Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2001, Blaðsíða 24
28
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2001
Tilvera I>V
lí f iö
Frumsýning í
Kaffileikhúsinu
Veröldin er vasaklútur er heiti
leikverks sem frumsýnt verður í
Kaffileikhúsinu í kvöld kl. 21.00.
Þaö er leikfélagið The Icelandic
Take Away Theatre sem stendur
að sýningunni og leikendur í
hennir eru þær Ágústa
Skúladóttir og Vala Þórsdóttir.
Verkið fjallar um tvo bakara
sem þvælast inn í
andspyrnuhreyfingu.
Popp
■ ÁIRWÁVES Á GAUKNÚM
Rokksveitirnar Sólstafir, Vígspá,
Snafu, I adapt og Andlát spila á
Airwavestónleikum á Gauki á
Stöng.
■ AIRWAVES Á HVERFISBARNUM
Dj. Habit sér um skífusteikingar á
Hverfisbarnum á fyrsta Air-
vaweskvöldinu.
■ AIRWAVES í HAFNARHÚSINU
Védís, Emilíana Torrini og Citizen
Cope, frá Bandarikjunum spila á
tónleikum í tengslum viö Airwaves-
hátíöina í Hafnarhúsinu.
■ MANNAKORN í SALNUM Afmæl
istónleikar Mannakorna verða fluttir
í þriðja sinn vegna fjölda áskorana.
Dæmið hefst klukkan 21 í Salnum í
Kópavogi. Nokkur sæti laus.
Leikhús
■ HVER ER HRÆPDUR VIÐ VIRCr
INIU WOOLF? I kvöld á stóra sviði
Þjóðleikhússins verður leikritið Hver
er hræddur viö Virginíu Woolf? eftir
Edward Albee. Sýningin hefst kl. 20.
Skemmtanir
1 VEROLDIN OKKAR OPNAR I
SMARALIND
Barnaskemmtistaöurinn Veröldin
okkar opnar í Smáralind í dag kl.
15.00 með pomp og pragt. A
opnunarhátíöina milli 15 og 17
mæta margir góðir gestir, meðal
annars Klói kókómjólkurköttur, Lóa
ókurteisa og Ásta í Stundinni okkar.
Fundir og fyrirlestrar
1 ÞORVALDUR GYLFASON Á
ARAGOTUNNI Þorvaldur Gyifason,
prófessor flytur fyrirlesturinn Natural
Resources and Economic Growth:
The Role of Investment á Aragötu
14 kl. 16.00 í dag. Fyrirlesturinn er
á vegum Málstofu Hagfræði-
stofnunar Háskólans.
■ NORPLINGAÖLPUVEITA - MAT
Á UMHVERFISAHRIFUM
Norölingaölduveita og tilgangur
hennar verður umræðuefni fundar á
vegum Háskólans í dag kl. 16.15.
Fyrirlesari er verkefnisstjóri
umhverfismats, Guöjón Jónsson hjá
VSÓ Ráðgöf. Fyrirlesturinn fer fram í
stofu 158 í Verkfræöi- og raun-
vísindastofnun HÍ við Hjarðarhaga.
■ RABB í KVENNAFRÆÐUM ..Ég
sé kvótakerfið fyrir mér sem
lopapeysu": Kynhugmyndir og
upplifun kvenna af oröræöu og
auðlindastefnu í sjávarútvegi, er
heiti fyrirlestrar sem Hulda Proppé
mannfræöingur flytur á morgun kl.
12.00 i Norræna húsinu.
Fyrirlesturinn er Rabb
rannsóknarstofu í kvennafræðum.
■ STAÐA HEIMSMÁLA Leonidas
Pantelides, sendiherra Kýpur á
Islandi, heldur hádegisfýrirlestur í
boði Háskóla íslands í Ódda, stofu
201, á morgun, kl. 12.15. Þar mun
hann fjalla um heimsmyndina í
kjölfar nýjustu heimsviðburða og
meta stóðu mála fyrir botni
Miöjarðarhafs.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Davlð Ólafsson sagnfræðingur
heldur erindi um bók sína Burt - og
meira en bæjarleið á rannsóknar-
kvöldi Félags íslenskra fræða í
Sögufélagshúsinu við Fischersund
klukkan 20.30 í kvöld.
Davíð ætlar að ræða um þær
ólíku aðstæður sem stjórnuðu flutn-
ingi fólks vestur um haf og koma
fram í persónulegum skjölum vest-
urfara frá síðasta fjóröungi 19. ald-
ar. Bókin er sú fimmta í ritröðinni
Sýnisbók íslenskra alþýðumenning-
ar.
Burt - og meira en bæjar-
leiö
Að sögn Davíðs er hann sjálfstætt
starfandi sagnfræðingur með að-
stöðu í Reykjavíkur Akademíunni.
