Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001 Fréttir DV Gamall sjómaöur keypti sumarhús af Sjómannafélagi Reykjavíkur 1995: Staðgreiddi en fékk engan bústað - réö lögfræðing sem hirti peningana og máliö er enn óafgreitt hjá RLR DV-MYND BRINK Eggert Kristinsson meö kaupsamning og kvittun fyrir greiöslu Hann keypti sumarbústaö af Sjómannafélagi Reykjavíkur fyrir rúmum sex árum en fékk hann aldrei afhentan. Nú viröist hann sitja uppi meö aö hafa tapaö andviröi bústaöarins, fyrst í hendur fasteignasala og síöan í vasa lög- fræöings sem hann réö til aö annast innheimtu fjárins. Eggert Kristinsson verður 75 ára 1. nóvember en hefur stundað sjó- inn nær allan sinn aldur. Hann hugðist hafa það notalegt í ellinni með því að festa kaup á sumarbú- stað í Hraunborgum í Grímsnesi af sínu gamla félagi, Sjómannafélagi Reykjavíkur. Gengið var frá kaup- unum í apríl 1995 fyrir tvær milljón- ir króna. Hann borgaði út í hönd með húsbréfum en sumarbústaðinn fékk hann hins vegar cddrei afhent- an. Hann réð lögfræðing til að ná fjármununum til baka frá fasteigna- salanum sem sá um viðskiptin. Þeim lögfræðingi tókst að mestu að innheimta skuldina en stakk þá fjármununum í eigin vasa. Þá réð Eggert annan lögfræðing en allt kom fyrir ekki. Kærði nýj lögfræð- ingurinn þvi málið til Rannsóknar- lögreglu ríkisins 1996. Ekki hefur þó enn verið gefin út opinber ákæra af hálfu RLR þrátt fyrir eftirrekstur lögfræðings og þrátt fyrir að rann- sókn hafi lokið fyrir meira en þrem árum. Kostaboð Á vordögum 1995 var fór Eggert á skrifstofu Sjómannafélags Reykjavikur til að spjalla við sína gömlu félaga. Nefndi Eggert þá að hann hefði hug á að kaupa sér sumarbústað. Spurði gjaldkeri fé- lagsins þá hvort hann vildi ekki einfaldlega kaupa bústað af SR. Þeir væru einmitt með tvo bústaði til sölu. Varð úr að Eggert fór ásamt Kristjáni Júlíussyni trésmið og fulltrúa Sjómannafélagsins austur I Grímsnes að skoða bústaðina. í samráði við trésmiöinn valdi Egg- ert síðan bústað sem merktur var númer 6 í landi Hraunborga í Grímsnesi. Daginn eftir fór hann á skrifstofu SR og sagðist vilja kaupa þann bústað ásamt fylgihlutum fyrir 2.000.000 króna. Segir Eggert að Jónas Garðarsson, formaður fé- lagsins, hafi þá sagt sér að fara til Hilmars Viktorssonar, fasteigna- sala hjá Eignahöllinni, til að ganga frá málum. Hélt Eggert þá rakleitt á fasteignasöluna og voru þá allir pappírar klárir tU undirritunar. Þetta var 21. aprU árið 1995 og var gengið frá kaupunum og stað- greiddi Eggert með húsbréfum að upphæð 2 mUljónir króna. Undir gjörninginn rituðu Jónas Garðars- son og HUmar Viktorsson fast- eignasali. Gaf Hilmar kvittun fyrir mótttöku greiðslu 21. apríl 1995 og ritar undir hana fyrir hönd Sjó- mannafélags Reykjavíkur. í samn- ingi er tekið fram að seljandi, Sjó- mannafélag Reykjavíkur, sjái um að losa bústaðinn undan Félagi or- lofshúsaeigenda i landi Hraun- borga. Einnig er tekið fram að gefa eigi út afsal 1.6. 