Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Blaðsíða 28
44 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTOBER 2001 Tilvera DV í f Í Ö f I I! V I N N U Mannakorn leikur í Salnum Hljómsveitin Mannakorn mun endurflytja 25 ára afmælistónleika sína í Salnum í kvöld, og hefjast þeir kl. 21. 00. Þar munu félagarnir Magnús Eiríksson og Pálmi Gimnarsson, ásamt Ellen Kristjánsdóttur, flytja allar ástsælustu perlur Magnúsar, með aðstoð tveggja ungra og efnilegra hljóðfæraleikara, Davlðs Þórs pfanóleikara og Benedikts Brynleifssonar trommuleikara. POPP________________________ ■ SVITI I NORÐURKJALLARANUM Bandaríska pönkrokksveitin Out Cold fær svitann til að flæða á al- vörurokktónleikum í Norðurkjallara MH ásamt íslensku sveitunum Mín- us og DogDaze. Húsið er opnaö kl. 21 og það kostar 500 kall inn. Krár ■ RADIO X A GAUKNtlM Utvarps stöðin Radíó X sér um músíkina á Gauki á Stöng. Klassík ■ TONLEIKAR I STYKKISHOLMI Guömundur Kristmundsson lágfiðluleikari og Hávaröur Tryggvason kontrabassaleikari halda tónleika í Stykkishólmskirkju í kvöld í samvinnu við Tónlistarskóla Stykkishólms og Félag Islenskra tónlistarmanna. Þar munu þeir kynna hljóðfærin og leika fjölbreytt og skemmtileg verk. Tónleikarnir hefjast kl. 18 og allir eru velkomnir. Aðgangur er ókeyþis. ■ ÍTÖLSK TÓNLIST í ÞJOPARBOKHLODUNNI Tríóið Delizie Italiane með þeim Leone Tinganelli, Jóni Rafnssyni og Jóni E. Hafsteinssyni leikur heföbundna tónlist frá Napólí í fyrirlestrasal á 2. hæö Þjóöarbókhlööunnar í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og eru liður í dagskrá ítalskrar viku á íslandi. Fundir RI^NbÚRÚMRJUÞÚNÁ HALDINN I RAÐHUSSKAFFI Skotveiöifélag Islands efnir til fræðslufundar á Ráöhúskaffi í Ráðhúsinu við Tjö/nina í kvöld kl. 20.30. Þar mun Ólafur K. Níelsen fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun fjalla um ástand rjúpnastofnsins nú í haust og áhrif veiöa á rjúpuna. Einnig mun hann lýsa rjúpnarannsóknum í Eyjafirði og svara fyrirspurnum fundarmanna. Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á málefninu. Gönguferdir ■ GONGUFERÐ UM HAFNARSVÆÐH) I REYKJAVÍK Hafnargön|uhópurinn stendur fyrir gönguferö í kvöld milli gömlu hafnarinnar og Sundahafnar. Farið verðurfrá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin kl. 20.00 og með hafarbökkum og ströndinni inn á Sólfar og áfram inn í Rauðarárvík og Laugarnes, þaöan um Sundabakka inn í Vatnagaröa. Til baka geta menn valið um göngu eða far með strætó. Allir eru velkomnir í ferð með Hafnargönguhóþnum. Sýningar ■ HRÖNN Á HÚSÁVÍK Hrónn Eggertsdóttir myndlistarmaður sýnir verk sín í Safnahúsinu á Húsavík. Sýningin heitir „Á ferð" og myndefniö er ferðalag um landið okkar, ísland. Júlíus Sólnes prófessor með fyrirlestur um World Trade Center: Saga, bygging og hrun Bíógagnrýni Tóm leiðindi Júlíus Sólnes prófessor verður með fyrirlestur um World Trade Center- turnanna sem ráðist var á 11. septem- ber síðastliðinn. Turnarnir voru byggðir á árunum 1966-1973 og voru á sinum tíma byggingartæknilegt afrek. Menn dáðust að glæsilegri hönnun