„Ég hef unnið við söguritun frá því
ég kláraði nám 1999 en undanfarið
hef ég verið að skrifa sögu Mynd-
lista- og handíðaskólans."
Erindið í kvöld byggist að mestu
á formála bókarinnar Burt - og
meira en bæjarleið sem er að koma
út á vegum Háskólaútgáfunnar. I
bókinni er að finna sýnishorn úr
dagbókum nokkurra islendinga sem
fluttu vestur um haf rétt fyrir næst-
síðustu aldamót.
Davíð segir að í dagbókum frá
þessum tíma sé að finna fjölbreytta
og persónulega sýn. „Aðstæður
fólks voru mjög mismunandi og for-
sendur þeirra og væntingar fyrir
vesturferðum voru mjög ólíkar."
Dagbækur, bréf og
sjálfsævisögubrot
„í bókinni eru sýnishorn úr skrif-
um ellefu manna úr öllum fjórðung-
um landsins. Þetta eru mest dag-
bækur en einnig bréf og sjálfsævi-
sögukaflar. Á fyrirlestrinum í kvöld
ætla ég að segja lítillega frá rann-
sókninni og fjalla um heimildirnar
og þá heimsmynd sem birtist í bók-
inni.
í mínum huga er helsta niður-
staða bókarinnar að fólk hafði mjög
Burt - og meira en bæjarleiö
Davíð Ólafsson sagnfræðingur hefur verið að skoða dagbækur og ástæður þess að fólk
flutti vestur un haf í lok næstsíðustu aldar.
misjafnar ástæður fyrir búferla-
flutningum sinum vestur um haf.
Sum árin fór fólk einfaldlega vegna
slæms árferðis en á öðrum tímum
voru menn einfaldlega að leita sér
að félagslegu öryggi og atvinnu-
frelsi. Ástæðurnar voru einnig mis-
munandi eftir því hvort um var að
ræða unga menn í ævintýraleit eða
fjölskyldur sem flosnuðu upp.“
Björn Halldórsson - Dagbók
frá 1883-1884
Til gaman er hér birt örstutt brot
úr dagbók Björns Halldórssonar en
hann flutti til Norður-Dakota ásamt
konu sinni, Hólmfríði Einarsdóttur.
„Trjásortir í Nýja-íslandi eru helst-
ar: Poplar, líkist hvítviðju eða ísl.
birki. Alt að 30 ál. háar eikur 12 þ. í
þvermál. Syrus ný og stórvaxin á 50
ál. hæð og 15“ þvermál, líkist furu.
Eyk á stöku stað á hæð við popla en
gUdari. Askur á stökum stað, grann-
ur og kræklóttur. Birkið hávaxið og
al að 8“ þvermáli. Willo (víðir)
kræklóttur, grannvax-
inn og góður viður
vaxa margir stönglar
upp af sömu rót, mjög
erfitt að riðja honum.
Af þessum við er mest
af poplum. Að auki er
á stökum stað Tamrak
stórvaxið, það líkist
rekavið þeim heima er
rauðviður er nefndur.
Elm eða álmur og fl.“
Töluvert til af
ólesnu efni
Davíð segir að við
heimildaöflun hafi
hann skoðað dagbæk-
ur á handritadeild
Landsbókasafnsins og
á háskólabókasafnin-
um í Vinnipeg. „Ég
skoðaði líka prentuð
almanök Ólafs Þor-
grímssonar og tók
sumt upp úr þeim. Það
er til töluvert af ólesnu
efni frá Vesturheimi,
bæði á söfnum og á
einkaheimilum, og það
bíður rannsókna
seinna."
-Kip
Byrja á Múlanum
Ástvaldur Traustason og Ólafur Jóns-
son leika á efri hæðinni í Húsi Mál-
arans á morgun.
Vetrardjass:
Múlinn
hefur vetr-
arstarfsemi
Jazzklúbburinn Múlinn hefur
starfsemi sína annað kvöld. Eins og
undaiil'arinn ár hefur hann aðsetur
á efri'ha:ö veitingastaðarins í Húsi
Málarans. Fyrirhugaðir eru 10 tón-
leikar öll fimmtudagskvöld fram að
jólum. Fyrstur til að ríða á vaðið er
kvintett sem leiddur er af saxófón-
leikaranum Ólafi Jónssyni og píanó-
leikaranum Ástvaldi Traustasyni.
Þeir félagar hafa leikið mikið sam-
an í ýmsum hljómsveitum á undan-
fórnum árum, m.a. í hljómsveitinni
Jazzbræðrum sem leikur mestmegn-
is frumsamda tónlist þeirra beggja.
Efnisskrá þeirra að þessi sinni er
tónlist sjöunda áratugarins, tímabil
í djasssögunni sem oft er kallað
„hard-bop“ tímabilið. Á þessum
tíma voru menn eins og Joe Hender-
son, Kenny Dorham, Cannonball
Adderley, Wayne Shorter og
Freddie Hubbard upp á sitt besta,
flestir af þeim voru á mála hjá hinu
þekkta plötufyrirtæki Blue Note
sem var eitt hið duglegasta við að
gefa út frumsamda tónlist á þeim
tíma.
