Alþýðublaðið - 12.03.1969, Blaðsíða 7
Aíþýðublaðið 12. febrúar 1969 7
Nýtt félag
Reykjavík — VGK.
Nýstofnað félag áhugamanna um
sjávarútveg lieldur fyrsta, útbreiðslu
fund sinn annað kvölcl kl. 20.30 í
Sigtúni við Austurvöll. Allir áhuga-
menn um sjávarútveg eru boðnir
velkomnir á fundinn.
Framsöguerindi á fundinum flyt-
ur Már Elísson, fiskimálastjóri og
nefnist það: Sjávarútvegur á tíma-
mótum. Að loknu erindinu verða
frjálsar umræður. 1 upphafi fund-
arins gerir formaður félagsins,
Gunnar Friðriksson, stuttlega grein
fyrir framtíðaráformum félagsins.
A annað hundrað manns hafa nú
gerzt meðlimir í Félagi áhuga-
manna um sjávarútveg, en tilgang-
lir félagsins er að vinna að hvers
konar framförum á sviði sjávarút-
vegs og að stuðla að sem hagstæð-
.astri þróun hans. Stærsti liðprinn
I þessari viðleitni er fræðslustarf-
semi og er fundurinn annað kvöld
sá fyrsti af fleiri fyrirhuguðum. Á
næstu fundum verða teknir til um-
ræðu helztu liðir sjávarútvegs okkar
ásamt framtíðarhorfum og framtíð-
arverkefnum.
Bosch - verk-
smiðjurnar
leysa vandan
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, hversu mikil óhreinindi setj-
ast á framrúður og Ijós bíla, þegar
ekið er í mikilli, hraðri umferð í
vætutíð. Sama gildir upn afturljósin.
Hafa þýzkir verkfræðingar kynnt
sér þetta atriði og komizt að þeirri
niðurstöðu, að óhreinindi, er setjast
á fram- og afturljós bíla geti dregið
Út Ijósrnagninu, svo að nemur 60
af hundraði, og þá augljós sú hætta,
sem af þessu getur stafað.
Að sjálfsögðu xná segja sem svo,
að hver bílstjóri geti haft litla vatns-
fötu og dulu með sér í bílnum, til
að hreinsa ljóskerin við og við, en
Iiver nuindi endast til slíks?
Bosch-verksmiðjurnar þýzku hafa
verið að glíma við þenna vanda að
nndanförnu, og hefir verkfræðideild
þeirra tilkynnt, að sigrazt hafi verið
á honum. Flafa verksmiðjurnar m.
a. srníðað tvenns konar þurrkur,
bæði fyrir ferstrend og kringlótt
framljós. Á fcrstrendu ljósin eru
notaðar þurrkur, sem renna á
stöngum beggja vegna við ljósker-
in og er drifarmarnir nnnað hvort
festir bak við skrauthlífina framan
á vélarhúsinu eða á höggvarann.
Þessum búnaði fylgir einnig vatns-
dæla til að mýkja óhreinindin og
skola þau burt. Sú gcrð, sem þvær
kringlótt framljós, er fest á dragrör,
sem fer yfir allan glerflötinn,
hreinsar hann með nokkrum hreyf-
íngum og staðnæmist svo saman-
dregið.
Þótt Ijós bifreiða sé með margvís-
legum hætti, hafa Bosch-verksmiðj-
urnar fundið upp þurrkur fyrir þau
flest, cn enn stendur þó í mönnum
að framleiða slík ta’ki á bfla mcð
tveim kringlóttum Ijósum. Þá hafa
verksmiðjurnar líka.framleitt þurrk-
ur á afturljós.
Áætlað er, að eins og nú standa
sakir, sé,-mpðalvcrð á þurrktmi af
þessu tagi 350 vesturþýzk mörk.
| Búðarkona, sjónvarpsmaður
| kennari og náttúrufræðingur
VIÐ höfum orðið áþreifanlega
varir við að meðal yngstu lesenda
blaðsins eigum við stóran og þakk-
iátan lesendahóp. Á hverjum degi
fáum við mörg bréf frá þessum
hópi og þökkum við kærlega fyrir.
I fyrradag komu hingað fjögur
börn, sem höfðu fengið verðlaun,
og notuðum við tækifærið til að
mynda þau og spjalla örlítið við
þau.
GUNNAR GUÐJÓNSSON, sem
varð 5 ára 5. marz sl. og fékk af-
Gunnar
mælisdagaverðlaun, sagðist hafa
fengið margt í afmælisgjöf: halíu-
krana, sverð, byssu og byssubelti,
hestvagn, flottan bíl sem hægt er
að skipta um hjólbarða á. Hann er
ákveðinn í að verða sjónvarpsmáð-
ur.
KRISTJANA ÓLAFSDÓTTIR
varð 8 ára 3. marz og fékk hún
einnig afmælisdagaverðlaun. Flún
fékk bækur í afmælisgjöf, nátt-
Kristjana
425 krónur í peningum, sem fóru í
sparibauk sem hún fékk í afmælis-
gjöf. Einnig fékk hún brúðarkjól
á dúkkuna sína. Kristjana sagðist
halda að lnin vildi verða búðarkona.
AÐAI.BJÖRG TRAUSTADÓTT-
IR fékk verðlaun fyrir mynd af
Trítrí og sögu sem við birtum síð-
ar. Hún er í Oldutúnsskóla og ger-
ir talsvert af því að teikna og semja
sögur. Hún er ákvcðin í að verða
kennari þegar hún stækkar.
Aðalbjörg
Og að lokum fékk ILLUGÍ
JÖKULSSON, 8 ára, verðlaun fyrir
ágæta sögu um Trítrí. Hjtnn segist
skrifa sögur um allt mögulegt, eil
þetta er fyrsta sagan sem hann
skrifar um tunglbúa. Illugi er ákveð
inn í að verða náttúrufræðingur
og er að safna sér fyrir smásjá.
Illugi er sonur Jökuls Jakobssonar,
rithöfundar og Jóhönnu Kristjóns*
dóttur, er starfar sem blaðamaður
við Moreunblaðið. — SJ.
Spánverjar kaupa kýr í Danmörku
SPÖNSK innkaupanefnd er nú á
ferð um Jótland í allsérstæðum
erindagjörðum. Flún er nefnilega að
kaupa kýr! Spánverjarnir hafa áhuga
á að hefja ræktun tveggja frægra
danskra kynja — rauðu og svart-
skjöldóttu mjólkurkúnna —r á slétt-
m Spánar.
Síðast er fréttist höfðu þeir þegar
fest kaup á tólf kvígurn, og mun
ætlunin að senda þær til Spánar
innan skamms. Innflutningshöft
munu ekki. standa því í vegi, dg
áreiðanlega verður sú sending fagn-
aðarefni spænskum törfum. Ætli
nokkur þeirra fáist i nautaat eftic
það?
li
l!
FYRIR 2000 krónur
Á MÁNUÐI OG 2000 ÚT
GETIÐ ÞÉR FENGIÐ
Nordás
SVEFNHERBERGISSETT ÚR
EIK, TEKKIEÐA HVÍTT
6 TEG., FÁ SETT EFTIR
Kaupið strax þab
borgar sig.