arkitektsins Minoru Yamasaki og djörfum lausnum verkfræðinganna Skillings, Helle, Christiansens og Ro- bertsons. Til minningar um turnana ætlar Júlíus Sólnes að segja frá byggingar- sögu þeirra, tæknilegri gerð og hruni. Fyrirlesturinn er í stofu 158 í VR II húsinu við Hjarðarhaga og hefst klukkan 16.00 í dag. Menn eru farnir að gera sér nokkra grein fyrir því og ég ætla að rekja þær hugmyndir í fyrirlestrinum." „Ég ætla einnig að rekja byggingar- söguna, lóðanýtingu svæðisins og fjalla um arkitektinn. Áður en bygg- ingarnar hófust var lóðin í eigu hafn- arinnar og þar voru einhver vöruhús. Menn áttuðu sig svo á því að þarna var stór illa nýtt lóð við hliðina á stærsta fjármálahverfi heimsins. Alls var centerinn sjö hús sem höfðu sitt eigið póstnúmer, lögreglustöð og svo var sérstök lestarstöð fyrir húsin. Þetta er svo sem eðlilegt því saman- lagður fjöldi fólks sem sótti vinnu í WTC hefur verið á annað hundrað þúsund, eöa eins og hálf íslenska þjóð- in, á hverjum degi.“ Júlíus segir að það sem menn sjái ekki sé lika merkilegt. „Menn geta ímyndað sér hvernig frárennslið eða Háskólabió - Isn’t She Great: ★ Sif Gunnarsdóttir skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Vakti mikla athyggli „Ástæðan fyrir áhuga mínum á húsunum er tvíþættur," segir Júlíus. „Þegar ég var ungur maður starfaði ég sem verkfræðingur í Danmörku og þá voru turnarnir í smíöum. Fram- kvæmdin vakti gríðarlega athygli um allan heim, menn höfðu aldrei séð svona byggingar áður. Ég kom til New York 1971 og sá turnana úr fjarlægð og fannst mikið til þeirra koma. Ég fór svo með hóp verkfræðinema að skoða turnanna árið 1985. Við fengum mjög ítarlega leiðsögn um bygging- arnar og fyrirlestur um byggingu þeirra.“ Hvað gerðist „Eftir óhæfuverkin 11. september fór ég að afla mér upplýsinga um hvað hefði gerst i raun. Það eru sérfræðing- ar úti um allan heim að reyna að gera sér grein fyrir því hvernig turnarnir stóðu af sér árásina og hrundu svo. Endurreisn turnanna táknræn Sérfræöingar úti um allan heim eru aö reyna aö gera sér grein fyrir því hvernig turnarnir stóöu af sér árásina og hrundu svo. Byggingartæknilegt afrek Júlíus Sólnes segist fyrst hafa séö turnana í New York 1971 og fundist mikiö til þeirra koma. vatnsveitan í svona húsi er. Loftræsti- kerfið og lyftumar voru með ólíkind- um þannig að húsin voru á margan hátt merkileg." Hólógrafmynd Þegar Júiíus er spurður hvort hann telji að turnarnir verði reistir aftur segir hann að öU húsin sjö sé ónýt. „Menn skiptast í tvær fylkingar hvað endurbyggingu þeirra varðar. Sumir vilja byggja þau 1 sömu mynd en aðr- ir eru að tala um að hafa turnana lægri vegna þess að það verði erfitt að fá fólk til að vinna í svona háhýsum eftir árásina." Að lokum segir Júlíus að endur- reisn tumanna sé mjög táknræn að- gerð og með henni séu Bandaríkja- menn að sýna að þeir láti ekki bugast. Hópur listamanna hafi nýlega sett fram þá hugmynd að kasta hólógraf- mynd af turnunum á staðinn, þar sem þeir stóðu áður, og flýta þannig fyrir „endurreinsn" þeirra. -Kip Skáldkonan og umboösmaðurinn