntur Guðrúnu
Waage, starfsmanni á leikskóla, og
eiga þau tvö böm. Mar-
vin og Guðrún eiga eitt
barnabarnabarn.
Systir Marvins er
Jónasína, f. 21.11. 1938,
búsett í Reykjavík.
Foreldrar Marvins
voru Hallmundur Jóns-
son, f. 6.7. 1898, d. 8.2.
1977, bóndi í Meiri
Garði í Dýrafirði, og
kona hans Guðrún
Jóna Guðmundsdóttir,
f. 18.7. 1899, d. 27.12.
1998, húsmóðir.
Marvin tekur á móti gestum laug-
ardaginn 6.10. frá kl. 17-19 í Lions-
heimilinu Lundi, Auðbrekku 25,
Kópavogi.
Mcrkír Islendíngar
Stephan G. Stephansson skáld fæddist á
Kirkjubóli í Skagafirði 3. október 1853.
Skólagöngu hlaut Stephan enga sökum
hversu efnalítil fjölskylda hans var.
Hann fluttist vestur á bóginn til Norð-
ur-Ameriku tvítugur að aldri. Þar
stundaði hann i fyrstu daglaunavinnu
en gerðist síðar landnemi og bóndi og
nam þrívegis nýtt land. Síðustu ára-
tugina bjó Stephan í Albertafylki í
Kanada.
Kveðskapur Stephans birtist ekki á
prenti fyrr en Stephan var kominn á
miðjan aldur. Kvæði hans birtust i sex
bindum og heitir safnið Andvökur, sem
dregið er af því að Stephan orti mest megn-
is á kvöldin og næturnar eftir að hafa sinnt
Stephan G. Stephansson
hefðbundnum bóndastörfum.
Stephan lét sig öll mannleg vandamál
skipta. Þó beindist athygli hans mest að
þrem málefnum; styrjöldum; auðvaldi og
kirkjunni og þóttu ádeilur hans oft á
tíðum afar hvassar. Þ.á m. áleit hann
að kirkjan æli tálvonir hjá sóknar-
börnum sínum, auk þess að bæla nið-
ur þrá þeirra eftir frelsi og sannleika.
Sjálfur taldi Stephan sig vantrúar-
mann.
Stephan orti mestmegnis um sam-
tíma sinn en hreifst þó af fornritunum
og leitaði oft til þeirra sem samanburð
við sinn samtíma. Hann er talinn tilheyra
raunsæisstefnunni.
Stephan lést árið 1927.
DV
550 5000
visir.is
4=0
550 5727
1=1 Þverholt 11,
105 Reykjavík