Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Side 5
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 DV 5 Fréttir Meðstofnandinn gerði dómsátt við deCODE: Barðist hart gegn mið- lægum gagnagrunni - en segir ekkert lát af sinni hálfu á vinskap við Kára Stefánsson Fullt nafn: Ernir Kristján Snorrason Fæðingardagur: 17. mars 1944 Menntun: Lífeðlisfræðileg sálfræði, málvísindi, læknisfræði og sér- fræðimenntun í taugageðsjúkdómum Starf: Klínískar geðlækningar á Domus Medica og sérfræðistörf erlendis Búseta: Mosfellsbær Ernir Kristján Snorrason geðlæknir gerði dómsátt við íslenska eríðagrein- ingu, eða deCODE genetics, fyrir bandarískum dómstólum á mánudag- inn. Var sæst á um 60% af upphaflegri kröfu hans og fær hann 160 þúsund hluti í félaginu við sáttagjörðina. Sam- kvæmt gengi hlutabréfa á Nasdaq- markaði eru þau bréf í dag ríflega 130 milljóna króna virði. Ernir, sem er einn af stofnendum og starfsmönnum íslenskrar erfðagreining- ar, lenti í hatrömmum deilum við félag- ið er hann barðist hart gegn því að hans eigið fyrirtæki fengi lögverndað einka- leyfi og aðgang að sjúkraskrám íslend- inga sem settar yrðu í miðlægan gagna- grunn. Taldi hann málið ailt byggt á blekkingum og lygi. Var hann í fram- haldinu sakaður um trúnaðarbrot af hálfú fyrirtækisins. Taldi íslensk erfða- greining að þar með hefði hann fyrir- gert þeim rétti sem hann hafði sem stofnandi og starfsmaður. Ekki í smáatriöum Emir sagði í samtali við DV síðdeg- is í gær að af sinni hálfu væri málinu nú lokið. Hann sagðist reyndar lítið hafa fylgst með framvindunni en hann væri nýkominn frá Bretlandi þar sem hann starfar mikið, auk þess að vinna í Domus Medica. „Maður er því ekki að velta sér upp úr einhverjum smáat- riðum hér heima. Ég held að þetta sé viðunandi samningur. Það var annað- hvort að láta hart mæta hörðu eða semja. Ég held að það hafi verið öllum fyrir bestu að semja.“ Hann segir þó ekkert lát af sinni háifu á vinskap við sinn gamla félaga, Kára Stefánsson. Hins vegar ættu þeir þó ekkert sam- starf lengur. Að öðra leyti vildi hann ekkert ræöa deilumar við Kára og ÍE. Einn af stofnendum ÍE Ernir Snorrason lærði lífeðlisfræði- lega sálfræði og málvísindi í Frakk- landi. Hann stundaði einnig nám í læknisfræði á Islandi og sérhæfði sig síðan í taugageðsjúkdómum. Hann var með stofú þar sem hann starfaði sem klínískur' geðlæknir og tók m.a. þátt í rannsóknum breska lyflafyrirtækisins „Það er skrýtin tilfmning sem fylgir síðustu ferðinni og vissulega þykir okkur eftirsjá að þessum siglingum," sagði Georg Þorvaldsson, bátsmaður á Skeiðfaxa, en skipið sigldi sína síðustu ferð með sement frá Akranesi til Reykjavík í gær. Skeiðfaxi hefur siglt daglega eina til tvær ferðir frá Akranesi til Reykjavíkur og farmurinn í hverri ferð verið um 400 tonn. Auk þess hefur Skeiðfaxi flutt sement til Akureyrar og ísafjarðar. Fimm manns hafa verið í áhöfn Skeiðfaxa og hefur þeim verið boðið að starfa hjá Sementsverksmiðjunni áfram. Sigling Skeiðfaxa í gær mark- aði endalok strandflutninga en sement hefur verið flutt sjóleiðina frá Akra- Ernir er einn af stofnend- um og starfsmönnum ís- lenskrar erfðagreiningar en barðist hart gegn því að hans eigið fyrirtœki fengi lögverndað einka- leyfi og aðgang að sjúkra- skrám íslendinga. Var hann í framhaldinu sak- aður um trúnaðarbrot af hálfu fyrirtœkisins. Shire. Hann er