Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Blaðsíða 32
Subaru Impreza
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFIIR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Nýjar tillögur Vinstri grænna:
Austfirðingar
- fái 400 millj-
ónir árlega
- til atvinnuuppbyggingar
Vinstri hreyfingin -
grænt framboð kynnti
helstu stefnumál sín
fyrir komandi þingvet-
ur á fundi í gær.
Byggðamál og um-
hverfismál verða ofar-
lega á baugi og mál
þeim tengd. Flokkur-
.> inn boðar sérstakar að-
gerðir til að treysta
byggð á Austurlandi.
Ögmundur Jónasson, formaður
þingflokks Vinstri grænna, sagði í
samtali við DV í morgun aö stór-
iðjuáform stjórnvalda væru oft sett
fram til að gæta hagsmuna Austfirð-
inga en vinstri grænir teldu hug-
myndir um Kárahnjúkavirkjun og
álver - stærstu ríkisframkvæmdir
sögunnar - þvert á móti leiða til
vaxtahækkunar og
óæskilegra áhrifa.
Þess vegna setji
flokkurinn fram
aðra kosti.
„Við viljum verja
árlega 400 milljónum
króna á næstu sex
árum til atvinnuupp-
byggingar. Þróunar-
félag Austurlands
sjái um ráðstöfun
fjárins og þetta sé gert á forsendum
lieimamanna," segir Ögmundur.
Hann boðar þessar aðgerðir sem
fyrsta áfangann af mörgum en vill
að mat verði lagt á afraksturinn
innan þriggja ára. „Ef þetta gefur
góða raun vilja Vinstri grænir að
þetta verði reynt í öðrum hlutum
landsins. -BÞ
Hafna Kárahnjúkavirkjun
Þingflokkur Vinstri grænna
kynnti helstu stefnumái sín
á fundi í gær.
DV-MYND GVA
Framkvæmdir hafnar aftur
Framkvæmdir eru nú hafnar aftur viö viöbyggingu Alþingishússins og er stefnt aö því að þeim veröi aö mestu leyti lok-
ið haustiö 2002. Þessa dagana er unniö aö því aö klára bílakjallara og slá upp fyrir næstu hæö þar fyrir ofan.
Sjá bls. 4.
Starfshópur:
Vill banna
einkadans
Starfshópur borgarstjóra og lög-
reglustjóra um veitingamál hefur
lagt fram ítarlega skýrslu um marg-
víslegar breytingar á veitingastarf-
semi. Þar kemur m.a. fram
tillaga um bann við kjöltu-
dansi.
í skýrslunni er einnig
, lagt til að hertar verði
reglur um vínveitingar
og að borgarstjórn verði
veitt heimild í lög-
reglusamþykkt til að
banna ölvun og/eöa
meðferð áfengis á til-
teknum timum og á til-
teknum svæðum borgar-
innar. Þá eru einnig til-
lögur um breyttar reglur
um starfsemi nætur-
v klúbba og nektarstaða.
Þar er lagt til að lagt verði
bann við „einkadansi" á nætur-
klúbbum. Þar verði jafnframt kveðið
á um að sýning verði að fara fram í
nægilega rúmgóðu húsnæði þannig
að gott rými sé á milli sýnenda og
áhorfenda. Miðað verði viö ákveðinn
metrafjölda i því sambandi. Jafn-
framt verði sýnendum bannað að
fara um meðal áhorfenda.
-HKr.
Samskiptaleysi milli fjármálaráðuneytisins og Þjóðhagsstofnunar:
Þjóðhagsstofnun
var ekki látin vita
af því að vinna stofnunarinnar yrði ekki lögð til grundvallar fjárlögunum
„Það kom okkur á óvart að þess-
ar meginforsendur okkar væru ekki
lagðar til grundvallar fjárlögunum.
Okkar forsendur
komu fram 1 þjóð-
hagsáætlun og
þeir höfðu að-
gang að henni.
Fjármálaráðu-
neytið lét okkur
ekki vita af því
að þeir ætluðu að
leggja aðrar for-
sendur til grund-
vallar fjárlögun-
um,“ segir Þórður Friðjónsson, for-
stöðumaður Þjóðhagsstofnunar.
Aldrei fyrr hefur fjármálaráðu-
neytið hundsað vinnu Þjóðhags-
stofnunar við gerð fjárlaga og hafa
kenningar verið á lofti um að þessi
staðreynd marki upphafið að enda-
lokum stofnunarinnar. Samkvæmt
fyrrgreindum orðum Þórðar fékk
Þjóðhagsstofnun fyrst vitneskju um
það þegar fjárlögin voru fullunnin
að útreikningar stofnunarinnar
væru ekki lagðir til grundvallar.
Ráðuneytið kaus ,þess í stað að
vinna sína útreikninga sjálfstætt.
Þórður segist ekki sjá að sama-
semmerki sé milli óvissu um fram-
tíð stofnunarinnar og þessara
vinnubragða en bendir þó á að það
sé annarra að svara fyrir það.