1995. Að svo búnu hélt Eggert glaður í bragði í sex vikna leyfi tU Benedorm á Spáni. Engir lyklar og engin endurgreiðsla Eftir heimkomuna, eða þann 1. júni 1995, hélt Eggert á skrifstofu SR til aö fá lyklana að bústaðnum. Seg- ir hann að þá hafi Jónas sagt sér að því miður gæti SR ekki selt bústað- inn þar sem Sjómannadagsráð ætti forkaupsrétt. Leitaði Eggert þá eftir endurgreiðslu en var vísað á fast- eignasalann. Hilmar fasteignasali gat hins vegar ekki staðið skU á DVMYND HARI Niöurstööurnar kynntar Þórólfur Þóriindsson, formaöur Áfengis- og vímuvarnaráös, kynnti niöurstööurnar á fundi í gær. Rannsóknin náði tU ungs fólks í öU- um framhaldsskólum á Islandi og var svarhlutfaU 71,6% þeirra sem áttu að mæta í skólann á fyrirlagningartíma. -MA greiðslunni en lét af hendi trygging- arvíxil með gjalddaga 18. júni það sama ár. Sá víxill var þó aldrei greiddur. Lögfræðingurinn stal í lok júlí 1995 brast Eggert þolin- mæðin og sneri sér þá tU Helga Magnússonar, lögfraéðings hjá Lög- þingi hf. Fór hann þar eftir auglýs- ingu sem hann hafði séð frá fyrir- tækinu í dagblöðum. Tók Lögþing máiið að sér og sett í innheimtu. AUt kom þó fyrir ekki og Eggert fékk enga endurgreiðslu. í byrjun árs 1996 fékk Eggert stað- fest að Hilmar fasteignasali hefði samt greitt Lögþingi upphæðina að mestu 6. september 1995. Fékk hann því nýjan lögfræðing til að annast sín mál en það var Ólafur Garðars- son hrl. hjá Lögmönnum á Seltjarn- arnesi. Kært til Rannsóknarlögreglu Ólafur reyndi nú að að innheimta kröfuna hjá Lögþingi hf. en þar sem forsvarsmenn voru þá komnir í þrot og eignalausir taldi hann vafasamt að nokkuð fengist upp i kröfuna. í aprU 1996 sendi Ólafur Garðarsson formlega kæru á Helga Magnússon lögfræðing og eiginkonu hans sem var þá stjórnarformaður Lögþings hf. Kært var til Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir hönd Eggerts vegna málsins. Er þess krafist að gefin veröi út ákæra á hendur kærðu og þeim refsaö samkvæmt lögum. Einnig var skýringa krafist frá Sjó- mannafélaginu 1. apríl 1996 og ítrek- að i september það sama ár. RLR klikkar líka Ólafur Garðarsson ítrekar kæruna til RLR skriflega 2. april 1998 en þá hafði formleg kæra enn verið gefin út af embættinu. RLR svaraði 7. april sama ár og sagði þá málsatvik liggja fyrir og rannsókn væri fyrir löngu síðan lokið. 16. apr- íl 1999 ritar Ólafur enn á ný bréf embættis Ríkislögreglustjóra og krefst skýringa á að ekkert hafði þá enn gerst í málinu. Síðan eru liðin tvö og hálft ár og enn situr við það sama. Ólafur segist í samtali við DV ítrekað hafa spurst um málið en borið hafi verið við að mikill fjöidi mála væri á Helga Magnússon. Síð- an hefur ekkert gerst. Tókum aldrei viö peningum Jónas Garðarsson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavíkur, segist aldrei hafa tekið við neinum pen- ingum vegna söiu á sumarbústaðn- um. Hann fullyrðir að Eggert hafi verið fullkunnugt um að fyrirvari væri á sölunni og þvi málum bland- ið hvort hann hafi yfirleitt keypt bú- staðinn. - En samt skrifaðir þú sjáifur undir kaupsamninginn! „Já, en við tókum aldrei við pen- ingunum og málið var aldrei frá gengiö okkar í milli,“ segir Jónas. „Hann átti að fá bústaðinn afhentan síðar þar sem húsið var í útleigu." Jónas segir að í millitíðinni hafi verið athugað hvort hægt væri aö selja hann til einstaklings út úr því félagslega kerfi sem bústaðurinn var í. Síðan hafi komið í ljós að það var ekki hægt að aflétta kvööum af húsinu. „Afhendingin fór því aldrei fram. Það er svo Eignahöllin og síð- an lögmaður hans sem standa ekki við það að afhenda honum pening- ana til baka.