enn í sterkum tengsl- um við bresk lyfjafyrirtæki og er auk þess með tvö þróunarverkefni i gangi í samstarfi við fyrirtæki í Belgíu. Reyndar voru það fyrstu afskipti Ernis af íslensku viðskiptalífi er hann stofnaði hugbúnaðarfyrirtækið Tauga- greiningu árið 1987. Árið 1995 stofnaði hann síðan íslenska erfðagreiningu ásamt Kára Stefánssyni, sérfræðingi í taugameinafræði, og Kristleifi Krist- jánssyni, erfðafræðingi og bamalækni. í viðtali við DV í nóvember 1998 lýs- ir Emir sinni hestamennsku og áhyggjum vegna svokallaðs gagna- grunnsfrumvarps á Alþingi. Það sé slæmt mál fyrir íslensku þjóðina og fyrir íslenska erfðagreiningu, auk þess sem lýðræðið á íslandi sé í stórhættu. Frumvarp um málið sé mesta atlaga að mannréttindum á Islandi síðan lýð- veldið var stofnað. Jóakim aðalönd Sjálfum sér lýsir Emir á þann hátt að hann sé mjög meðvitaður um sína hagsmuni og sínar eignir. Segir hann að það gangi reyndar stundum svo Sjálfum sér lýsir Ernir á þann hátt að hann sé mjög meðvitaður um sína hagsmuni og sínar eignir. Segir hann að það gangi reyndar stundum svo langt að hann sé kall- aður Jóakim aðalönd vegna þess hve honum þyki leiðinlegt að tapa peningum og eyða þeim. nesi frá árinu 1958. Daglegur farmur skipsins, sem hefur numið frá 400 til 800 tonnum, verður framvegis fluttur landleiðina með 30 tonna tankbílum. Áætlað er að til flutninganna þurfi 13 til 27 slíka bíla á degi hverjum. Þá hefur birgðastöðin, sem rúmar átta þúsund tonn, á Ártúnshöfða verið lögð niður. Gylfl Þórðarson, framkvæmda- stjóri Sementsverksmiðjunnar, sagði í viðtali við DV í ágúst sl. að birgðastöð- in hefði verið baggi á fyrirtækinu auk þess sem það lægi fyrir að hún hefði orðið að víkja fyrir íbúðabyggð í fram- tíðinni. Einar Einarsson, stýrimaður á Skeiöfaxa, segir ástæðuna fyrir að strandflutningar hafa verið lagðir af og langt að hann sé kallaður Jóakim aðal- önd vegna þess hve leiðinlegt honum þyki að tapa peningum og eyða þeim. Ernir hélt því fram að tilgangurinn með einkaleyfinu á miðlægum gagna- grunni væri ekki byggður á vísindaleg- um granni. Þar hafi Kári Stefánsson félagi hans fyrst og fremst verið að hugsa um sina eigin hagsmuni. Full- yrti hann að þegar deCODE færi á verðbréfamarkað myndu fjárfestar sem upphaflega komu að stofnun þess selja sinn hlut. Eignaraðildin dreifðist þá um víðan völl og Kári næði lykil- stöðu í fyrirtækinu sem stærsti hlut- hafmn. Vinadeila Kári taldi í samtali við DV í vetr- arbyrjun 1998 að upphaf deilna sementið fari framvegis með bílum megi rekja til þess að flutningsjöfnun- arsjóður á sementi borgi meira á hvert tonn flutt með bfl en með skipi. Þannig stuðli ríkið að því með styrkjum að þungaflutningar flytjist frá skipum yfir á bíla. þeirra félaga mætti rekja til þess að hæfileikar Emis rúmuðust ekki auðveldlega innan ÍE. Ernir hefði tekið það nærri sér og talað um að þeir vildu hann ekki innan fyrir- tækisins. Sagði Kári þetta að vissu leyti rangt en líka að vissu leyti rétt. Ernir væri góður maður og góður félagi en þeir hefðu einfald- lega ekki getað komið honum fyrir innan fyrirtækisins. Þannig talar Kári um vinskap þeirra félaganna þrátt fyrir hinar hatrömmu deilur. Það gerir Emir reyndar líka. „Við Kári erum miklir vinir og verðum það alltaf," sagði Ernir síðla árs árið 1998, þegar deilurnar stóðu sem hæst. í dag segir hann enn ekkert lát á vinskapnum