Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Blaðsíða 24
40
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001
Tilvera
3
Kidman vildi hætta
Ástralska leikkonan Nicole Kidman
upplýsti nýlega að hún hefði farið
fram á það að fá að hætta við hlutverk
sitt í nýjustu mynd sinni „The
Others". Það hefði þó ekkert haft með
fyrrv. eiginmann sinn, Tom Cruise,
að gera, en hann er framleiðandi
myndarinnar. „Það var einfaldlega
vegna þess að ég gat ekki hugsað mér
að fara að leika í hryllingsmynd eftir
ánægjulegan tíma við upptökur á
„Moulin Rouge“. Þegar ég var mætt
á staðinn til æfinga var ég hreinlega
ekki í stuði til að takast á við hlut-
verkið og þegar maður er þannig
stemdur, er betra heima setið. Þess
vegna bað ég um að fá að hætta við,
en þegar á reyndi var þetta allt í
lagi,“ sagði Kidman.
McGregor að
verða pabbi á ný
Þess verður sennilega ekki langt að
bíða að skoski leikarinn Ewan
McGregor verði faðir i annað sinn.
Um daginn sást til hans í búðarápi í
London með eiginkonu sinni, hinni
frönsku Eve, sem er alveg komin á
steypirinn, ef eitthvað er að marka
bumbustærðina. Eve gengur með
stúlkubam í maganum en fyrir eiga
þau hjónin fimm ára stúlku. Ewan
ætlar aö taka sér frí frá kvikmynda-
tökum þegar nýja barnið kemur í
heiminn. Hann veit sem er að flmm
ára börn þurfa á pabba gamla að
halda þegar lítið kríli fær eðlilega alla
athygli móðurinnar.
Pamela hressir
hermennina
Sílikonbomban Pamela Anderson
fékk hjarta amerískra hermanna til
að slá ögn hraðar þegar hún heim-
sótti þá um borð í flugmóðurskip
sem senn heldur áleiðis til
Persaílóa. Þar ætla dátamir að sjálf-
sögðu að taka þátt í hernaðinum
gegn hryðjuverkamönnum í Afg-
anistan.
Pamela gaf hvorki meira né
minna en eitt þúsund eiginhandar-
áritanir um borð í skipinu og einnig
dreifði hún veggspjöldum með eggj-
andi myndum af henni sjálfri.
Hannes lagði Ehlvest á Minningarmótinu:
Lokaslagurinn verður harður
Hannes Hlífar Stefánsson sigraði
eistneska stórmeistarann Jaan
Ehlvest í 7. umferð minningarmóts-
ins um Jóhann Þóri Jónsson. Hann-
es hafði svart og náði yfirhöndinni í
seinni hluta skákarinnar og vann
örugglega. Það stefnir í að Hannes
fljúgi yfir 2600 stiga markið í þessu
móti og aðeins tímaspursmál
hvenær hann kemst í hóp ofurstór-
meistara með yfir 2700 Elo-stig. Get-
an er til staðar. Hannes er nú í efsta
sæti með 51/2 vinning ásamt
Sokolov sem gerði örstutt jafntefli
við Timman og það er ljóst að loka-
slagurinn verður harður! Stutt jafn-
tefli tryggja ekki sigur, það þarf að
berjast. En það geta þeir víst allir,
meistararnir. Jón Viktor Gunnars-
son, Helgi Ólafsson og Friðrik Ólafs-
son sigruðu allir í sínum viðureign-
um og eru í 6.-12. sæti með 41/2
vinning. Stórmeistararnir Peter
Heine Nielsen (Danmörku), Jan
Timman (Hollandi) og Jonny Hector
(Svíþjóð) eru f 3.-5. sæti með 5 vinn-
inga. Jón Viktor sigraði Þröst Þór-
hallsson, Helgi sigraði Finnann
Tomi Nyback og Friðrik sigraði
Ingvar Þór Jóhannesson í mjög æsi-
legri skák. Þetta var fyrsta tapskák
Ingvars sem hafði unna stöðu en lét
meistara Friðrik snúa á sig í tíma-
hraki.
Hvítt: Jaan Ehlvest (2626).
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
(2675).
Spánski leikurinn. Minningarmót
Jóhanns Þóris. Reykjavík (7),
30.10.2001.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7.
Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Rb8 10. d4
Rbd7 11. Rbd2 Bb7 12. Bc2 He8
13. Rfl BfB 14. Rg3 g6 15. a4 c5 16.
d5 c4 17. Bg5 h6 18. Be3 Rc5 19.
Dd2 h5. Svona tefldi Boris Spasskij
fyrst fyrir um 20 árum og þykir
ágætt í dag. Hvítur þykir hafa að-
eins betri stöðu en staða svarts er
traust. 20. Bg5 Be7 21. Bh6 Rh7
22. Rfl Hb8 23. Ha3 Bc8 24. Be3
Bf6 25. Heal Dc7 26. axb5 axb5
27. De2 Bd7 28. Rld2 Hb7. Hvítur
leggur ekki í neinar aðgerðir á
kóngsvæng eins og venjan er. Lík-
lega hefur Ehlvest ekki munað al-
veg hvernig Anatolij Karpov fór illa
með Spasskij í Bugojno 1981 í gömlu
Júgóslavíu og ekki viljað hætta á
Hannes Hlífar Stefánsson í Ráðhúsinu í gær
Er aö komast í hóp bestu skákmanna í heiminum í dag. Hannes tefldi viö Jan Timman í gær.
má þróa áfram. Ehlvest kiknar und-
an þunganum í taflmennsku Hann-
esar! 41. h4 Be7 42. Rg5 Dcl+ 43.