Með þeim Ólafí og Ástvaldi leika
Birkir Freyr Matthíasson á trompet,
Birgir Bragason á bassa og trommu-
leikarinn Erik Qvick.
Bíógagnrýni
————ÉEsmmmm
Sam-bíóin -3000 Miles to Graceland +
Blóðbað í Las Vegas
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmynrJir.
Vesturferðir í persónulegum heimildum:
Ólíkar aðstæður fyrir búferla-
flutningum til Vesturheims
Stórhuga ræningjar
Kurt Russell og Kevin Costner stjórna ráni í Las Vegas.
Kurt Russell er góð Elvis-eftirlíking
(hefur reynslu i þeim efnum) og Kevin
Costner kemur á óvart með að vera
sannfærandi sem geðsjúkur morðingi
með engar mannlegar tilfinningar.
Þannig birtast þessar stjörnur okkur i
3000 Miles to Graceland, sannkallaðri
rússíbanaferð um spilavíti í Las Veg-
as, flótta og eftirfór eftir eyðimerkum
í Nevada og Kaliforníu og uppgjöri
sem minnir á stórskotaliðsárás. Sem
sagt nóg um að vera og ekki vantar að
atburðarásin er hröð og tæknilega séð
er myndin eins góð og á verður kosið.
Samt er 3000 Miles to Graceland vond
mynd og ástæðan er fyrst og fremst sú
hversu áberandi yfirborðsmennskan
er.
Sagan sem hlýtur að hafa virkað
vel í upphafi (annars hefði allur þessi
fjöldi leikara ekki fengist til að vera
með) er illa uppsett með jafn mörgum
lausum endum og bundið er fyrir. Það
er eins og leikstjóri myndarinnar,
Demian Lichtenstein, sé að gera langt
myndband fyrir MTV sem er fyrrum
vinnustaður hans. Engu skiptir þótt
öll skynsemi segi að svona geti þetta
ekki verið, allt verður að vera svalt og
gróft, hversu heimskulega sem það lít-
ur út. Sú persóna sem lendir verst út
úr þessu er barstúlkan Cybil (Courn-
ey Cox), svöl kona með gott hjarta
sem er til í fórna sér fyrir son sinn.
Henni er samt ekki hugsað til sonar-
ins þegar hún stingur af ein sín liðs
með ránsfeng úr spilaviti í Las Vegas
og skilur soninn eftir hjá elskhugan-
um sem er einn ræningjanna. Svona
er þetta allt hjá stúlkugreyinu. Engar
gerðir hennar eru í samræmi við það
sem hún segir. Fleiri persónur fá
slæma meðferð í þeirri ætlan leik-
stjórans að gera eingöngu út á hraða
og ofbeldi
Kurt Russeli og Kevin Costner ná
vel saman. Eins og áður sagði er
Cosner einstaklega illskeyttur í hlut-
verki Murphys sem ákveður að félög-
um hans við ránið í Las Vegas sé of-
aukið. Eftir að hafa sallað niður
nokkra öryggisverði byrjar hann næst
á félögum sinum. Michael (Kurt
Russell) sleppur úr blóðbaðinu og það
sem meira er hann er á undan Muphy
að ná í ránsfenginn.
Það er náttúrlega út i hött að fara
að tala um persónurnar að einhverju
viti, slík er tilgerðin og yfirborðs-
mennskan í öllu sem þeir gera. Það er
samt aldrei leiðinlegt að fylgjast með
Russell og Costner. Þeir ofleika af
kúnst og eru trúverðugir svo langt
sem það nær. Engin hefur stælt
Presley betur en Russell og er vænt-
anlegum áhorfendum bent á að rjúka
ekki strax upp úr sætum sínum að
sýningu lokinni þar sem Russell stíg-
ur á svið og hermir eftir kónginum
undir kynningum.
3000 Miles to Graceland er mikil of-
beldismynd og það alveg að ástæðu-
lausu. Hún hefði sjálfsagt orðið betri
ef ofbeldisatriðin hefðu verið stytt og
meira lagt í undirbúning og lýsingu á
ráninu sem fer fram meðan á Elvis-
sýningu stendur, sannarlega flottur
bakgrunnur sem fær allt of litla um-
fjöllun.
Leikstjóri: Demian Lichenstein. Handrit:
Demian Lichenstein og Richard Recco.
Kvikmyndataka: David Franco. Tónllst:
George S. Clinton. Aöalleikarar: Kevin
Costner, Kurt Russelll, Courtney Cox,
Christian Slater, David Arquette, Kevin
Pollak, Jon Lovitz og lce-T.