af sinni hálfu. Skeiðfaxi var smíðaður á Akranesi árið 1977 og hefur flutt rúmar tvær milljónir tonna af sementi. Hann verð- ur bundinn við bryggju á Akranesi í vetur en fyrirhugað er að skipiö fari til Akureyrar næsta sumar. -aþ Freelander- jeppar innkallaðir B&L, umboðsaðili Land Rover, vinn- ur um þessar mundir að innköllun Freelander-jeppa, en að sögn Atla Vil- hjálmssonar, þjónustustjóra fyrirtæk- isins, er um öryggisráðstöfun að ræða, annars vegar vegna kvartana á annars vegar handbremsulæsingu og hins vegar læsinga á sætisbökum í 3-dyra Freelander. Atli segir líklegt að jeppar með galla í handbremsulæsingu séu í umferð hér á landi. Gallinn lýsir sér þannig að standi bifreiðin í hlutlausum gír, full- hlaðin í halla, geti læsingin gefið eftir. Engar kvartanir hafa borist hér á landi og gerir Atli ráð fyrir að bílamir séu fáir enda af 3-dyra gerð sem hefur lítið selst. Þetta verði hins vegar kann- að til þrautar og um leið og niðurstöð- ur liggja fyrir verða send út ábyrgðar- bréf þar sem viðkomandi bifreiðar verða kallaðar inn til viðgerðar í sam- ráði við eigendur. -NG , Stöð 1: I loftiö innan tíöar Ný sjónvarps- stöð, Stöð 1, hefúr útsendingar í mán- uðinum. Hólmgeir Baldursson, stofn- andi stöðvarinnar, segir að útsending- ar muni hefjast klukkan 8 á kvöld- in og standa til miðnættis. Stöðin verður fjármögnuð með auglýsingatekjum og áskrift ókeypis. Meðal gamalla framhalds- þátta sem verður endurflutt er Löður eða Soap sem RÚV sýndi við miklar vinsældir fyrir tveimur áratugum. Unnið er að uppsetningu stafræns dreifinets fyrir höfuðborgarsvæðið í lofti, auk þess sem tilraunir standa yfir með dreifingu efnis um Internet protocol (ip), adsl og aðra miðla. „Við höfúm trú á því að frítt sjónvarp muni ganga, við stofnuðum á sínum tíma Skjá einn og rákum það fyrirtæki í 2 ár áður en við seldum það. Við sjáum að sú hugmynd virkar gæti menn að- halds og vasist ekki í dýrri dagskrár- gerð. Við viljum frekar að kvikmynda- fyrirtækin komi til okkar með efni og hugmyndir." -DVÓ Málþing RÍ: Þriöji hver unnið við mannúöar- störf Þriðji hver Islendingur hefur unnið mannúðarstörf í sjálfboðavinnu sam- kvæmt könnun Rauða kross íslands. Félagið stendur fyrir ráðstefnu og mál- þingi um sjálfboðastörf á föstudag og laugardag í tilefni af alþjóðlegu ári sjálfboðaliðans. Hún fer fram á Hótel Loftleiðum og er haldin að frumkvæði utanríkisráðuneytisins í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörgu og Bandalag íslenskra skáta. Aðalfyrirlesari verður Katarine Gaskin frá Institute for Volunteering Research í Bretlandi. Hún hefur unnið að rannsóknum á fjárhagslegum ávinningi samfélagsins af sjálfboða- starfi. I rannsókn sem hún gerði fyrir danska Rauða krossinn komst hún að þeirri niðurstöðu að hver ein króna sem færi í umbun og þjálfun sjálfboða- liða færði þjóðfélaginu störf að verð- mæti átta krónur. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna með því að hringja í síma 570 4000 eða fara á vefinn www.redcross.is/radstefna. -MA Sementsflutningar frá Akranesi: Skeiðfaxi skilar síðasta farminum - eftirsjá að siglingunum, segir bátsmaðurinn DV-MYND HARI Skeiöfaxi kveöur Sementsflutningum sjóleiöina frá Akranesi lauk í gær þegar Skeiöfaxi sigldi sína síöustu ferö. Skipiö fer væntanlega til Akureyrar. Hólmgeir Baldursson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.