“ Ekki hefur náöst í þann fulltrúa hjá embætti Ríkislögreglustjóra sem með málið hefur farið. -HKr Vímuefnaneysla framhaldsskólanema: Mest aukningin er í neyslu Dregið hefur úr ölvun meðal 16 til 19 ára nemenda í framhaldsskólum á ís- landi árið 2000, samanborið við árið 1992. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem kynntar voru í gær. Rúmlega 81% framhaldsskólanema hafði orðið ölvaður sl. 30 daga árið 1992 samanborðið við tæplega 63% í fyrra. Á sama tímabili hefur dregið úr daglegum reykingum nemenda en aft- ur á móti hefur neysla ólöglegra vímu- á hassi efna aukist, að neyslu á sniffi undan- skildu. Mesta aukningu er að finna í neyslu á hassi en árið 1992 höfðu 7% nemenda notað hass þrisvar sinnum eðar oftar um ævina, samanborið við 12% árið 2000. Þórólfur Þórlindsson, formaður Áfengis- og vímuvamaráðs, segir að einna mest hafi komið á óvart að um 20% hafi notað neftóbak 20 sinnum eða oftar um ævina og 8% munntóbak. Umsjön: Birgir Guömundssott netfang: birgir@dv.is Tveir fyrir einn! Tillagan um að leggja niður Ár- nesprestakall og sameina það Hólmavík hefur vakið talsverða at- hygli í heita pottinum. 1 Árnespresta- kalli ræður sem kunnugt er ríkjum presturinn Jón ísleifsson sem sumir pottverj- ar viija raunar kalla Jón prím- us vegna kunn- áttu sinnar og lagni við að gera við vélar og við járnvinnu ýmiss kon- ar. Hins vegar tala menn gjarnan um að þaö að leggja þetta presta- kall niður sé í raun mjög 1 anda þeirrar hagræðingar sem nú tiðkast á öllum sviðum - ekki sé einvörðungu verið að sameina Ár- nesprestakall stærra brauði heldur sé þetta „2 fyrir 1“ pakki því í Tré- kyllisvík eru tvær kirkjur, sú gamla og nýja, sem standa hvor sínum megin við þjóðveginn... Miklar breytingar Umræðan um framboðsmál sjálf- stæðismanna í Reykjavík hefur heldur betur tekið stökk við það að Eyþór Arn- alds boðaði endurinn- komu sína í þennan heim. I pottinum er raunar dregið í efa að Eyþór hafi styrk til að velta Ingu Jónu Þórðar- dóttur úr sessi, nema mjög sérstakar aðstæð- ur skapist, en það breytir ekki því að menn eru að spá verulegum breytingum á borgarstjórnarflokkn- um á næsta kjörtímabili. Auk allr- ar óvissunnar um forustumenn heyrist í pottinum aö tiltölulega farsælir borgarfulltrúar, eins og t.d. Kjartan Magnússon, kunni að vera að draga sig út úr borgarpóli- tíkinni... Anna og Framsókn Það vakti óskipta athygli pott- verja að Anna Kristinsdóttir, frá- farandi formaður Framsóknarfé- lags Reykja- víkur, boðaði í DV í gær að hún hygðist sækjast eftir borgarstjórnar- sæti fyrir Framsókn á Reykjavíkur-1 listanum. Anna er með þessu I sögð vera að senda ódulbúin skila- boö til sitjandi borgarfulltrúa, þeirra Sigrúnar Magnúsdóttur og Alfreðs Þorsteinssonar, um að í þessum kosningum geti enginn gengið að sinu sæti vísu á listan- um. Annars á Anna ekki langt að sækja það að hrista upp í reykvísk- um framsóknarmönnum því hún er dóttir Kristins Finnbogasonar heitins sem um árabil var einn af atkvæðamestu og um leið umdeild- ustu forustumönnum flokksins í höfuðborginni... Læknabrennivínið Nú eru lyfsalar farnir að senda læknum brennivín og hefur það vakið veð- skuldaða at- hygli hag- mæltra ís- lendinga. Vonandi er þetta vín þó einungis til lyfjagjafar því eins og segir í eftirfarandi vísu Sigurdórs Sigurdórssonar blaðamanns: Þaó er flestra manna mál, og mun þar ekkert grínid, ad lífgar bœöi limi og sál lœknabrenniviniö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.