Spurður hvort störf Þjóðhagsstofn-
unar hafi að nokkru leyti verið unn-
in til einskis í ljósi ákvörðunar
ráðuneytisins segir Þórður svo ekki
vera. Þjóðhagsstofnun eigi lögum
samkvæmt að gefa a.m.k. tvisvar á
ári yflrlit um ástand og horfur i
efnahagsmálum og eftir því sé unn-
ið. „Það er mjög mikilvægt að okk-
ar mati að óháður aðili geri svona
spá,“ segir Þórður. Hann segist ekki
hafa skýringar á því af hverju geng-
ið hafi verið framhjá þeim nú. Þeir
hafi unnið sína spá með eins fagleg-
um hætti og framast var unnt mið-
að við fyrirliggjandi upplýsingar.
Mikið ber í milli þegar forsendur
fjármálaráðuneytisins eru annars
vegar skoðaðar og hins vegar þjóð-
hagsspá Þjóðhagsstofnunar. Þannig
gera fjárlögin ráð fyrir 1% hagvexti
næsta ár en Þjóðhagsstofnun spáir
0,3% samdrætti. Um skýringar þess-
ar mismunar segir Þórður að tvennt
orsaki einkum hagvaxtarmismun-
inn milli spánna. Ráðuneytið geri
ráð fyrir meiri þjóðarútgjöldum en
Þjóðhagsstofnun og ekki sé miðað
við að einkaneysla dragist jafn mik-
ið saman og að mati Þjóðhagsstofn-
unar. Enn fremur geri forsendur
fjárlaganna ráð fyrir að fiskafli
verði töluvert umfram aflaheimildir
og það sem Hafró hefur mælt með
næsta ár. Spurður hvort þetta sé
hæpin forsenda, segir Þórður að all-
ur gangur sé á því hvort veitt sé
umfram aflaheimildir. Þetta séu
óvissuforsendur í báðar áttir.
Ekki náðist í Geir Haarde í gær.
-BÞ
Þórður
Friöjónsson.
Sex menn
Öll spjót standa á Kvikmyndaskoð-
un íslands um þessar mundir. Eins og
DV hefur greint frá leggja sjálfstæðis-
menn í drögum landsfundar til að
Kvikmyndaskoðun verði lögð niður
og á heimasíðu menntamálaráðherra
segir Bjöm Bjarnason að í sumar hafi
staðið yfir í ráðuneytinu vinna við
frumvarp um afnám opinbers eftirlits
með kvikmyndum. Frumvarpið bygg-
ist á eldra frumvarpi þar sem sagði að
„núgildandi lög um kvikmyndaskoð-
un brytu í bága við ákvæði stjórnar-
skrárinnar um bann viö ritskoðun."
Sigurður Snæberg, forstöðumaður
Kvikmyndaskoðunar, segist kunnug-
ur hugmyndum menntamálaráðherra
og hafi þeir rætt saman vegna málsins
í sumar. Of snemmt sé að segja tO um
lyktimar en Sigurður telur að hlut-
horfa á 700
verk Kvikmyndaskoðunar brjóti ekki
í bága við stjórnarskrárákvæðið um
bann við ritskoðun. „Við vimm af
þessu og bíðum spenntir eftir að sjá
frumvarpið," segir Sigurður.
Sex skoðunarmenn starfa við að
horfa á bíómyndir og hefur Kvik-
myndaskoðun horft á um 700 myndir
árlega, þ.e.a.s allar myndir sem sýnd-
ar eru í kvikmyndahúsum svo og spól-
ur eða DVD-diska á myndbandaleig-
um. Þá er skrifstofumaður í hálfu
starfi á vegum Kvikmyndaskoðunar
og forstöðumaðurinn er einnig í hálfu
starfi. Sjónvarpsstöðvarnar bera hins
vegar ábyrgð á sínu efni.
Sigurður segir að menningarheim-
ur landa sé ólíkur og því gildi önnur
viðmið hér um hvað hæfi áhorfendum
en t.d. í Bretlandi eða Bandaríkjun-
bíómyndir
um. „Sem faðir tveggja barna tel ég
eðlilegt að við séum með einhvers
konar leiðsögn um þessi mál eða neyt-
endaupplýsingar," segir Sigurður, að-
spurður hvort eftirlitið sé óþarft.
Ef Kvikmyndaskoðun verður lögð
niður sparast nokkrir peningar hjá
ríkinu en þó ekki verulegir sam-
kvæmt tölum frá Sigurði um tekjur og
gjöld árið 2000. Þannig hafi heildar-
gjöld það ár numið 10,3 milljónum en
tekjur fyrir skoðanagjöld 7,1 milljón.
Mismunurinn er rúmar 3 milljónir
króna.
Þrjú ráðuneyti tilnefna menn í
Kvikmyndaskoðun, þ.e.a.s. mennta-
málaráðuneytið, félagsmálaráðuneyt-
ið og dómsmálaráðuneytið. Mennta-
málaráðuneytið sér hins vegar alfarið
um skipanina. -BÞ
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Útiljós
Rafkaup
Armúla 24 • S. 585 2800