Bette Midler og Nathan Lane í hlutverkum sinum. Byrjum á því að líta á hverjir eru viðriðnir kvikmyndina Isn’t She Great. Leikstjórinn Andrew Berg- man hefur áður leikstýrt prýðileg- um gamanmyndum eins og The Freshman (þar sem Brando gerði grín að Guðfoðurhlutverkinu) og Honeymoon in Vegas. Handritshöf- undurinn Paui Rudnick skrifaði In & Out með Kevin Kline og leikar- arnir sem skipa aðalhlutverkin eru allt reyndir gamanleikarar sem hafa oft komið manni til að hlæja upphátt: Bette Midler, Nathan Lane (kærasti Robins Williams í The Birdcage), Stockhard Channing, David Hyde Pierce (litli bróðir Fraisers) og sjálfur John Cleese. Þess vegna situr maður eftir eins og stórt spurningarmerki að kvikmynd lokinni og veltir því fyrir sér hvern- ig þetta einvalalið hafi getað gert svona óskaplega leiðinlega mynd og hverjum hafi eiginlega dottið það í hug? Besta atriðið í myndinni er þegar aðalpersónan, Jacqueline Sus- ann, er að horfa á sjónvarpið og sér (og við lika) James Brown syngja lagið I Feel Good - en því miður fær maður ekki að sjá allt lagið. Jacqueline Susann (Midler) var kona sem langaði óskaplega mikið til að verða fræg. Fyrst reyndi hún að vera leikkona en þegar það gekk ekki giftist hún umboðsmanninum Irving Mansfield (Lane), eignast með honum þroskaheft barn, fékk krabbamein og skrifaði bókina Valley of the Dolls sem seldist ótrú- lega vel í Bandaríkjunum á sjöunda áratugnum enda var bókin um dóp- aðar konur og graða menn í Hollywood og var víst klúrari en nokkuö sem hafði komið út áður í hinu púritanska vestri. Eftir bókina (sem varð að kvikmynd 1967) skrif- aði hún nokkrar í viðbót í sama dúr, varð rík og fræg og dó árið 1974. Þessi saga hennar er óskaplega illa sögð í kvikmyndinni Isn’t She Great, enda skautar myndin á milli aulahúmors og velgjulegrar væmni þegar allt í einu er ætlast til að áhorfandinn taki upp vasaklút og felli tár yfir persónum sem eru ekk- ert nema yfirborð og skipta mann engu máli. Ég varð að fletta upp á Midler í kvikmyndahandbókinni minni til að fullvissa mig um að hún hefði einhvern tímann gert eitthvað vel og mundi þá eftir ágætishlutverkum sem hún hafði fyllt vel út í. Hér of- leikur hún í allar áttir þannig að samúð eða áhugi með aðalpersón- unni er ómögulegur. Nathan Lane leikur manninn hennar og þótt hann sé ekki eins afspyrnuvondur og Midler þá reynir hann hvað hann getur. Stockard Channing er vinkonan og á nokkur hnyttin til- svör, John Cleese leikur útgefanda og er ekkert notaður og David Hyde Price er bara alveg ágætur sem rit- stjóri Susann. Myndin fær eina stjörnu út á hann og tvo nett fyndna brandara sem ég held að séu örugg- lega báðir sýndir í treilemum Ég veit ekki hversu mikið Isn’t She Great er sannsöguleg, en Sus- ann vegna vona ég að lif hennar hafi verið áhugaverðara en þessi kvikmynd. Leikstjóri: Andrew Bergman. Handrit: Paul Rudnick, byggt á grein eftir Michael Korda. Tónlist: Burt Bacharach. Leikarar: Bette Midler, Nathan Lane, Stockard Channing, David Hyde Pierce, John Cleese

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.