Rfl Dxe3 44. Rxe3 Bxg5 45. hxg5.
Og nú fellur fyrsta peðið! 45. -
Rh7 46. Bc2 Bb5 47. Hd8 Hb6 48.
f3 Rxg5 49. Kf2 h4 50. g3 hxg3+
51. Kxg3 Be2 52. f4 exf4+ 53. Kxf4
RÍ3 54. Ba4 Re5 55. Bc6 Hb3 56.
Hxd6.
Og nú fellur maður óbættur
eftir næsta litla leik! Vel teflt hjá
Hannesi! 56. -f6 57. Bd7 g5+ 58.
Kg3 Hxe3+ 59. Kf2 Hxe4 0-1.
Sævar
Bjarnason
skrifar um
skák
neitt. 29. b4 cxb3 30. Rxb3 Ra4 31.
Bd2 Rxc3 32. Bxc3.
I é
XWi. A 4
’ A il
▲ a k k
A
X&Jl to Á
k W A A
s *
Hannes sér við meistara Ehlvest
og sneiðir hjá gildrunni 32. Dxc3 33.
Ra5! en leggur inn lítinn millileik!
32. -b4 33. Bxb4 Hxb4 34. Ha7 Hb7
35. Hxb7 Dxb7 36. De3 Hb8 37.
Rbd2 Dc7 38. Ha7 Hb7 39. Ha8+
Kg7 40. Ba4 RfB. Svartur hefur
biskupaparið og trausta stöðu sem
DV+1YNDIR ELMA GUÐMUNDSÐÓTTIR.
Góð skemmtun
Þaö var virkilega gaman á evróvisjón í Neskaup-
staö.
Ólsenbræður
Og hér eru svartklæddir íslenskir Ólsenbræöur aö
verki, forseti bæjarstjórnar, Smári Geirsson, ásamt
Helga Magnússyni.
Vertinn á sviði
Hér má sjá Guömund R. Gíslason, vertinn í Egils-
búö, á sviöinu ásamt Helga Georgssyni - mikil
sveifla í gangi og jakkarnir litfagrir.
Fyrsti dagur vetrar er evróvisjóndagur í Neskaupstað:
Stemningin með ólíkindum
Fyrsti snjór vetrarins fylgdi alman-
akinu og kom fyrsta vetrardag en það
er nokkuð létt yfir fólki engu að síður.
Til þess sjá meðal annarra félagar í
Brján, Blues, Rock og Jazzklúbbi Nes-
kaupstaðar og stjómendur Egilsbúðar
með enn einni rokkveislunni sem að
þessu sinni er kennd við Evróvisjón.
Þessar uppákomur hafa verið tengdar
vetrardeginum fyrsta nú í allmörg ár
og hefur hver skemmtun sitt þema.
Þessi tólfta rokkveisla færði okkur
innlend og erlend evróvisjónlög sem
hafa sigrað og líka hin sem sungu sig
inn í hjörtu landsmanna. Þrír evró-
visjónfarar tóku þátt i
sýningunni, Einar
Bragi Bragason, Hulda
Geirsdóttir og Kristján,
sá sem síðast söng fyrir
íslands hönd.
Stemningin i húsinu
var með ólíkindum og
allt ætlaði um koll að
keyra þegar La’ det
svinge hljómaði og
Abba steig á svið. Hver
flytjandinn var öðrum
betri og enn einu sinni
fór forseti bæjarstjóm-
ar Fjarðabyggðar, Smári Geirsson, á
kostum.
Til marks um vinsældir þessara ár-
legu skemmtana kom fólk alla leið
norðan frá Sauðárkróki og sunnan frá
Breiðdalsvík til að skemmta sér og var
ekki annað að sjá en að þeim líkaði hið
besta. Var þar um að ræða starfsmenn
Landsbanka íslands og maka. Um 30
manns tóku þátt í sýningunni og kynn-
irinn, Jón Björn Hákonarson, fór á
kostum eins og hans er von og vísa.
í fyrra var sett upp Las Vegas-veisla
og áður hafa verið m.a. kántrýkvöld og
stríðsáralög. Þessar skemmtanir eru
stórglæsilegar og sýningar eru sjaldn-
ast færri en fimm, alltaf fyrir fullu
húsi, auk þess sem tvær sýningar eru
jafnan íyrir jólagestina og unga fólkið
í bænum. -Eg
Hollensk Ekta evró ...
Súsanna frá Hollandi var engri lík í túlkun sinni. Hér sjáum viö Huldu Geirsdóttur,
raunverulegan evróvisjónfara, hún
var í bakröddum í Noregi um áriö.